Dagur - 21.07.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 21. júlí 1990
fréttir
Sveitarstjóramálið í Skútustaðahreppi:
Minmhlutinn leitar tfl ráöuneytis
Á fundi hreppsnefndar Skútu-
staðahrepps í síðustu viku var
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
oddviti hreppsnefndarinnar,
kjörinn sveitarstjóri. Fulltrúar
minnihlutans gagnrýndu þessa
samþykkt harðlega, þar sem
Sigurður var ekki meðal um-
sækjenda um stöðuna og engar
upplýsingar hefðu legið fyrir
um það, að hann kæmi til álita
í sveitarstjórakjöri.
Pegar kom að kjöri sveitar-
stjóra, vék Sigurður af fundi og
tók varamaður sæti hans. Vara-
oddviti tók við fundarstjórn og
kynnti þær sex umsóknir sem
Kartöflur
á markaðinn
Von er á fyrstu íslensku kart-
öflunum á markaðinn á Norð-
urlandi um næstu mánaðamót.
Samkvæmt upplýsingum Dags
fara bændur í Sandfellshaga í
Öxafirði að huga að kartöflu-
upptöku og væntanlega ríða
þeir á vaðið hér norðan heiða í
þeim efnum.
Bændur þar á bæ gera ráð fyrir
að hefja kartöfluupptöku um eða
eftir mánaðamótin og mun upp-
skeran fara beint í verslanir um
allt Norðurland.
Aðstæður í garðlöndum bænda
í Sandfellshaga gera það að verk-
um að unnt er að hefja kartöflu-
upptöku fyrr en gengur og gerist
á Norðurlandi. Þarna er mikill
hiti í iðrum jarðar og hann flýtir
mjög fyrir vexti kartaflanna. óþh
höfðu borist um stöðuna. Að því
búnu var lesin upp tillaga frá
meirihlutanum þess efnis að
Sigurður skyldi ráðinn sveitar-
stjóri. Tillagan var síðan sam-
þykkt með þremur atkvæðum
meirihlutans, gegn tveimur
atkvæðum minnihlutafulltrúa.
Minnihlutafulltrúarnir gagn-
rýndu þessa málsmeðferð og
töldu að gróflega hefði verið
brotið á réttindum sínum sem
hreppsnefndarmanna og mót-
mæltu því með því að ganga af
fundi. Aður hafði Kári Þorgríms-
son, annar minnihlutafulltrúa,
lagt fram tillögu um að ráða einn
ákveðinn umsækjanda en hún var
felld. Einnig var felld tillaga Kára
um að fresta ráðningu sveitar-
stjóra til næsta fundar.
„Okkur höfðu verið sendar
upplýsingar um alla umsækjend-
ur fyrir fundinn og vissum ekkert
um það að Sigurður væri inni í
myndinni, það hvarflaði raunar
ekki að okkur. Á fundinum voru
umsækjendurnir kynntir en engar
umræður voru um þá né skýring-
ar gefnar á því hvers vegna eng-
inn þeirra kom til álita. Við mælt-
um með einum umsækjendanna
en því var hafnað og engin skýr-
ing gefin á því,“ sagði Ólöf Hall-
grímsdóttir, hinn minnihlutafull-
trúinn í hreppsnefndinni, í sam-
tali við Dag. „Samkvæmt tillögu
frá meirihlutanum var auglýst
eftir sveitarstjóra og það er síðan
þessi sami meirihluti sem í raun-
inni sniðgengur allar umsóknirn-
ar. Við vissum ekki betur þegar
við komum á fundinn en ætti að
fjalla um þessar umsóknir. Mér
finnst þetta furðuleg vinnu-
brögð,“ sagði Ólöf ennfremur.
Aðspurð um hvort minnihlut-
inn áformaði einhverjar aðgerðir
í þessu máli, t.d. að kæra til fé-
lagsmálaráðuneytis, sagði hún að
þau ætluðu að kanna þetta aðeins
nánar og leita upplýsinga og ráða
hjá ráðuneytinu. Pað kæmi svo í
ljós hvort eitthvað meira yrði úr
þessu máli.
I greinargerð með tillögu
meirihlutans um að ráða Sigurð
sem sveitarstjóra segir m.a. að
Sigurður sé talinn besti kosturinn
sem völ er á til starfsins, þrátt fyr-
ir að vænlegar umsóknir hafi bor-
ist um stöðuna. Brýn nauðsyn sé
að bregðast skjótt við og af mik-
illi festu við vandamálum sem
liggi fyrir sveitarstjórn og nægi
þar að nefna háskalega stöðu
sveitarsjóðs. Það væri mat meiri-
hlutans að heimamaður með víð-
tæka þekkingu á helstu málefn-
um sveitarfélagsins væri best til
þess fallinn að fylgja eftir ákvörð-
unum sveitarstjórnar.
„Misskilningurinn í þessu hjá
minnihlutafulltrúum er sá, að á
dagskrá var boðað að ætti að
ráða sveitarstjóra. En með því að
auglýsa eftir sveitarstjóra skuld-
bindur hreppurinn sig ekki til að
ráða einhvern af þeim sem sækja
um. Það var lögð fram tillaga um
afgreiðslu málsins og ég veit ekki
hvernig meirihluti í sveitarstjórn
ætti að starfa ef hann legði fyrir
minnihlutann í fundarboði þær
hugmyndir sem hann hefur um
afgreiðslu þeirra mála sem fyrir
liggja hverju sinni,“ sagði Sigurð-
ur Rúnar Ragnarsson, nýráðinn
sveitarstjóri Skútustaðahrepps
um þetta mál. -vs
Frystihús ÚKED Dalvík:
Sumarlokun 27. júlí
Við opnum tjónaskoðunarstöðvar VIS á Akureyri afhenti Axel Gíslason,
forstjóri, lögreglunni á Akureyri að gjöf vélhjól af Honda gerð frá VIS og
Honda-umboðinu á Islandi. Frá vinstri á myndinni eru Ellert Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Þórshamars, Honda-umboðsins á Akureyri, Ingi R.
Helgason, stjórnarformaður VÍS, Guðmundur Sölvason, lögregluþjónn,
Ólafur Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn, og Axel Gíslason, forstjóri VIS.
Vátryggingafélag íslands:
Tjónaskoðunarstöð
opnuð á Akureyri
Frystihús ÚKED á Dalvík
fékk í íýrradag um 180 tonn til
vinnslu af togaranum Björg-
úlfi, og var aflinn mestmegnis
þorskur. Aflann fékk skipið á
4 dögum á Vestfjarðamiðum.
Björgvin landaði í gær full-
fermi, um 160 tonnum, sem er
þorskur og ýsa nokkuð að jöfnu
sem er afli sem fékkst fyrir austan
land. Þetta eru síðustu landanirn-
ar sem frystihúsið tekur við áður
en árleg sumarlokun tekur við
sem stendur frá 27. júlí til 13.
Ríkismatið:
Mjog misjom
gæði rækju
Við skoðun eftirlitsmanna
Ríkismats sjávarafurða að
undanförnu hefur komið í Ijós
að gæði rækjunnar eru mjög
misjöfn og í nokkrum tilfellum
hefur þurft að henda rækju
vegna skemmda.
í nýútkomnu fréttabréfi Ríkis-
matsins segir að lengd úthalda og
meðferð rækjunnar um borð, svo
og hitastig sjávar séu þættir sem
hafi áhrif á gæði rækjunnar.
Samkvæmt reglugerð mega
veiðarnar aðeins vara fjóra daga,
en algengt er að þær taki fimrn
daga fyrir vestan, jafnvel sex
daga.
„Rækjan geymist betur ef hún
er vel ísuð og því heitari sem
sjórinn er því minna er geymslu-
þolið og ber að hafa það í huga
þegar ísað er,“ segir orðrétt í
fréttabréfi Ríkismats sjávar-
afurða. óþh
ágúst. Reiknað er með að frí
verði gefið í dag vegna knatt-
spyrnuleiks í 3. deild milli Dal-
víkinga og erkifjendanna Dalvík-
inga og Reynis sem fram fer á
Árskógsströnd, en unnið verði í
húsinu á sunnudag.
Togararnir verða bundnir við
bryggju fram í ágústmánuð, en
þá fer Björgúlfur að veiða í sigl-
ingu en hann á söludag í Þýska-
landi 22. ágúst, en Björgvin land-
ar væntanlega á Dalvík 13. ágúst.
Talsverður fiskur er nú á boð-
stólum á Eyjafjarðarsvæðinu, og
t.d. hefur frýstihúsinu á Dalvík
boðist fiskur bæði frá Hrísey og
Grenivík. Smábátar hafa verið
að fá ágætan ufsaafla nánast í
hafnarkjaftinum, og reyndar víða
á Hríseyjarsundi. GG
Óvenjudræm veiði hefur verið
í laxveiðiám á Norðurlandi
vestra það sem af er sumri og
kunna menn fáar skýringar á
því. Ekki eru menn samt búnir
að gefa upp alla von, þótt lítið
veiðist, og eru ýmis teikn á
lofti þess efnis að veiðin fari að
glæðast.
Böðvar Sigvaldason, formaður
Landssambands veiðifélaga, seg-
ir það mikil vonbrigði að veiðin
skuli vera svona léleg. „Veiðin
Vátryggingafélag Islands opn-
aði tjónaskoðunarstöð á Akur-
eyri sl. fimmtudag með form-
legum hætti. Stöðin er til húsa
að Furuvöllum 11. Við það
tækifæri afhenti Axel Gísla-
son, forstjóri VÍS, lögreglunni.
á Akureyri að gjöf vélhjól af
Honda gerð.
Axel sagði að gjöf þessari væri
ætlað að stuðla að auknu umferð-
hefur verið mun lélegri en við
hefðum nokkurn tíma látið okk-
ur detta í hug. Ástæðurnar geta
verið margar, þ.á m. hefur vorið
verið mjög þurrt og lítið vatn ver-
ið í bergvatnsánum. Síðan virðist
smáfiskurinn ætla að ganga seint
í árnar,“ sagði Böðvar.
Aðspurður um hvort líkur
væru á að rættist úr veiðunum
sagði hann enga ástæðu til annars
en vona það. „Til dæmis hefur
smálaxinn verið að ganga inn í
hafbeitarstöðvarnar, eins og hjá
aröryggi, með því að gefa ung-
mennum kost á að æfa sig í notk-
un vélhjóla undir eftirliti og leið-
sögn lögreglu áður en farið væri
út í umferðina. Fyrir hönd lög-
reglunnar á Akureyri tók Ólafur
Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn,
við gjöfinni.
Kristinn H. Jóhannsson, bif-
vélavirkjameistari, verður skoð-
unarmaður í tjónaskoðunarstöð-
inni. -bjb
Silfurlaxi á Snæfellsnesi en þang-
að hafa verið að koma góðar
göngur undanfarna daga. Við
erum meira hræddir um að fisk-
urinn bíði með að koma inn í
árnar þangað til rigni, þannig að
það er engin ástæða til þess eins
og er að missa vonina," sagði
Böðvar Sigvaldason.
Nýjustu fregnir úr húnvetnsk-
um laxveiðiám herma að veiðin
sé á uppleið og síðustu daga hafi
fengist ágætis veiði. -vs
Laxveiðiár á Norðurlandi vestra:
„Lélegri veiði en við hefðum
látið okkur detta í hug“
- segir Böðvar Sigvaldason
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að veita 150 þúsund króna
styrk til Völsungs vegna fyrir-
hugaðrar feróar meistara-
flokksliðs félagsins í hand-
knattleik í september.
■ í bréfi frá Fjórðungssam-
bandi Norðlendinga til bæjar-
yfirvalda á Húsavík er óskað
eftir að Húsavíkurkaupstaður
bjóði til þínghalds á fjórðungs-
þingi árið 1991. Bæjarráð sam-
þykkir að leggja til við bæjar-
stjórn að orðið verði við þessu
erindi óg það tilkynnt form-
lega á fjórðungsþingi á Sauð-
árkróki í lok ágúst nk.
■ Stjórn Framkvæmdalána-
sjóðs hefur samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að
Fiskiöjusamlagi Húsavíkur
verði veitt einföld bæjar-
ábyrgð á láni allt að 15 millj-
ónir króna, sem fyrirhugað er
að taka hjá Landsbanka ís-
Iands í tengslum við fyrirhug-
uð bátakaup fyrirtækisins.
■ Sveinbjörn Lund hefur ver-
ið kjörinn formaður veitu-
nefndar og til vara Gunnar B.
Salóntonsson.
■ Á síðasta fundi veitunefnd-
ar spunnust nokkrar umræður
um erindi ábúenda og eigenda
Héðinshöfða I og II í Tjörnes-
hreppi um kaup á heitu vatni
frá hitavcitunni. í tillögu
veitustjóra var gert ráð fyrir
að hitaveitan afhendi vatnið úr
brunni á mótum Héðinsbraut-
ar ög Baldursbrekku. Þá gerði
tillagan ráð fyrir að þessir aöil-
ar yrðu notendur hitaveitunn-
ar frá og með hausti 1990.
Ákveðið var að fresta af-
greiðslu málsins og var veitu-
stjóra falið að afla frekari upp-
lýsinga og ræða við sveitar-
stjórn Tjörneshrepps um mál-
ið.
■ Lilja Skarphéðinsdóttir
hefur verið kjörin formaður
íþrótta- og æskulýðsnefndar.
Varaformaður var kjörinn
Sigurður Þrastarson og ritari
Arnar Guðlaugsson.
■ íþrótla- og æskulýðsnefnd
hefur fallist á að veita Golf-
klúbbi Húsavíkur styrk að
upphæð 100 þúsund krónur,
en honum verður varið til
greiðslu kennslu á vegum
klúbbsins og þá einkum fyrir
unglinga, sent boðið er upp á
ókeypis kennslu. í bókun
íþrótta- og æskulýðsnefndar
kernur fram að hún hafi óskað
jafnframt eftir að klúbburinn
Ieggi frant ársreikning og árs-
skýrslu fyrir síðasta ár.
■ Fram kom á fundi íþrótta-
og æskulýðsnefndar nýveriö
að aðeins væri búíð að lagfæra
eitt af fimni atriðum sem talið
var að þyrfti nauðsynlega að
laga við stallalyftu. Upplýst
var að viðgerðarmaður frá
Akureyri væri tilbúinn að lag-
færa það sem upp á vantar í
ágúst-september.