Dagur - 18.07.1990, Side 2

Dagur - 18.07.1990, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 18. júlí 1990 fréttir Jakob Magnússon Stuðmaður í samtali við Dag vegna Miðgarðsmálsins: Stuðmenn ætla að fara fram á endurgreiðslu Eins og sagt var frá í blaðinu í gær voru Stuðmenn látnir greiða skatta eftir tónleika í Miðgarði sl. laugardags- kvöld, skatta sem þeir hafa ekki þurft að greiða áður á tónleikaferðalagi. Það náðist á Jakobi Magnússyni Stuð- manni í gær og í samtali við hann kom m.a. fram að Stuð- menn ætla að fara fram á endurgreiðslu þeirra skatta sem hljómsveitin borgaði í Miðgarði, þ.e. 24,5% virðis- aukaskatts og 10% skemmt- anaskatts. Jakob sagði að Miðgarður væri nær eina fél- agsheimilið í landinu sem inn- heimti skemmtanaskatt eftir að virðisaukaskattur var tek- inn upp. „Stuðmenn hafa kynnt sér lög og regiur um virðisaukaskatt til hins ýtrasta. Þar stendur skýrt og greinilega aö laun tónlist- armanna séu ekki virðisauka- skattsskyld. Þar stendur einnig að undanþegnir virðisauka- skatti eru íslenskar kvikmyndir, leiksýningar, íslenskar bækur og tónleikar. Aftan við það ákvæði stendur að tónieikar skuli ekki tengjast annarri veit- ingastarfsemi cða öðru sam- komuhaldi. Svona eru lögin," sagði Jakob Magnússon og vill meina að í Miðgarði hafi öll skiiyrði verið uppfyllt sam- kvæmt virðisaukaskattslögum um tónleika. „En við getum ekki ráðið því hvort tónieika- gestir fari að dansa eftir okkar tónlist," sagði Jakob. Jakob bætti við: „Það vita það allir sem nálægt hafa komið að íslensk hljómplötuútgáfa stendur höllum fæti og hefur verið rekin með tapi mörg síð- ustu ár. Grundvöllur þess, að íslcnsk tónlist fái að koma út á plötuin og nái að stemma stigu við algjöru flæði engilsaxnesk- rar tónlistar og texta á útvarps- rásunum 10, er að hinir sömu tónlistarmenn geti fylgt sínum hljómplötum eftir og kynnt þær um landsbyggðina. Þeir tekju- stofnar eru þeir einustu sem viðkomandi aðilar hafa upp úr krafsinu.“ Jakob sagði að sá þáttur virð- isaukaskattslaganna sem fjallar um íslenska tónlist væri mjög ófulikominn. „Vilji stjórnvalda er þó bersýnilega sá að íslenska menningu skuli vernda og það sem henni viðkemur skuli ekki vera skattlagt. Það þykir öllum sjálfsagt að hér sé töluð íslenska. Málið er að leggist tónleikaferðir íslenskra hljóm- sveita af um landið, þá leggst íslensk hljómplötuútgáfa af. Þá getum við alveg eins hætt að tala íslensku og byrjað að tala ensku strax í dag og opna Kana- útvarpið aftur á 10 rásum allan sólarhringinn. Stuðmenn ætla sér ekki að starfa við þennan glundroða áfram neina að til korni breyting á lögunum, sem við teljum að hafi veriö klaufa- lega að staðið,“ sagði Jakob ennfremur. Jakob sagði að Stuðmenn hafi haft rænu á því að koma lögmanni norður til þess að fylgja því eftir að túlkun ríkis- skattstjóra á þessum lögum væri fylgt eftir í einu og öllu í Mið- garði. „Ríkisskattstjóri erbúinn að liggja með það mál f fleiri mánuði hvernig hann eigi að túlka lögin. Hans niðurstaða cr að það megi ekki selja veitingar nema í hléum og að tónleikar séu þar sem ekki er gert ráð fyr- ir dansi. Hvernig er ekki gert ráð fyrir dansi nema með því að auglýsa að það séu tónleikar og með því að stilla upp stólum í salinn? Þannig er ekki gert ráð fyrir dansi og þannig er búið að uppfylla þau skilyrði sem lögin segja til um og það gerðum við í Miðgarði," sagði Jakob. Um það sein sagt er í Degi í gær, að starfsmenn Stuðmanna hafi sagt gestum að stólarnir yrðu teknir af gólfinu, sagði Jakob að það væri á algjörum misskilningi byggt. -bjb 15 ára strák sagt upp hjá Sjöfn: Fyrirvaralaus upp- sögn talin ólögmæt Fyrlr skömmu var 15 ára strák sagt upp störfum hjá efnaverk- smiðjunni Sjöfn á Akureyri og upp kom ágreiningur á milli fyrirtækisins og Iðju um hvern- ig að uppsögninni var staðið. Iðja telur uppsögnina ólög- mæta þar sem stráknum var sagt upp fyrirvaralaust og sent uppsagnarbréf síðar, en sam- kvæmt gildandi reglum á hann rétt á 2ja vikna uppsagnar- fresti. Strákurinn leitaði réttar síns hjá Iðju, þar sem til stend- ur að útvega honum vinnu annars staðar. Eftir því sem heimildir blaðs- ins komast næst fór strákurinn fram á 15% álag á kaupið vegna vinnu sinnar, sem var við blönd- Iðja telur málið alvarlegt un á sápudufti og þykir óþrifaleg og erfið. Strákurinn var á ungl- ingakaupi og var í starfi sem fast- ir starfsmenn Sjafnar hafa innt af hendi og fengið 15% álagsgreiðslu fyrir. Strákurinn fór fram á álags- greiðsluna á meðan hann væri staðgengill þessara föstu starfs- manna en forráðamenn Sjafnar sáu sér ekki fært að verða við því. Málið snýst hins vegar um það hvernig stráknum var sagt upp, frekar en af hverju. í bréfi, dag- settu miðvikudaginn 4. júlí, fékk strákurinn uppsögnina í pósti mánudaginn 9. júlí og telur Iðja vitlaust að farið þar því uppsagn- ir eigi að miðast við vikulok þeg- ar um svo skamman uppsagnar- frest er að ræða. Hins vegar hætti Eigendur hlutabréfa Nú er góð eftirspurn eftir h'lutabréfum. Hlutabréf í eftirtöldum fyrirtækjum seljast með skömmum fyrirvara. Skeljungur h.f., Olíufélagið h.f., Eimskipafélag íslands h.f., Flugleiðir h.f., Skagstrendingur h.f. og Útgerðarfélag Akureyringa h.f. : Sölugengi verðbréfa þann 18. júlí. Einingabréf 1 4.988,- Einingabréf 2 ............ 2.719,- Einingabréf 3 .......... 3.283,- Skammtímabréf ............ 1,687 éélKAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700 strákurinn störfum 4. júlí eftir ntunnlega uppsögn. Iðja lítur þetta mál alvarlegum augum en að sögn Ármanns Helgasonar hjá Iðju, verður séð til þess að mál af þessu tagi endurtaki sig ekki. í samtali við blaðið sagði Aðalsteinn Jónsson, forstjóri Sjafnar, að málinu væri lokið af þeirra hálfu. Aðalsteinn sagði að Sjöfn hefði staðið rétt að málum og strákurinn fái greidd laun í tvær vikur samkvæmt kaupsamningi. „Það stóð aldrei til að krakkarnir fengju yfirborg- un,“ sagði Aðalsteinn, en um 15 unglingar vinna hjá Sjöfn í sumar. „Ég mun eiga fund með fram- kvæmdastjóra Vinnumálasam- bands samvinnufélagana og von- ast til að þetta mál leystist þar á sem bestan hátt fyrir alla aðila,“ sagði Ármann Helgason að lok- um. -bjb uuniASKOÐuni . • Húsnæði tjónaskoðunarstöðvarinnar við Fjölnisgötu. Akureyri: Fyrsta tjónaskoðunarstöðin Á föstudaginn var fyrsta tjóna- skoðunarstöðin opnuð á Akur- eyri. Hún er til húsa við Fjölnisgötu og er rekin af sjálf- stæðum verktökum. Fyrirtæki þetta skoðar alla tjónabíla fjögurra tryggingafélaga, og yfírfer einnig ökutæki sem á að tryggja hjá viðkomandi félög- um. Þórarinn B. Jónsson, umboðs- maður Sjóvá-Almennra á Akur- eyri, segir að tjónaskoðunarstöð þessi sé ekki eign tryggingafélag- anna sem hún þjónar, heldur er stöðin verktaki sem sér um alla tjónaskoðun á vélknúnum öku- tækjum fyrir Sjóvá-Almennar, Ábyrgð hf., Tryggingamiðstöð- ina hf. og Tryggingu hf. „Viðskiptavinir tryggingafélag- anna geta fengið þarna óvilhallt mat, og venjulegir borgarar geta líka snúið sér til skoðunarstöðv- arinnar og fengið tjónamat þegar þeir vilja. Þetta er til bóta fyrir alla aðila, og skref í framfaraátt" segir Þórarinn. EHB Ökuleikni BFÖ á Sauðárkróki: Næstbesti árangur yflr landið Ökuleikni Bindindisfélags ökumanna var haldin á Sauð- árkróki sl. mánudagskvöld. Keppt var í yngri og eldri flokki á reiðhjólum og síðan reyndu þeir fullorðnu með sér á bílum. Ágæt þátttaka var og mættu tii leiks í ökuleikni á bfl- um 15 manns. Góður árangur náðist á bæði vélknúnum og fótknúnum farartækjum og var sigurvegarinn í karlaflokki Rífandi gangur hjá togurunum á Króknum Veiðin er nú farin að glæðast hjá skagflrsku togurunum og þorskurinn tekinn að streyma inn til vinnslu. Hegranesið kom inn með 190 tonn í gíeH»efgun og Skafti var á leiðinni með 140 tonn, síðan var von á Drangeynni inn í-g-æi'kvöld með um 170 tonn. Skipin hafa vcrið að veiðum á Strandagrunni og þar í kring og hefur aflast vel. Skagfirðingur liggur aftur á móti við bryggju í Sauðárkrókshöfn og er í sumarstoppi. Á meðan er tíminn notaður til að mála hann og gera við það sem þörf er á. Gísli Svan Einarsson, útgerð- arstjóri Fiskiðjunnar, sagði að útlit væri fyrir mikla vinnu í fisk- vinnslum staðarins næstu vikurn- ar. Listinn yfir atvinnulausa á Sauðárkróki ætti því að styttast verulega, en um síðustu mánaða- mót voru á honum um 50 manns. SBG meö annan besta árangurinn sem náðst hefur á landinu í þessari hringferö, aðeins þremur refsistigum ríkari en sá besti. Úrslit urðu þessi: Reiðhjólakeppni, yngri: refsistig 1. Garðar Víðir Gunnarsson 117 2. Skarphéðinn Stefánsson 121 3. Einar Björgvin Eiðsson 145 Reiðhjólakeppni, eldri: refsistig 1. Andri Sigurgeirsson 49 2. Hólmar Logi Sigmundsson 57 3. Hreiðar Örn Steinþórsson 58 Ökuleikni, karlar: refsistig 1. Rúnar Gíslason 128 2. Bergur Hólm Aðalsteinsson 169 3. Róbert Kluvers 184 Ökuleikni, konur: refsistig 1. Jódís Einarsdóttir 199 2. Halla Guðmundsdóttir 223 3. Katrín Andrésdóttir 240 Aðeins einn keppandi mætti af 17 ára ökumönnum og var það Ásta Einarsdóttir sem náði ágætum árangri og var með 289 refsistig. SBG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.