Dagur - 07.07.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. júlí 1990 - DAGUR - 3
fréftir
Endurbætur á umboðsmannakerfi Vífilfells:
„Þjónusta við Siglfirðinga mun ekki minnka“
- segir Lýður Friðjónsson framkvæmdastjóri
Nokkur urgur er í kaupmönn-
um á Siglufírði vegna þeirrar
ákvörðunar verksmiðjunnar
Vífílfells, að Ieggja niður gos-
drykkjaumboð sitt á Siglufírði
og þjónusta Siglfírðinga þess í
stað frá Sauðárkróki. Siglfirsk-
ir kaupmenn hafa tekið hönd-
um saman um að hætta að
kaupa vörur frá Vífílfelli og
vilja með því mótmæla því að
missa starf úr bænum og einnig
telja þeir að þjónusta við sig
muni skerðast.
Vífilfell hf. hefur unnið að því
undanfarin 2-3 ár að endurskipu-
leggja umboðsmannakerfi sitt úti
á landi og var þessi aðgerð liður í
því. Áður er búið að hagræða
umboðsmannakerfinu á Aust-
fjörðum og Vestfjörðum og í
Eyjafirði með stofnun umboðs-
skrifstofu á Akureyri.
Lýður Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Vífilfells, segir að
sú krafa hafi komið fram fyrir
nokkrum árum, að verð á gos-
drykkjum yrði það sama á lands-
byggðinni og á höfuðborgarsvæð-
inu. „Við byrjuðum á því að
lækka verð á gosdrykkjum úti á
landi verulega og í kjölfarið á því
höfum við verið að reyna að ná
einhverju af því til baka með
sparnaði. Þetta var ekki mögu-
legt í gamla umboðsmannakerf-
inu, með mjög marga umboðs-
menn og litla hagkvæmni. Þetta
er 2-3 ára skipulagsstarf við að
finna út hagkvæmustu flutninga-
leiðir og annað en þetta verður
maður bara að gera í rekstri í
dag. Það verður að gera þessa
hluti eins hagkvæmt og hægt er,“
sagði Lýður í samtali við Dag.
Aðspurður um hvort þjónusta
við Siglfirðinga muni skerðast,
sagði Lýður það ekki vera. „Við
erum boðnir og búnir til að selja
þeim og veita þeim þá bestu
þjónustu sem völ er á eins og ég
tel að við höfum gert í gegnum
árin. I>að er enginn kominn til
með að segja að einungis verði
farin ein ferð í viku með vörur,
þær gætu allt eins orðið tvær.
Petta er fyrst og fremst okkar
viðleitni til að bæta þjónustuna
Nýjung hjá Silfurstjörnunni hf. á Kópaskeri:
Þróar kaldreyktan eldislax
Silfurstjarnan hf. á Kópaskeri
er um þessar mundir að þróa
sig áfram með kaldreykingu á
laxi og að sögn Björns Bene-
dikssonar, framkvæmdastjóra,
hefur nokkur hundruð kílóum
af laxi verið slátrað í því skyni.
Varan hefur verið kynnt hjá
ferðaskrifstofum hérlendis og
huga Silfurstjörnumenn að
útflutningi á vörunni ef vel
tekst til.
Kaldreyking á laxi tekur meiri
tíma en venjuleg reyking og lax-
inn verður mun stinnari fyrir
vikið. Björn sagði að þetta væri
hinn besti matur og menn bjart-
sýnir á að geta selt nokkurt magn
af honum.
Að öðru leyti er allt gott að
frétta af Silfurstjörnunni hf. í
sumar er búið að slátra 30 tonn-
um af laxi og verður hann seldur
aðallega á markað í Bandaríkj-
unum. Fram að áramótum er
áætlað að slátra 60 tonnum í við-
bót af laxinum. Um áramót er
síðan meiningin að hefja
bleikjúslátrun, en Silfurstjarnan
hóf bleikjueldi á síðasta ári.
Vegna góðra aðstæðna hefur
fyrirtækinu tekist að ná góðum
vaxtarhraða hjá fiskinum og sem
dæmi um það þá hefur sú bleikja,
sem byrjað verður að slátra um
næstu áramót, verið í kerjum frá
síðasta sumri.
Núna eru 200 þúsund laxar í
eldiskerjum hjá Silfurstjörnunni
og hálf milljón bleikjuseiða frá
síðasta sumri, sem telst efni í 7-
800 tonn af matfiski. Aðstaða er
fyrir 600 tonna ársframleiðslu hjá
Silfurstjörnunni og stefnt að því
að ná því á næsta ári. Silfur-
stjarnan er með 14 stór eldisker
og í allt 15 þúsund rúmmetra
pláss. Að undanförnu hafa 26
manns verið í vinnu hjá fyrirtæk-
inu og sagðist Björn Benedikts-
son ná að halda því að mestu út
árið. -bjb
Eyfjörð:
Sumarsýning í dag
I dag stendur verslunin Ey-
fjörö fyrir sumarsýningu frá
kI.10-16. Meðal þess sem verð-
ur til sýnis eru tjaldvagnar,
fellihýsi, plastbátar og garð-
húsgögn.
Eyfjörð sýnir 7 gerðir af plast-
bátum og eru þeir taldir ósökkv-
anlegir, enda samþykktir af Sigl-
ingamálastofnun. Og kosta frá
kr. 50 þúsund.
Á sumarsýningunni verður
einnig kynning á grillmat frá
Kjarnafæði og gosdrykkjum frá
Sanitas frá kl. 13-17.
Tölvufræðslan Alaireyri h.f.
mun á komandi hausti eins og undanfama
vetixr standa fyrir alhliða töhamámi ásamt
námskeiðum í hefðbundnum greinum
verslunar- og skrifstofustarfa.
Námsskrá fyri r haustönn 1990
verðirr auglýst í ágúst.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34IV. hæð Akureyri, sími 96-27899.
og gera hana hagkvæmari. Ég
vona að þessar aðgerðir kaup-
mannanna séu bara stundarfyrir-
brigði, því ekki viljum við vera
þess valdir að Coca-Cola unn-
endur á Siglufirði fái ekki sinn
drykk,“ sagði Lýður að lokum.
-vs
Sýsluheimsóknir forseta íslands:
Vigdís á eftir 4 sýslur af 21
Á skrifstofu embættis forseta
Islands fengust þær upplýsing-
ar að frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti, fer ekki í neinar
opinberar heimsóknir í sýslur
innanlands í sumar. A.m.k.
hefur fram að þessu ekki borist
boð þess efnis og verður sjálf-
sagt ekki, því slíkar heimsókn-
ir eru undirbúnar með löngum
fyrirvara. Vigdís á aðeins eftir
að sækja heim fjórar sýslur.
En Vigdís verður engu að síð-
ur á faraldsfæti innanlands í
sumar. Hún mun m.a. heimsækja
hestamenn á Vindheimamelum
og skáta við Úlfljótsvatn nú um
helgina. Síðar í mánuðinum
verður hún viðstödd 100 ára
afmælishátíð verslunar á Hólma-
vík.
Sá háttur er hafður á opinber-
um sýsluheimsóknum forseta
íslands að boð þarf að koma frá
viðkomandi sýslum eða sýslu-
nefndum. Þær fjórar sýslur sem
: eftir eru eru Skagafjarðarsýsla,
Mýrar- og Borgarfjarðarsýsla,
V-Skaftafellssýsla og Gullbringu-
og Kjósarsýsla. Að baki eru því
heimsóknir í 17 sýslur. -bjb
Producc of lccland
Produce of lceland
enn meiri háttar
0STATILB0Ð
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
af rækjuosti eða 3 mismunandi tegundum
Áður kostuðu 3 dósiru.þ.bATfTkr., IIÚ 345 far.*
um 25% lækkun.
* leiðbeinandi smásöluverð.
Tilboðið slenduitil 15. jiilí
Producc
of lceland
stojö*°
Tilvalið í ferðalagið!