Dagur - 05.07.1990, Page 1

Dagur - 05.07.1990, Page 1
Akureyrarbær: Auglýst aftur eftir jafnréttisráðgjafa - Ráðning að loknum sumarleyfum Eins og kunnugt er auglýsti Akureyrarbær fyrir nokkru eftir umsóknum um stöðu jafn- réttisráðgjafa fyrir bæinn. Einn umsækjenda var ráðinn en síðan gekk sú ráðning til baka og er því enn ómannað í stöðuna. Stefnt er að því að auglýsa stöðuna aftur scinni hluta sumars. Töluvert er nú um liðið síðan bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti jafnréttisáætlun fyrir Akureyrarbæ og inni í þeirri áætlun er ráðning sérstaks jafn- réttisráðgjafa. Ekki hefur hins vegar tekist að ráða í starfið enn sem komið er. Hin nýja jafnréttisnefnd Akur- eyrarbæjar er nýtekin til starfa og segir Hugrún Sigmundsdóttir, formaður hennar, að staðan verði auglýst að nýju en ekki fyrr en seinni hluta sumars. „Það eru allir í sumarleyfi núna en við munum auglýsa aftur og leita með logandi ljósi að jafnréttis- ráðgjafa,“ sagði Hugrún. -vs Lögreglan: Allharður árekstur á Akureyri Allharður árekstur varð við gatnamót Strandgötu og Hjalt- eyrargötu síðdegis í gær. Tildrögin voru þau að önnur bifreiðin kom akandi vestur Strandgötuna en hin kom úr gagnstæðri átt og ætlaði að beygja norður Hjalteyrargötu. Vitnum ber saman um að bifreið- Viðbygging Safnahússins á Húsavík: in sem ætlaði að beygja hafi stöðvað við gatnamótin við Hjalteyrargötu, en síðan er hon- um skyndilega ekið aftur af stað og í hliðina á hinni bifreiðinni sem þá er bein fyrir framan hana. Bifreiðin hentist um 20 metra eftir götunni og munaði minnstu að hún hafnaði þar á húsvegg. Ökumaðurinn var einn í bifreið- inni og slapp með mar og skrámur, og má telja mesta mildi að ekki fór ver. GG ■í ' ■ -V \ Kunn aflaskip bundin við bryggju Alls bárust fimmtilboð Böggvisstaðir: Loðdýrabúi hugsanlega breytt í sláturhús eða triáræktarstöð - framkvæmdir heQast í sumar í gær voru opnuð tilboð í viðbyggingu Safnahússins á Húsavík. Alls bárust 5 tilboð, 4 frá Húsavík og eitt frá Reykjnhverfi. Verið er að ytirfara tilboðin, en þeirri vinnu lýkur í dag. Kostnaðaráætlun hönnuða hijóðaði upp á rúmar 23,6 milljónir króna. Þrjú tilboðanna voru ylir áætlun og tvö undir. Tilboð bárust frá Trésntiöjunni Borg hf., Trésm. Fjalari hf., Noröurvík hf., Naustavör hf., öll frá Húsavík og síðan frá Trésmiðjunni Rein í Reykja- hverfi. Samkvæmt útboðsgögnum á að byggja kjallara og tengi- byggingu við Safnahúsið á Húsavík, ásamt frágangi á tengibyggingunni og nýju and- dyri við eldra húsið. Alls eru þetta 540 fermetrar og eiga framkvæmdir að hefjast í sumar. Samkvæmt útboðinu ciga verklok að vcra á næsta ári. Ekki er ákveðið hvenær afgangur viðbyggingarinnar verður boðinn út. -bjb Loðdýrabúið að Böggvisstöð- um við Dalvík var nýlega sleg- ið Landsbankanum fyrir 9,5 milljónir króna, en áður hafði einn af fimm minkaskálum búsins verið sleginn Stol'nlána- deild landbúnaðarins fyrir 2 milljónir króna. Að Böggvis- stöðum var starfrækt stærsta loðdýrabú landsins. Ljóst er að báðar þessar stofn- anir vilja selja þessa eign ef um semst, og hafa nokkrir aðilar sýnt því máli áhuga. Rætt hefur verið um að rífa skálana en selja húsið undir hótel- og gistirekstur og er þá verið að horfa til nálægðarinn- ar við vaxandi skíðasvæði Dal- víkinga. Einnig hafa þeir bændur í Svarfaðardal sem óánægðastir voru með þá ákvörðun KEA að leggja niður sláturhúsið á Dalvík sýnt þessari eign áhuga, en inn í þá umræðu blandast vangaveltur um það hvort gamla sláturhúsið yrði hugsanlega úrelt að hluta og þá leyfð kálfa- og stórgripaslátr- un þar tímabundið. Þessir bænd- ur hafa litið svo á, að KEA geti ekki tekið við úreldingabótum fyrir sláturhúsið án þess að á móti komi einhver þjónusta við bænd- ur vegna aukins kostnaðar sem þeir telja sig verða fyrir ef aka þarf öllum sláturgripum til Akur- eyrar. Einar og Björgvin Hjörleifs- synir á Dalvík hafa einnig verið að athuga möguleika á því að konta á fót ylrækt og/eða trjárækt í Aálunum á Böggvisstöðum og m.a. leitað til Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar um ráðgjöf. Sigurður Sigmundsson hjá Iðnþróunarfé- laginu segir að það sé nánast for- senda þess að reka þar trjá- plönturækt að það sé rekið af fag- manni, þ.e. lærðum garðyrkju- manni, og eins sé nú sérstakt skógræktarátak í gangi, og við- búið að talsverður samdráttur verði í eftirspurn eftir trjáplönt- un þegar því lýkur. Einar Hjörleifsson segir könn- un þeirra bræðra á algjöru frum- stigi, en þeir vilja fara hægt af stað og hugsanlega ekki nota nema einn skála í upphafi ef af þessu yrði. Skálarnir séu hins vegar ekki mjög hentugir, bæði þurfi að setja gróðurhúsagler á skálann og svo þurfi að fækka stoðum. Ljóst er að ýmsir hafa áhuga á einhvers konar starfsemi að Böggvissstöðum, enda staðsetn- ing að mörgu leyti hentug. GG Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri: Valtýr formaður stjórnar Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra hefur skipað í stjórn Fjórðungssjúkrahúsins á Akureyri, og verður Valtýr Sigurbjarnarson útibússtjóri Byggðastofnunar á Akureyri, formaður stjórnar. Aðrir í stjórn eru Ársæll Magnússon umdæmisstjóri Pósts og síma, Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju og Björn Magnús- sori forstöðumaður Fasteigna- mats ríkisins í Norðurlandsum- dæmi eystra sem voru tilnefnd af Akureyrarbæ, og Friðrik Ingva- son læknir sem tilnefndur var af starfsfólki F.S.A. Fyrir stjórninni liggur að ráða framkvæmdastjóra fyrir F.S.A. í stað Halldórs Jónssonar sem tek- ur við starfi bæjarstjóra á Akur- eyri um næstu mánaðamót. Umsóknarfrestur um starfið rann út 20. júní sl. Stjórnarformaður taldi líklegt að fyrsti fundur hinnar nýju stjórnar yrði í byrjun næstu viku. GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.