Dagur - 05.04.1990, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 5. apríl 1990
Hentugar og góðar
fermingargjafir
BAKPOKAR FRÁ VANGO
65 I og 75 I - Níösterkir
Eigin þyngd aðeins
1100-1350 grömm
SVEFNPOKAR FRÁ VANGO
Klassapokar með regnheldu
ytra byrði
Þola frá +5°C til -20°C
6 gerðir - Fallegir litir
STANGVEIÐIVORUR FRA DAIWAþ
Kaststangir - Flugustangir
Kasthjól — Fluguhjól — Veiðivesti o.fl. f , rt..
Fluguhnýtingasett V
SendumJ póstkröfu
EYFJORÐ
Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
Auglýsendur
athugið
Síðasta blað fyrir páska kemur út fimmtudag-
inn 12. apríl (skírdag). Skilafrestur á smá-
auglýsingum er fyrir kl. 5 þriðjudaginn 10.
apríl og 2ja dálka og stærri fyrir kl. 14 þriðju-
daginn 10. apríl.
Miðvikudaginn 18. apríl er fyrsta blað eftir
páska. Skilafrestur á smáauglýsingum fyrir kl.
11 þriðjudaginn 17. apríl og fyrir 2ja dálka og
stærri fyrir kl. 11 þriðjudaginn 17. apríl.
Auglýsingadeild, sími 24222.
Halldór Jónsson frá Akureyri fékk viðurkenningu fyrir fyrsta fiskinn.
Dorgað í Ljósavatni
Það var mikið um dýrðir á Ljósa-
vatni í Suður-Þingeyjarsýslu á
laugardaginn um síðustu helgi.
Þá efndi ferðaskrifstofan Nonni á
Akureyri í samvinnu við Björn
Sigurðsson dorgveiðiáhugamann
til herlegrar dorgveiðikeppni á
vatninu. Fimmtíu og tveir þátt-
takendur mættu til leiks, ungir
sem aldnir, og má segja að dorg-
veiðikeppnin hafi verið sannköll-
uð fjölskylduveisla. Veður var
mjög gott og dró ekki úr ánægju
þátttakenda.
Veiðiklærnar drógu um 30 fiska
upp á ísinn og voru veitt verðlaun
fyrir fyrsta fiskinn sem veiddist,
stærsta fiskinn og þá fékk yngsti
keppandinn sértök verðlaun.
Halldór Jónsson frá Akureyri
fangaði fyrsta fiskinn, stærsti
fiskurinn beit á agn Þorgeirs
Halldórssonar Arnarstapa Ljósa-
vatnshreppi. Yngsti keppandinn
var Karl Halldór Reynisson, 6
ára, frá Akureyri. Þá voru veitt
sérstök aukaverðlaun til fjögurra
manna fjölskyldu, sem dorgaði
stanslaust frá kl. 9 til 16. Verð-
launin voru í formi júgóslavnesks
kvöldverðar á heimili Helenu
Dejak. Pétursborg í Glæsibæjar-
hrepni.
Dorgveiðikeppnin þótti tak-
ást það vel að aðstandendur
keppninnar hafa ákveðið að
halda aðra keppni dagana 28. og
29. apríl nk. Ætlunin er að dorga
báða dagana. Líklegt er að veitt
verði á Mývatni eða Másvatni.
Karl Halldór Reynisson frá Akureyri var yngsti keppandinn í dorgveiði-
keppninni, aðeins 6 ára, og fékk að launuin sérstök verðlaun. Hér er hann
á vélsleða með föður sínum, Reyni Karlssyni.
Það voru ekki allir útlærðir veiðimenn sem mættu til leiks á Ljósavatni.
Ungir sem aldnir horfðu vonaraugum ofan í vakir á ísnum og biðu eftir að stórhvclin bitu á agnið.