Dagur - 28.06.1990, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 28. júní 1990
fréttir
Skólastjórnendur á Norðurlandi vestra senda yfirvöldum menntamála orð:
Mótmæla harðlega þeirri ákvörðun að ætla
engar skiptistundir til kennslu í 1. bekk
A fundi skólastjóra og yfir-
kennara á Norðurlandi vestra
18. júní si. var samþykkt álykt-
un þar sem skorað er á yfirvöld
menntamála að tryggja að ekki
þurfí að kenna 1. bekk með
öðrum árgöngum, heldur fái
hann ætíð að starfa í sérstakri
deild og nemendur verði ekki
fleiri en 18. í greinum þar sem
samkennsla sé möguleg verði
nemendur í 1. og 2. bekk ekki
íleiri en 15, en 10 ef árgangarn-
ir eru þrír eða fjórir.
í ályktuninni er því harðlega
mótmælt að ætla engar skipti-
stundir til kennslu í 1. bekk og
þess krafist að fræðslustjóra verði
heimilt að veita a.m.k. 10 skipti-
stundum á viku til 1. bekkjar.
Á fundinum voru fjórar aðrar
ályktanir samþykktar. í fyrsta
lagi fagnaði fundurinn framkom-
inni reglugerð um sérkennslu,
þar sem gert er ráð fyrir námsum-
hverfi sem hæfi þörfum hvers og
-QRQnn-
-ALLT LITID-
Aldrei aftur
í megrun
Á vegum GRONN eru haldin
helgarnámskeið fyrir ofætur
(bæði karla og konur) sem
vilja hætta ofáti. Ofát getur
falist í því að borða o/mikið
of lítið eða bara of óreglu-
lega. Þessi námskeið eru
byggð á reynslu tugþúsunda
karla og kvenna um allan
heim sem hafa nýtt sér
þessa leið til varanlegs heil-
brigðis og hamingju.
Kynningar-
fýrirlestur
á Hótel KEA, þriðjudags-
kvöldið 3. júlí kl. 21.00.
Aðgangur ókeypis og öllum
opinn.
Námskeið
á Hótel KEA, Akureyri, laug-
ardaginn 7. og sunnud. 8.
júlí kl. 9.00-17.00.
Þátttökugjald er kr. 6.000,-
Skráning á námskeiðið fer
fram á fyrirlestrinum og
nauðsynlegt er að væntan-
legir þátttakendur nám-
skeiðsins mæti á fyrirlestur-
inn til að fá fulla nýtingu út úr
námskeiðinu.
Leiðbeinandi:
Axel Guðmundsson.
Upplýsingar í s. 985-22277.
eins. Hins vegar er á það bent að
kvótabinding á heimildum til sér-
kennslu innan almenna grunn-
skólans sé í hróplegri mótsögn
við grunnskólalög, sem geri ráð
fyrir kennslu við hæfi hvers ein-
staklings.
í öðru lagi krafðist fundurinn
þess að skólaheimilið á Egilsá
verði gert að sérskóla á vegum
ríkisins, sbr. 29. grein reglugerð-
ar nr. 98/1990.
I gær voru Valgarði Baldvins-'
syni, bæjarritara og starfandi
bæjarstjóra á Akureyri,
afhentar á sjötta hundrað
undirskriftir frá íbúum á svæð-
inu neðan Hlíðarbrautar og
ofan Hörgárbrautar þar sem
þess var farið á leit að komið
yrði upp hraðahindrunum og
í byrjun ágústmánaðar verður
byrjað að slétta garðflöt og
lagfæra minnismerki í gamla
kirkjugarðinum í Stærri-Ar-
skógi, en nýlega var auglýst
eftir athugasemdum eða ábend-
ingum frá þeim sem telja sig
þekkja legstaði eða hafa
eitthvað annað við fram-
kvæmdina að athuga.
Kaldbakur EA, togari Útgerð-
arfélags Akureyringa, lenti í
erflðleikum suður af Horna-
flrði á þriðjudag. Trollið fór í
skrúfuna, og þurfti Svalbakur
EA að draga hann inn á Fá-
skrúðsfjörð. Á Fáskrúðsflrði
steytti Svalbakur á grynningu í
höfninni, en losnaði fljótlega
af sjálfsdáðum.
Svalbakur tók Kaldbak í tog og
dró skipið til hafnar á Fáskrúðs-
firði. Þangað komu skipin klukk-
an sjö á þriðjudagsmorgun. Tveir
kafarar unnu við að losa trollið úr
skrúfunni, annar var heimamað-
í þriðja lagi benti fundurinn í
ályktun á síaukna þörf stofnana í
að vista börn rneð náms- og fé-
lagslega örðugleika á sveitaheim-
ilum í fræðsluumdæmi Norður-
lands vestra, en sl. skólaár voru
um 20 nemendur vistaðir í
fræðsluumdæminu. Þessir
nemendur fengu 13% af sér-
kennslukvóta þess, án þess að
nokkur tímaaukning fengist
þeirra vegna.
gangbrautum í Skarðshlíð og
Höfðahlíð.
Að sögn Svölu Stefánsdóttur,
sem afhenti Valgarði listana í
gær, hefur borið töluvert á hrað-
akstri á þessum tveim götum og
hafa börn því oft á tíðum verið í
stórhættu. Þess er skemmst að
minnast að fyrir um tveim mán-
yfir garðinn, en í kirkjubókum úr
Vallarprestakalli frá 1864 má sjá
hverjir hafa verið grafnir þar
fram til ársins 1936, en þá var far-
ið að grafa í nýja garðinum við
kirkjuna, en haldin hefur verið
skrá yfir þann garð.
Hugmyndin er að ganga frá
girðingu og hliði á garðinn auk
lagfæringarinnar, en einnig er
fyrirhuguð helmingsstækkun á
ur en hinn kom frá Eskifirði.
Kaldbakur var orðinn tilbúinn
um hádegið og hélt þá þegar úr
höfn.
Svalbakur lenti í nokkrum
vandræðum þegar inn á Fá-
skrúðsfjarðarhöfn kom. Langt
var í tóginu, en koma varð Kald-
bak að innstu bryggju í höfninni.
Svalbakur stefndi á grunna smá-
bátahöfn og tók niðri á grynning-
um. Togarinn losnaði með því að
nota spilið, en um tíma var mikill
halli á honum. En togarinn losn-
aði fljótt og bæði skipin komust
klakklaust frá þessum áföllum.
EHB
í fjórða lagi átaldi fundurinn
harðlega þau vinnubrögð að ætla
hluta kennara utan af landi að
greiða sjálfir kostnað (fargjöld og
uppihald) vegna endurmenntun-
ar. I ályktun fundarins er á það
bent að hér sé um brot á gildandi
kjarasamningi að ræða, en hann
geri ráð fyrir greiðslu á ferðuin
og dagpeningum, þegar kennarar
sæki námskeið á vegum K.H.Í.
uðum varð barn fyrir bíl í Höfða-
hlíð.
Svala sagði það eindregna von
þeirra sem skrifuðu nöfn sín á
téða undirskriftalista að sem fyrst
yrðu gerðar nauðsynlegar úrbæt-
ur og hættu sem börnum stafaði
af hraðakstrinum yrði afstýrt.
óþh
nýja garðinum sem hönnuð cr
fyrir vélgröft, en allar grafir í
eldri hlutanum hafa verið teknar
með skóflu.
Á sl. þremur árum hefur við-
hald við kirkjuna kostað um 3
milljónir króna, en kirkjan hefur
verið klædd að utan og skipt hef-
ur verið um járn á þaki og turni.
Öllum ábendingum vegna áð-
urnefndrar lagfæringar skal kom-
ið á framfæri við formann sókn-
arnefndar, Sigurð J. Stefánsson.
GG
Útboð á póst- og síma-
húsi á Bakkafirði:
„Vonasannarlega
ad takist að
ljúka husinu á
þessu áif
„Ég vona sannarlega að tak-
ist að Ijúka húsinu á þessu
ári,“ sagði Reynir Sigur-
þórsson, umdæmisstjóri
Pósts og síma á Egilsstöð-
um, en stofnunin hefur nú
auglýst útboð á smíði og
fullnaðarfrágangi póst- og
símahúss á Bakkafírði.
Gengið var frá grunni og
plötu hússins í fyrra, en í ár er
ætlunin að Ijúka við byggingu
þess. Um er að ræða einfalt
hús, 91 fermetri að flatarmáli,
og verður í því hefðbundin
póst- og símaaígreiðsla.
Póstur og sími býr cins og er
við þröngan kost á Bakkafirði.
Afgreiðslan er inni í íbúð og
eins og gefur að skilja er löngu
tímabært að bæta þar úr.
Útboðsgögn vegna bygging-
arinnar verða aflient á skrif-
stofu fasteignadeiidar Pósts og
síma í Reykjavík, en tilboð
verða opnuð á skrifstofu
umsýsludcildar sömu stofnun-
ar í Reykjavík 12. júlí nk.
_____________________óþh
Mánaberg ÓF:
Munværaiiúthafs-
karfi en í fyrra
Frystitogarinn Mánaberg frá
Ólafsflrði hefur verið á úthafs-
karfaveiðum um 400 mílur
suðvestur af Reykjanesi eins
og skýrt hefur verið frá á síð-
um Dags.
Um miðjan dag á mánudag var
búið að frysta rúm 100 tonn af
hausskornum karfa sem fer á
Japansmarkað, en sá karfi sem
nú fæst er mun vænni en sá sem
skipið fékk á sömu slóðum
fyrir ári. Einnig er talsvert
minna af alls kyns sníkjudýrum
og svörtum blettum á karfanum
nú en í fyrra, en þá fóru um 25%
af þeim karfa sem upp kom í haf-
ið aftur, en nú er úrkastið aðeins
5-6%.
Meðalþyngd karfans er um 300
grömm hausaður, en getur náð
allt að 500 gramma þyngd, en
nýtingin er um 50%.
Þarna eru á veiðum 9 íslenskir
togarar, en Mánabergið er sá eini
frá Norðurlandi en þarna eru
einnig nokkrir norskir togarar.
Nokkru sunnar eru hins vegar
nokkrir rússneskir og þýskir
togarar sem einnig eru á karfa-
veiðum.
„Hin gömlu kynni gleymast ei“
Um síðustu helgi hittust 50 ára búfræðingar frá Hólum í Hjaltadal á
gamla skólastaðnum sínum. Þeim þótti húsunum heldur hafa fjölgað,
en könnuðust samt vel við sig og rifjuðu upp gamla skóladaga með
bros á vör. Mynd. SBG
óþh
Akureyri:
A sjötta hundrað undirskriftir aflientar
Svala Stefánsdóttir afhcndir Valgarði Baldvinssyni undirskriftalistana í gær. IVIeð á myndinni eru Eygló Arnardóttir
og Elsa Sveinsdóttir. Mynd: kl
Stærri-Árskógur:
Gamli kirkjugarðurinn lagfærður
Ekki er til nein legastaðaskrá
Tveir togarar UA í
vandræðum á Fáskrúðsfirði