Dagur - 25.04.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 25.04.1990, Blaðsíða 5
leiklist Ýmsar kynjaverur eru á ferð í skóginum, enda er Drauniur á Jónsniessunútt ævintýri. Myndir: Kl. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri: Draumur á Jónsmessunótt Leikfélag Menntaskólans á Akureyri frunisýnir í kvöld leikritið Draumur á Jóns- messunótt eftir William Shake- speare. Næstu sýningar verða á fimmtudagskvöld og inánu- dagskvöld kl. 20.30 í Sam- komuhúsinu. Þetta er hátíðar- sýning LMA í tilefni af 50 ára afrnæli félagsins og fóru út- sendarar Dags á stúfana til að fylgjast ineð æfingu í Sam- komuhúsinu. Það er ekki algengt að mennta- skólanemar ráðist í það að setja upp klassísk verk og hefur LMA aðeins einu sinni áður á fimmtíu ára ferli sínum sýnt leikrit cftir Shakespeare. Það var leikárið 1970-71 er Arnar Jónsson leik- stýrði sýningu á Rómeó og Júlíu. Gamanleikir og farsar hafa verið meira áberandi í verkefnaskránni, en Draumur á Jónsmessunótt er í rauninni hreinræktaður gaman- leikur, ekki þung tragedía. Alls taka um 22 leikendur þátt í sýningunni en nærri lætur að 40 nemendur í Menntaskólanum á Akureyri hafi undanfarnar vikur eytt frítíma sínunt í „leikfélags- stúss". eins og það er stundum kallað. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson, leikari hjá Leikfé- lagi Akureyrar, og ræddum við stuttlega við hann. „Fyrst og fremst ævintýri“ - Um hvað fjallar Draumur á Jónsmessunótt? „Þetta er i rauninni fyrst og fremst ævintýri, ekki þungt og leiðinlegt eins og menn halda Jón Stefán Kristjánsson, lcikstjóri. stunduni unt Shakespeare, held- ur nokkurs konar Grimms-ævin- týri. Ungir elskendur fá ekki að njótast og flýja út i skóg. I þess- um skógi búa ýmsar kynjavcrur, álfakóngur og álfadrottning sem hafa lent upp á kant við hvort annað, og elskendurnir verða fyr- ir barðinu á hrekkjarbrögðum þeirra. Það er ýmislegt á skjön í þessum skógi. Þarna koma við sögu handverksmenn sem fara út í skóginn til að æfa leikrit sent sýna á við brúðkaup konungsins í Aþenu og þeif verða fyrir þessum hremmingum líka. Leikritinu lýkur þégar allir elskendur hafa fundist á ný, sæst og fengið að njótast. Þá er mikil hátíð í höll- inni og þessir handverksmenn sýna sitt leikrit í lokin." - Hér er þá cngin tragedía á ferð. „Nei. hér er í aðra röndina ver- ið að fjalla um ástina, kelcríið og það að vera skotin, en fyrst og fremst er þetta ævintýri." - Nú gerist verkiö í Aþcnu. Ferðu einhverjar nýjar leiðir í uppfærslu LMA? „Við setjum leikritið upp í nú- tímastíl. Þótt þaö gerist í Aþenu er landafræði Shakcspears ekki upp á marga fiska því það eru engir skógar rétt fyrir utan Aþenu. Þetta er því laust úr tíma og rúmi." „Mikill kraftur í hópnum“ - Gæti verkiö þess vegna snúist um lífsglaða menntskælinga í Vaglaskógi? „Þess vegna. Svo fremi sem álfar séu ekki sofnaðir út af þar og geti brugðið á leik." - Segðu mér, hvernig hefur gengið að vinna nteð þessum fjöl- menna hópi? „Þetta hefur gengið ákaflega vel. Viö crum með gríðarmikla saumadeild, en búningarnir eru hannaðir af mér og deildinni í sameiningu. Það cr mikill kraftur í hópnum og unga fólkið kemur miklu í verk. þótt náttúrlega sé allt á síðasta snúningi," sagði Jón Stefán að lokum. Eftir að hafa fylgst með æfingu hjá LMA er óhætt að búast viö fjörugum og fyndnum sýningum á næstunni. Nemendurnir hafa lagt ntikla vinnu á sig og þegar þeir voru inntir nánar eftir því kom í ljós að námið hefur í mörg- um tilfellum setið á hakanum seinni hluta vetrar. Þeir sjá þó varla eftir því, enda afrakstur erf- iðisins í sjónmáli. SS Miðvikudagur 25. apríl 1990 - DAGUR - 5 Flutningabíll til sölu! Tilboð óskast í bifreiðina A-644, sem er International Transtar, árgerð 1980. Upplýsingar eru veittar hjá Bifreiðadeild KEA, símar 30301 og 30302. Kaupfélag Eyfirðinga. Hestamenn Akureyri og nágrenni! Fundur verður haldinn í Skeifunni fimmtudag- inn 26. apríl kl. 20.30. Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur flytur erindi um sýningar og dóma kynbótahrossa. Almennar umræður. Fræðslunefnd Léttis. Iðja félag verksmiðjufólks Orlofshús Orlofshús til leigu fyrir félagsmenn í Iðju félagi verksmiðjufólks. Félagið hefur til umráða hús á eftirtöldum stöðum: Tvö hús á lllugastöðum og eitt hús á Svignaskarði í Borgarfirði. Eyðublöð fást á skrifstofu félagsins og hjá trúnað- armönnum. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, sími 23621. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1990. Verði eftirspurn eftir húsum meiri en hægt verður að verða við, ræður að jafnaði sá tími sem viðkomandi umsækjandi hefur verið félagsbundinn í Iðju, og hvort hann hefur áður fengið hús á vegum félagsins. Vikuleiga á orlofshúsi er 7.000.- Stjórn orlofssjóðs. 'jjíx-iv : * ° bæði bankabréfum og verðtryggðum og óverðtryggðum veðskuldabréfum. Vegna þessa hefur ávöxtun t.d. á verðtryggðum veð- skuldabréíum, lækkað úr 13-14% niður í 1 1-13%. Þar af leiðandi færðu meira fyrir þessi bréf nú ef þú lætur Kaupþing annast sölu þeirra. Ef veðsetningar- hlutfallið er um og undir 50% af brunabótamati eða sölumati tekur sala slíkra bréfa 1-2 daga. Sölugengi verðbréfa þann 25. apríl. Einingabréf 1 4.830,- Einingabréf 2 ............ 2.643,- Einingabréf 3 ............ 3.178,- Skammtímabréf ............ 1,640 tíjKAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.