Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 29. júní 1990 f/ myndasögur dags 1 ÁRLAND Ruglaöur maöur reyndí rétt í þessu aö ræna flóamarkað- inn og þú varst hvergi nálæg- ...Hvaö hefur Fáöu þú aö segja þér þér Jil málsbóta? 1 brún- 0 æöis- i'/ _Je9a F^góö! _ Jrj ÍÆk ANDRÉS ÖND Þetta er greinilega ekki þinn dagurj. ~ Eg er bara óheppinni Flottur ] Kannski er staður!4_heppnin með -mér núna^,— HERSIR BJARGVÆTTIRNIR # Rígningar- sumarið Bóndi nokkur þótti akaflega hirðusamur og natinn við heyskap. Svo brá við eitt sumar að hey náðist ekki í hús alllanga hrið vegna óþurrkatíðar. Þegar stytti upp eftir langa mæðu gerð- Ist vindur svo hvass af suðri að heyið fauk af túnunum. Bóndinn kom til kirkju, og hitti prest sinn að máli. Presturinn spurði hvernig hefði gengið að ná inn heyj- unum. „Það fór ekki vel hjá mér, þetta fauk mestallt til fjandans,“ sagði bóndinn. „Nú,“ segir prestur. „Ertu þá viss um að sá gamli hafi hirt það allt?“ „Það veit ég ekki,“ segir bóndinn. „En varla trúi ég því á hinn.“ # Megrunin Kona nokkur fór í megrun, og talaði mikið um hvað hún hefði lagt af. Hún sagði eitt sinn við mann sinn að hún hefði misst um 3 kg á mán- uði að meðaltali síðustu tvo mánuði. Eiginmanninum var farið að leiðast þetta sí- fellda megrunartal, og sagði eftir svolitla umhugsun við konuna: „Já, þú hefur misst svona mikið á tveimur mán- uðum. Þú verður þá horfin i september á næsta ári.“ # Sinfóníu- hljómsveitin Alþingi var eitt sinn með málefni Sinfóníuhljómsveit- ar íslands til umfjöllunar, og var flutt frumvarp til laga um hljómsveitina. Þorvaldur Garðar Kristjánsson talaði á móti frumvarpinu, og sagði að mesti óþarfi væri að setja ný lög um hljóm- sveitina. Hann sagði m.a. þessa setningu: „í yfir þrjá- tíu ár hefur Sinfóníuhljóm- sveitin ekki haft nein lög, engin lög.“ Rétt í því kemur Garöar Sigurðsson í dyrnar og segir aö bragði: „Hvað hafa þeir þá verið að spila öll þessi ár?“ # Loftmælirinn Akureyringur einn, sem vann á bensínstöð, var af einhverjum ástæðum á móti Þingeyingum, og taldi þeim flest til foráttu. Eitt af því var að þeir „væru fullir af lofti.“ Húsvíkingur kom á bensín- stöðina og bað um loftmæli að láni, því hann vildi mæla loftþrýstinginn í hjólbörð- um bílsins. „Passaðu þig á að skemma ekkí mælinn,“ sagði afgreiðslumaðurinn um leið og hann rétti áhald- ið yfir afgreiðsluborðið. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Föstudagur 29. júní 17.50 Fjörkálfar (10). (Alvin and the Chipmunks.) 18.20 Unglingarnir í hverfinu (8). 18.50 Táknmalsfréttir. 18.55 Poppkorn. 19.25 Reimleikar á Fáfnishóli (10). (The Ghost of Faffner Hall.) 19.50 Maurinn og jarðsvínið. 20.00 Fréttir og veöur. 20.35 Fjögurra þjóða mót í handknattleik. Ísland-Noregur seinni hálfleikur. Bein útsending frá íþróttahúsinu í Hafn- arfirði. 21.15 Lorry. (Lorry.) Umdeildur skemmtiþáttur sem var fram- lag Svía til sjónvarpshátíðarinnar í Montreux. 21.45 Bergerac. 22.35 í hita dagsins. (The Heat of the Day.) Bresk sjónvarpsm/nd frá árinu 1989. Ókunnugur maður færir Stellu Rodney þær fréttir að Robert elskhugi hennar, sem gegnir leyndarúcmsfullu starfi í hermálaráðuneytinu, selji óvinunum hernaðarleyndarmál. Hann býðst til að halda því leyndu fallist hún á að verða ástkona hans. Aðalhlutverk: Peggy Ashcroft, Michael Gambon, Patricia Hodge og Michael York. 00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Stöð2 Föstudagur 29. júní 16.45 Nágrannar. (Neighbours.) 17.30 Emelía. 17.35 Jakari. 17.40 Zorro. 18.05 Ævintýri á Kýþeríu. (Adventures on Kythera.) Fimmti hluti af sjö. 18.30 Bylmingur. 19.19 19.19 20.30 Ferðast um tímann. (Quantum Leap.) 21.20 Leigumorð.# (Downpayment on Murder.) Spennumynd um geðklofa fasteigna- braskara, sem ræður til sín mann sem á að koma konu þess fyrmefnda fyrir katt- amef. Aðalhlutverk: Connie Sellecca, Ben Gazz- ara og David Morse. Bönnuð börnum. 23.00 í ljósaskiptunum. (Twilight Zone.) 23.25 Frægð og frami.# (W. W. and the Dixie Danceking.) Aðlaðandi og snjall bragðarefur frá Suðurríkjunum tekur að sér að æfa þriðja flokks sveitatónlistarflokk, þar sem ung stúlka fer með aðalhlutverkið. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Art Camey og Conny van Dyke. 00.55 Hundrað rifflar. (100 Rifles.) Bandarískur vestri. Lögreglustjóri hefur elt útlaga suður fyrir landamærin og flækist í stríðserjur milli heimamanna og herstjórnar gráðugs her- foringja. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Jim Brown, Raquel Welch og Fernando Lamas. Stranglega bönnuð börnum. 02.45 Dagskrárlok. Rás 1 Föstudagur 29. júní 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Sumarljóð kl. 7.15, hreppstjóraspjall rétt fyrir kl. 8.00, menningarpistill kl. 8.22 og ferðabrot kl. 8.45. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „Kátir krakkar" eftir Þóri S. Guðbergsson. Hlynur Örn Þórisson les (5). 9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur. 9.30 Innlit. 10.00 Fréttir. 10.03 Þjónustu- og neytendahornið. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Á ferð. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. 12.01 Úr fuglabókinni. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn - Hvað em börn að gera? 13.30 Miðdegissagan: „Vatn á myllu kölska" eftir Ólaf Hauk Símonarson. Hjalti Rögnvaldsson les (6). 14.00 Fréttir. 14.03 Ljúflingslög. 15.00 Fréttir. 15.03 Á puttanum milli plánetanna. Fyrsti þáttur. 16.00 Fréttir. 16.03 Að utan. 16.10 Dagbókin. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. 18.00 Fréttir. 18.03 Sumaraftann. 18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Kórakeppni Bandalags evrópskra útvarpsstöðva, „Let The Peoples Sing". 20.40 Tii sjávar og sveita. 21.30 Sumarsagan: „Manntafl" eftir Stefan Zweig. Þórarinn Guðnason les (5). 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins. 22.25 Úr fuglabókinni. 22.30 Danslög. 23.00 Kvöldgestir. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Föstudagur 29. júní 7.03 Mjgrgunútvarpið - Vaknið til lífsins. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03 Morgunsyrpa. 11.03 Sólarsumar með Jóhönnu Harðardóttur. - Þarfaþing kl. 11.30. 12.00 Fréttayfirlit. 12.20 Hádegisfréttir. - Sólarsumar heldur áfram. 14.03 HM-hornið. 14.10 Brot úr degi. 16.03 Dagskrá. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 91-686090. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Söðlað um. 20.30 Gullskífan. 21.00 Djasshátíðin mikla. 22.07 Nætursól. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 Nóttin er ung. 2.00 Fréttir. 2.05 Gramm á fóninn. 3.00 Áfram ísland. 4.00 Fréttir. 4.05 Undir værðarvoð. 4.30 Veðurfregnir. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Djasshátíðin mikla. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Úr smiðjunni - Áttunda nótan. 7.00 Áfram ísland. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 29. júní 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Föstudagur 29. júní 07.00 7-8-9... Hallur Magnússon og Kristín Jónsdóttir. 09.00 Fréttir. 09.10 Páll Þorsteinsson. 11.00 Ólafur Már Björnsson. 14.00 Helgi Rúnar Óskarsson. 17.00 Kvöldfréttir. 17.15 Reykjavík síðdegis. 18.30 Kvöldstemmning í Reykjavík. 22.00 Á næturvaktinni. 03.00 Freymóður T. Sigurðsson. Hljóðbylgjan Föstudagur 29. júní 17.00-19.00 Axel Axelsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.