Dagur - 28.03.1990, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 28. mars 1990 - DAGUR - 11
Launasjóður rithöfunda:
103 hlutu starfslaun
Lokið er úthlutun starfslauna
úr Launasjóði rithöfunda fyrir
árið 1990.
I lögum og reglugerð sjóðs-
ins segir að árstekjum hans
skuli varið til að greiða íslensk-
um rithöfundum starfslaun
samsvarandi byrjunarlaunum
menntaskólakennara. Þessi
laun eru nú kr. 70.950 á mán-
uði.
Starfslaun eru veitt samkvæmt
umsóknum. Höfundur sem sækir
um og hlýtur starfslaun til þriggja
mánaða eða lengur skuldbindur
sig til að gegna ekki fastlaunuðu
starfi meðan hann nýtur starfs-
launa. Tveggja mánaða starfs-
laun má veita vegna verka sem
hafa birst á næsta almanksári á
undan og þeim fylgir ekki kvöð
um að gegna ekki fastlaunuðu
starfi.
Alls bárust stjórninni að þessu
sinni umsóknir frá 181 rithöf-
undi. Sóttu þeir um 944 mánað-
arlaun auk mánaðarlauna til
ótiltekins tíma sem 8 þeirra sóttu
um. Fjárveiting til sjóðsins nam
sem svarar 326 mánaðarlaunum
en það er 11 mánaðarlaunum
færra en úthlutað var sl. ár.
Starfslaun til sex mánaða hlutu
að þessu sinni 13 höfundar, fimm
mánaða starfslaun hlutu 5
höfundar, fjögurra mánaða
starfslaun hlutu 12 höfundar,
þriggja mánaða starfslaun hlutu
29 höfundar og tveggja mánaða
starfslaun hlutu 44 rithöfundar.
Alls hefur því verið úthlutað
starfslaunum til 103 rithöfunda.
Öllum umsóknum hefur verið
svarað og skrá um úthlutun verið ^
afhent menntamálaráðherra.
AKUREYRARBÆR
TILBOÐ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í smíði á 2
færanlegum kennslustofum.
Útboðsgögn verða afhent á byggingadeild Akur-
eyrarbæjar, Kaupangi v/Mýrarveg frá kl. 10.00
miðvikudaginn 28. mars n.k. gegn 2000 kr. skila-
gjaldi.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 3. apríl n.k. kl.
11.00 á sama stað, að viðstöddum þeim bjóðend-
um sem þess óska.
Ný bók um
sólargeislun
á Íslandi
Út er komin ný bók er nefnist
Orkan kemur frá sólinni eftir
Birgi G. Frímannsson, verkfræð-
ing. I bókinni, er ber undirtitilinn
Sólargeislun á íslandi, er í fyrsta
sinn gerð grein fyrir áhrifum
geislunar frá sólinni hér á landi í
auðskildu og samanþjöppuðu
máli.
Auknar vinsældir glerþaka og
margskonar yfirbygginga úr gleri
eða plasti gera þá kröfu á hendur
hönnuðum, byggingaraðilum og
öðrum er slíkum mannvirkjum
tengjast, að reikna út áhrif sólar-
ljóss. Fram til þessa hefur verið
stuðst við upplýsingar erlendis
frá er einungis gefa til kynna
geislun í heiðskíru veðri. Þar
sem heiðskírir dagar eru aðeins
um 1,5 að meðaltali í mánuði
hérlendis eru töflur erlendis frá
ófullnægjandi.
í bókinni er að finna töflur er
sýna geislunina fyrir hverja
klukkustund 15. hvers mánaðará
átta lóðrétta fleti aðaláttanna og
á láréttan flöt. Samsvarandi töfl-
ur sýna ennfremur heildargeisl-
unina gegnum gler 15. dag mán-
aðar þegar flötunum er hallað um
90, 75, 60, 45, 30, 15, eða 0 gráð-
ur frá láréttu.
Til hægðarauka eru teiknaðir
ferlar fyrir alla þessa fleti (49 alls)
er sýna sólargeislunina í wh/fm
fyrir hvern mánuð, bæði í heið-
skíru veðri og við ríkjandi
skýjafar hérlendis án glers eða
gegnum gler. Loks er gerð ítarleg
grein fyrir gundvelli útreikning-
anna og 15 veðurathugunarstöðv-
ar bornar saman við Reykjavík.
Bókin er seld í góðri plast-
möppu og kostar 2.000 kr. Dreif-
ingu annast Almenna bókafélag-
ið.
„Snillingarnir“:
Djass og blús
í Sjallanum
Fimmtudaginn 29. mars verður
sannkölluð djass- og blúsveisla í
Sjallanum. Þar korria fram „Snill-
ingarnir" og eru þar engir aukvis-
ar á ferð eins og sjá rná af þessari
upptalningu:
Pálmi Gunnarsson (bassi),
Rúnar Georgsson (saxófónn),
Magnús Eiríksson (gítar),
Sigurður Reynisson (trommur),
Karl Sighvatsson (orgel), Eyþór
Gunnarsson (hljómborð) og Ell-
en Kristjánsdóttir (söngur).
Húsið verður opnað kl. 20.30
og stendur djass- og blúsveislan
til kl. 01.00.
HAFP
, MtÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS
ISLANDS
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 18.000.000,
DREGIÐ VERÐUR FÖSTUDAGINN 6. APRÍL 1990.
'fíSlgSi