Dagur - 05.04.1990, Side 15
Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 15
l___________'Þróttir j
Yfírburðir Blombergs
og Renauds í sviginu
- á alþjóðlegu móti í Bláflöllum
Thorbjörn Blomberg frá Sví-
þjóö og Goud Renaud frá
Frakklandi uröu sigurvegarar á
alþjóðlegu móti í svigi sem
fram fór í Bláfjöllum sl. þriðju-
dag. Blomberg var í sviðsljós-
inu á Vetraríþróttahátíðinni
eins og menn muna og var
hann rúmri einni og hálfri sek-
úndu á undan næsta manni í
karlaflokknum sem var Örn-
ólfur Valdimarsson frá
Reykjavík.
Renaud hafði einnig nokkra
yfirburði í kvennaflokknum þrátt
fyrir að Guðrún H. Kristjáns-
dóttir hafi veitt henni harða
keppni í fyrri ferðinni en Guðrún
átti næst besta tímann eftir þá
ferð, aðeins nokkrum sekúndu-
brotum lakari en Renaud. Guð-
rúnu gekk hins vegar ekki jafn
vel í síðari ferðinni og hafnaði að
lokum í þriðja sæti.
Karlar:
1. Thorbjörn Blomberg, Svíþj. 1:37,27
2. Örnólfur Valdimarsson, R.vík 1:38.86
3. Matjaz Cujes, Júgósl. 1:40.36
4. Pavli Cebulj, Júgósl. 1:40.56
5. Valdemar Valdimarsson, Ak. 1:40.62
Konur:
1. Goud Reanud, Frakkl. 95,41
2. Carin Lindberg, Svíþj. 97,02
3. Guðrún H. Kristjánsdóttir, Ak. 97,43
4. Ulla Carlsson, Svíþj. 98,40
5. Ásta Halldórsdóttir, ísaf. 98,83
Carin Lindberg frá Svíþjóð hefur verið í sviðsljósinu í skíðaheiminum síðustu daga. Hún varð önnur á alþjóðlega
svigmótinu í Bláfjöllum. Myml: KL
;!iE#*^'
.riiP''*'
Örnólfur Valdimarsson varð annar í sviginu á þriðjudag. Mynd: KL
Dalvík:
RC-Cola mót
í mini-golfl
Laugardaginn 14. apríl verður
haldið RC-Cola mót í mini-
golfí í félagsheimilinu Víkur-
röst á Dalvík. Mótið mun
standa yfír allan daginn og
verða leiknar 36 holur. Keppt
verður um vegleg verðlaun
sem RC-Cola gefur.
Pátttökutilkynningar í mótið
þurfa að berast í síðasta lagi á
skírdag og er tekið á nróti þeim í
Víkurröst í síma 61354. Mini-
golfið á Dalvík verður opnað á
morgun og verður opið alla daga
fram að mótinu að föstudeginum
langa undanskildum.
Laugardalshöll:
Unglingameistaramót
í fímleikum
Unglingameistaramót íslands í
fimleikum verður haldið þriðju-
daginn 10. apríl nk. Keppendur
sem taka þátt í mótinu verða um
30 talsins. Mótið verður haldið í
Laugardalshöll og hefst kl. 19:30.
Mótshaldari er fimleikadeild
íþróttafélagsins Gróttu.
Knattspyrna:
Tveir nýir leikmenn
í raðir Leiftursmanna
- undirbúningur fyrir sumarið í fullum gangi
Leiftri frá Ólafsllrði bættist
nokkur liösstyrkur fyrir
skömmu þegar tveir nýir leik-
menn gengu í raðir félagsins.
Hér er um að ræða þá Örn
Torfason, bróður Ómars
Torfasonar, þjálfara Leifturs,
sem kemur úr Víkingi og lék
Knattspyrna:
Árni ekki
með í suinar
12 leiki í 1. deildinni fyrir það
félag á síöasta keppnistímabili,
og Kristján Haraldsson sem er
ungur leikmaður úr herbúöum
KR. Örn og Kristján leika
báðir á miðjunni. Ákveðið
hefur verið að engir útlending-
ar leiki með liðinu í sumar en
það var í athugun um tíma.
Að sögn Rúnars Guölaugsson-
ar, formanns knattspyrnudeildar
Leifturs, er undirbúningur kom-
inn í fullan gang. Liðið hefur far-
ið þrisvar suður og leikiö þar æf-
ingaleiki og fór m.a. um síðustu
helgi. Þá lék liðið gegn ÍA á Akra-
nesi og sigraði 2:0 og síðan gegn
Dalvík á gervigrasinu í Reykja-
vík en Dalvíkingar voru einnig á
feröalagi í Reykjavík um helg-
ina. Þeim leik lauk með 6:2 sigri
Lcifturs.
Rúnar sagði það valda nokkr-
um erfiðleikum að stór hluti
hópsins dvelur í Reykjavík á vet-
urna og nú cru þar um 10 manns
sem æfa undir stjórn Ómars
Torfasonar. Afgangurinn af
mannskapnum æfir heima á
Ólafsfirði undir stjórn Rúnars en
Ómar er ekki væntanlegur til
Ólafsfjarðar fyrr en í maí.
Árni Stefánsson, knattspyrnu-
maðurinn kunni sem lék með
Þórsurum um árabil og þjálf-
aði og lék með Leiftri á síðast-
liðnu sumri, hefur ákveðið að
taka sér frí frá knattspyrnunni.
Árni sagði í samtali við Dag að
sér finndist nóg komið af knatt-
spyrnu í bili. „Þetta er orðið
ágætt. Það er kontinn tími til að
taka sér frí og slappa aðeins af,“
sagði Árni. Hann sagðist ekki
vera búinn að ákveða hvort hann
legði skóna endanlega á hilluna,
það yrði bara að koma í ljós.
Árni byrjaði að leika með
meistaraflokki Þórs árið 1977 og
lék 234 leiki nteð liðinu og síðar
um 50 leiki fyrir Leiftur.
Árni Stefánsson tekur sér frí frá
knattspyrnunni í sumar.
Undirbúningur er nú kontinn í fullan gang hjá Leiftursinönnum.
Meistaraflokkur Tindastóls:
Belgíuferð um
helgina
Meistaraflokkur Tindastóls
knattspyrnu fer í æfínga- og
keppnisferðalag til Belgíu um
helgina. Farið verður til Lok-
eren í Belgíu og dvalið þar í
æfíngabúðum í vikutíma.
Leiknir verða fjórir æfínga-
leikir við belgísk þriðju- og
fjórðudeildarlið.
Æfingar verða tvisvar á dag
meðan á dvölinni í Lokeren
stendur. Tuttugu og tveir leik-
menn og nokkrir stjórnarmeð-
limir úr Tindastóli fara utan.
Hefð er komin á Belgíuferðir
Tindastólsliðsins og er þetta í
þriðja skiptið sem farið er til
Lokeren. Ferðina hafa leikmenn
sjálfir fjármagnað með söfnunum
í vetur. „Ferðin verður með svip-
uðu sniði og undanfarin ár. Liðið
verður við æfingar í vikutíma og
leiknir verða þrír til fjórir leikir
við lið í belgísku deildinni," sagði
Stefán Logi Haraldsson forntað-
ur knattspyrnudeildar Tinda-
stóls. kg