Dagur - 05.07.1990, Page 4

Dagur - 05.07.1990, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 5. júlí 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Byggðastefha í verki íslendingar standa á tímamótum í byggðaþróun. Framvinda efnahags- og atvinnumála undanfarinna ára hefur orsakað ójafnvægi í byggð landsins, og margsinnis hefur verið varað við afleiðingunum ef ekki verður gripið í taumana. Landsbyggðarfólk spyr hvað sé til ráða, en fátt er um svör. Hugtakið byggðastefna er því miður orðið að hálfgerðu skammaryrði í íslenskri stjórnmálaum- ræðu. Þeir sem þekkja til vita að raunhæf byggða- stefna verður ekki framkvæmd nema með stjórn- valdsaðgerðum. Það segir þó ekki nema hálfa sög- una, því aðgerðir stjórnvalda virðast sífellt ráða minna um þróunina. Önnur öfl verða stöðugt áhrifameiri, og nægir að minna á stökkbreytingar í fjármálalífi þjóðarinnar í því sambandi, og minnk- andi áhrifamátt ríkisvaldsins í ýmsum greinum efnahagslífsins. Byggðastofnun sendi í fyrra frá sér skýrslu um endurmat byggðastefnu. Þar er getið um nokkur augljós merki um tímamót í byggðaþróun. Höfuðborgarsvæðið er fyrir löngu orðið nægilega fjölmennt til að gegna hlutverki sínu, og hefur ekki þörf fyrir meiri aðflutning fólks af landsbyggðinni. Sjávarútvegur hefur þróast á þann veg að sífellt er meira flutt út af óunnum afla, og skipum sem vinna aflann um borð hefur fjölgað án þess að úr vinnslu- getu í landi hafi dregið. Því er óhjákvæmilegt að grundvallarbreyting verði á skipulagi útgerðar og fiskvinnslu á næstu misserum. Fjárfesting í sjúkrahúsum, skólum og heilsu- gæslustöðvum hefur verið mikil, og í skýrslu Byggða- stofnunar er talið að þjónusta á þessum sviðum verði að teljast góð víða um land. Tæplega er að vænta fleiri atvinnutækifæra af þeim vettvangi, en sums staðar samdráttar í þjónustu, vegna fólks- fækkunar. Samgöngubætur valda því að stærri þéttbýlis- kjarnar eflast á kostnað minni byggðarlaga. Þetta er alþekkt, og er vöxtur verslunar og þjónustu í Reykjavík skýrasta dæmið. Vegna yfirburða höfuð- borgarsvæðisins í fólksfjölda myndast þar flest ný atvinnutækifæri í þjónustugreinum. Að lokum er bent á þá alkunnu staðreynd að hefðbundinn landbúnaður mun halda áfram að dragast saman, með tilheyrandi byggðaröskun og til skaða fyrir þétbýliskjarna sem fyrst og fremst byggja á þjónustu við hann. Reynslan af nýjum búgreinum hefur ekki verið í samræmi við vænt- ingar. Staðsetning nýrrar stóriðju, álvers á suðvestur- horni landsins, væri landsbyggðinni síst til fram- dráttar. í Eyjafirði eins og á fleiri stöðum blasir við að fjöldi fólks myndi flytjast á brott, og neikvæð margfeldisáhrif hefðu alvarlegar afleiðingar fyrir byggðarlagið, ekki síst Akureyri. Vonandi bera stjórnvöld og aðrir aðilar sem einhverju ráða gæfu til að efla atvinnulíf á Norðurlandi. Fólk vill sjá byggðastefnu í verki, ekki á pappír. EHB Séð heim að Reykjum í Hrútafirði. Hótel Edda Reykjum í Hrútafirði: „Stórir hópar, ættarmót og ráðstefiia“ - segir hótelstýran um sumarið Ásrún Jónsdóttir hótelstýra (t.h.) og vinstri hönd hennar Ósk Ársælsdóttir koklcur. Að Reykjum í Hrútafirði er eitt af sautján Edduhótelum sem starfa á landinu í sumar. Hótelstýra þar er Ásrún Jóns- dóttir og er þetta fjórða sumar- ið sem hún sér um reksturinn á Reykjum, en þar hefur verið starfandi Edduhótel um margra ára skeið. „Hér erum við með fasta hópa- daga. Við fáum ákveðna hópa bæði á föstudögum og mánudög- um og síðan koma alltaf ein- hverjir á iaugardögum líka. Af einstaklingum er það að segja að mikið er um að útlendingar gisti hér, en íslendingarnir eru ekki farnir að koma neitt að ráði enn. Þeir koma samt alltaf töluvert í júlí,“ segir Ásrún. Á Edduhótelinu að Reykjum eru starfandi níu manneskjur og veitir víst ekki af því að gistipláss á hótelinu er fyrir tæplega hundr- að manns. Góð 25 metra útisund- laug er við hótelið og einnig gufu- bað. Síðan geta menn farið í borðtennis ef þeir vilja. Að sögn Ásrúnar er mikið um það að fólk stoppi hjá þeim til að skreppa í sund og skola af sér ferðarykið. Er það aðallega þegar veður er gott og sólin skín. Hótelið var opnað 15. júní í ár, en á veturna eru reknar skólabúðir í þessu húsnæði. Ásrún segir að mest sé um það að fólk sé bara yfir eina nótt á hótelinu, en þó komi fyrir að eldra fólk gisti lengur. „Rólegast er hjá okkur um miðjan daginn, því að fólkið kemur yfirleitt á kvöldin og fer síðan snemma á morgnana. Það er svo sem ágætt því að þá fáum við tíma til að þrífa. Sumarið lítur vel út og fjöldi gistinátta verður mikill. Við verðum með marga stóra hópa og nokkur ættarmót, síðan verður hér ein ráðstefna í lok ágúst og þegar henni er lokið skellum við í lás og lokum þetta árið,“ sagði Ásrún Jónsdóttir, hótelstýra að Reykjum í Hrútafirði, að lokum þegar Dagur hitti hana að máli í síðustu viku. SBG Forsætisráðherra skipar nefnd þingmanna: Á að yfirfara og endursemja frumvarp til laga um Stjómarráð íslands Forsætisráðherra hefur skipað nefnd þingmanna til þess að yfir- fara og endursemja frumvarp til laga um Stjórnarráð íslands sem lagt var fram á 112. löggjafar- þingi 1989-1990 en varð ekki útrætt. í nefndinni eiga sæti alþingis- mennirnir Páll Pétursson, sem jafnframt er formaður nefndar- innar, Eiður Guðnason, Margrét Frímannsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Ólafur G. Einarsson, Birgir ísleifur Gunnarsson og Danfríður Skarphéðinsdóttir. Með • nefndinni starfar Jón Sveinsson aðstoðarmaður for- sætisráðherra, en hann var for- maður nefndar er samdi fyrra frumvarp um Stjórnarráð íslands. Nefndinni er heimilt að ráða sér starfsmann. Áhersla er lögð á að í frum- varpinu verði staða einstakra ráðuneyta og stjórnarráðsins í heild styrkt í stjórnarkerfinu með því að sameina ráðuneyti og fækka þeim. Jafnframt verði stuðlað að hagræðingu og sparn- aði í stjórnsýslu ríkisins m.a. með því að færa til og sameina skyld verkefni ráðuneyta. Skal nefndin í störfum sínum kynna sér undirbúningsvinnu fyrra frumvarps og fara yfir umsagnir sem borist hafa um málið. Ætlast er til að nefndin skili til forsætisráðherra endurskoðuðu frumvarpi um Stjórnarráð íslands fyrir 20. október 1990.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.