Dagur - 05.04.1990, Side 16
Þessa dagana er mikið spáð í páskaegg, og er yngri kynslóðin sérstaklega
iðin við það. Starfsfólk verslana hefur nóg að gera við að raða þessari brot-
hættu en eftirsóttu vöru í hillurnar. Myndin er tekin í Kjörmarkaði KEA í
Hrísalundi af Maríu Þórðardóttur, afgrciðslustólku. Mynd: ehb
Enn lok og læs hjá Fóðurstöðinni á Dalvík:
Eyfirskir bændur mótfallnir
einni fóðurstöð á Sauðárkróki
innsiglun fleiri fóðurstöðva vofir yfir
Ef ekki verður tekin ákvörðun
um það í dag í landbúnaðar-
ráðuneytinu og Byggðastofnun
að leysa úr fjárhagsvanda Fóð-
urstöðvarinnar á Dalvík, sem
leitt geti til opnunar hennar, má
fastlega gera ráð fyrir að á
fundi á morgun taki loðdýra-
bændur við Eyjafjörð ákvörð-
un um að lóga öllum minka- og
refastofninum á svæðinu án
tafar.
Fóðurstöðin á Dalvík er enn
lokuð og því hafa bændur fengið
fóður frá fóðurstöðinni Melrakka
á Sauðárkróki. Það verður hins
vegar á þrotum í kvöld. Hvað þá
tekur við veit enginn og ekki ligg-
ur fyrir ákvörðun um frekari
flutninga á fóðri frá Sauðárkróki.
Samkvæmt upplýsingum sem
Dagur hefur aflað sér eru loð-
dýrabændur við Eyjafjörð því
mjög mótfallnir að kaupa fóður
frá einni sameiginlegri fóðurstöð
á Sauðárkróki fyrir Skagafjörð
og Eyjafjörð. Benda þeir á að
flutningskostnaður, sem leggjast
myndi ofan á fóðurverðið, yrði
gífurlegur, auk þess sem erfið
færð undanfarna vetur á Öxna-
dalsheiði og í Öxnadal hafi sýnt
að á þessa samgönguleið er ekki
að treysta. Þá segja þeir að ekki
megi gleyma því að fjárhagsstaða
Melrakka sé f molurn og megi
alveg eins búast við að hún verði
tekin til gjaldþrotaskipta.
Það er ekki aðeins Fóðurstöðin
á Dalvík og Melrakki sem standa
frammi fyrir miklum fjárhags-
vanda. Allar aðrar fóðurstöðvar í
landinu eru á gjörgæslu og hafa
menn miklar áhyggjur af því að
til lokana kunni að koma víðar
en á Dalvík. Samkvæmt heimild-
um Dags skuldar fóðurstöðin á
Selfossi umtalsverðar upphæðir í
opinber gjöld og verði skuldirnar
ekki greiddar einhvern næstu
daga er búist við að hún verði
einnig innsigluð.
Á bls. 2 í Degi í dag er birt
opið bréf Ævarrs Hjartarsonar,
ráðunautar hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar, til sýslu-
mannsins í Eyjafjarðarsýslu um
innsiglun Fóðurstöðvarinnar á
Dalvík. í bréfinu átelur Ævarr
sýslumann harðlega fyrir þessa
aðgerð og vitnar m.a. til þess að í
stað þess að koma í veg fyrir að
loðdýrin fái fóður beri honum
samkvæmt forðagæslulögum að
sjá til þess að þau líði ekki skort.
óþh
Blönduhlíð:
Nýr vegur í sumar
Vegagerðin á Sauðárkróki hel'-
ur boðið út framkvæmdir við
Blönduhlíðarveg. Vegarkafl-
inn nær frá Uppsölum að
Skeljungshöfða. Utboðið nær
til uppbyggingar vegar, grjót-
garða og heimreiða. Utboðs-
frestur er tvær vikur og áætluð
Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga:
Björgunaraðgerðir á síðustu stundu
- skuldir lækkaðar um 200 milljónir og Stakfellið rekið áfram
Útgerðarfélagi Norður-Þing-
eyinga hefur verið bjargað fyr-
ir horn á síðustu stundu og í
gær var verið að reyna að
koma í veg fyrir síðara nauð-
ungaruppboð á Stakfellinu
sem fram átti að fara í dag.
Skuldir ÚNÞ vegna Stakfells-
íns námu um 500 milljónum en
með víðtækum björgunarað-
gerðum hafa skuldirnar verið
iækkaðar um 200 milljónir og
eftir þessar aðgerðir á að vera
mögulegt að reka Stakfellið.
Daníel Árnason, sveitarstjóri
Þórshafnarhrepps, sagði í samtali
við Dag í gær að vissulega væru
Þórshafnarbúar ánægðir með að
geta haldið togaranum, enda væri
hann nauðsynlegur þáttur í
átvinnulífinu í byggðarlaginu.
Daníel upplýsti í hverju björgun-
araðgerðirnar væru fólgnar.
Hlutafjársjóður kemur inn í
Hraðfrystistöð Þórshafnar með
liðlega 100 milljónir króna í
formi B-hlutdeildarskírteina.
Hraðfrystistöð Þórshafnar eykur
hlutafé sitt í Útgerðarfélagi
Norður-Þingeyinga um 100 millj-
ónir. Þá fær ÚNÞ vaxtaleiðrétt-
ingu í Ríkisábyrgðarsjóði upp á
20 milljónir, byggðastyrkur nem-
ur 15 milljónum og niðurfelling á
almennum viðskiptaskuldum er
metin á 45 milíjónir. Skuldir
ÚNÞ lækka því alls um 200 millj-
ónir.
Daníel sagði að þarna væri á
ferðinni hlutafjáraukning í Hrað-
frystistöð Þórshafnar en Hrað-
frystistöðin leggur jafnframt eig-
infjárstöðu sína undir til að
bjarga Útgerðarfélaginu. Þarna
er verið að treysta samspil út-
gerðar og vinnslu til hráefnis-
öflunar.
Hraðfrystistöðin yfirtekur ekki
rekstur ÚNÞ, eins og ein hug-
myndin hafði hljóðað upp á,
Útgerðarfélagið verður áfram til
sem slíkt en á hinn bóginn verður
yfirstjórn fyrirtækjanna tveggja
sameinuð. SS
verklok eru um miðjan októ-
ber.
Hafist verður handa við mal-
bikun á Blönduhlíðarvegi frá
Víðivöllum að Uppsölum í
sumar. Sá kafli var undirbyggður
og grótgarðar gerðir síðastliðið
sumar.
Gamli Blönduhlíðarvegurinn,
sem sá nýi á að leysa af hólmi,
hefur löngum verið varásamur og
vegfarendum verður það væntan-
lega mikið fagnaðarefni þegar
hann verður aflagður. Á honum
eru nú þrjár varasamar brýr auk
fjölda blindhæða. Ein þessara
brúa er brúin yfir Bóluá. Fjöldi
óhappa hefur orðið við hana
undanfarin ár. Vegurinn fyrir
ofan Silfrastaði er einnig vara-
samur. Þar voru margar útaf-
keyrslur síðastliðið suntar. kg
Fjárhagsáætlun Ólafsíjarðarbæjar samþykkt:
Höftiin efst á framkvæmdalista
- 12 milljónir til nýja íþróttahússins
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar var samþykkt á bæjar-
stjórnarfundi sl. þriðjudag.
Heildartekjur bæjarsjóðs eru
áætlaðar rúmar 154 milljónir
króna, en gjöld í rekstri eru
áætluð 130 milljónir króna.
Tekjur umfram gjöld eru því
24 milljónir króna.
Sameiginlegar tekjur bæjarins,
þ.e. skattatekjur, framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og fl.
eru upp á 120 milljónir króna.
Þegar tillit er tekið til þjónustu-
gjalda eru tekjurnar áætlaðar
rúmar 154 milljónir króna.
Höfnin er efst á framkvæmda-
listanum í ár. Gerður verður
grjótgarður, samkvæmt líkan-
prófun, og til hans renna 24 millj-
ónir. Ríkið greiðir stóran hluta
þeirrar upphæðar. Til fyrsta
áfanga íþróttahússins og til að
ljúka við hönnun þess verður var-
ið 12 milljónum. Gangstéttagerð
fær 3,7 milljónir króna, en ætlun-
in er að ganga frá gangstéttum
við Hlíðarveg, Ólafsveg og e.t.v.
víðar. Til frágangs nýja grasvall-
arins verður varið 1,5 milljón
króna, 2,8 milljónum til endur-
bóta á Tjarnarborg og 1,5 ntilljón
til endurbóta á neðri hæð Barna-
skólahússins. óþh
Norðurlandsumdæmi eystra:
Sex stöður skólastjóra lausar til umsóknar
Sex stöður skólastjóra við
skóla í Norðurlandsumdæmt
eystra hafa verið auglýstar til
umsóknar og er umsóknar-
frestur til 1. maí nk. í tveim
tilfellum fer skólastjóri í eins
árs launað orlof og í einu til-
felli er um launalaust leyfí til
eins árs að ræða. Þá eru til
umsóknar fjölmargar kenn-
arastöður í grunnskólum á
Akureyri og í 21 skóla víðs-
vegar á Norðurlandi eystra.
Þær skólastjórastöður sem
um ræðir eru í Grunnskóla
Grímseyjar, Grunnskóla Sval-
barðshrepps í Norður-Þingeyj-
arsýslu, Grunnskóla Saurbæjar-
hrepps í Eyjafirði, Stórutjarna-
skóla í Suður-Þingeyjarsýslu,
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði og
Húsabakkaskóla í Svarfaðar-
dal. í Grímsey fer núverandi
skólastjóri í árs launalaust lcyfi
og skólastjórarnir í Hrafnagils-
skóla og Stórutjarnaskóla
hverfa frá störfum í eitt ár í
launað orlof.
Nokkrar kennarastöður eru
lausar á Akureyri og víðar á
Norðurlandi. Skólarnir utan
Akureyrar eru Grunnskóli
Húsavíkur, Barnaskóli Ólafs-
fjaröar, Grunnskólinn á
Dalvík, Grunnskóli Grímseyj-
ar, Húsabakkaskóli, Grunn-
skólinn Hrísey, Árskógarskóli,
Þelamerkurskóli, Grunnskóli
Hrafnagilshrepps, Grunnskóli
Saurbæjarhrepps, Laugalands-
skóli, Hrafnagilsskóli, Grunn-
skóli Svalbarðsstrandar, Greni-
víkurskóli, Stórutjarnaskóli,
Litlulaugaskóli, Hafralækjar-
skóli, Grunnskólinn Kópaskeri,
Grnnnskólinn Raufarhöfn,
Grunnskólinn Svalbarðshreppi
og Grunnskólinn Þórshöfn.
Þær upplýsingar fengust á
Fræðsluskrifstofu Norðurlands-
umdæntis eystra að fjöldi lausra
kennarastaða við skóla í
umdæminu væri svipaöur. og
undanfarin ár. Hins vegar væru
lausar stöður skólastjóra fleiri
en oft áður. óþh