Dagur - 18.07.1990, Síða 1
73. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 18. júií 1990
135. tölubiað
A//t -fyríir
errabudin
í ■ HAFNARSTRÆTI 9? 60? AKUREYRI SÍMI 9676708 BOX 397
Stuðmenn:
Fara fram á
endurgreiðslu
Hljómsveit Stuðmanna er mik-
ið niðri fyrir vegna þeirrar
„meðferðar“ sem hún hlaut í
Miðgarði sl. laugardagskvöld,
þegar hún þurfti að greiða alla
skatta að aUoknum tónleikum
sínum. í samtali við Dag segir
Jakob Magnússon að Stuð-
menn muni fara fram á endur-
greiðslu skattanna og muni
hugsa sig tvisvar um hvort þeir
spili í Miðgarði aftur.
„Lögregluyfirvöld á Sauðár-
króki gerðust svo óforskömmuð,
eftir að hafa staðfest tónleikaleyfi
við okkur, að breyta því í dans-
leikjaleyfi án þess að tala við
okkur. Sýslumaður gaf heimild
fyrir tónleikum þótt hann vissi að
yrði dansað í Miðgarði. Par með
gerðust yfirvöld í þessari annál-
uðu söngsveit verstu óvinir hags-
munabaráttu, og fyrst og fremst
mannréttindabaráttu íslenskra
tónlistarmanna,“ sagði Jakob
Magnússon m.a.
Sjá nánar á blaðsíðu 2 í blað-
inu í dag. -bjb
Af við öxl?
Mynd: KL
Ríkisstjórnin:
Aðgerðir samþykktar til
að draga úr hækkun vísi-
tölu framfærslukostnaðar
Ríkisstjórnin saniþykkti í gær
setningu bráðabirgðalaga um
afnám innheimtu virðisauka-
skatts af bókum frá og með 1.
september og einnig að íbúðar-
eigendur geti fengið endur-
greiddan virðisaukaskatt af
vinnu við viðhald húsa þeirra,
án þess að krafa sé gerð um að
fjárhæðin, sem unnið er fyrir,
fari yfír tiltekiö lágmark. Þetta
gildir um viðhaldsvinnu sem
unnin hefur verið allt frá ára-
mótum. Til þessara ráðstafana
er gripið til að draga úr hækk-
unum á vísitölu framfærslu-
kostnaðar á gildistíma kjara-
samninga aðila vinnumarkað-
arins.
Ríkisstjórnin samþykkti einnig
í gær að gjaldskrár síma og RUV
hækki ekki síðar á árinu. Þá
verður hækkun bensíngjalds
frestað fram á haustið.
Samkvæmt útreikningum
munu þessar aðgerðir leiða til
lækkunar vísitölu úm næstu mán-
Álver í Eyjafirði:
„Stjómvöld heíðu átt að leggja
meiri áherslu á staðsetninguna
- segir Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
Guðmundur Bjarnason, heil- fólksflutningum til að byggja
brigðis- og tryggingamálaráð- hana upp annars staðar. Mín
herra, telur afar óskynsamlegt
að bæta nýju álveri við þá upp-
byggingu sem verið hefur á
höfuðborgarsvæðinu undan-
farin ár. Hann segir að
Byggðastofnun og fleiri hafí
bent á þann mikla kostnað sem
stórfelldir fólksflutningar
hefðu til suðvesturhorns
landsins.
„Mér finnst Eyjafjarðarsvæðið
hafa ýmsa kosti fram yfir aðra
staði sem menn hafa nefnt. Pjón-
ustustigið við Eyjafjörð er hátt
og nægir þessari starfsemi. Það
hlýtur að vera hagkvæmara að
nota þjónustu sem fyrir hendi er
heldur en að standa í stórfelldum
Flugslysið í Ásbyrgi:
Nafn hins látna
Maðurinn sem lést í flugslysinu
í Asbyrgi á mánudag hét Jör-
undur Sigurbjörnsson, til
heimilis að Furulundi 13f á
Akureyri. Jörundur var fædd-
ur 31. október 1951, og var
ókvæntur.
Sá sem var með Jörundi í flug-
vélinni slasaðist alvarlega og var
fluttur til Reykjavíkur. Líðan
hans er eftir atvikum.
Rannsóknarnefnd flugslysa
hefur lokið störfum á slysstað en
tildrög slyssins liggja ekki ljós
fyrir. -bjb
skoðun er sú að stjórnvöld hefðu
strax í upphafi átt að leggja meiri
áherslu á staðsetninguna. Hún er
ekki síður mikilvæg en þeir þættir
sem hingað til hafa verið settir
fremstir, þ.e. skattamál og orku-
verð. Varðandi mengunarvarnir
er það mitt álit að þær eigi að
vera þær sömu alls staðar, óháð
því hvar álver verði reist. Við
eigum ekki að láta það spyrjast til
útlanda að hér séu ekki alls stað-
ar kröfur um fullkomnustu meng-
unarvarnir,“ segir Guðmundur.
Guðmundur Bjarnason segir
að erfiðir tímar hafi verið í
atvinnumálum á Akureyri, en
álver myndi ýta mikið undir
atvinnulífið. Menn yrðu að horfa
til nýrra kosta fyrir atvinnulífið
við Eyjafjörð fyrir utan þá sem
þegar væru fyrir hendi. Álver
myndi bæði skapa ný störf og
styrkja mörg fyrirtæki sem væru á
svæðinu.
„Mikill meirihluti þingflokks
Framsóknarmanna er þeirrar
skoðunar að álverið skuli rísa
utan suðvesturhorns landsins.
Varðandi það sem komið hefur
fram um mismunandi kostnað við
bygginguna eftir staðsetningu,
samkvæmt minnispunktum við-
ræðunefndar til ráðherra, vil ég
segja að þar getur ekki verið
byggt á nákvæmum upplýsingum.
Þar segir aðeins að fyrstu vís-
bendingar bendi til að eitthvað
dýrara sé að byggja við Eyjafjörð
eða Reyðarfjörð en Keilisnes.
Þessar upplýsingar eru alltof
ónákvæmar til að varpa þeim
svona beint út í umræðuna.
Menn hljóta að velta því fyrir
sér hvort á annað borð er gerlegt
að koma með svo stórfelldan
atvinnurekstur sem álver á suð-
vesturhornið í viðbót við allt
annað. Menn stefna ákveðið að
því að í september verði málið
komið það langt að hægt sé að
ákvarða með áframhaldandi
framkvæmdir, og þá þarf að vera
búið að taka ákvarðanir varðandi
skattamál og orkuverð. En menn
hafa fyrr tekist á um þannig hluti,
og mér sýnist ekki allt vera í
hendi ennþá,“ segir Guðmundur
Bjarnason. EHB
aðamót um 0,56 stig og draga úr
hækkunum fram í september um
0,78 stig.
Verðlagsstofnun hefur verið
falið að ítreka tilkynningaskyldu
fyrirtækja um verðlagshækkanir
til Verðlagsstofnunar og fylgjast
mjög vandlega með þróun
verðlags. Verðlagsstofnun hefur
einnig verið falið að taka saman
fyrir ríkisstjórnina mánaðarlega
lista yfir verðlagsbreytingar. óþh
Hvammstangi:
Fyrrisaia
á Vertshúsinu
ámorgun
Hótelið Vertshúsið á Hvamms-
tanga er nú til sölu hjá sýslu-
mannsembættinu á Blönduósi
og verður fyrri salan á morgun,
fímmtudaginn 19. júlí.
Að sögn sýslufulltrúa var málið
þingfest 3. júlí síðastliðinn, upp-
boðið á hóteli og öllu því sem
fylgja ber. Sú ákvörðun var
tekin, þegar hótelið var tekið til
skipta fyrir um níu mánuðum, að
leigja það yfir veturinn og sumar-
ið og það hefur verið gert.
Núverandi leigusamningur renn-
ur út 1. september.
Fasteignamat á hótelinu hljóð-
ar upp á 7 milljónir, en áhvílandi
veðskuldir munu vera töluvert
hærri. Þeir sem eiga veð í hótel-
inu eru Ferðamálasjóður, Spari-
sjóður V.-Húnavatnssýslu og
Byggðasjóður.
Salan mun fara fram á sýslu-
skrifstofunni á Blönduósi, sú
fyrri á morgun og hin einhvern
tímann síðar í þessum mánuði.
SBG
Erlingur Davíðsson, fyrrverandi
ritstjóri Dags, er látinn
Erlingur Davíðsson, fyrrver-
andi ritstjóri Dags, lést á
Akureyri í gær 78 ára að
aldri.
Erlingur var fæddur þann 11.
apríl árið 1912 að Hámundar-
stöðum á Árskógsströnd við
Eyjafjörð. Foreldrar hans voru
Davíð Sigurðsson og María
Jónsdóttir.
Nám sótti Erlingur í Lauga-
skóla á árunum 1931-1933 og
útskrifaðist sem búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri
árið 1935. Þá stundaði hann
nám í Garðyrkjuskólanum að
Reykjum í Hveragerði hluta úr
vetri og fékk síðar garðyrkju-
réttindi. Hann var ráðsmaður
við Laugaskóla 1935-1939 og
réðist þá sem kornræktarmaður
að Klauf í Eyjafirði og garð-
yrkjustjóri að Brúnalaug í Eyja-
firði. Erlingur hóf störf sem
afgreiðslumaður vikublaðsins
Dags og Samvinnunnar árið
1950 og starfaði við það til árs-
ins 1955. Ári síðar, eða 1956,
var hann ráðinn ritstjóri Dags
og gegndi því starfi allt til ársins
1979.
Erlingur tók virkan þátt í
ýmiss konar félagsmálum, var
m.a. lengi í stjórn Ungmenna-
félags Eyjafjarðar og hin síðari
ár lét hann málefni aldraðra á
Akureyri til sín taka. Eftir hann
liggur fjöldi bóka. Hæsta ber
þar hinn vinsæli bókaflokkur
Aldnir hafa orðið, en út komu
alls 18 bindi í þeim bókaflokki.
Af öðrum bókum má nefna Jói
norski, Konan frá Vínarborg,
Nói bátasmiður, Miðilshendur
Einars á Einarsstöðum og Furð-
ur og fyrirbæri.
Dagur sendir eftirlifandi
konu hans, Katrínu Kristjáns-
dóttur, og öðrum aðstandend-
um innilegar samúðarkveðjur.