Dagur - 29.06.1990, Síða 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 29. júní 1990
122. tölublað
Filman þm
a skiiiö þaö
besía /
H-Lóx
gæðaframköllun
rHrað-
framköllun
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 - Sími 27422 - Pósthóif 196
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Enduruppbygging
Krossanesverksmiðjunnar:
Kannað hvað
kostar að
hætta við
Samkvæmt heimildum Dags er
Akureyrarbær að láta kanna
hvað það muni kosta bæjarfé-
lagið að hætta við endurupp-
bygginguna í Krossanesi, og
hvort þær tölur sem lagðar
hafa verið fram um kostnaðinn
séu líklegar til að standast.
Enginn hluthafafundur hafði
verið boðaður í gær.
Kostnaðurinn við endurupp-
byggingu Krossanesverksmiðj-
unnar hefur reynst mun meiri en
ráð var fyrir gert. Samkværnt
upplýsingum Dags hafa tölurnar
enn hækkað, og nemur viðbótin
frá fyrri áætlun ekki undir 75
milljónum króna. Þá eru sumir
hræddir um,að enn eigi ófyriséð-
ur kostnaður eftir að koma í ljós,
a.m.k. sé varla unnt að fyrir-
byggja þann möguíeika.
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
stjórnarmaður í Krossanesstjórn,
taldi ekki tímabært að veita nein-
ar upplýsingar um málið í gær,
þar sem það væri á viðkvæmu
stigi.
Hugmyndir voru uppi um að
kaupa rafskautaketil til verk-
smiðjunnar, en til þess þarf að
leggja háspennustrengi að Krossa-
nesi. Rafveita Akureyrar hefur
pantað rofabúnað fyrir fjórar
milljónir króna, auk þess sem
búið var að panta tvo 12 þúsund
volta háspennustrengi. Rafveitan
greiðir rofana, en Krossanes
strengina. Strengirnir eiga að
liggja frá aðveitustöð 2, Kollu-
gerði, til Krossaness, en sú vega-
lengd er um þrír kílómetrar.
Heildarlengd strengjanna verður
sex kílómetrar, því þeir verða að
vera tveir. Heildarverðmæti bún-
aðarins losar tíu milljónir króna.
Hjá rafveitunni fengust þær upp-
lýsingar að auðvelt ætti að vera
að selja a.m.k. háspennustreng-
ina á innanlandsmarkaði til ann-
arra rafveitna, yrði hætt við
- enduruppbygginguna. EHB
Þríburarnir, f.v. Birgitta Elín, Fannar Hólm og Hanna María.
Mynd: KL
5 ára afmæli þríburanna á Akureyri
Þríburarnir sem fæddust á Akureyri árið 1985 eiga afmæli í dag. Haldið verður upp á fimm ára afmælið
á laugardaginn með fjölskyldunni, en í dag verður ýmislegt gert til hátíðabrigða í leikskólanum.
Þríburarnir Fannar Hólm, Hanna María og Birgitta Elín, börn Jóhönnu Birgisdóttur og Halldórs
Halldórssonar, fara í dag með tertu í leikskólann sinn, Pálmholt. Þar ætla þau að halda upp á daginn
með krökkunum. Á laugardaginn verður svo haldið upp á afmælið heima, með ættingjum og vinum.
En hvað vilja þau fá í afmælisgjöf? Fannar Hólm er hrifinn af Batman og fallegum bílum. Stelpurnar
eru mest fyrir dúkkur og dót sem má nota í mömmuleik. Stundum hafa þríburarnir fengið eins afmælis-
gjafir, en þegar þau velja sjálf kjósa þau ekki endilega sömu hlutina. EHB
Veiðieftirlit í sjó:
Óskað eftir aðstoð hins opinbera
- nefnd vinnur að tillögum um úrbætur
Á vegum landssambanda veiði-
félaga, stangveiðifélaga og
fiskeldis- og hafbeitarstöðva er
starfandi þriggja manna nefnd
til að gera tillögur um úrbætur
í eftirlitsmálum með lax- og sil-
ungsveiði í sjó. Nefndin hefur
verið starfandi um tíma og
mun kynna tillögur sínar fyrir
landbúnaðarráðuneytinu. Inn-
an sambandanna er mikill
áhugi á því að ríkið taki að sér
veiðieftirlitið þar sem um
beina löggæslu sé að ræða.
Hingað til hafa veiðifélögin
þurft að annast eftirlitið að
mestu.
Þeir sem starfaö hafa í veiðieft-
irliti, og Dagur hafði samband
við, sögðu að nauðsynlegt væri
að betra skipulag fengist á veiði-
eftirlitsmálin í heild fyrir landið.
Tveir bændur í Öngulsstaðahreppi vilja kaupa sömu jörðina:
Málið til Jarðanefndar E}jafjarðar
Jarðancfnd Eyjafjarðar var
fyrir nokkru sent erindi frá
stjórn Skjólbeltasjóðs Krist-
jáns Jónssonar í Óngulsstaða-
hreppi. Stjórnin hefur ákveðið
að selja jörðina Hól, sem er í
eigu hans, og nota söluandvirð-
ið til að efla gerð skjólbclta í
hreppnum. Tveir nágrannar
hafa lýst yfír vilja til að kaupa
Hólsland.
Kristján Jónsson, bóndi á
Hóli, lést 26. desember 1986 á
Kristnesspítala. Hann átti enga
afkomendur, en ákvað að láta
allar eigur sínar ganga til Önguls-
staðahrepps. í erfðaskrá sem
Kristján gerði í apríl árið 1984 er
gert ráð fyrir að eigur hans renni
til stofnunar sérstaks sjóðs, sem
nota á til að styrkja og verðlauna
skjólbeltagerð í hreppnum. Sjóð-
urinn heitir Skjólbeltasjóður
Kristjáns Jónssonar, og í skipu-
lagsskrá hans, sem Kristján heit-
inn lýsti sig samþykkan, kemur
fram að stjórnin eigi að vera skip-
uð þremur mönnum. Tveir skuli
kosnir af hreppsnefnd, en einn
tilnefndur af Skógræktarfélagi
Eyfirðinga.
Árlega skal úthluta úr sjóðnum
fé til þeirra sem standa sig best á
sviði skjólbeltaræktar. Varsla
sjóðsins er í höndum hrepps-
nefndar Öngulsstaðahrepps.
Til að efla sjóðinn og uppfylla
markmið hans ákvað stjórnin að
selja Hól. Jörðin hefur verið í
eyði í níu ár. Túnin hafa verið
nýtt af ábúendum Ytra-Lauga-
lands gegn Ieigugjaldi, en jörð-
inni fylgir enginn framleiðslurétt-
ur. íbúðarhúsið er ónýtt. Fjós og
hlaða eru í þokkalegu ástandi.
Stjórninni var kunnugt um
vilja ábúendanna á Ytra-Lauga-
landi og Hóli 2 til að kaupa
Hólsland. Báðir vildu kaupa alla
jörðina, og náðist ekki sam-
komulag um að selja hvorum um
sig helming hennar. Var málinu
þá skotið til Jarðanefndar Eyja-
fjarðar, þar sem það er til athug-
unar.
Samkvæmt heimildum Dags er
sjónarmið sjóðsstjórnarinnar að
land Hóls haldist í eigu íbúa
hreppsins, þar sem slíkt stuðli
fremur að markmiði Kristjáns
heitins, en að selja jörðina utan-
aðkomandi aðila. EHB
Meðal þess sem nefndin er að
velta fyrir sér er að fengnir verði
fastir starfsmenn á vegum ríkis-
ins, sem skiptu eftirlitinu á milli
sín eftir landshlutum. Nóg er af
mönnum til að sinna veiðieftirliti
en vöflur koma á hið opinbera
þegar komið er að kostnaðarhlið-
inni.
„Okkur finnst að ríkið hljóti
að hafa skyldum að gegna gagn-
vart okkur eins og öðrum, við að
kosta löggæslu. Það er vafasamt
að veiðiréttareigendur fari út í
eftirlit hver fyrir sig,“ sagði Vig-
fús B. Jónsson, bóndi á Laxam-
ýri, í samtali við Dag. -bjb
HofsÓS:
Jón fer í
„ból“ Bjamar
Björn Níelsson, sem verið hef-
ur sveitarstjóri á Hofsósi frá
því í september 1988, mun láta
af störfum þann 10. júlí næst-
komandi og Jón Guðmunds-
son á Óslandi taka við af
honum.
Björn hyggst halda í frekara
nám og fara í Tækniskóla íslands
eftir að hann hefur tekið sér gott
sumarfrí. Hann segist telja að
ástandið á Hofsósi sé nú að verða
komið í jafnvægi aftur eftir hörð
ár. Þess má geta að sveitarfélagið
var mjög illa statt þegar Björn
tók við, en nú er búið að fella
niður mikið af skuldum og Hofs-
óshreppur búinn að sameinast
Hofshreppi og Fellshreppi.
Sveitarstjórastaðan var ekki
auglýst, en Jón Guðmundsson
var ráðinn af nýrri sveitarstjórn
sameinuðu hreppanna, Hofs-
hrepps. Jón er búinn að vera
oddviti í gamla Hofshreppi í 20
ár og hefur einnig setið í stjórn
Hraðfrystihúss Hofsóss og verið
þar stjórnarformaður í eitt ár.
Hann mun setjast í sveitar-
stjórastólinn þann 10. júlí og
sagði, þegar Dagur hafði samband
við hann, að sér litist ágætlega á
þetta. SBG
Sauðárkrókur:
Stúlka slasað-
ist í árekstri
Arekstur varð í gærdag á
Sauðárkróki. Létt bifhjól
lcnti á bíl með þeim
afleiðingum að ökumaður
bifhjólsins, sern var ung
stúlka, slasaðist töluvert en
þó ekki alvarlega.
Slysið varð rétt hjá verslun
Haraldar Júlíussonar þegar
bifreið scm ekiö var norður
Aðalgötu beygði inn á Kaup-
vangstorg í veg íyrir bifhjólið
sem kom Aðalgötuna til suö-
urs. Að sögn lögrcglunnar á
Sauðárkróki kvaðst ökumaður
bifreiðarinnar ekki hafa orðið
var viö stúlkuna fyrr cn hjóliö
lenti á bílnum.
Stúlkan reyndi að sveigja
framhjá bílnum, en náði því
ekki og lenti aftast á hlið hans.
Hún var strax flutt á sjúkra-
hús. Hjólið er rnikið skemmt
en ekki talið ónýtt.SBG
Gistiheimilið á Kópaskeri:
„Leggst bara vel í mig“
A Kópaskeri er rekið eitt gisti-
heimili og það er ung kona frá
Hafnarfírði sem ber ábyrgð á
rekstrinum í sumar, en Kaup-
félag Norður-Þingeyinga hafði
um árabil starfrækt gistiheimili
í sama húsi. En hvað dregur
konu frá höfuðborgarsvæðinu
norður í land?
„Systir mín býr hérna á Kópa-
skeri og manninum hennar fannst
þetta sniðug hugmynd þegar í
Ijós kom að starfið var laust og
hafði samband við mig. Ég ákvað
að slá til og hingað er ég komin
með börnin mín. Það er allt í lagi
að próta þetta,“ sagði Erna
Gunnarsdóttir, sem tók við
rekstri gistiheimilisins 1. maí sl.
og ætlar að vinna við það a.m.k.
í sumar.
Gistiheimilið á Kópaskeri býð-
ur upp á þrjú tveggja manna her-
bergi en þar er h'ka stór salur sem
hægt er að leigja fyrir fundi, erfi-
drykkju og hvers konar samkom-
ur. Erna sagði að salurinn væri
mjög vinsæll.
„Það verður ábyggilega nóg að
gera í sumar því það er þegar far-
ið að koma dálítið af ferðamönn-
um hingað. Þetta leggst bara vel í
mig,“ sagði Erna að lokum. SS