Dagur - 28.06.1990, Síða 7

Dagur - 28.06.1990, Síða 7
María Björk Ingvadóttir í ræðu&tól á stofnfundinum. Þátttakendur á aðalfundi Sambands norðlenskra kvenna. Aðalfundur Sambands norðlenskra kvenna: Konur taki virkari þátt í starfi búnaðarfélaganna Hinn árlegi aðalfundur Sam- bands norðlenskra kvenna var haldinn að Lundi í Öxarfirði dagana 12. og 13. maí sl. Meðal mála sem fjallað var um á fundinum var könnun sem landbúnaðarráðuneytið lét gera á síðasta ári á stöðu kvenna í land- búnaði og atvinnumöguleikum þeirra. Elín Líndal Lækjamóti í V.-Húnavatnssýslu sagði frá þessari könnun. Sólveig Arnórsdóttir Útvík Skagafirði talaði um Ferðaþjón- ustu bænda. Kristín Sigfúsdóttir, matvælafræðingur, flutti erindi um hollustuhætti i mataræði. Gerður Pálsdóttir, húsmæðra- kennari, sagði frá könnun sem hún vinnur að um matarvenjur íslendinga á fyrri hluta þessarar aldar. Margar tillögur voru sam- þykktar á fundinum. Meðal ann- arra var tillaga þar sem skorað er á konur í bændastétt að taka virkari þátt en verið hefur í starf- semi búnaðarfélaganna. Önnur tillaga skorar á konur á sam- bandssvæðinu að gangast fyrir aukinni fræðslu um mataræði og hollustuhætti í samræmi við markmið Manneldisráðs íslands og stuðla þannig að heilbrigði fyrir alla. Margt fleira var rætt á fundin- um. Kvöldvaka var í Skúlagarði kvöldið 11. maí, sem heimakon- ur sáu um. Par voru mörg vönd- uð skemmtiatriði og veisluföng á boðstólum og var þetta hin besta skemmtun sem endaði með Sam- bandssöng norðlenskra kvenna, en texti hans er eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli í Eyjafirði en höfundur lags er Björg Björnsdóttir Lóni í Keldu- hverfi. Björg stjórnaði söngnum af miklu öryggi, svo og öðrum söng á kvöldvökunni. Formannsskipti urðu á þessum fundi. Elín Aradóttir Brún Reykjadal, sem hefur verið for- maður sl. 14 ár, lét af störfum og í hennar stað var kosin Anna Helgadóttir, kennari á Kópa- skeri. Aðrar stjórn eru Sigríður Hafstað Tjörn í Svarfaðardal og Guðrún Óskarsdóttir Akureyri. (Fréttatilkynning) við verðum að safna að okkur bókum, en það kemur allt með tímanum.“ Sigríður P.: „Okkur langar mikið til þess að geta haft opið í ákveðinn tíma á hverjum degi, þannig að þú vitir af því að þú getur komið í kvennasmiðjuna og sest þar niður annaðhvort einn með sjálfum þér eða rabbað við annað fólk.“ - Fóru undirtektirnar og þessi fjöldi kvenna sem mætti á stofn- fundinn ekki langt fram úr ykkar björtustu vonum? Sigríður P.: „Jú, svo sannar- lega gerði fundarsóknin það. Viðbrögðin eftir fundinn voru líka góð, þá sögðu margar við mann að þær hefðu ekki komist og spurðu hvort þær gætu ekki gengið í félagið seinna.“ Skilar heim betri konum Af þessu spjalli og fjölda stofn- félaga í kvennasmiðjunni í Skagafirði að dæma er greinilegt að þetta félag er komið til að vera. Starfsemin hjá kvenna- smiðjunni mun trúlega hefjast áður en langt um líður hjá þess- um eldhugum kvennastéttarinnar og til marks um það er fyrsta verkefni kvennasmiðjunnar, það er að fá leikritið Sigrúnu Ástrósu til Skagafjarðar og er búið að koma því í kring svo að Skagfirð- ingar geta bráðum farið á leiksýningu sem kvennasmiðjan stendur fyrir. Að endingu fullyrtu þær stöllur að kvennasmiðjan ætti örugglega eftir að skila körlunum heim betri konum, því ef maður finnur sig í einhverjum félagsskap og líður vel þá skilar það sér alltaf heim til fjölskyldunnar. Fimmtudagur 28. júní 1990 - DAGUR - 7 Veiðivöiur útileguvörur Eitt mesta úrval norðanlands. Regnfatnaður, hlífðarföt, vöðlur og veiðistígvél. Við Leiruveg Sími 21440 Ánamaðkar og allt sem þarf I veiðiferðina. Utvegsmenn! Eigum á lager rækjutroll 1100 og 1400 möskva spútnik. Einnig dragnætur. Nótastöðin Oddi Símar 24466 og 23922. Blóm í blíðu og stríðu Viljir þú senda blóm til vina á höfiiðborgarsvæðinu þá erum við til þjónustu reiðubúin Krossar ★ Kransar ★ Kistuskreytingar ★ Samúðarkveðjur ★ Sendingarþjónusta Blómahaíið, Stórhöfða 17 v/Gullinbrú, 112 R-vík, sími 91-671470 Blóm og gjafavara Aiudýsendur atiiiigíð Skilafrestur auglýsinga sem eru 2ja dálka (10 cm) á breidd eða smáauglýsinga er til kl. 11.00 daginn fyrir útgáfudag, nema í helgarblað, þá er skila- frestur til kl. 14.00 á fimmtudag. Allar stærri auglýsingar og lit þarf að panta með 2ja daga fyrirvara. í helgarblað þarf að panta allar stærri auglýsingar fyrir kl. 11.00 á fimmtudag. augrlýsincradeilci, sími 24222.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.