Dagur - 05.04.1990, Qupperneq 11
Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 11
Leikhópurinn æfir lokasönginn. Tónlist í leikritinu er eftir Árna Hjartarson en bróðir hans, Kristján Hjartarson,
bóndi á Tjörn í Svarfaðardal (lengst til hægri), spilar undir á gítar.
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir annað kvöld í Ungó:
„Sveitaþriller“
með rómantísku ívafi
Leikfélag Daivíkur frumsýnir
annað kvöld í Ungó á Dalvík,
föstudagskvöldið 6. apríl, kl.
21 rammíslenskt leikrit, „Um
hið átakanlega, sorglega og
dularfulla hvarf ungu brúð-
hjónanna Sigríðar og Indriða
daginn eftir brúðkaupið og
leitina af þeim.“ Höfundar
þessa leikrits, sem trúlega ber
einn lengsta titil er uin getur í
íslcnskri leiklistarsögu, eru
Ingihjörg Hjartardóttir (Hjart-
ar E. Þórarinssonar á Tjörn í
Svarfaðardal), Sigrún Óskars-
dóttir, Unnur Guttormsdóttir
og Hjördís Hjartardóttir.
Leikstjóri er Jakob Bjarnar
Grétarsson.
„Um hið átakanlega ..." var
sérstaklega skrifað fyrir leikara í
áhugaleikhópnum Hugleik í
Reykjavík, en höfundar hafa gef-
ið leyfi til að strika í handritið og
laga að þörfurn hópsins. „Breytt-
ur hópur kallar á ákveðnar breyt-
ingar í handriti,“ sagði Jakob
Bjarnar, þegar Dagur hafði tal af
honunt í stund milli stríða á
æfingu í Ungó í vikunni.
Æfingar á verkinu hófust um
miöjan febrúar og því hefur æf-
ingatörnin verið stíf, eins og
gjarnan vill verða hjá áhuga-
leikhópum. Jakob Bjarnar segir
að æfingar hafi gengið vel, þegar
á æfingatímann hafi liðið hafi
hópurinn orðið samstilltari með
hverjum deginum og vonandi
skili öll sú vinna sem fólk hafi
Iagt á sig í góðri sýningu.
Að sögn leikstjórans er leikrit-
ið rammíslenskt. Sveitaróman-
tíkin í öllu sínu veldi sé eins og
rauður þráður í gegnum verkið
Jakoh Bjarnar Grétarsson, leik-
stjóri, scgir sínu fólki til.
með ýmsum kynlegum útúrdúr-
um. „f>að mætti kannski skil-
greina verkið sem sveitaþriller
með rómantísku ívafi," sagði
Jakob Bjarnar. „Leitin er þunga-
miðjan," útskýrir hann, „og hún
varpar ljósi á innræti leitar-
manna,“ bætir hann við.
Jakob Bjarnar er ungur Hafn-
firðingur og hefur verið í
nántunda við leiklistina frá því
hann var polli. Hann hefur tekið
þátt í fjölda skólasýninga í Hafn-
arfirði og hjá Leikfélagi Hafnar-
fjarðar. Þá hefur Jakob Bjarnar
unnið mikið við aðstoðarleik-
stjórn í Þjóðlcikhúsinu og Iðnó
og nú síðast leikstýrði hann Fúsa
froskagleypi hjá Lcikklúbbnum
Sögu á Akureyri.
Leikendur í „Unt hið átakan-
lega . . . “ eru 14, bæði gamlir
„refir“ í leiklistinni og leikarar að
stíga sín fyrstu fjalarskref. Bald-
vin Magnússon leikur nú aftur
með Leikfélagi Dalvíkur eftir 24
ára fjarveru. Aðrir leikendur eru
Steinþór Steingrímsson, Albert
Ágústsson, Helga Stefánsdóttir,
Bit kir Bragason, Arnar Símonar-
son, Helga Björk Eiríksdóttir,
Yrsa Hörn Helgadóttir, Sigur-
björn Hjörleifsson, Emelía
Sverrisdóttir, Jóna Ragúels, Sig-
ríöur Guömundsdóttir, Borghild-
ur Guðmundsdóttir og Ylva Mist
Helgadóttir. Um undirleik sjá
Daníel Hilmarsson og Kristján
Hjartarson, en tónlist í sýning-
unni er eftir Árna Hjartarsson
(frá Tjörn í Svarfaðardal).
Unt lýsingu sjá þeir Kristján
Hjartarson og Árni Björnsson,
leikmynd hönnuðu Kristján
Hjartarson og Jakob Bjarnar
Grétarsson, búninga hönnuðu
Þórunn Þórðardóttir, Björk Ott-
ósdóttir og Guðlaug Björnsdótt-
ir. Förðunarmeistari er Kristjana
Arngrímsdóttir, um leikhljóð sér
Einar Arngrímsson, Elín Gunn-
arsdóttir sér um hárgreiðslu og
aðstoðarleikstjóri og sýningar-
stjóri er Sigríður Huld Jónsdótt-
ir.
Frumsýning er eins og áður
segir annað kvöld kl. 21, en
næstu sýningar verða á laugar-
daginn 7. apríl, mánudaginn 9.
apríl og þriðjudaginn 10. apríl.
Allar sýningarnar hefjast kl. 21 í
Ungó. Þetta eru einu sýningarnar
fyrir páska. óþh
„Ja, disse kager smager utrolig godt...“ Arnar Símonarson bregöur sér í
gervi danskrar frúar og fer létt með það. Myndir: óþh
Þtö gerið betrí
matarkaup
ÍKEANETTÓ
Blanda 0,2 I. 30
Kókómjólk 1/4 I. 38
Flóru kakó 400 gr. 170
Flóru kakókvikk 500 gr. 181
Tilboð:
Sanitas gosdrykkir
Appelsín 11/2 I
Appelsín 2 I
Pepsí 11/2 I
Pepsí 2 I
Maltöl 1/2 I
Athugið opið virka daga frá kl. 13.00-18.30.
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00.
KynnSst NEITTÓ-VGrði
£& KEA NETTÓ
MrT f#ö/dali#id W
_________ r
Muniö afmælistilboðið á myndavélum,
Kodakmyndböndum og Kodakfilmum.
Við tökum gæðin
fram yfir hraðann.
Hafnarstræti 98, sími 23520 Hofsbót 4, sími 23324
GÆDA FRAMKOLL UN