Dagur - 21.07.1990, Side 12
12 - DAGUR - Laugardagur 21. júlí 1990
matarkrókur
Matarkrókur vikunnar:
Strogonoff „a la Clarke“
Michael John Clarke tón-
listarkennari er í matarkrók
vikunnar. Hann býður les-
endum Dags upp á upp-
skrift af ekta strogonoff og
kryddaðri linsubaunasúpu,
ásamt ágœtum drykk til að
skola kræsingunum niður
með. Michael sem er af
bresku bergi brotinn, segist
borða allan íslenskan mat,
en svið, hrútspungar og
hákarl séu þó ekki á þeim
lista. Uppskriftin að krydd-
uðu linsubaunasúpunni
varð þannig til að grœn-
metisæta sem dvaldi hjá
honum skildi eftir ýmsar
jurtir og krydd, sem ekki
voru fáanlegar á þeim
árum. Strogonoff rétturinn
er hins vegar einn af uppá-
haldsréttum fjölskyldunnar.
En fyrst skulum við elda
linsubaunasúpu.
Krydduð linsubaunasúpa
2‘A bolli linsubaunir (appelsínu-
gular)
2 lítrar af vatni
l'/2 tsk. salt
‘A bolli olífuolía
2 laukar, bryjaðir
4-5 hvílauksgeirar, brytjaðir
2 stór lárviðarlauf
‘/2 tsk. kanel
:/2 tsk. negulduft
'ó tsk. engifer
l'/2 tsk. cumínduft (ekki kúmen)
2'/2 msk. saxaður grœnn chilli
pipar
'A bolli fersk steinselja
2-3 msk. smjör
nýmalaður pipar.
Látið linsubaunirnar í stóran
pott. Athugið að kaupa baunir
sem ekki þarf að leggja í bleyti.
Bætið vatni og salti út í og látið
suðuna koma upp. Látið
krauma í 1 klst.
Hitið olíuna á pönnu, steikið
lauk, hvítlauk og lárviðarlauf
við vægan hita þangað til
laukurinn fer að brúnast. Bætið
öllu krydddinu út í nema chilli
og steinselju og steikið í 2 mín.,
helljð út í baunirnar ásamt chilli
og steinselju. Látið krauma í 1
klst. í viðbót. Bætið smjörinu út
í og svörtum pipar og salti ei'tir
smekk. Súpan er ekki mjög
girnileg að sjá en mjög athygl-
isverð á bragðið. Best með
grófu heimabökuðu brauði.
Mjög saðsöm, ódýr og næring-
argóð.
Ekta Strogonoff
500 g nautalundir
3 laukar
60 g smjör
I grœn paprika
1 baukur sýrður rjómi
500 nýir sveppir
salt og pipar
Þetta er ekta strogonoff. Hér
er aðeins notað besta fáanlegt
hráefni, og engar hveitisósur
eða súpukraftur. Nautalundir
eru sneiddar niður í strimla,
jafnþykkir, u.þ.b. 5 mm þykkir.
Brytjið laukinn og steikið í
helmingnum af smjörinu. Bætið
paprikustrimlum og fjórðung-
uðum sveppum út í og látið
krauma í fimm mínútur. Hellið
í skál. Steikið kjötið í hinum
helmingnum af smjörinu þannig
að það sé „rare“ (ekki grátt í
gegn!).
Blandið nú öllu saman, einn-
ig sýrða rjómanum, en gætið vel
að sjóði ekki. Borið fram með
kartöflukrókettum eða kart-
öflumús. Til nýtingar á mysu-
birgðum landsins fylgir hér
uppskrift að drykk sem heitir
mysublanda:
1 líter mysa
1 líter hreinn appelsínusafi
Blandað saman í könnu með
ísmolum.
Þessir réttir hans Michael’s
kitla örugglega bragðlaukana.
Hann hefur skorað á Roar
Kvam, sem að sögn kunnugra
er fyrirtaks kokkur. GG
Og hví skyldi ég ekki hjóla?
Hallfreður
Örgumleiðason
Kæru lesendur, mig skortir
ekki orð heldur ró, sálarró til
að umbreyta hugsunum mín-
um í prentað mál svo ég megi
skýra ykkur frá þjáningum
mínum, góðborgara á glapstig-
um. Nei, ég er ekki að fara í
hundana og sjálfsagt er óþarfi
að vera með eymdarkíf, stað-
reyndirnar tala sínu máli, blá-
kaldar úr breiðstrætum Akur-
eyrar. Sökin er líka að nokkru
leyti mín því mér var nær að
lúta ekki vilja almennings og
láta berast með blikkbelju-
straumnum.
Svo ég reyni að tala hreint út
þá hófst þetta allt með því að
ég var að viðra skoðanir mínar
við kvöldverðarborðið, einu
sinni sem oftar, mæðgunum til
mikillar armæðu. Að þessu
sinni beindi ég spjótum mínum
að óhóflegri bílaeign og bíla-
notkun samborgara minna á
Akureyri. „Einkabílisminn,“
þusaði ég, „er rót marghátt-
aðra samfélagsvandamála.
Með því að hunsa þessa ger-
ræðislegu þróun getum við
fækkað slysum, minnkað slit á
götum, dregið úr mengun,
bætt heilsuna og styrkt Strætis-
vagna Akureyrar. Við getum
því bæði sparað mannslíf og
peninga."
Konan hélt áfram að skafa
sviðin og leit ekki upp. Dóttir
okkar gerði hins vegar hlé á
glímunni við tunguna og horfði
á mig gáfulegum augum, rétt
eins og hún væri að hlusta á
speki föðurins, bergja á visku-
brunninum. Mér óx ásmegin
og hélt eina hvössustu tölu sem
ég hef haldið um ævina og
sparaði ekki púðrið. Engum
var eirt, engum hlíft, enda
engar heilagar kýr í mínum
augum. Á hápunkti ræðunnar
leit ég hróðugur á furðu lostn-
ar mæðgurnar og þóttist loks
hafa farið með sigur af hólmi.
Þá tók ástkær eiginkona mín til
máls, ekki vitund æst að þessu
sinni.
„Ég hef heyrt eitthvað þessu
líkt áður, Hallfreður minn. Þér
!væri nær að líta í eigin barm.
IManstu þegar þú ætlaðir að
!leggja bílnum og nota þessa
yndislegu almenningsvagna?"
Vissulega mundi ég eftir
þessum tilfellum sem hún skír-
skotaði til, enda hef ég áður
reynt að skera mig úr fjöldan-
um í von um að geta haft góð
áhrif á aðra. Eitt sinn þegar við
bjuggum í Reykjavík var ég
orðinn sturlaður af umferðinni
og ákvað að nota almennings-
vagnakerfið. Þetta stóð yfir í
tvo daga, en þá hafði ég styggt
vinnuveitandann með því að
koma of seint í tvígang auk
þess sem ég skilaði mér seint
og illa heim á kvöldin. Þetta
voru svo margir vagnar og
flókið leiðakerfi að mér tókst
alltaf að villast. í stað þess að
fara heim í Þingholtin lenti ég í
hraðferð upp í Breiðholt
o.s.frv. Ég reyndi líka að ferð-
ast með strætó á Akureyri en
það gekk ekki betur. Vagnarn-
ir komu aldrei, sama hvað
maður beið, og í stað þess að
fara beint á ákvörðunarstað
hringsóluðu þeir um bæinn.
„Ég er ekki að tala um
strætisvagna núna, kona góð,
heldur hjólreiðar. Þær eru
allra meina bót og...“
„Blessaður farðu þá að hjóla
í vinnuna," hreytti konan út úr
sér og mergsaug svið sauðkind-
arinnar.
Ekki stakk hún upp í mig
með þessari ósvífni því ég tók
hana á orðinu, pússaði upp
gamla Raleigh hjólið og settist
á bak. Ég var farinn að hjóla í
vinnuna, öllum til mikillar
undrunar. Fínar frúar horfðu
skelfingu lostnar á mig þegar
ég þrælaði bullsveitur upp
brekkurnar með lýsistaumana
á eftir mér, krakkar á fjalla-
hjólum hlógu að mér og mót-
orhjólatöffarar hæddu mig og
svívirtu. Ég var örmagna í
vinnunni og kom heim kjökr-
andi af þreytu og skömm. En
ég gafst ekki upp.
Nei, ég gafst ekki upp þrátt
fyrir þetta mótlæti en ég er að
bugast af öðrum orsökum.
Sökudólgurinn er einkabíllinn,
og þá væntanlega stjórnendur
hans. Það er stórhættulegt fyrir
hugdjarfan hjólreiðamann að
láta sjá sig á götum Akureyrar.
Annað hvort reyna bílstjórarn-
ir að aka á mann eða svína svo
hrottalega á manni að við
stórslysi liggur. Tillitsleysið er
með eindæmum og framkoma
forsvarsmanna einkabílismans
óhugnanleg. Eftir að hafa
fengið marbletti og skurði, en
sloppið við líflát, færði ég fák
minn yfir á gangstéttirnar.
Hugsanlega er þetta lögbrot en
hjólreiðarnar hafa gengið
miklu betur og hví skyldi ég
ekki hjóla? En gangstéttakerfi
bæjarins mætti bæta mikið,
það hef ég séð mæta vel.
Skyldu þeir vera að gera hjólið hans Hallfreðs upptækt? A.m.k. segir hann ekki farir sínar sléttar af viðskiptum við
ökumenn.