Dagur - 05.07.1990, Qupperneq 7
Fimmtudagur 5. júlí 1990 - DAGUR - 7
Líkan af Gaukstaðaskipinu og teikningar sem sýna skipasmíði til forna.
Mynd: SS
*****
sem hafa fundist; spori, hnífur,
hespa, brýni, slípisteinn, eld-
sláttusteinn, perla, snældusnúð-
ur, tafla úr hnefatafli, steinkerald
og fleira.
Þórslíkanið er ráðgáta
Granastaðir munu hafa byggst
strax á fyrstu árum byggðar í
landinu en bærinn fór í eyði í lok
10. aldar. Við uppgröft hafa m.a.
komið í ljós tvö athyglisverð
jarðhýsi og er annað þeirra full-
grafið. Má segja að það sé ein-
stakt á Norðurlöndunum, en
þetta jarðhýsi er fyrsta íveruhús
landnemans á meðan hann var að
koma sér fyrir í nýju umhverfi.
Síðar reisti hann skála, sem nú er
Guðný Gerður við stcinkerald úr ummynduðu súru gjóskubergi, en keraldið
fannst að Granastöðum. Það var grafið niður í skálagólfið upp við hellulagða
þró. Mynd: SS
á lokastigi rannsóknar.
Lítum næst á fjalir frá Möðru-
felli í Eyjafirði. Lítið hefur varð-
veist af fornum húsviðum á ís-
landi en útskurðurinn á fjölunum
frá Möðrufelli bendir til að þær
séu frá lokum 10. aldar. Kenn-
ingar hafa verið settar fram um
að fjalirnar séu úr skála sem
afkomandi Helga magra byggði.
Einn er sá gripur á sýningunni
Landnám í Eyjafirði sem er
fræðimönnum enn hulin ráðgáta.
Þetta er Þórslíkan frá Eyrarlandi,
afsteypa sem gerð er eftir frum-
mynd sem er varðveitt í Þjóð-
minjasafni íslands.
Þetta mannslíkan fannt að
Eyrarlandi við Eyjafjörð árið
1815 eða 1816. J. Gudmann,
kaupmaður á Akureyri, komst
yfir gripinn og sendi hann Forn-
gripasafninu í Kaupmannahöfn
árið 1817. Þar var líkanið til 1830
en þá var það afhent Þjóðminja-
safni íslands til varðveislu.
í upphafi voru settar fram
kenningar um að líkanið væri af
Þór, hinum forna guði, og hafa
fræðimenn af ýmsum þjóðernum
aðhyllst þessa kenningu þótt aðr-
ar kenningar um Eyrarlandslík-
anið hafi líka komið fram. Krist-
ján Eldjárn varpaði þeirri hug-
mynd fram að þetta væri ekki
goðalíkneski heldur hnefi úr
hnefatafli. Hvað aldurinn varðar
er varla hægt að skera úr um
hvort líkanið sé frá seinni hluta
10. aldar eða fyrri hluta 11. aldar
og gátan um Eyrarlandslíkanið er
enn óráðin og verður svo uns full
kennsl verða borin á manninn.
Sýningin Landnám í Eyjafirði
er opin á opnunartíma Minja-
safnsins á Akureyri, kl. 13.30-
17.00, alla daga vikunnar til 15.
september. SS
Húsavík-Reykj ahlíð-Akureyri:
Sumartónleikar að heflast
Sumartónleikar verða haldnir í
þremur kirkjum á Norð-
austurlandi í júlí og ágúst og er
þetta fjórða sumarið sem þess-
ar tónleikaferðir eru farnar
undir yfirskriftinni Sumartón-
leikar. Aðgangur á þessa tón-
leika er ókeypis og skulum við
líta á dagskrána í sumar.
Kolbeinn Bjarnason, flautu-
leikari, og Guðrún Óskarsdóttir,
semballeikari, hefja ferðina um
næstu helgi. Þau verða nreð tón-
leika í Húsavíkurkirkju 6. júlí,
Reykjahlíðarkirkju 7. júlí og
Akureyrarkirkju 8. júlí.
Næstur í röðinni er Kristinn
Árnason, gítarleikari. Hann
heldur tónleika í Húsavíkur-
kirkju 13. júlí, Reykjahlíðar-
kirkju 14. júlí og Akureyrar-
kirkju 15. júlí.
Laufey Sigurðardóttir, fiðlu-
leikari, og Elísabet Waage,
hörpuleikari, standa fyrir næstu
sumartónleikum. Þær verða í
Húsavíkurkirkju 20. júlí,
Reykjahlíðarkirkju 21. júlí og
Akureyrarkirkju 22. júlí.
Söngurinn hljómar við orgel-
undirleik á tónleikum í lok júlí.
Carola Bischoff, sópran, Margrét
Bóasdóttir, sópran, og prof.
Heinz Markus Göttsche, orgel,
halda tónleika í Húsavíkurkirkju
27. júlí, Reykjahlíðarkirkju 28.
júlí og Akureyrarkirkju 29. júlí.
Sönghópurinn Hljómeyki slær
botninn í sumartónleikana undir
stjórn Hjálmars H. Ragnarsson-
ar. Hljómeyki verður á ferð í
Húsavíkurkirkju 3. ágúst,
Reykjahlíðarkirkju 4. ágúst og
Akureyrarkirkju 5. ágúst.
Sumartónleikarnir í Húsavík-
urkirkju (föstudaga) og Reykja-
hlíðarkirkju (laugardaga) hefjast
ávallt kl. 20.30, en tónleikarnir í
Akureyrarkirkju (sunnudaga)
hefjast kl. 17.00. Allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
SS
Nokkuö hcfur fundist af vopnum frá víkingaöld, spjót, sverð og öxi. Þessir
gripir voru oft listilega smíðaöir og skreyttir. Mynd: ss
Slysavarna-
konur
Skemmtiferð verður farin í Hafnarfjörð og ná-
grenni dagana 17.-19. ágúst.
Ýmsir áhugaverðir staðir skoðaðir.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét í síma 21742, Bergljót í síma 23540 og
Unnur í síma 27295.
Ath! Panta verður sæti fyrir 25. júlí.
Leigumiðlun Félagsstofnunar
stúdenta á Akureyri
Félagsstofnun óskar eftir herbergjum og íbúðum
af öllum stærðum og gerðum á skrá. Leiguhús-
næðið þarf að vera laust í ágúst.
Félagsstofnun kemur á sambandi milli leigusala og
leigutaka.
Félagsstofnun útvegar ábyrgðartryggingu ef óskað er
eftir.
Huseigendur sem geta hugsað sér að leigja stúdentum
við Háskólann á Akureyri hafi samband við skrifstofu
Háskólans í síma 27855 á skrifstofutíma. Nánari upp-
lýsingar veitir Edda Kristjánsdóttir.
’ ,-<r ý Hbl iTHfeÉ Raufarhöfn - nærsveitir
Guömundur og Valgerður verða til viðtals sem hérsegir: Félagsheimilinu Raufarhöfn, föstudaginn 6. júlí kl. 20.30. “ Komið og ræðið við þingmennina Framsóknarflokkurinn.