Dagur - 18.07.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 18.07.1990, Blaðsíða 11
 Miðvikudagur 18. júlí 1990 - DAGUR - 11 . i Landsmótíð í golfi hefst að Jaðri 26. júlí _____________________+ Ágúst Þorsteinsson sigraði í fyrstu þríþrautarkeppninni á Islandi sem fram fór á Akureyri 17. júní 1988. Fyrsta íslandsmótið í þríþraut að Urafnagili 49. Landsmótið í golfi fer fram á Akureyri dagana 26. júlí til 4. ágúst. Að þessu sinni verður leikið með nýju fyrirkomulagi Bikarkeppni kvenna: KA-ÍA og Valur-Þór Dregið hefur verið til undan- úrslita í bikarkeppni meistara- flokks kvenna en bæði Þór og KA hafa tryggt sér þar sæti. KA mætir IA á Akureyri en Þór Val í Reykjavflt. Leikur KA og ÍA fer fram laugardaginn 28. júlí kl. 14. Val- ur og Þór leika fimmtudaginn 2. ágúst kl. 20. Vegna þessara tíma- setninga hefur leikur KA og ÍA í 1. deild kvenna verður færður til 25. ágúst kl. 14 en hann átti að fara fram 28. júlí. íslandsmót í tennis - í júlí og ágúst Dagana 26.-31. júlí og 8.-12. ágúst fer fram í Reykjavík íslandsmótið í tennis. Er þetta í 7. sinn frá endurvakningu tennisíþróttarinnar á Islandi sem mótið er haldið. Búist er við um 100 þátttakendum og fer mótið fram á tveimur stöð- uin í höfuðborginni, á tenn- isvöllum Þróttar og Víkings. Keppni í unglingaflokkum fer fram 26.-29. júlí, tvenndarleikur fullorðinna 26.-28. júlí og for- keppni í einliðaleik karla og kvenna 28.-31. júlí. Fjórir karlar og tvær konur komast áfram í lokakeppnina sem fer fram 10,- 12. ágúst. Keppni í tvíliðaleik karla og kvenna fer fram 8.-10. og 12. ágúst en öðlingarnir, þ.e. karlar 35 ára og eldri, reyna með sér 10.-12. ágúst. Tvenndarleikur, tvíliðaleikur karla og kvenna og öðlinga- keppnin fara fram á gervigrasi á tennisvöllum Þróttar. Aðrir flokkar keppa á tennisvöllum Víkings. Skráning fer fram á tennisvöll- um Víkings í Fossvogsdal til 19. júlí frá kl. 12-22 í síma 91-33050 og þar eru jafnframt gefnar nán- ari upplýsingar. 2. flokkur KA er úr leik í Bik- arkeppni KSÍ. Liðið mætti ÍBV í 8-liða úrslitum á Akur- eyri sl. föstudag og sigruðu gestirnir 3:1 eftir framlcngdan leik. Leiðrétting í gær urðu þau mistök í frásögn af leik Þórs og KR í 1. deild kvenna að Harpa Frímannsdóttir var sögð hafa skorað eitt af mörkum Þórs. Hið rétta er að markið gerði systir hennar, Soffía Frímannsdóttir. Beðist er vel- virðingar á þessu. sem samþykkt var á Golfþingi í febrúar eftir tillögu frá Golf- klúbbi Akureyrar. Mótið verð- ur tvískipt, dagana 26.-29. júlí leika 2. flokkur kvenna og 2. og 3. flokkur karla en æflnga- dagar þessara flokka verða 24. og 25. júlí og verðlaunaaf- hending að kvöldi 29. júlí. Meistaraflokkar karla og kvenna og 1. flokkur karla og kvenna leika 1.-4. ágúst en æf- ingadagar verða 30. og 31. júlí. Lokahóf og verðlaunaafhend- ing verður 4. ágúst. Sú nýbreytni sem án efa mun vekja einna mesta lukku er að keppendum verður ekki fækkað eftir að leiknar hafa verið 36 hol- ur eins og verið hefur undanfarin ár. Hins vegar geta keppendur hætt keppni eftir 36 holur til- kynni þeir það um leið og þeir Ijúka keppni á öðrum keppnis- degi. Mikill fjöldi félaga í GA mun leggja fram vinnu við fram- kvæmd mótsins og undirbúning þess. Um 30 manns munu verða að störfum hverju sinni og er lík- legt að um 100 manns muni tengjast framkvæmd mótsins á einhvern hátt. Gistirými á Akureyri, þann tíma sem mótið stendur yfir, mun vera af skornum skammti og hef- ur GA fengið nokkrar fyrirspurn- ir varðandi gistingu. Samvinna tókst með klúbbnum og S.S Byggi hf. sem leiddi til þess að hús í eigu fyrirtækisins voru sett niður á vellinum. í þeim eru vist- leg tveggja manna herbergi sem eru leigð út á 2500 kr. á sólar- hring en í þeim eru einnig setu- stofa, snyrtingar, sturtur og geymslur. Húsin verða staðsett á vellinum þar til golfvertíðinni lýkur í haust. Mótsstjóri Landsmótins verður Gylfi Kristjánsson. Úrslitakeppni 7. Pollamóts Eimskips verður haldin laugar- daginn 21. og sunnudaginn 22. júlí á Valsvellinum að Hlíðar- enda í Reykjavík. Pollamót þetta er haldið fyrir knatt- spyrnumenn í 6. aldursflokki en eins og skýrt hefur verið frá KA-menn náðu fljótlega for- ystunni með marki Birgis Frið- rikssonar en Vestmanneyingar jöfnuðu fljótt. Eftir það var leikurinn í járnum og fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma. í framlengingunni voru Eyjamenn svo sterkari aðilinn og bættu við tveimur mörkum. Þess má geta að í lið KA vantaði þá Halldór Kristinsson, Þórð Guð- jónsson og Birgir Arnarson. A föstudaginn attu Þórsarar að leika gegn KR í 8-liða úrslitunum en þeirn leik var frestað og fer hann fram á KR-vellinum á laug- ardaginn. Fyrsta íslandsmeistaramótið í þríþraut verður haldið á Akur- eyri nk. sunnudag. Aðeins rúmlega tvö ár eru liðin frá því að fyrst var keppt í þessari grein á íslandi en svo skemmti- lega vill til að það var einmitt á Akureyri þann 17. júní, 1988. Þríþraut samanstendur af þremur rótgrónum íþrótta- tryggðu bæði a- og b-lið Þórs sér sæti í úrslitakeppninni með sigri í Norðurlandsriðlinum á Sauðárkróki fyrir skömmu. Ýmislegt verður á döfinni í kringum þessa úrslitakeppni, svo sem heimsókn landsliðsmanna, útigrill á laugardeginum þar sem boðið verður upp á pylsur og Jaka-Cola ásamt brauði og öðru tilheyrandi. Valinn verður besti varnarmaðurinn, besti sóknar- maðurinn, besti markvörðurinn og prúðasta liðið, bæði í a- og b- flokki, og fær hver fyrir sig bikar til eignar. Þátttaka í Pollamóti Eimskips hefur farið vaxandi ár frá ári og hefur aldrei verið meiri en í ár en keppendur nú eru um eitt þúsund talsins. Búist er við miklu fjöl- rnenni að Hlíðarenda þar sem boðið er upp á mjög góðar aðstæður, bæði fyrir leikmenn og árhorfendur og er fólk hvatt til að mæta á völlinn ef það hefur tök á. Búið er að raða niður í riðla í úrslitakeppninni. A-lið Þórs leik- ur í riðli með Aftureldingu, Austra Eskifirði og KR. B-liðið leikur í riðli með Aftureldingu, Þrótti Neskaupsstað og KR. - um næstu helgi greimim, sundi, hjólreiöum og hlaupi. Hópur áhugamanna um þrí- þraut hefur farið ört vaxandi allt síðan fyrsta keppnin fór fram. Um mitt ár ’89 hófu nokkrir áhugamenn viðræður við ÍSÍ undir stjórn Cees van de Ven en hann er Hollendingurinn sem kynnti greinina hér á landi og hefur verið helsti hvatamaður síðan. Hann er jafnframt for- maður Þríþrautarnefndar ÍSÍ sem sér um framkvæmd mótsins um næstu helgi. Hún hefur staðið fyrir ýmsunt uppákomum í ár til að kynna og efla þríþraut og má þar m.a. nefna vetrarþríþrautina, sem var liður í Vetraríþróttahá- tíð ÍSÍ á Akureyri í vetur, nám- Nú er útrunninn frestur sá er islenskir handknattleiksmenn hafa til að skipta um félag og því orðið nokkuð Ijóst hvernig mannskapurinn lítur út hjá félögunum á næsta keppnis- tímabili. Af norðanliðunum hafa einna mestar breytingar orðið hjá KA-mönnum sem fá þrjá nýja menn en missa Karl Karlsson sem leikur með Fram í vetur. Frá því hefur verið skýrt að Hans Guðmundsson leikur með KA næsta vetur. Þá hefur línu- maðurinn Andrés Magnússon, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, ákveðið að leika með KA og sömuleiðis Friðþjófur A. Frið- þjófsson frá Selfossi. Hann mun hafa verið í fríi frá handknattleik skeið og keppni á Laugarvatni í síðasta mánuði, keppni á Sumaríþróttahátíð ÍSI í sumar, auk þess sem þríþrautin var sýn- ingargrein á Landsmótinu sem nú er nýafstaðið. íslandsmótið hefst að Hrafna- gili á sunnudaginn kl. 8.30. Keppt verður í kvenna- og karla- flokki eldri en 15 ára og verða syntir 750 m, hjólaðir 20 km og hlaupnir5 km. Heildartími kepp- enda ræður úrslitum. Ef fleiri en 25 keppendur mæta til leiks verð- ur keppt í riðlum. Skráning fer frarn í símum 96- 27541 (Cees), 96-23116 (Stein- þór) og 91-19856 (Stefán) og þar eru einnig veittar nánari upplýs- ingar. urn nokkurt skeið en tekur nú fram skóna að nýju. Þórsarar fá Jóhann Samúels- son aftur í sínar raðir en að liðið verður óbreytt að öðru leyti. Þess má þó geta að líklegt er að bæði KA og Þór verði með erlenda leikmenn á næsta tímabili en það hefur ekki verið ákveðið enn. Ekki er heldur Ijóst í hvaða deild Þórsarar leika þar sem þeir fara í aukakeppni um 1. deildarsæti í ágúst. Völsungur leikur nú í 2. deild og hafa þeir misst einn mann, Jóhann Pálsson sem hefur skipt yfir í HK. Þá fá Völsungar inn 2- 3 menn sem ekki léku með vegna meiðsla í fyrra en aðrar breyting- ar eru ekki fyrirsjáanlegar hjá Húsvíkingunum. Bikarkeppni 2. flokks: KA-menn úr leik Pollamót Eimskips: Úrslitakeppnin að Hlíðarenda um helgina Handknattleikur. Mestar breytingar hjá KA-mönnum - af norðlensku liðunum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.