Dagur - 25.04.1990, Page 11
íþróttir
Miðvikudagur 25. apríl 1990 - DAGUR - 11
Körfuknattleikur:
Hoop hafði sigur
gegn „Þórsurum“
Þórsarar. ásaint þeim Val Ingi-
mundarsyni og Sturlu Örlygs-
syni úr Tindastól, biðu lægri
hlut fyrir bandaríska liðinu
Hoop í Iþróttahöllinni á Akur-
eyri á mánudagskvöld. Hoop,
sem er skipað leikmönnum úr
háskólaliðum í Boston, sigraði
með 9 stiga mun, 98:89, í
skemmtilegum en ekkert sér-
staklega góðum leik. í för með
liðinu voru sex klappstýrur
sem sýndu listir sýnar í leikhléi
og var ekki annað að sjá en
áhorfendur létu sér vel líka.
Hoop er skipað leikmönnum
sem útskrifast á þessu ári úr
háskólum í Boston. Liðið er á
ferð um Evrópu og eftir því sem
næst verður komist er tilgangur-
inn að kynna leikmenn þess en
þcir hafa áhuga á að komast á
samning í Evrópu. Það verður að
segjast eins og er að hér eru alls
engir snillingar á fcrð enda væru
þeir þá trúlega ekki að leita fyrir
sér í Evrópu.
' Hraðinn var í fyrirrúmi í leikn-
um á mánudagskvöldið og er
óhætt að segja að hann hafi verið
of ntikill framan af. Leikmenn
tóku hlutunum greinilega hæfi-
lega alvarlega og hugsuðu meira
um að skemmta sjálfum sér og
áhorfendum og er ekkert nema
gott um það að segja. Hoop náði
fljótlega undirtökunum og leiddi
með 5-8 stiga forystu mest allan
fyrri hálfleik.
í upphafi síðari hálfleiks virt-
ust Bandaríkjamennirnir ætla að
„keyra yfir" Þórsara og náðu þeir
fljótlega 15 stiga forystu. Þá settu
Þórsarar í gang og með Jón Örn
Guðmundsson og Sturlu Örlygs-
son í fararbroddi náðu þeir að
jafna og komast yfir um miðjan
hálfleikinn. En Hoop komst yfir
aftur og lét forystuna ekki af
hendi eftir það.
Þórsarar sýndu ágætis takta á
köflum og hel'ðu sjálfsagt getað
unnið leikinn ef alvaran hefði
verið meiri. Úrslitin skiptu Itins
vegar litlu máli og sent betur fer
var léttleikinn í fyrirrúmi. Valur
Ingimundarson var atkvæðamest-
ur „Þórsara" þar til hann varð
fyrir meiðslum og varð að yfir-
gefa völlinn. Þá tóku Sturla og
Jón Örn við sér og gáfu „könun-
um“ ekkert eftir. Jón Örn skor-
aði 19 stig fyrir Þór, Valur 15 og
Sturla 14.
Eins og fyrr segir eru þessir
bandarísku leikmenn engir af-
burðamenn. Þeir unnu þennan
leik fyrst og fremst á stærðinni en
þeir hirtu mikinn meirihluta frá-
kasta í leiknum. Einn leikmaður
vakti þó athygli fyrir frábæra
knattmeðferð en sá mun heita
Tim Mucher.
Fjöldi áhorfenda var með
mesta móti ef miðað er við
aðsóknina í vetur en þcir hefðu
þó að skaðlausu mátt vera fleiri.
Það var heldur betur sláttur á „go-go“ döinununi sem fylgdu Hoop og sýndu allar sínar bestu bliðar í leikhlci í
Iþróttahöllinni.
Knattspyrna:
Nokkrar breytingar hjá Reyni
Nokkrar breytingar hafa orðið
á knattspyrnuliði Reynis
Arskógsströnd frá því í fyrra.
Nú nýlega gengu þrír Þórsarar
Hollendingur
til Hvatar
Hollenskur knattspyrnumaður
hefur ákveðið að leika með
Hvöt frá Blönduósi í 4. deild-
inni næsta sumar.
Þetta kom fram í DV nýlega.
Maðurinn heitir Peter Van Den
Bos og er þrítugur að aldri. Hann
lék áður með hollenska félaginu
Wornter Veerse FC.
Úrslit í
MM-mótinu
Fimm leikir fóru fram í MM-niót-
inu um og fyrir síðustu helgi. Á
fimmtudag vann Dalvík stórsigur
á TBA, 6:0, og daginn eftir vann
Reynir KA 3:2. A laugardaginn
gerðu Þór og Dalvík jafntefli, 3:3
og á sunnudag sigraði Dalvfk KA
4:2 og Reynir og Þór skildu jöfn
1:1.
til liðs við félagið, þeir Páll
Gíslason, Jóhann G. Jóhanns-
son og Friðrik Magnússon en
áður hafði markvörðurinn
Róberg Óttarsson komið úr
röðum Leiftursmanna.
Páll, Jóhann og Friðrik korna
allir úr röðum yngri leikmanna
Þórs. Páll var viðloðandi hópinn
hjá Þór síðasta sumar en fékk fá
tækifæri. Er ekki að efa að þeir
Páll Gíslason Ieikur meö Reyni
næsta suinar.
félagar munu styrkja lið Reynis í
baráttunni í sumar.
Reynir hefur einnig misst
nokkra menn. Nýlega ákvað
Ágúst Sigurðsson að leika með
Dalvík eins og fram kemur ann-
ars staðar á síðunni. Eiríkur Ei-
ríksson verður með KA og Þor-
valdur Þorvaldsson, þjálfari
liðsins, mun ekki leika með lið-
inu í sumar. Þá er ekki búist við
því að Haraldur Haraldsson
verði með í sumar.
Knattspyrna:
Nýir menn
til Dalvíkur
Dalvíkingum hefur bæst nokk-
ur liðsstyrkur fyrir sumarið.
Arnar Freyr Jónsson hefur
gengið til liðs við þá en hann
lék áður með KA, Ágúst Sig-
urðsson skipti nýlega úr Reyni
og Jónas Baldursson úr
Magna.
Dalvíkingar rnisstu einnig tvo
menn sem léku með liðinu á síð-
asta sumri. Sigfús Kárason gekk
til liðs við Þrótt Reykjavík og
Ragnar Rögnvaldsson fór í
Augnablik.
Giiönuindur Björnsson í uppstökki á móti leikmanni Hoop í upphatl síöari
hállleiks. Mvndir: Kl.
„Átti ekki von á
tækifæri strax“
- segir Eyjólfur Sverrisson sem kom inn á
hjá Stuttgart um helgina
„Þetta kom mér nokkuð á
óvart. Ég er búinn að sitja á
bekknum fjóra lciki í röð en
átti samt ekki von á að fá tæki-
færi strax,“ sagði Eyjólfur
Sverrisson í samtali við Dag.
Eyjólfur kom inn á hjá Stutt-
gart um hclgina þegar liðið
sigraði Werder Bremen 3:1 á
heiniavelli. Þetta er í fyrsta
sinn sem Eyjólfur fær tækifæri
með aðalliði Stuttgart.
Eyjólfur kom inn á þegar
u.þ.b. stundarfjórðungur var til
leiksloka. Hann sagði að sér hefði
gengið nokkuð vel og þjálfarinn
hefði verið sáttur við frammi-
stöðu hans. Hann sagðist hafa
verið nokkuð taugaóstyrkur enda
hefðu áhorfendur verið um 30
þúsund. Hann sagði að þrátt fyr-
ir að hafa fengið þetta tæki-
færi væri hann ekkert sérlega
bjartsýnn á að fá að spila meira í
vor. „Þjállarinn er að skoða ýmsa
hluti, þreifa fyrir sér og gefa
mönnum tækifæri. En mér geng-
ur vel, þetta var erfitt fyrst en er
allt að koma," sagði Eyjólfur.
Nú líður að lokum keppnis-
tímabilsins í vestur-þýsku úrvals-
deildinni og á Stuttgart fjóra leiki
eftir. „Næsti leikur er gífurlega
mikilvægur en hann er gegn
Dortmund á útivelli. Við verðum
að vinna hann til að eiga mögu-
leika á UFA-sæti. Viö höfum alla
burði til þess og erum bjartsýn-
ir.“
Eyjólfur sagðist vera búinn að
koma sér vel fyrir og kunna ágæt-
lega við sig í Stuttgart. Aðspurð-
ur um tungumálið sagði hann það
ekki vera vandamál. „Ég kunni
aðeins í því áður en ég fór út og
þetta er fljótt að koma," sagði
Eyjólfur Sverrisson.
Eyjólfur hefur setiö á bekknum hjá Stuttgart 4 leiki í röð og fór inn á í fyrsta
sinn um hclgina.