Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 29.06.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 29. júní 1990 - DAGUR - 9 Vegna mistaka í prcntvinnslu síðustu KEA-fregna speglaðist mynd af nýjum húsakynnum skipaafgreiðslu KEA á Togarabryggju og starfsmönnum hennar. Að beiðni hlutaðeigandi birtir Dagur téða mynd rétta. Frá vinstri Jón Arnþórsson, Gunnlaugur Guðmundsson, Gunnlaugur Frímannsson og Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Akurey rarprestakall. Messað verður í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag kl. II f.h. Sálmar: 52-342-181-348-527. B.S. Messað verður á Dvalarheimilinu Hlíð kl. 4 e.h. B.S. HVÍTASUnnUKIRKJM úskamshlíd Sunnudagur 1. júlí kl. 20.00, almenn samkoma. Ræðumaður Jó- hann Sigurðsson. Samskot tekin til kirkjubyggingar- innar á ísafirði. Fjölbreyttur söngur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn trrSf'nl Hvannavöllum 10. ^^gj^Sunnud. 1. júlí kl. 19.30, Kl. 20.00, almenn samkoma. Flokkstjórarnir kvaddir. Allir hjartanlega velkomnir. Föstudaginn útisamkoma kl. 16.00 ef veður leyfir. Minningarkort Hjarta- og æðavernd- arfélagsins eru seld í Bókvali og Bókabúð Jónasar. Minningarspjöld Minningarsjóðs Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð, Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu F.S.A. Nonnahús Akureyri, Aðalstræti 54 er opið daglega frá kl. 13.00-17.00 frá 4. júní til 1. september. Friðbjarnarhús. Minjasafn I.O.G.T., Aðalstræti 46, Akureyri, verður opnað almenningi til sýnis sunnudaginn 1. júlí n.k. og verður húsið opið á sunnudögum kl. 2-5 e.h. til ágústloka. Á kvisti Friðbjarnarhúss er uppsett- ur stúkusalur og þar var fyrsta stúk- an á íslandi, stúkan ísafold nr. 1, stofnuð. Einnig er að sjá í húsinu myndir og muni frá upphafi Regl- unnar. Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin í Friðbjarnarhús. Guðrún Friðriksdóttir, sími 24371. Gullbrúðkaup eiga í dag þau heiðurshjón Teitur Björnsson og Elfn Aradóttir á Brún í Reykjadal. Þau hjón eru vel þekkt fyrir ötult starf að félagsmálum. Teitur hefur m.a. verið fulltrúi á Búnaðarþingi og oddviti um 16 ára skeið. Elín hefur m.a. verið um árabil í forystu fyrir Sambandi norðlenskra kvenna. Börn þeirra eru Björn, skólameistari á ísafirði, Ingvar, læknir á Akureyri, Ari, ráðunautur á Hrísum, Erlingur, bóndi á Brún, Sigríður, kennari í Kópa- vogi, og Helga, húsmæðrakennari á Flúðum. Á þessum tímamótum ætla börnin sex og barnabörnin ellefu að koma saman hjá þeim Teiti og Elínu. 300 ný störf í hugbún- aðariðnaði á fimm árum Þróunarfélag íslands og Iðn- lánasjóður í samvinnu við Félag ísl. iðnrekenda hafa nýverið lokið við úttekt á íslenskum hugbúnaðarfyrir- tækjum þar sem lögð var sér- stök áhersla á að kanna mögu- leika þeirra til úttlutnings. í framhaldi af úttektinni var boðað til fundar með hugbún- aðarfyrirtækjum þar sem helstu niðurstöður voru ræddar. Meðal athyglisverðra atriða sem komu fram við úttektina má nefna eftirfarandi: ★ Um 50 fyrirtæki munu vera starfandi í hugbúnaðariðnaði hér á landi. Einungis er átt við sjálfstæð einkafyrirtæki, þ.e. ríkisreknar stofnanir og tölvu- deildir stórfyrirtækja eru ekki talin með. ★ Meðalaldur þessara fyrirtækja er einungis fimm ár og meðal- starfsmannafjöldi er sex manns. Að framangreindum forsendum gefnum má segja að á s.l. fimm árum hafi ísl. hugbúnaðariðnaður skapað um 300 ný störf. ★ Samkvæmt könnuninni er áætlað að velta þessara fyrir- tækja hafi verið um 750 millj- ónir á s.l. ári. Laun eru talin unr 60 til 70% af veltu fyrir- tækjanna. ★ Fyrirtækin hafa lagt í umtals- verða vöruþróun s.l. fimm ár. Hjá þeim 14 fyrirtækjum sem þátt tóku í könnuninni nam þróunarvinna að meðaltali 5,3 ársverkum hjá hverju fyrir- tæki. Miðað við að ársverk kosti í dag 3 m. kr. nem- ur heildarþróunarkostnaður fyrirtækjanna í könnuninni 207 milljónum. Sé úrtakshóp- urinn marktækur hvað þetta varðar nemur heildarþróun- arvinna þessara smáfyrirtækja um 800 milljónum króna á fimm ára tímabili. ★ Fyrirtækin eru almennt á háu tæknistigi, starfsfólk er vel menntað í forritun og hugbún- aðargerð. Aðbúnaður er almennt góður, tæki fyrsta flokks og vel virðist fylgst með tækniframförum. * Að mati þeirra er könnunina gerðu er helsta vandamál fyrirtækjanna, að þau eru fjár- hagslega veikburða og hafa ekki yfir að ráða reyndu starfsfólki til að annast sölu og markaðsmál á erlendri grundu. Að mati þeirra er stóðu að könnuninni er athyglisvert hversu mörg ný störf hafa hér verið sköpuð í nýrri grein á ein- ungis fimm árum. Þá er og eftir- tektarvert hve óveruleg fjárfest- ing er að baki hverju nýju starfi í greininni. Ekki þarf að leggja í miklar fjárfestingar varðandi aðbúnað og framleiðslutæki, og virðist hvert nýtt starf sem skap- að er innan þessa sviðs einungis krefjast lítils brots af því sem þarf í öðrum greinum, þó ekki sé minnst á stóriðju. Á fundi með hugbúnaðarfyrir- tækjum kom fram að aðstand- endur þessara fyrirtækja eru almennt sammála um að framtíð hugbúnaðariðnaðar sé björt á ís- landi. Greinin er talin eiga örugga fótfestu á heimamarkaði. Vandi greinarinnar er einkum að fyrirtækin eru of smá til að ráðast í kostnaðarfrekar markaðsaðgerðir erlendis. Þá kom fram að fyrirtækin eiga í harðnandi samkeppni við ýmsar ríkisreknar stofnanir sem að undanförnu hafa byggt upp eigin kerfisfræðideildir í stað þess að kaupa þjónustu frá einkafyrir- tækjum. Töldu ýmsir fundar- menn að ríkið og ýmis stórfyrir- tæki séu oftast að fá dýrari lausn- ir með þessum hætti auk þess sem erfitt sé að keppa við opinberar hugbúnaðardeildir. Var talið brýnt hagsmunamál að þessari þróun sé snúið við og ríkisvaldið geri frekar verksamninga við sjálfstæð hugbúnaðarhús. Ríkismat sjávarafurða: Embættí fiskmats- stjóra laust til umsóknar Embætti fiskmatsstjóra hjá Rík- ismati sjávarafurða hefur verið auglýst laust til umsóknar. Stað- an er veitt til fjögurra ára í senn og er umsóknarfrestur til 6. júlí 1990. Halldór Árnason sem gegnt hefur embætti fiskmatsstjóra frá 1. ágúst 1985 hefur verið ráðinn verkefnisstjóri fyrir sérstöku Gæðaátaki í sjávarútvegi frá 1. sept. 1990. Hefur Halldóri Árna- syni fiskmatsstjóra verið veitt lausn frá störfum frá og með 15. júlí 1990. Dalvíkingar Guðmundur og Valgerð- ur verða til viðtals í Jón- ínubúð milli kl. 16-18 á laugardaginn 30. júní nk. Komið og ræðið við þingmennina. Framsóknarfélag Dalvíkinga. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍ RTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FL.B1986 Hinn 10. júlí 1990 er níundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986. Gegnframvísun vaxtamiðanr. 9 verðurfráog með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: __________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 4.259,55_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinannafyrirtímabilið 10. janúar1990 til 10. júlí 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgjahækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 2905 hinn 1. júlí nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. innlausn vaxtamiða nr. 9 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1990. Reykjavík, 29. júní 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.