Dagur - 07.07.1990, Side 18

Dagur - 07.07.1990, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 7. júlí 1990 Hitt og þetta Michael Jackson Poppsíðan greindi frá því fyrir nokkru að Michael Jackson hefði verið fluttur á sjúkrahús vegna kvala í brjósti nú nýlega. Eftir ítarlegar rannsóknir kom í Ijós að Jackson hafði fengið svokallaða millirifjagigt (rifjabólga öðru nafni) og virðist sem hún eigi rætur að rekja til erfiðra dansæf- inga hjá Gulldrengnum að undan- förnu. Reyndar var óttast í fyrst- unni að um hjartaáfall væri að ræða, en sem betur fer fyrir Jack- son og poppheiminn var ekki um slíkt tilfelli að ræða og eftir því sem best er vitað ætti Jackson að vera útskrifaður af spítalanum. Plötupunktar Hin bráðskemmtilega rokksveit Concrete Blonde er rétt búin að senda frá sér nýja plötu, nefnist hún Bloodlefting og er þetta þriðja skífa hljómsveitarinnar. Glamúrsveitin Poison er sömu- leiðis á ferðinni með sína þriðju plötu, nefnist sú Flesh and Blood (Blóð er greinilega í tísku í nafnaheitum á nýjum plötum) og er útgáfudagur áætlaður nú 9. júlí. Hin blakka tónlistarkona Joan Armatrading hefur sent frá sér enn eina skífuna og kallast hún Hearts and Flowers Og loks má nefna að hin endurreista Bad Company er með nýja skífu Holy Water og er hún sú þriðja frá því sveitin byrjaði aftur. The Chimes Hljómsveitin The Chimes hefur rækilega slegið í gegn í Bretlandi með útgáfu sinni af U2 laginu / still haven’t found what l’m lokking for en með því náði hún öðru sæti á breska vinsældalistanum. Þá fór fyrsta breiðskífa The Chimes sem heitir einfaldlega The Chimes, beint í níunda sætið yfir söluhæstu plöturnar. Þó er ekki lífið allt qlans á rós- um hjá meðlimum The Chimes, a.m.k. ekki hjá songkonunni Pauline Henry þessa dagána. Þannig var að húní brá sér í heimsókn til Noregs í tvo daga fyrir skömmu (í hvaða erinda- gjörðum er ekki vitað). Þegar hún er síðan að fara í gegnum toll- skoðun á flugvellinurh í Osló á leiö til London aftur vérður hún fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að tveir tollvarðanna, leggja á hana hendur og færa hana burt til frekari rannsóknar sem meðal annars fólst í því að hún var látin afklæðast. Fannst ekkert ólög- legt á söngkonunni hvorki innan klæða né utan. En vegna þess- ara vægast sagt óviöfelldnu með- ferðar hafði hún misst ^f fluginu heim ofan á allt saman. Hún Pauline Henry hugsar því ekki hlýlega til Noregs nú um stundir og hefur hún gkrifað sendlherra Noregs í London bréf þar sem hún krefst tafarlaiísrar afsökunarbeiðni að hálfu norskra yfirvalda. TIL SÖLU Til sölu er fyrirtæki í rafverktaka- starfsemi í fullum rekstri staðsett á Eyjafjarðarsvæðinu. Uppiýsingar aöeins veittar á skrifstofunni. Endurskoðun Akureyri hfv Glerárgötu 24, sími 26600 Nauðungaruppboð Fimmtudaginn 12. júlí n.k. verður haldiö nauðungarupp- boð á eignum þrotabús Bjarna Andersen. Uppboðið fer fram kl. 14.30 áTúnsbergi Svalbarðsströnd. Eftirtaldar eignir verða meðal annars seldar: Bifreiðin MC 204 sem er Nissan Stansa árg. ’82, bifreiö óskráð, sem er Lada 1600 árg. ‘78. Uppboðið er haldið vegna gjaldþrotaskipta á ofangreindu þrotabúi. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Frá Menntamálaráðuneytinu Námskeið um fjarkennsluaðferðir Framkvæmdanefnd um fjarkennslu, í samráði og sam- vinnu við Bréfaskólann og Kennaraháskóla íslands, endurmenntunardeild, býður upp á námskeið um fjar- kennsluaðferðir. Námskeiðið fer fram í Kegnaraháskóla Islands: 1. hluti 27.-31. ágúst 1990 2. hluti 12.-13. október 1990 3. hluti 16.-17. nóvember 1990. Skrifleg umsókn berist Kennaraháskóla Islands, endur- menntunardeild, fyrir 5. ágúst n.k. Nánari upplýsingar fást á sama stað. Samstarfsaðilarnir. 4 poppsíðan L Pauline Henry söngkona The Chimes komst í hann krappan í Noregi. Living Colour Hin frábæra blökkumanna fönk/ rokksveit Living Colour hefur nú lokið upptökum á sinni annarri breiðskífu sem fylgir í kjölfar þeirrar fyrri, skífunnar Vlvid, sem út kom 1088 og seldist í milljón- um eintaka. Er enn ekki komið nafn á hana en áætlað er að hún komi út í september. Verður um að ræða óvenju langa plötu eða u.þ.b. klukku- stundarlanga og lögin verða samtals fimmtán. iggy pop Nú hyllir loksins undir að gamli refurinn Iggy Pop sendi frá sér nýja plötu. Og reyndar rúmlega i það því platan sem kallast Brikc by Brick kemur út á mánudaginn 9. júlí. Hefur lagið Home verið gefið út á smáskífu af plötunni en í því nýtur Iggy aðstoðar DuffMcKagan annars gítarleikara Guns ’n’Roses meðal annara. Auk McKagans mun hinn gítarleikarinn Slash spila á plötunni en alls koma þeir félagarnir fram í fjórum lögum. Bob Geldof Frumkvöðull Live Aid Bob Geldof- sem sem eitt sinn var söngvari pönk/nýbygljusveitarinnar Boom- tom Rats, er nú nýbúinn að senda frá sér plötuna Vegetarians of Loye sem á íslensku gæti útlagst Þó leit út á tímabili að plötunni myndi seinka eða jafnvel að hún kæmi ekki út því Geldof lenti í deilum við útgáfufyrirtæki sitt Phonogram út af umslagi plötunn- ar. Hafði hann látið hanna umslag þar sem mynd af agúrku var framan á sem honum þótti til- heyra einkar vel nafni plötunnar um leið og að vera öðruvísi. Þetta umslag gátu hins vegar yfirmenn Phonogram ekki felt sig við og sögðu að ef Geldof vildi endilega hafa agúrku á umslag- inu yrði hann að leita fyrir sér annars staðar. Geldof sá sig því tilneyddan til að gefa eftir og verður því umslagið með mynd af honum sjálfum framan á. Boy George: Eldri og vitrari en samt ennþá umdeildur Boy George var ásamt hljóm- sveitinni sinni The Culture Club ein skærasta stjarna í vinsælda- poppinu á níunda áratuginum. Rak hver toppsöluplatan aðra og lög eins og Karma Kamellion o.fl. náðu toppsætum yfir vinsælustu lögin. En Boy George var ekki vin- sæll hjá öllum og nánast hataður af sumum fyrir m.a. útlit sitt. En mest alla lífstíð Culture Club kom hann fram sem klæðskipt- ingur með málningu og tilheyr- ; andi, enda kynvilltur að meira jeða minna leyti. Þá var George tíður gestur í slúðurdálkum blaðanna fyrir sukksamt líferni sitt og er ekki langt síðan hann var nær dauða af völdum ofneyslu eiturlyfja. Hins vegar var vinur hans einn ekki svo lánssamur að sleppa því hann lést á svipuðum tíma og þegar George var langt leiddur og varð úr mikið blaðamál í bresku pressunni. í dag er Boy George nýr og betri maður, búinn að losa sig við eiturlyfin og er nú í óða önn að endurreisa tónlistarferil sinn. En það eru ekki hlutir í anda Culture Club sem hann er að fást við heldur mun betur ígrundaðir og alvarlegri hlutir sem felst m.a. í því að textarnir eru nú mun efn- ismeiri. „Ég hef lært mína lexíu af að vera baðaður frægðinni og öllu því sem henni fylgir, nú vil ég hins vegar gera það sem mig langar virkilega aö gera og það án þess að útgáfan sé að skipta sér af því. Á meðan Culture Club var og hét átti ég vissulega góðar stundir en þó var það miklu fleira ,sem betur hefði mátt fara þá og á ég þá sérstaklega við tónlistina sjálfa sem allt of lítill tími fór í að vinna. Nú þegar ég er orðinn eldri hef ég gert mér Ijóst að ef maður ætlar sér að gera góða plötu sem maður er sáttur við verður tíminn að vera nógur.“ En nú loks þegar Boy George Umsjón: í Magnús Geir Guðmundsson telur sig vera kominn á beinu brautina á ný og vinnan að nýrri plötu hefur gengið vel, hefur kastast í kekki milli George og útgáfufyrirtækis hans, Virgin, vegna myndbands við fyrsta smáskífulagið af plötunni, Gen- erations of Love. Þykir yfirmönnum Virgin mynd- bandið í meira lagi djarft, en í því sést m.a. vændiskona þjóna við- skiptavini í klámkvikmyndahúsi. George segir hins vegar að myndbandið hafi verið gert með samþykki fyrirtækisins en síðan hafi einhverjum snúist hugur og það orðið til þess að kippt var í spottana. Hann segir ennfremur að sá öfgakenndi hugsunarháttur að myndböndin verði að vera eft- ir ákveðinni formúlu til að eiga von um að komast inn í tónlistar- þætti sjónvarpsstöðvanna, sé að drepa niður alla heilbrigöa sköpunargáfu við gerð þeirra og því vilji hann bergjast gegn. Svo er að sjá hvort Boy George verður eitthvað ágengt í baráttunni og myndbandið hans verði gefið út. Boy George er ánægður með nýja myndbandið. Útgefendurnir hins vegar ekki.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.