Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 29. júní 1990 Crawn Cfiidien 1 £ji'MngaSid 1 sk. jranskar. Franskar stór sk 1 sk. sciíat... 1 sk. sósa .... 2 kjúklirujaóitar, jranskarj sósa; saíat og gos Bamaharnborgari m/jrönskum og gosi........ Kórómóorgari m/jrönskum og gosi........... Oséorgari m/jrönskum og gosi ............. Píta m/grœmmtij jrönskwn og gosi ......... Píta m/naatabujjij jrönskum og gosi....... Píta m/kjúkkngasaíatij jrönskum og gosi .... Píta m/jtskij jrönskum og gosi............ ójamanna... kr. 1266 4ramanna .. kr. 1688 5 manna ... .. kr. 2110 1,5 Cítrar af gosi jyítjja með Skipagötu 12 Akureyri • Sími 21464 Komið atmm SkagaQörður: Gróðursetningu landgræðslu- skóga að Ijúka Gróðursetningu landgræðslu- skóga í Skagafirði er nú að verða lokið, aðeins er eftir að setja niður örfáar plöntur á Hólum í Hjaltadal. Solveig Arnórsdóttir, forinaður átaks- nefndarinnar í Skagafirði, sagði við Dag að vel hefði gengið að fá fólk í gróðursetn- inguna, enda veður verið með besta móti þar til undir það síðasta. Plantað var á þremur stöðum í Skagafirði. í Varmahlíð voru settar niður um 10.000 plöntur, mest lerki en einnig birki og bergfura. Par var sett niður í rúma 20 hektara í nýrri girðingu Skógræktarfélagsins austan í Reykjarhólnum og voru það aðailega ýmis félagasamtök sem sáu um gróðursetninguna. Þó var þann 19. júní auglýst gróðursetn- ing og var mæting góð. Á Hólum í Hjaltadal er verið að ljúka við að setja niður um 36.000 plöntur og eru það að stórum hluta birkiplöntur þó að lerki og bergfura séu þar líka. Plantað er í um 70 hektara sunn- an við Víðinesána á svæði sem nær niður að vegi. Möguleiki er að meira verði sett niður, en í upphafi áttu þetta að vera um 50.000 plöntur. 8000 plöntur fóru niður á Sauðárkróki og þar var plantað í svæði ofan við svokallað Hlíða- hverfi næst Sauðá bæði lerki og birki. Bæjarbúar unnu það verk að mestu leyti á einni kvöld- stund, en krakkar í vinnuskólan- um kláruðu það. SBG Hitaveita Akureyrar: Minna borað, meira mælt Framkvæmdir á vegum Hita- veitu Akureyrar í sumar verða meira í átt til rannsókna frekar en miklar boranir í nýjum holum. Rannsóknir halda áfram þar sem frá var horfið sl. sum- ar inn við Botn og á Lauga- landi á Þelamörk. Boraðar verða tvær rannsóknarholur á Laugalandi og eitthvað af grunnum holum í iandi Botns en ekkert verður um vinnslu- holuboranir. Sumarið hjá Hitaveitu Akur- eyrar fer því meira í mælingar, en síðasta sumar var mikið um bor- anir á vegum veitunnar. Á öllu síðasta ári fóru rúmar 3,9 millj- ónir rúmmetra af vatni í gegnum dælukerfi hitaveitunnar og að sögn Magnúsar Finnssonar hjá Hitaveitu Akureyrar fer dælingin á þessu ári að öllum líkindum yfir 4 milljónir rúmmetra. Síðustu ár, eða frá því markaðsátak veitunn- ar hófst 1987, hefur aukningin verið á bilinu 1-2% milli ára. Átakið fólst í því að gera rafhita- notendum tilboð um að breyta sinni kyndingu yfir í hitaveitu. Hitaveita Akureyrar á þó nokkur ár í að slá vatnsnotkunar- metið frá 1982 og sagði Magnús Finnsson að með stækkandi bæ yrði það met örugglega slegið fyr- ir aldamót. -bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.