Dagur - 18.07.1990, Side 12
Landsvirkjun:
Grænt ljós frá
ríkisstjóm um áfram-
haldandi undirbúning
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að hcimila Landsvirkjun að
halda áfram undirbúningi
byggingar Fljótsdalsvirkjunar
og stækkunar Búrfellsvirkjun-
ar og Þórisvatnsmiðlunar
ásamt lokaframkvæmdum við
Kvíslaveitu og taki lán í því
skyni.
Iðnaðarráðherra staðfesti
þessa ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar með bréfi til Landsvirkjunar
dagsettu í gær.
I þessum og næsta mánuði er
áætlað að til undirbúningsfram-
kvæmda verði varið um 100 millj-
ónum króna. Hér er um að ræða
hönnunar- og rannsóknarvinnu og
útboðsgagnagerð ásamt vinnu við
vegagerð á Fljótsdalsheiði og
opnun á aðkomugöngum stöðv-
arhúss Fljótsdalsvirkjunar. Þessi
undirbúningur er nauðsynlegur
liður í því að tryggja að Lands-
virkjun geti hafið afhendingu á
raforku 1994 til álvers Atlantsáls-
hópsins hér á iandi.
A grundvelli þessarar sam-
þykktar ríkisstjórnarinnar hefur
stjórn Landsvirkjunar ákveðið að
fyrirtækið haldi áfram virkjana-
undirbúningnum og verður vega-
gerðin á Fljótsdalsheiði boðin út
næstu daga. Staða málsins verður
metin á ný í september. óþh
Töffarar á tryllitœkjum.
Mynd: Golli
Fundur bænda kringum Þórshöfn um sláturhúsmálið:
Iiklegt að bændur sameinist
slá
- stefnt að stofnun félags með 25-30 þúsund pr
um sláturhúsið á Kópaskeri
Veruleg aukning hefur oró-
ið í sumar á ferðamönnum
til Hríseyjar, og virðist sem
markviss augiýsingastarf-
semi undanfarinna ára sé að
skila sér. í erlendum fcrða-
pésum má víða sjá Hrísey
auglýstu undir nafninu Perla
Eyjaljarðar.
Víkingur Smárason í
Veitingahúsinu Brekku segir
að gestir í júnímánuði hafi
vcrið 40% lleiri en í santa
mánuði 1989, og munar þar
mestu að útlendingum hefur
fjölgaö mjög mikiö, en sífellt
stærri og flciri hópar útlend-
inga koma nú til Hríseyjar.
Yfirleitt stansar þettar fólk
aðeins dagpart, borðar og fer í
skoðunarferðir um eyjuna cft-
ir merktum gönguleiðum.
Gisting og svefnpokapláss
mun vera fáanlegt í Brekku,
og eins eru til leigu nokkur
sumarhús í eyjunní, og uppi
eru hugmyndir um að fjölga
þeim.
Nokkuð er um það að ferða-
menn, aðallega íslendingar,
komi að Einangrunarstöð
holdanauta og vilji komast inn
til að skoða, en það er ekki
leyft, en auðvitað er frjálst að
skoða þá gripi sem utandyra
eru,
Farþegar með Hríseyjar-
ferjunni Sævari voru um sex
þúsund í júní sem er um 20%
auktting milli ára, og aukning í
júltmánuði virðist ætla aö
verða enn mciri. Þessar ferðir
viröist þó ekki tengjast á neinn
hátt ferðum með ferjunni Sæ-
fara út í Grímsey.
Atvinnuástand er mjög gott
í Hrísey, og hjá Frystihúsi
KF.A vantar nú þegar fólk í
vinnu sem vant er snyrtingu.
Frystihúsinu verður ekki lok-
að vegna sumarleyfa eins og
víða verður gert hér við
Eyjafjörð. GG
Eftir fund bænda í hreppunum
kringum Þórshöfn sl. mánu-
dagskvöld um sláturhúsamálin
á Norðausturlandi er Ijóst að
líklegasta framhaldið í stöð-
unni er það að sláturhúsið á
Kópaskeri verði keypt. Til
þess að það megi takast verða
bændur á svæðinu frá Jökulsá
austur að Langanesi að ná
samstöðu um málið.
Jóhannes Sigfússon á Gunnars-
stöðum, oddviti Svalbarðs-
hrepps, sagði að á fundinum
hefði nefnd bænda, sem unnið
hafa að sláturhúsamálunum að
undanförnu, fengið umboð til að
velja á milli tveggja kosta og
ganga frá samningum um þann
kost sem .fyrir valinu verður.
Hér er annars vegar um að
ræða þann möguleika að bænd-
urnir taki sig saman með bænd-
um í Öxarfirði og kaupi slátur-
húsið á Kópaskeri, sem er f eigu
Samvinnubankans og er falt fyrir
48,5 milljónir króna. Hinn kost-
urinn er endurbygging slátur-
hússins á Þórshöfn, en Jóhannes
sagði að í því dæmi hefðu komið
fram nýjar upplýsingar sem væru
ekki árennilegar.
„Það var lesin upp bókun frá
stjórn Kaupfélags Langnesinga
og þar segir að hún geti engan
þátt tekið í uppbyggingu slátur-
hússins á Þórshöfn og að hún
verði að fá úreldingarféð í sinn
rekstur. Þetta þykir mér dálítið
hart og gerir það að verkum að
Þórshöfn er sennilega út úr
myndinni,“ sagði Jóhannes.
Hann sagði að hugmyndir um
að aka fénu til Vopnafjarðar og
slátra því þar hefðu lítinn
hljómgrunn fengið á fundinum
og áðurnefndir kostir verið settir
á oddinn.
Nefndin mun halda fund í vik-
unni um framhaldið og líklegt er
að farið verði í formlegar samn-
ingaviðræður um kaup á slátur-
húsinu á Kópaskeri og ljúka mál-
inu þannig að hægt verði að slátra
í haust. Ef samstaða næst um
málið er hér um að ræða félag
með um 25-30 þúsund fjár. SS
Jarðgöngin í Ólafsfjarðarmúla:
Óvíst með slitlag til Dalvíkur
Unnið er við vegalagningu
beggja vegna gangamunnans í
Ólafsfjarðarmúla, en Krafttak
sf. sem er verktaki við jarð-
gangagerðina mun leggja
bundið slitlag á 1,1 km Dalvík-
urmegin munnans og 1,5 km
Ólafsfjarðarmegin.
Þegar umferð verður hleypt í
gegnum Múlann seinna á þessu
ári, verður samfellt bundið slitlag
á veginum frá Ólafsfirði og og 1,1
km suður fyrir enda vegsvala, en
vegagerðin er nú að byrja vega-
lagningu á um 800 metrum til við-
bótar.
Því verða ökumenn að leggja á
sig um 8 km akstur á möl þar til
bundnu slitlagi er náð við bæinn
Hól norðan Dalvíkur. Sam-
kvæmt vegaáætlun sem gildir fyr-
ir árin 1991 og 1992 er ekki gert
ráð fyrir neinum vegafram-
kvæmdum á þessum slóðum.
Vegaáætlun verður endurskoðuð
í vetur, og líkur á því að áætlun-
inni verði breytt eru hverfandi
litlar, að sögn Guðmundar Svaf-
arssonar umdæmisverkfræðings,
enda þarf að lagfæra veginn tais-
vert og styrkja áður en hægt
verður að leggja bundið slitlag á
hann. GG
Biskupsstofa:
Laus staða fræðslu-
fulltrúa á Norðurlandi
Embætti biskups Islands hefur
auglýst laust til umsóknar
stöðu fræðslufulltrúa með
búsetu á Norðurlandi. Fulltrú-
anum er ætlað að starfa á veg-
um fræðsludeildar kirkjunnar
Búið að bjóða út vegi tengda Blönduvirkjun:
Kjalvegur færður vegna uppistöðulóns
1 sumar verða umtalsverðar
vegaframkvæmdir á vegum
Landsvirkjunar í sambandi við
Blönduvirkjun og er nú búið
að auglýsa útboðin. Lagður
verður nýr hluti Kjalvegar
vegna þess að hluti gamla veg-
arins fer undir vatn þegar uppi-
stöðulónið verður orðið fullt.
Einnig verður lagður vegslóði
vegna byggingar Blöndulínu.
„Við erum búnir að leggja veg
með lóninu að norðanverðu út að
Kolkustíflu, en það sem vantar er
vegur suður með lóninu vestan-
verðu og það er vegurinn sem nú
er boðinn út. Hann mun liggja
suður um Áfangafell og tengjast
gamla Kjalveginum aftur sunnan
við lónið,“ sagði Ólafur Jensson,
yfirstaðarverkfræðingur við
Blönduvirkjun.
Lengd þessa vegar er um 12
km og áætlað magn 70.000 rúm-
metrar. Verkinu á að vera lokið
15. september á þessu ári, en til-
boðum þarf að skila fyrir 23. júlí.
Nú er einnig óskað eftir tiíboð-
um í vegslóða sem gera þarf
vegna lagningar háspennulínu frá
byggðalínu og niður í Blöndudal
og inn að Blönduvirkjun. Þar er
um að ræða ca. 27.000 rúmmetra
af aðfluttri malarfyllingu og 40
ræsi. Verklok á þessu eru 8.
október 1990. SBG
og mun vinna að kirkjulegri
fræðslu meðal ákveðinna hópa
með námskeiðum, heimsókn-
um og námsefnisgerð.
Að sögn Jóns Ragnarssonar,
fræðslufulltrúa á Biskupsstofu,
hefur ámóta starf verið um hríð á
Norðurlandi, en undir heitinu
aðstoðaræskulýðsfulltrúi.
„Fræðslufulltrúa er ekki ætlað að
vera bundnum við æskulýðsverk-
efni. Það geta verið önnur kirkju-
leg verkefni. Hins vegar verður
örugglega áfram áhersla á æsku-
lýðsmál,“ sagði Jón.
Hann sagði ekki áskilið hvar
fræðslufulltrúi hefði búsetu á
Norðurlandi, en hins vegar hefði
fræðsludeild haft aðsetur í Gler-
árkirkju á Akureyri.
Umsóknarfrestur um stöðu
fræðslufulltrúa er til 7. ágúst nk.
óþh