Dagur - 05.07.1990, Síða 9
Fimmtudagur 5. júlí 1990 - DAGUR - 9
Amnesty International:
Samviskufangar
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli
aimennings á máli þessara sam-
viskufanga. Amnesty vonar að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf til
hjálpar þessum mönnum og skipi
sér á bekk með þeim, sem berjast
gegn mannréttindabrotum á borð
við þau, sem hér eru virt að vett-
ugi.
Islandsdeild Amnesty gefur
einnig út póstkort til stuðnings
föngum mánaðarins. Hægt er að
gerast áskrifandi að þessum kort-
um með því að hringja til skrif-
stofunnar, Hafnarstræti 15, virka
daga frá kl. 16-18 í síma 16940.
handtekin og margir voru
drepnir fyrir andstöðu við þessa
herferð yfirvalda. „Búlgarska“
nafn Hatibov er Belchin Perunov
Perunov.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hann verði
tafarlaust látinn laus. Skrifið til:
President of the People’s
Republic of Bulgaria
Petar Mladenov
Prezidentat na Narodna Repu-
blika Bulgaria
Blvd. Dondukov 2
Sofia
Bulgaria
haldi. Mariam Firouz er í Evin
fangelsinu í Teheran. Hún er við
slæma heilsu, þjáist af gigt og er
hjartveik.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hún verði
tafarlaust látin laus. Skrifið til:
His Excellency
Hojatoleslam Ali Akbar Has-
hemi Rafsanjani
President of the Islamic Rebublic
of Iran
The Presidency. Palestine Aven-
ue
Azerbaijan Intersection
Tehran
Iran
Búlgaría: Enver Ahmedov Hati-
bov; 46 ára gamall læknir af tyrk-
nesku þjóðarbroti. Hann var
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir
njósnir.
Enver Ahmedov Hatibov var
handtekinn 5. júlí 1989 og þann
19. febrúar s.l. dæmdi héraðs-
dómstóllinn í Shumen hann í 10
ára fangelsi fyrir njósnir. Hann
var dæmdur skv. 104. grein hegn-
ingarlaganna. Hann var sakaður
um að hafa upplýst erlenda aðila
um „ríkisleyndarmál Alþýðulýð-
veldisins Búlgaríu er snertu
skipulag, starfsemi og tækjaeign
njósnadeildar innanríkisráðu-
neytisins (MVR).“
Enver Hatibov var einnig sak-
aður um að hafa á árunum 1987
og 1988 ljóstrað upp um njósnara
innanríkisráðuneytisins og látið
erlendum aðilum í té upplýsingar
þar að lútandi. Einn þessara
erlendu aðila var Yusuf Mutlu,
sem er af tyrknesku bergi
brotinn. Hann yfirgaf Búlgaríu
1978 og flutti til Tyrklands og er
nú tyrkneskur ríkisborgari. Hann
var handtekinn er hann heimsötti
Búlgaríu í júlí 1989. Yusuf Mutlu
var leiddur fyrir rétt á sama tíma
og Enver Hatibov og dæmdur í
12 ára fangelsi skv. 104. grein
hegningarlaganna. Amnesty hef-
ur lýst áhyggjum sínum yfir
dómsúrskurðinum vegna þess að
á þessu tímabili tók innanríkis-
ráðuneytið þátt í mannréttinda-
brotum gagnvart fólki af tyrk-
neskum uppruna. Ráðuneytið
stóð fyrir herferð þar sem þetta
þjóðarbrot var neytt til að sam-
lagast búlgörsku þjóðinni, en nú
viðurkenna stjórnvöld að her-
ferðin hafi verið ólögleg. Her-
ferðin hófst í desember 1984.
Tyrkir þurftu að afsala sér
islömskum nöfnum sínum og
taka búlgörsk upp í staðinn,
bannað var að tala tyrknesku og
ýmsir islamskir siðir voru bann-
aðir. Hundruð manna voru
fran: Mariani Firouz; rithöfund-
ur og þýðandi. Hún er á áttræðis-
aldri og hefur setið í fangelsi frá
árinu 1983 vegna stjórnmálaþátt-
töku.
Mariam Firouz var handtekin í
apríl 1983 ásamt tugum annarra
sem stóðu í fararbroddi íranska
kommúnistaflokksins. Flokkur-
inn var bannaður skömmu eftir
handtökurnar.
Kommúnistaflokkurinn var
sakaður um að hafa í hyggju, í
samvinnu við Sovétríkin, að
steypa af stóli hinni islömsku
ríkisstjórn írans. Leiðtogar
flokksins voru pyntaðir og
neyddir til að játa á sig njósnir og
aðra ólöglega starfsemi.
Ríkisstjórn írans hafði þá
stefnu að þagga niður í öllum
skoðanaskiptum utan klerka-
stéttarinnar og var íranski
kommúnistaflokkurinn leystur
upp. Þúsundir pólitískra fanga,
þar á meðal mörg hundruð sam-
viskufangar, voru tekin af lífi í
kjölfar byltingarinnar í íran.
Nokkrir hópar gripu til vopna
gegn klerkastéttinni en kommún-
istaflokkurinn studdi Ayatollah
Khomeini sem leiðtoga þar til
flokkurinn var leystur upp.
Mariam Firouz var forseti Lýð-
veldissamtaka íranskra kvenna.
Hún skrifaði greinar um bók-
menntir og málefni kvenna í
flokksblöð og þýddi fjölda
franskra bókmenntaverka á skál.
Hún sat í þrjú ár í varðhaldi,
oft í einangrun, áður en hún var
leidd fyrir islamskan byltingar-
herrétt. Málareksturinn féll ekki
að alþjóðalegum reglum um
sanngjörn réttarhöld og var
Miriam dæmd til dauða árið
1986. Dómurinn var síðan mild-
aður. Ekki er vitað til fullnustu
fyrir hvað hún var ákærð. Hún
hafði engan rétt til að áfrýja
dómsúrskurði og hún hefur ekki
haft aðgang að lögfræðingi allan
þann tíma sem hún hefur verið í
Indónesía: Agil Riyanto bin
Darmowiyoto er frá Brebes á
eyjunni Jövu. Hann stundar laga-
nám og alifuglarækt, en í apríl
1987 var hann dæmdur í 15 ára
fangelsi fyrir niðurrifsstarfsemi.
Agil Ryanto var í hópi sjö
ungra múslima sem handteknir i
voru fyrir niðurrifsstarfsemi árið
1987. Þeir voru sakaðir um þátt-
töku í hópi múslima sem nefnist
usroh, en megintilgangur þess
hóps er að stuðla að aukinni
meðvitund múslima um islamsk-
ar kenningar og lög. Rúmlega 40
félagar í usroh hópnum hafa ver-
ið leiddir fyrir rétt á Jövu frá
árinu 1985, sakaðir um að stefna
að stofnun islamsks ríkis í Indó-
nesíu og grafa þannig undan
ríkisstjórn landsins. Flestir hafa
verið dæmdir í 4-15 ára fangelsi.
Við réttarhöldin yfir Agil
Riyanto fullyrti ákæruvaldið að
hann hefði gagnrýnt hugmynda-
fræði ríkisins, Pancasila, og sak-
aði hann um að hafa reynt að
koma á fót liðskjarna sem tilbú-
inn væri að reiða af hendi fé og
deyja fyrir trúna. Agil neitaði
þessum ásökunum og sagðist
aðeins hafa flutt fyrirlestra um
trúarleg efni eins og bænir, föstu,
skatta og pílagrímsferðir. Vitni
staðfestu að hann hefði hvorki
rætt um stjórnmál né véfengt
stjórnarskrána og Pancasila. Eft-
ir því sem lögfræðingur Agil
Riyanto segir lagði ákæruvaldið
engar sannanir fram fyrir að
usroh hóparnir hefðu pólitískan
tilgang eða að fyrirlestrar Agils
hefðu vakið óróa í þjóðfélaginu.
Hvorki Agil Riyanto né félagar
hans fengu að hafa lögfræðinga
hjá sér við yfirheyrslur. Allmarg-
ir sakborningar og vitni sögðu að
þær yfirlýsingar sem lesnar voru
upp við réttarhöldin hefðu verið
neyddar upp úr viðkomandi. Er
lögfræðingur Agils kvartaði yfir
því að dómarinn beitti þrýstingi
til að svara ekki spurningum sem
Auglýsendiir
auiugíð
Skilafrestur auglýsinga sem eru 2ja dálka (10 cm) á
breidd eða smáauglýsinga er til kl. 11.00 daginn
fyrir útgáfudag, nema í helgarblað, þá er skila-
frestur til kl. 14.00 á fimmtudag.
Allar stærri auglýsingar og lit þarf að panta með
2ja daga fyrirvara. í helgarblað þarf að panta allar
stærri auglýsingar fyrir kl. 11.00 á fimmtudag.
auglýsingadeild,
sími 24222.
hann lagði fram í réttinum var
honum skipað að yfirgefa réttar-
salinn og réttarhöldin héldu
áfram án hans. Agil Riyanto
sagði frá því í réttinum að yfirlýs-
ing hans hefði verið samin af
þeim sem yfirheyrðu hann og
hann hefði mátt sæta barsmíðar á
meðan hann var í varðhaldi.
Nýlega var hann fluttur í fang-
elsi á eyjunni Nusukambangan,
sem er langt frá heimili hans og
fjölskyldu. Eyjan er ekki byggð
að öðru leyti en því að þar eru
fjögur fangelsi.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hann verði
tafarlaust látinn laus og án skil-
yrða. Skrifið til:
President Suharto
Bina Graha
Jalan Veteran 17
Jakarta
Indonesia
Til leigu eða sölu
er 2., 3. og 4. hæð að Glerárgötu 28.
Einnig iðnaðarhúsnæði að Hvannavöllum
12.
Upplýsingar gefur Aðalsteinn Jónsson í síma
21165.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn.
AKUREYRARB/€R
BREKKUKOT
Skóladagheimilið Brekkukot, Brekkugötu
8, tekur til starfa 1. september n.k.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 1. ágúst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Dagvistardeildar, Eiðsvallagötu 18.
Upplýsingar í síma 24600.
Dagsvistarfulltrúi.
Skrifstofustjóri
Óskum eftir að ráða skrifstofustjóra á
skrifstofu Hríseyjarhrepps.
Starfssvið:
★ Staðgengill sveitarstjóra.
★ Umsjón með bókhaldi hreppsins.
★ Reikningsgerð og innheimta.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi viðskiptamennt-
un og/eða reynslu í bókhaldi.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu okkar.
□□□□RÁÐNINGAR
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600
Skrifstofustarf
laust til umsóknar
Viðkomandi starfsmaður þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Eyfirska sjónvarpsfélagið h.f.,
Grundargötu 1, sími 27400.
Við auglýsum eftir
fóstru eða starfsmanni
sem þarf að geta tekið til starfa í haust.
Einnig bráðvantar okkur starfsmann í afleysingar.
Upplýsingar á staðnum.
Hlíðarból v/Skarðshlíð: