Dagur - 05.04.1990, Side 7
Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 7
„Ég er ánægð að fá bara fyrir efninu
Sísí á Húsavík:
Blómamyndir á Billiardstofu
Atvinnuleysi hefur verið að
stinga fastar niður fótum í
vetur, en fólk í þessum lands-
fjórðungi á að venjast. En það
er ákaflega misjafnt hvernig
þolendur þess bregðast við.
Sumir sem missa vinnu sína og
fá ekki annað starf leggjast í
þunglyndi, aðrir leggjast við
sjónvarpið, enn aðrir leggjast í
barneignir, sem þeir máttu
ekki vera að því að sinna áður,
sumir drífa sig í námið sem
þeir áttu eftir að Ijúka. Sísi fór
að mála myndir.
Sigríður Sigurjónsdóttir á
Húsavík er búin að vera atvinnu-
laus síðan í haust. Pað á ekki við
hana Sísí að sitja auðum höndurn
og hún hefur málað fjölda
mynda að undanförnu, mýnda
sem hún vill kalla veggspjöld, eru
eftirsóttar og prýða nú þegar
fjölda heimila á Húsavík og
víðar.
Sísí hefur sótt tvö myndlistar-
námskeið og hugmyndaflugið
skortir hana ekki. Það er ekki í
fyrsta sinn í vetur sem hún gerir
ýmiskonar myndir og skreytingar
en nú gefst betri tími til slíkra
hluta en oft áður.
Að undanförnu hefur Sísi
haldið tvær óformlegar sýningar
á myndum sínum, fyrst í kaffi-
stofu Fiskiðjusamlags Húsavíkur
og síðan hjá Gerði á Billiardstof-
tM* t
%:
,..................................................................................... * ;
Nokkrar mynda Sísíar á hinni óformlegu sýningu.
unni, og myndirnar renna út eins
og heitar lummur, enda verðlagið
ekki hátt. „Það eru margir að
tuða yfir lágri verðlagningu við
mig, en mér finnst rneiri list að
prjóna lopapeysur heldur en að
gera þessar myndir. Allir vita að
prjónakonur fá rétt fyrir garninu
og sáralítið fyrir vinnu sína, svo
ég er ánægð að fá bara fyrir efn-
inu,“ sagði Sísí í viðtali við Dag.
Sísi var spurð um tildrögin að
því að hún fór að koma myndun-
um sínum á frantfæri. Hún sagði
að í haust hefði bróðir sinn flutt í
bæinn og haft yfir að ráða heil-
miklu af auðum veggjum, hún
hefði þvi' farið að færa honum
myndir og fljótlega hefði hann
verið búinn að fá nóg og farið að
hvetja sig til að konta ntyndunum
á frantfæri víðar. Nokkrar mynd-
ir hefðu verið sendar suður í
Kolaportið og selst, og þar með
var kontin kveikjan að því að
þetta væri hægt.
Margar myndanna sem notið
hafa mestra vinsælda kaupend-
anna eru blómamyndir, og sagði
Sísí að ekki veitti af að fólk fengi
svolítið af birtu og blóntum í til-
veruna, í öllum þessum snjó. Ja,
það væri ekki leiðinlegt að takast
á við tilveruna ef allir væru jafn
jákvæðir og litaglaðir og Sigríður
Sigurjónsdóttir, hvort sem þeir
væru með eða án atvinnu þá
stundina. 1M
FRAMHALDS-
AÐALFUNDUR
í samræmi viö ákvörðun aöalfundar Eignar-
haldsfélagsins Iðnaðarbankinn hf., sem
haldinn var hinn 17. janúar s.l., er hér með
boðað til framhaldsaðalfundar í félaginu,
sem haldinn verður í Súlnasal Hótel Sögu,
Reykjavík, hinn 25. apríl n.k. og hefst kl.
16.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. ákvæðum greinar4.06.
í samþykktum félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
íslandsbanka, Lækjargötu 12, 2. hæð, frá 18.
apríl n.k. Ársreikningur félagsins, ásamt til-
lögum þeim, sem fyrir fundinum liggja,
verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir
fundinn, þurfa að hafa borist stjórn félagsins
í síðasta lagi 17. apríl n.k.
Stjórn Eignarhaldsfélagsins
Iðnaðarbankinn h.f.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
kfarfmjft stááoátyM viMur d NorMmdi,
m ttú þ fm od mb stöastw é iáa jidtt í fessum
sttersta Bófomtar^aði sem fiaíi^rirt ft^ur verið norttot háh
Aídrá 6ctratiÖwð á dmtókum bókrn, bókapöfáum 05 riteöfttum
Stóri tófoimaiMirimi «,1**»
Gfa'drqatu 32 • -Smu 96-23262 Nitq bak V& ftúsið