Dagur - 25.04.1990, Side 12
í
Akureyri, miðvikudagur 25. apríl 1990
Kodak
Express
Gæöaframköllun
^★Tryggðu filmunni þinni
UoA ^
"besta ^PedrGmyndir
Im. Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324.
Hópur barna af einni af dagvistarslofnun Akureyrarbæjar heimsótti Fjórðungssjúkrahúsið í gær. Meðal annars
skyggndust börnin á bak við leyndardóm röntgcnmyndatöku á röntgendeild og skoðuðu líkan af beinagrind. Börn-
unum þótti mikið til koma og spurðu um allt milli hiinins og jarðar. Mynd: kl
Ólafsfjörður:
Fjórar umsóknir um
stöðu félagsmálastjóra
Fjórar umsóknir hafa borist
um stöðu félagsmálastjóra
Olafsfjarðarbæjar, en hún var
nýverið auglýst laus til
umsóknar. Umsóknirnar voru
kynntar á fundi í félagsmála-
ráði í gærkvöld og er gert ráð
fyrir að gengið verði frá ráðn-
ingu félagsmálastjóra á bæjar-
stjórnarfundi 8. maí nk.
Félagsmálastjóri er ný staða
hjá Ólafsfjarðarbæ, en áður hef-
ur þar starfað æskulýðs- og
íþróttafulltrúi. Að sögn Bjarna
Kr. Grímssonar, bæjarstjóra í
Ólafsfirði, er fyrirmynd af þessu
nýja starfi sótt að mestu til Sauð-
árkróks. Félagsmálastjóri kemur
til með að liafa æskulýðs- og
íþróttamálin á sinni könnu svo og
öldrunarmál. „Við reiknum með
því-að til að byrja með verði
æskulýðs- og íþróttamálin aðal-
starf nýs félagsmálastjóra. Starf
félagsmálastjóra er auðvitað að
mörgu leyti ómótað, en þó er
Ijóst að það er mjög viðamikið,“
sagði Bjarni. óþh
Þórshöfn:
Nýr dýra-
læknir ráðinn
- Sigurbjörg Ólöf
Bergsdóttir
Nýjung hér á landi - skipulagðar heimsóknir barna á dagvistarstofnunum á FSA:
„Við leggjum áherslu á að skapa já-
kvætt viðhorf gagnvart sjúkrahúsinu“
- segir Rannveig Guðnadóttir, hjúkrunarfræðslustjóri FSA
í vetur hefur Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri tekið upp þá
nýbreytni að bjóða börnum af
dagvistarstofnunum bæjarins á
aldrinum 2-8 ára í skipulagð-
ar kynningarheimsóknir á
nokkrar deildir sjúkrahússins.
Þetta hefur ekki áður verið
reynt hér á landi í þessu formi,
en hefur að sögn Rannveig-
ar Guðnadóttur, hjúkrunar-
fræðslustjóra FSA, gefist mjög
vel. Markmiðið með heim-
sóknunum er tvíþætt, annars
vegar að börnin öðlist öryggi
gagnvart sjúkrahú|i og hins
vegar að börnin viti i aðalatrið-
um hverju þau mæta ef þau
þurfa skyndilega að að leggjast
inn á sjúkrahús vegna slyss eða
veikinda.
Rannveig Guðnadóttir segir að
reynsla af þessum heimsóknum
Nú þegar vorar fyrir Norður-
landi mætti ætla að allabrögö
smábáta færu að skána með
betra veðri og auknu lífi í
sjónum.
Að sögn Gylfa Gunnarssonar,
útgerðarmanns frá Grímsey, sem
var út af Rauðunúpum á I áti
sfnum, var lítið að gerast. 'i<
erum á grunnu, 4 til 12 föðmum
Þetta er ræfill hjá okkur. Sjórinn
er kaldur og engin áta. Hér eru 9
bátar og dauft hjá öllum. Að vísu
fengu tveir bátar afla hér á laug-
ardag, en ekkert síðan. Vertíðin
er sú versta sem ég man eftir, en
vonandi fer þetta að lagast.“
Er haft var samband við skrif-
sé það góð að örugglega verði
framhald á næsta vetur. „Við
áætlum að við séum búin að taka
á móti um það bil helmingi barna
á dagvistarstofnunum í bænum
og ætla má að taki um tvö ár að
taka á móti þeim öllum,“ segir
Rannveig. Samstarf milli sjúkra-
hússins, dagvistarstofnananna og
foreldra barnanna segir hún að
hafi verið með miklum ágætum
og vel hafi þótt til takast. Búið er
að taka á móti 370 börnum, 7-10
börnum í senn. Hver heimsókn
tekur rúma klukkustund. Auk
Rannveigar Itafa þær Jónína Þor-
steinsdóttir, deildarstjóri rönt-
gendeildar, Valgerður Valgarðs-
dóttir, deildarstjóri barnadeildar
og Guðný Bergvinsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á barnadeild,
skipulagt heimsóknir barnanna.
Börnin fá að kynnast starfsemi
þriggja deilda sjúkrahússins,
stofu Kaldbaks á Grenivík feng-
ust þær upplýsingar, að þokka-
lega hafi veiðst í net nú síðustu
daga. Eyfell kom með 4,6 tonn úr
þremur róðrum, Eyfjörð með 4,2
tonn úr þremur róðrum, Fengur
með 7,2 tonn og Kópur með 8,8
tonn, báðir úr þremur róðrunt.
Tvær trillur hafa lagt flotlínu en
aflað lítið.
Að sögn Sveins Inga hjá Fisk-
húsi KEA á Akureyri hafa neta-
bátar aflað vel, en línubátar lítið.
Handfærakarlar eru vart farnir
að reyna. „Næg vinna er hjá
okkur. Við tökum fisk af neta-
bátum og úr togurunum þegar
hann er góður,“ sagði Sveinn.
Sömu sögu er að segja frá öðr-
röntgendeildar, rannsóknardeild-
ar og barnadeildar. Í stuttu máli
sagt sjá börnin á röntgendeildinni
hvernig röntgenmyndir eru tekn-
ar og þær síðan skoðaðar. Á
rannsóknardeild er leikin blóð-
prufutaka og allir fá sprautu í
verðlaun. Á barnadeildinni eru
leiktæki og leikaðstaða skoðuð
og börnunum kynnt ýmis tæki,
s.s. hlustpípa, tunguspaði og
eyrnatæki. I lok hverrar heim-
sóknar fá börnin tíma til að
skoða sig um frjálst og borða ís.
Þá fá þau gefins húfu og grímur
eins og notað er á skurðstofum.
„Með þessunt heimsóknum
barnanna leggjum við áherslu á
að skapa jákvætt viðhorf þeirra
gagnvart sjúkrahúsinu og leitast
við að útrýma ótta þeirra við að
fara á sjúkrahús. Okkur finnst að
það hafi tekist nokkuð vel,“ segir
Rannveig.
Slíkar heimsóknir barna á
um stöðum. Sjórinn er kaldur.
Aflabrögðin hafa verið léleg.
Skot koma í veiðina af og til, en
Úlfliildur Rögnvaldsdóttir gerði
í gær fyrirspurn á fundi Bæjar-
stjórnar Akureyrar vegna bók-
unar Atvinnumálanefndar um
„Stefnumörkun í atvinnumál-
um á Akureyri til ársins 2010.“
Starfsmönnum nefndarinnar
hefur verið falið að ganga frá
sjúkrastofnanir hafa verið reynd-
ar með góðum árangri t.d. í Bret-
landi og Danmörku, ekki síst
vegna þess að talið er að urn %
barna sem koma inn á þær komi
þangað skyndilega. óþh
Seld voru um 17 tonn a fyrsta
uppboði gólfmarkaðar Fisk-
miðlunar Norðurlands hf. á
Dalvík í gær, nánar tiltekið í
húsnæði Haraldar hf. Stærstur
Iduti aflans kom frá Grímsey.
heilt yfir eru smábátaeigendur og
trillukarlar óanægðir með afla-
brögðin. ój
málinu þannig að hægt verði að
leggja það fyrir bæjarstjórn.
Heintir Ingintarsson svaraði að
þau drög sem hann hefði séð væri
3 vélritaðar síður, en plagg þetta
væri á engan hátt á því stigi að
hægt væri að leggja það fram fyrir
bæjarstjórn eða annars staðar til
opinberrar kynningar. EHB
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir,
dýralæknir, hefur verið ráðin
til að gegna embætti héraðs-
dýralæknis í Norðausturlands-
umdæmi cystra og tók hún
nýlega til starfa.
Dýralæknir hefur ekki verið
búsettur á Þórshöfn í um það bil
þrjú ár, en Bárður Guðmundsson
dýralæknir hefur þjónað
umdæminu frá Húsavík. Heima-
rnenn eru að vonum mjög ánægð-
ir með að hafa fengið dýralækni
með fasta búsetu á staðnum og
reikna með að Sigurbjörg fái nóg
að gera, énda um stórt svæði að
ræða sem nær frá Vopnafirði til
Kópaskers. IM
Fjölmargir fylgdust með upp-
boðinu.
Fyrir kílóið af óslægðum neta-
fiski, þorski, fengust hæst 89
krónur en lægst 67.50 krónur.
Kílóið af netaýsu fór á 80 krónur.
Þá voru þrjú tonn af ufsa seld á
35 krónur kílóið og lítilsháttar af
karfa.
Að sögn Hilmar Daníelssonar,
framkvæmdastjóra Fiskmiðlunar
Norðurlands hf., keyptu fisk-
verkendur á Dalvík og í Ólafs-
firði fiskinn á þessu fyrsta upp-
boði gólfmarkaðarins.
Hilmar segir að fyrst um sinn
verði engir fastir uppboðsdagar,
en tíðni uppboða velti á framboði
af fiski. „Við ætlum að þreifa fyr-
ir okkur og sjá hvernig þetta
þróast. Við erum alltaf tilbúnir til
að halda uppboð,“ sagði Hilntar.
Hann sagði að ef marka mætti
fjölda fyrirspurna væri töluverð-
ur áhugi fyrir slíkunt markaði, en
tíminn yrði að leiða í Ijós í hvaða
átt hann þróaðist.
Fiskurinn var allt upp í viku
gamall, en þrátt fyrir það fékkst
gott verð fyrir hann. „Að þessu
sinni var selt úr tveimur bátum í
Grímsey og það var gott hljóð í
eigendum þeirra eftir uppboðið.
Þeir áttu ekki von á þessum verð-
um,“ sagði Hilmar. óþh
Norðurland:
„Lélegur afli víðast hvar og sjórinn kaldur“
- segja smábátasjómenn
Akureyri:
Stefimmörkun í atviimumálum
Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík:
Sautján tonn á íyrsta
uppboði gólfmarkaðarins
- bróðurpartur fisksins
úr tveimur Grímseyjarbátum