Dagur - 26.07.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. júlí 1990 - DAGUR - 3
fréttir
f
Iiklegt að girt verði frá Gæsavatnagirðingu
og norður í Sæluhúsamúla á næsta ári, alls 20 km leið
Á undanförnum misserum
hafa staðið yfir viðræður milli
forráðamanna Keldunes-
hrepps og Aðaldælahrepps um
girðingu á mörkum hreppanna
frá Gæsvatnagirðingu og norð-
ur og vestur í Sæluhúsamúla
sem er syðst á Tjörnesfjall-
garðinum. Einnig er rætt um
girðingu sunnan Tjörness þ.e.
milli Húsavíkur og Reykja-
hverfis annars vegar og Tjör-
ness hins vegar þannig að
norðan þessarar girðingar yrðu
Kelduneshreppur og Tjörnes-
hreppur.
Suður-f*ingeyjarsýsla hefur
verið skilgreind sem gróðurfars-
lega veikt svæði af hálfu Náttúru-
verndarráðs og Landgræðslu rík-
isins, og það er óumdeilanlegt að
hlutar hennar eru það, en t.d.
heiðarlöndin milli Mývatnssveit-
ar, Bárðardals og Reykjadals og
Fljótsheiðin norður eftir geta
ekki flokkast undir þá skilgrein-
ingu.
Björn Guðmundsson í Lóni
segir að látið hafi verið í veðri
vaka, að fullvirðisrétti í sauðfé
yrði úthlutað í samræmi við slík-
ar skilgreiningar að einhverju
marki, og ef Norður-Þingeyingar
yrðu ekki á nokkurn hátt greindir
frá Suður-Þingeyjarsýslu í þessu
tilliti, þá yrði sýslurnar báðar
skilgreindar saman á þennan hátt
og Keldhverfingar þannig tapað
fullvirðisrétti.
Hins vegar séu hugmyndir um
girðingaframkvæmdir upp komn-
ar vegna hagræðingar á fjallskil-
um, en sífellt verður erfiðara að
manna göngur vegna fólksfækk-
unar til sveita. Á undanförnum
árum hefur fé, aðallega úr
Reykjahverfi sótt í afréttarlöndin
austan við, en Aðaldælingar hafa
búið við það undanfarin ár að
Landgræðslan hefur raunveru-
lega haft stjórn á beitarmálum
þeirra að hluta, og leyfir ekki
upprekstur á Þeistareykjaland
fyrr en eftir nákvæma skoðun,
sem venjulega er ekki fyrr en um
mánaðamótin júní/júlí.
Uppi eru hugmyndir um að
Landgræðslan eigi að taka þátt í
kostnaði vegna þessara girðinga-
framkvæmda, og eru rökin þau
„Fjölskyldudagur Þórs ’90“:
Útiskeirnntiui á laugardag fyrir Þórs-
ara og aðra velunnara félagsins
íþróttafélagið Þór á Akureyri
gengst fyrir fjölskyldudegi á
íþróttasvæði sínu við Glerár-
skóla á laugardaginn kemur.
23 ára Akureyringur:
Fékk inngöngu í einn
virtasta tónlistarskóla heims
- þar sem m.a. Quince Jones
er heiðursdoktor
Jóhann Ólafur Ingvason, 23
ára Akureyringur, hefur feng-
ið inngöngu í einn þekktasta
og virtasta tónlistarskóla í
heimi, Berklee College of
Music í Boston í Bandaríkjun-
um. Jóhann heldur utan í
janúar nk. til að iæra útsetn-
ingar á tónlist og upptöku-
stjórnun í hljóðveri. Jóhann
komst inn í skólann í fyrstu til-
raun, sótti um í maí sl. og fékk
svar fyrir skömmu.
Nokkrir íslendingar hafa
stundað nám í Berklee og fjöldi
þekktra tónlistarmanna á erlend-
an mælikvarða einnig, s.s. eins og
Earnie Watts, Peter Eskin, Art
Blakey og Quince Jones. Þeir
tveir síðasttöldu eru heiðursdokt-
orar við skólann.
I samtali við blaðið sagði Jó-
hann Ólafur að það hafi komið
sér á óvart að hafa fengið inn-
göngu í skólann svona skjótt.
„Umsóknin var ítarleg og meðal
skilyrða var að hafa stundað tón-
listarnám síðustu tvö ár,“ sagði
Jóhann en hann hefur síðustu
vetur verið í djassdeild tónlistar-
skóla FÍH. Þá á Jóhann rúmlega
5 ára píanónám að baki í Tónlist-
arskólanum á Akureyri. Jóhann
var hljómborðsleikari Skriðjökla
fram til ársloka 1987. Þá fór hann
einn vetur í frönskunám til
Frakklands, en síðan hefur hann
spilað með Rokkbandinu á Ak-
ureyri.
Námið í Berklee tekur 3-4 ár
og gefur sá tími B.A. gráðu í
tónlist. Jóhann sagði að eftir
fyrstu önnina væru próf metin og
þá væri hægt að byrja á aðal-
greininni, þ.e. hjá honum útsetn-
ing og upptökustjórnun á tónlist.
„Námið sem ég ætla í er metið á
samkeppnisgrundvelli, þannig að
maður verður að standa sig til að
komast áfram,“ sagði Jóhann að
lokum. -bjb
Nýtt héraðsráð í
Skagafirði
Aðalfundur Héraðsnefndar
Skagfirðinga var haldinn þann
12. júlí sl. Kosið var í nýtt
héraðsráð og í 137 nefndir og
ráð sem heyrðu áður undir
gömlu sýslunefndina, en heyra
nú undir Héraðsnefnd. Magn-
ús Sigurjónsson er nú orðinn
framkvæmdastjóri Héraðs-
nefndar í stað Jóns Guð-
mundssonar.
Magnús hefur setið í bæjar-
stjórn Sauðárkróks síðastliðin 12
ár og héraðsráði frá stofnun þess.
Á fyrsta fundi nýkjörins héraðs-
ráðs var samþykkt að leita eftir
samingum við Magnús um að
'taka þetta starf að sér og nú eru
þeir samningar fullfrágengnir að
sögn hans sjálfs.
I Héraðsráði eru nú: Þorsteinn
Ásgrímsson oddviti Héraðs-
nefndar, Trausti Pálsson, Björn
Sigurbjörnsson, Knútur Aadne-
gaard og Stefán Logi Haraldsson.
Varaoddviti er síðan Guðmann
Tobíasson, en hann situr héraðs-
ráðsfundi sem ritari nefndarinn-
ar.
Vinna Héraðsnefndarinnar er
bundin af fjárhagsáætlun, en það
sem heyrir undir Héraðsnefndina
eru verkefni sem sýslunefnd sá
áður um. Má þar nefna sem
dæmi: framhaldsskólar í Skaga-
firði, sjúkrahúsið og safnamál.
SBG
Þessi útisamkoma hefur hlotið
nafnið „Fjölskyldudagur Þórs
’90“ og stendur frá kl. 13.00-
18.00. Dagurinn er tileinkaður
öllum börnum sem æfa hjá
félaginu og ekki síst foreldrum
þeirra og öðrum velunnurum
félagsins.
Ýmislegt verður boðið uppá til
skemmtunar en þó er hugmynd
aðstandenda skemmtunarinnar
sú að fólk komi saman og því
þarf að hafa hjólin með. Einnig
verður þrautaboðhlaup, þar sem
mamma og pabba eiga einnig að
vera þátttakendur. Þá er stefnt
að því að hafa gógartbíla til leigu
á malbikinu norðan við skólann.
Auk þess verður hægt að fara í
blak, skallablak, badminton og
margt fl. Fólk má gjarnan hal'a
það með sér sem því þykir hæfa
degi sem þessum, eins og
badmintonspaða og net, krittket-
sett, flugdisk, (frisbee-disk) o.fl.
Loks má geta þess að kl. 14.00
leika Þór og Fram í undanúrslit-
um 2. flokks í bikarkeppni KSÍ
og má búast við hörku viðureign
þar.
Á meðan skemmtunin stendur
yfir, verður á svæðinu veitinga-
sala, þar sem hægt verður að
kaupa t.d. gos, sælgæti, grillaðar
pylsur, kaffi og kökur gegn vægu
verði.
Það er von aðstandenda
skemmtunarinar að allir foreldr-
ar komi á staðinn, sjálfum sér og
börnum sínum til skemmtunar á
þessum fyrsta og vonandi ekki síð-
asta „Fjölskyldudegi Þórs“. KK
að Landgræðslan geti illa haft
afskipti og stjórn á beitinni og
landnýtingu ef hún tekur ekki
þátt í aðgerðum sem stuðla að
betri nýtingu landsins.
Dagur Jóhannesson í Haga í
Aðaldal segist hafa trú á því að í
þessar framkvæmdir verði ráðist
á næsta ári, en höfðumálið sé að
með þessu fáist betri stjórn á
göngum og smölun á fé, og
hvernig nýting lands er fram-
kvæmd en með girðingum sé
hægt að halda fénu í fyrirfram
ákveðnum hólfum.
Umrædd girðing milli Keidu-
neshrepps og Aðaldælahrepps
verður um 20 km löng en öll
norður á Tjörnes um 40 km.
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri segir að þessi girð-
ingamál hafi verið í umræðunni
síðan 1983 eða jafnvel fyrr, en
inn í þessa umræðu hafi einnig
blandast vangaveltur um riðu-
varnir, en einnig hafi Suður-Þing-
eyingar talið sig verða fyrir
ágangi sauðfjár úr norðursýsl-
unni.
Vegna aðildar Landgræðslunn-
ar að girðingamálum, segir
Sveinn að hrepparnir þurfi form-
lega að fara fram á aðild Land-
græðslunnar, en ekki séu líkur á
því að fjármagn fáist eins og fjár-
veitingum sé háttað í dag til
Landgræðslunnar. Aðild Land-
græðslunnar gæti verið í umræð-
unni fyrir árið 1991.
Landgræðsljuvélin var við land-
græðslu, bæði í suður og norður-
sýslunni frá 5. til 12. júlí sl., en
stærsta verkefnið var við Krákár-
botna.
Húsvíkingar eru byrjaðir að
girða bæjarlandið af, en viðræður
við Tjörnesinga um girðingamál
eru ekki hafnar. GG
20" sjónvarp m/fjarst. Tilboðsverð 45.000.
12" s/h ferðasjónvarp. Staðgreitt 14.030
ferðatæki. Staðgreitt 5.678
ferðatæki. Tilboðsverð 8.700*
ferðatæki. Tilboðsverð 6.990*
flö PIOIVIEER S-lll hljómflutningssamstæða. Staðgreitt 86.018
PHILIPS
TOSHIBA PHILIPS JVC
öri PIONEER SHARP MAJ=U-s:
• Allir nýjustu sumarsmellirnir
• Mikið úrval af kassettum
• Mikið úrval af geisladiskum
HLJOMDEILD
- þar sem úrvalið er
* miðað við staðgreiðslu