Dagur - 05.04.1990, Síða 13

Dagur - 05.04.1990, Síða 13
□ St.: St.: 5990457 VHI° 3 Akurcyrarprestakull. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag fimmtudag kl. 17.15. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Bingó - Bingó. Bingó sunnudaginn 8. þ.ni. kl. 3.30 e.h. í félagsheimili Templara, yfir anddyri Borgarbíós. Glæsilegir vinningar, ss: Kjötskrokkur, rúmföt, hnífapara- sett, úttekt í Eyfirskum matvælum, o.fl. o.fl. I.O.G.T. Takið eftir Al-Anon fjölskyldudcildirnar eru félagsskapur ættingja og vina alkoholista. sem samhæfa reynslu sína. styrk og vonir svo að þau megi leysa sameiginleg vandamál sín. Við trúum að alkoholismi sc l'jöl- skyldusjúkdómur og að breytt við- horl’geti stuðlað að heilbrigði. Við hittumst í Strandgötu 21: Mánud. kl. 21.00. uppi. Miðvikud. kl. 21.00. niðri. Miðvikud. kl. 20.00. Alateen (ungl- ingar). Laugard. kl. 14.00. uppi. Vertu velkomin(n)! Söfn ' Minjasafnið á Akureyri. Opið á sunnudögum frá kl. 14.00- 16.00. Náttúrugripasafniö Hafnarstræti 81. Sýningarsalurinn er opinn á sunnu- dögum kl. 1-4. Opnaö fyrir hópa eftir samkomulagi í síma 22983 cða 27395. Árriað heilla Margrét Magnúsdóttir Víðimýri 16, verður sextug í dag fimmtudag 5. apríl. Margrét er eiginkona Boga Péturs- sonar sem lengi hefur starfað á Ástjörn. Hún verður heima á afmælisdaginn. Athugið Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöldum stöðuni: Hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skarðshlíð 16 a, Guðrúnu Sigurðardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni), Judith Sveinsdóttur Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð, versluninni Bókval, í Glerárkirkju hjá húsverði, Blómahúsinu Glerár- götu, Bókabúð Jónasar og Blóma- búðinni Akri Kaupangi. Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást bjá: Pedromyndum Hafnarstræti 98. Sig- ríði Freysteinsdóttur Þingvallastræti 28. Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð 17. Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól- borgar, selur minningarspjöld til stuönings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð Jónasar. Möppudýrinu í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Vélsleðar Nýir ★ Notaðir Hagstæð greiðslukjör Höldursf. Bílasala Sundlaugin við Glerárskóla: Ekki hægt að kenna Sjöfo um skemmdimar á gólfefiiinu - segja forráðamenn Sjafnar Sundlauginni við Glerárskóla verður lokað á föstudaginn og verður hún lokuð í sex daga, eins og áður hefur komið fram. Tíminn verður m.a. notaður til að leggja gólfefni á svalir í sundlaugarhúsinu, en það var eftir. Samkvæmt upplýsingum frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Ak- ureyri veitir ekki af fjórunt til fimm dögunt til að leggja gólfefn- ið, en skilyrði til þess að það sé hægt er að laugin sé lokuð og engin almenningsumferð um hús- ið. Sérhæfðir starfsmenn á vegunt Sjafnar sjá unt lagningu efnisins, sem er með afbrigðum slitsterkt og þolir vel aðstæður eins og þær sent eru í sundlaugarhúsinu. í frétt í Degi sl. þriðjudag segir að gera þurfi við gólfefni sem lagt var áður en sundlaugin var opn- uð. Starfsmenn Sjafnar benda á að þetta sé ekki vegna neins galla í gólfefninu sjálfu, heldur megi rekja það til annarra orsaka sent Sjöfn geti ekki borið ábyrgð á, að raki hafi náð að komast undir gólfefnið ogskentma það á bletti. EHB „Skólinn og umhverfið“: Opin vika í Glerárskóla Nú stendur yflr OPIN VIKA í Glerárskóla á Akuréyri og taka allir bekkir skólans þátt í henni. Fríða Pétursdóttir kennari í Glerárskóla var spurð nánar um þessa OPNU VIKU sem hófst 2. apríl og stendur til 6. apríl og ber yfir- skriftina; „Skólinn og um- hverfið.“ Fríða sagði að fyrstu þrír dagarnir væru frjálsir, þar sem nemendurnir gætu unnið að skemmtilegum verkcfnum, svo sem að skreyta unthverfi skólans, farið á ljósmyndanámskeið, flokka kvikmyndir o.fl. Yngstu nemendurnir fara í ratleiki, vett- vangsferðir, og fá fræðslu um mengun. „4. til 6. bekkingar kynnast ýmsum íþróttum t.d. júdó. í 7. til 8. bekk vinna krakkarnir að um- ferðarkönnun, verðkönnun og mörgu öðru skemmtilegu og 9. bekktir fer í starfskynningar i ýmis fyrirtæki s.s. Dag, tlugvöll- inn, DNG, Sana og sjúkrahúsið og við þökkum öllurn fyrirtækj- unum fyrir mjög góðar móttökur. Á fimmtudag og föstudag verður árshátíð og leiklistahópur verður starfandi sem sér um skóla- skemmtunina. Við hvetjum alla til að sjá þessa skemmtun sent sýnd er báða dagana kl. 16.00 og 20.30,“ sagði Fríða ennfremur. Loks má geta þess aö á fimmtudaginn eftir seinni sýning- una er svo allsherjarball í íþrótta- húsi skólans, sem er opið öllum. Unnið af Sigurði Bjarna tlatþorssyni, Stcinmari H. Rögnvaldssyni, Páli Frcy Jónssyni og Jónasi Valdimarssyni, nemendum í 9. bckk Glcrárskóla. í bridds Bridgefélag V.-Húnvetninga, Hvammstanga: Rúbertukvöld og tvímeraiingur Félagar í Bridgefélagi Vestur- Húnvetninga á Hvammstanga hafa ekki setið auðurn höndum að undanförnu, heldur setið að spilum í hverri viku. Rúbertu- kvöld fór fram í byrjun mars og um miðjan mánuðinn hófst 3 kvölda tvímenningskeppni sem lauk undir lok mánaðar- ins. ^ Á Rúbertukvöldinu var dregið í pör og spiluð 2x2 spil á milli para, þannig að hægt var að fá 2 stig fyrir setuna. Úrslit urðu þessi: stig 1. Erlingur Sverrisson/ Einar Magni Sigumundsson 7 2. Unnar A. Guðmundsson/ Guðmundur H. Sigurðsson 6 3. Flemming Jessen/ Hjalti Hrólfsson 5 4. Sigurður Hallur Sigurðsson/ Eggert Karlsson 5 Keppni í þriggja kvölda tví- menningi hófst um miðjan mars og lauk undir lok mánaðarins. Það voru þeir Kristján Björnsson og Karl Sigurðsson sem stóðu uppi sem sigurvegar í mótslok. í öðru sæti urðu þeir Erlingur Sverrisson og Eggert Ó. Levy, með jafn mörg stig. Úrslit á ein- stökum spilakvöldum urðu þessi: Fyrsta spilakvöld: stig 1. Karl Sigurösson/ Kristján Björnsson 142 2. Eggert Ó. Levy/ Erlingur Sverrisson 135 3. Eggert Karlsson/ Flemming Jessen 107 4. Sigurður H. Sigurðsson/ Marteinn Reimarsson 105 Annað spilakvöld: stig 1. Karl Sigurðsson/ Kristján Björnsson 92 2. Guðmundur H. Sigurðsson/ Sigurður Þorvaldsson 92 3. Bjarni R. Brynjólfsson/ Egill Egilsson 88 4. Eggert Karlsson/ Flemming Jessen 83 Þriðja spilakvöld: stig 1. Erlingur Sverrisson/ Eggert Ó. Levy 99 2. Unnar A. Guðmundsson/ Bjarney Valdimarsdóttir 87 3. Hjalti Hrólfsson/ Einar Magni Sigmundsson 85 4. Guðmundur H. Sigurðsson/ Sigurður Þorvaldsson 85 Lokastaðan varð þessi: stig 1. Karl/Kristján 282 2. Erlingur/Eggert Ó. 282 3. Guðmundur/Sigurður 253 4. Flemming/Eggert K. 252 Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 13 Veðurstofa íslands kynnir NÝJA SÍMSVARA ætlaða landsmönnum öllum Frá og meö 5. apríl 1990 veröa á vegum Veöurstofu (slands og Pósts og síma teknir í notkun nýir sím- svarar, þar sem landsmönnum öllum er í sömu síma- númerum og fyrir sama gjald boöiö upp á eftirfarandi upplýsingar. Sími: 990600: Kynning og allir valkostir. Sími: 990601: Veður og veöurhorfur fyrir landiö í heild. Sími: 990602: Veðurspá fyrir einstök spásvæöi á landi og miöum. Sími: 990603: Veður og veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu. Sími: 990604: Veöurlýsing fyrir valdar erlendar veöurstöövar. Sími: 990605: Flugveðurskilyrði yfir íslandi aö degi til. Símsvarinn, sími 17000 veröur tekinn úr notkun. Atvinna • Atvinna • Atvinna Óskum eftir að ráða vant starfsfólk til saumastarfa á kvöldvakt frá kl. 17.00-22.00. Um er að ræöa tímabundna vinnu í 4 mánuði, maí, júní, júlí og ágúst. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900 * Alafoss hf., Akureyri m FÉLAGSMÁLA- nrri #■ STJÓRI Ólafsfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf félagsmálastjóra. Laun eru samkvæmt launa- kerfi bæjarstarfsmanna. I starfi félagsmálastjóra felst umsjón meö þeim málaflokkum sem heyra undir félagsmálaráö, þ.e. dagvistun, vímu- og áfengismál, félagshjálp, öldrun- armál o.fl. Þá á félagsmálastjóri aö gegna starfi æskulýðs- og íþróttafulltrúa. Æskilegt er aö umsækjendur hafi reynslu í félags- málastörfum svo og uppeldis- og íþróttamálum, einnig aö umsækjendur hafi einhverja menntun á þessum sviðum. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 20. apríl 1990. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaöur. Ólafsfirði, 27. mars 1990. Bæjarstjórinn í Ólafsfirði, Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði, sími 96-62151. -t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, FJÓLA EGEDÍA HJALTALÍN, Norðurgötu 35, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 6. apríl, kl. 13.30. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Randver Karlesson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.