Dagur - 28.03.1990, Qupperneq 12
Akureyri, miðvikudagur 28. mars 1990
Kodak
Express
Gæöaframkollun
^★Tryggðu filmunni þinni
SSkx i_ _ n -cr
y%esta ^PedíSmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Meleyri hætti við kaup á raðsmíðaskipi Slippsins:
Enn þarf að leita að
nýjum kaupanda
„ákvörðunin kom ekki á óvart,“ segir Sigurður Ringsted
Meleyri hf. á Hvammstanga
tilkynnti Slippstöðinni á Akur-
eyri í gær þá ákvörðun stjórnar
fyrirtækisins, frá í fyrradag, að
Þrotabú Árlax:
Samningur
í bígerð um
sölu eigna
Líklega verður kaupsamning-
ur milli Fiskveiðasjóðs
íslands og Byggðasjóðs ann-
ars vegar og þrotabús fiskeld-
isstöðvarinnar Árlax í Keldu-
hverfi hins vegar, um kaup
sjóðanna á eignum búsins
öðrum en fiski, undirritaður í
næstu viku.
Eitt tilboð í eignirnar kom
fram á skiptafundi í þrotabúi
Árlax sem haldinn var fyrir
skömmu. Tilboðið frá sjóöun-
um tveimur hljóðaði upp á 116
milljónir króna.
Viðræður hal'a einnig verið í
gangi milli búsins og Samvinnu-
bankans en bankinn átti tilboð í
fiskinn á skiptafundinum. Ör-
lygur Hnefill Jónsson, bústjóri
þrotabúsins, segir að niðurstaða
í þessum viðræöum ætti einnig
að liggja fyrir í næstu viku, en
takist þessi sala lýkur skiptum
þrotabús Árlax. JÓH
Vatnsnes:
Langvarandi
ófærð
- snjóbíll sér um
mjólkurflutninga
Mikil ófærð hefur verið á
Vatnsnesi undanfarnar vikur.
Vegagerðin hefur gefist upp
við að reyna að halda vegin-
um opnum. Djúp snjógöng
hafa fyllst um leið og mokað
hefur verið. Félagar í Björg-
unarsveit Slysavarnafélagsins
Káraborgar hafa sótt mjólk
til bænda á snjóbíl.
Ófært er frá bænum Kára-
stöðum og allir bæir utar á nes-
inu eru einangraðir. Kárastaðir
eru um þrjá kílómetra frá
Hvammstanga. Snjóbíllinn,
sem björgunarsveitin rekur,
hefur reynst Vatnsnesingum hiö
mesta þarfaþing í vetur. Fyrir
skömrnu brann yfir raforku-
spennir í Hinriksvík á Vatns-
nesi. Fluttu björgunarsveitar-
menn nýjan spenni á staðinn og
var Vatnsnesingum kærkomið
að fá rafmagn aftur í hús sín.
Menn eru orðnir langþreyttir
á langvarandi ótíð og um-
hleypingum í Vestur-Hún-
avatnssýslu eins og víðar.
„Þetta er búinn að vera helvítis
barningur, inenn vona aö þetta
fari að skána,“ sagði Sigurður
Eiríksson verkstæðismaður á
Hvammstanga. kg
hætta við öll áform um kaup á
raðsmíðaskipi stöðvarinnar.
Enn á ný þarf því að leita að
nýjum kaupanda að þessu
skipi en liðnir eru 10 mánuðir
frá því fyrst var undirritaður
kaupsamningur um skipið.
Bjarki Tryggvson, fram-
kvæmdastjóri Meleyrar á
Hvammstanga, segir að menn
hafi ekki verið tilbúnir til að
halda áfram þrautargöngunni í
sjóðakerfinu. „Ef málið hefði
gengið í gegn eðlilega þá hefðum
við verið að taka 'við skipinu
núna. Málið er búið að dragast í
fjóra mánuði og við erum hættir
að hugsa um öll skipakaup í bili,“
sagði Bjarki.
Liður í áformum Meleyrar var
sala á skipinu Glað og hefur skip-
ið þegar verið selt til Bíldudals.
Bjarki segir að ekkert verði að-
hafst í kaupum á öðru skipi í þess
stað að sinni.
Sem kunnugt er samþykkti
Fiskveiðasjóður fyrir skömmu að
lána Meleyri til skipakaupanna
gegn 20% hlut í afla. Sigurður
Ringsted, forstjóri Slippstöðvar-
innar, segir að þessi ákvörðun
Meleyrarmanna hafi ekki komið
sér á óvart. „Þetta hefur verið að
gerjast allt frá afgreiðslu Fisk-
veiðasjóðs. Okkar bíður að sjálf-
sögðu að leita að nýjum kaup-
anda að skipinu. Maður fer að
horfa í kringum sig,“ segii
Sigurður.
í hönd fara sumarverkefni
Slippstöðvarinnar og því segir
Sigurður ekki ástæðu til upp-
sagna vegna þessa máls. „Við vit-
um að það er nóg að gera í sumr-
in hvað sem síðan verður í
haust,“ bætti Sigurður við. JÓH
„Er ekki alveg örugglega hægt að fljúga þessu tæki?“
Mynd: KL
Nokkrir bæir í Bárðardal einangraðir vegna fannfergis:
Dýrmætir mjólkurlítrar í svelgiim sökum ófærðar
- Vegagerð ríkisins áætlar mokstur í vestanverðum dalnum
„Mjólkinni hefur verið hellt
niður einu sinni hér á nokkrum
bæjum. Hér á Sandhaugum er
eingöngu kúabú þannig að
þetta er verulegt tjón. Hingað
eru engar ferðir og þar af leið-
andi enginn póstur. Og það
versta er að nú er ekkert gert
til að bæta úr þessu ástandi,“
sagði Sigurður Eiríksson á
Sandhaugum í Bárðardal en
sökum ófærðar eru nokkrir
bæir í vestanverðum dalnum
einangraðir og hefur svo verið
um skeið.
Sigurður segir að mun oftar
hafi verið mokað í austanverðum
dalnum en vestanverðum. Hann
segir að um sé að ræða svo mikið
magn af mjólk að illmögulegt sé
að flytja hana um langan veg
öðruvísi en með bílum.
„Þetta er mjög alvarlegur hlut-
ur en það virðist ekki vera að
Vegagerðin viti af þessu ástandi.
Með þessu áframhaldi þá býst ég
ekki við að hér verði orðið fært
fyrr en á Jónsmessu, það verða
þá máttarvöldin frekar en Vega-
gerðin sem fjarlægja snjóinn,"
sagði Sigurður.
Svavar Jónsson hjá Vegagerð
ríkisins á Húsavík sagði að líkur
væru á að nú yrði hafist handa við
mokstur í vestanverðum Bárð-
ardal. „Nú stendur til að reyna að
komast fram dalinn að vestan-
verðu. Þar er mun meiri snjór
heldur en að austanverðu og
menn gáfust upp á að reyna að
fara undan mjólkurbílnum með
snjóplóg. Hér er alls staðar mikill
snjór á svæðinu en fannfergið
varð strax mjög mikið í Bárðar-
dalnum,“ sagði Svavar. JÓH
Hvammstangi:
Rækjubáturimi
Geisli seldur
- útgerðarfélagið í Qárhagserfiðleikum
Útgerðarfélag Vestur-Hún-
vetninga hefur tekið þá
ákvörðun að selja rækjubátinn
Gagnfræðaskóli Akureyrar:
Tilraun með kynskiptar
deildir í undirbúningi
- stúlkna- og piltadeildir í 7. bekk næsta haust
Gagnfræðaskóli Akureyrar
ætlar að gera tilraun með kyn-
skiptar deildir í 7. bekk næsta
haust og hefur fengið styrk úr
Þróunarsjóði grunnskóla í því
skyni, eins og við höfum greint
frá. Ef að líkum lætur verða
alls sex deildir í 7. bekk, tvær
stúlknadeildir, tvær fyrir pilta
og tvær blandaðar. Þessi til-
raun er til eins árs en ef árang-
urinn lofar góðu má búast við
að nemendum 7. bekkjar verði
áfram skipt í deildir eftir kyn-
ferði.
Að sögn Baldvins Bjarnason-
ar, skólastjóra Gagnfræðaskól-
ans, hafa verið ráðnir tveir
umsjónarmenn með þessu verk-
efni, þau Kristján Magnússon,
skólasálfræðingur, og Valgerður
Bjarnadóttir, félágsráðgjafi.
Kristján hefur unnið að hliðstæð-
um verkefnum í Danmörku um
fimm ára skeið.
í tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu kom fram að styrk-
urinn væri veittur vegna tilraunar
með sérstaka stúlknabekki í
tengslum við athugun á sjálfs-
mynd og sjálfsöryggi stúlkna í 7.
bekk. Baldvin segir að tilgangur-
inn sé einnig sá að kanna náms-
árangur nemenda í bekknum í
ljósi þessarar skiptingar.
Um þessar mundir er verið að
kynna tilraunina fyrir foreldrum
barna í 6. bekk, þ.e. þeirra barna
sem koma til með að taka þátt í
verkefninu. í bréfi sem sent verð-
ur til foreldra segir meðal annars:
„Ætlunin með verkefninu er sú
að kanna hvort hægt er með
aðskilnaði kynjanna að bæta
námsárangur nemenda með því
að styðja við sérkenni hvors kyns
í viðhorfum til náms, námsefnis,
verkefnavals, vinnubragða o.þ.h.
og nýta kostina við að vinna með
nemendur af sama kyni. Jafn-
framt því að unnið verður úr erf-
iðleikum sem kunna að verða
þessu samfara."
Baldvin kvaðst ekki búast við
óánægju hjá nemendum þótt
gerð yrði tilraun með stúlkna- og
piltabekki. „Krakkarnir hittast
alltaf í frímínútum og piltarnir
ættu ekki að gleyma hvernig
stúlkurnar líta út, né öfugt, þótt
kynin verði aðgreind í bekkjar-
deildum,“ sagði Baldvin. SS
Geisla HU 37. Geisli er rúm-
lega hundrað tonn smíðaður
árið 1983 í Svíþjóð. Geisli hef-
ur 402 tonna bolfiskkvóta og
43 tonna rækjukvóta. Báturinn
verður seldur til aðila í Vest-
mannaeyjum.
Útgerðarfélag Vestur-Hún-
vetninga var stofnað um kaupin á
Geisla árið 1987. Verulegar
breytingar voru gerðar á bátnum.
Þær tóku lengri tíma og kostuðu
meira heldur en ráð var fyrir
gert. Ekki er rekstrargrundvöllur
fyrir Geisla með þann kvóta sem
hann hefur nú.
„Það er betra að selja bátinn
áður en skuldirnar verða óvið-
ráðanlegar. Við töpum einhverju
fé, en hversu miklu er of snemmt
að segja,“ sagði EiríkurTryggva-
son stjórnarformaður Útgerðar-
félags Vestur-Húnvetninga.
Upphaflegt kaupverð Geisla
var 79 milljónir. Útgerðarfélagið
er illa statt og alveg óvíst hvort
nýr bátur verður keyptur.
Fleiri bátar verða seldir frá
Hvammstanga. Meleyri hefur
sett tvo báta á söluskrá og auk
þess hafa fleiri aðilar auglýst
báta. Ef af sölu þessara báta
verður má búast við að atvinnu-
leysi verði hjá sjómönnum á
Hvammstanga. kg