Dagur - 26.07.1990, Qupperneq 12
Húsavík:
Hörð aftanákeyrsla
Allhörð aftanákeyrsla varð á
Húsavík sl. þriðjudagskvöld
þegar tveir bflar skullu saman
á Garðarsbraut. Flytja varð
farþega bflanna á sjúkrahús til
skoðunar, en þeir fengu flestir
að fara heim með minniháttar
meiðsl.
Tildrög slyssins voru þau að
ökumaður annars bílsins ætlaði
að stöðva til að ræða við bílstjóra
sem kont akandi á móti, en öku-
maður sem kom á eftir var annars
hugar og skall á bílnum. Báðir
bílarnir eru töluvert skemmdir.
-bjb
Akureyri:
Kveikjari sprakk í tætlur
- „ástæða til að vara fólk við“
Kona ein á Akureyri varð fyrir
óskemmtilegri lífsreynslu fyrir
skömmu. Kveikjari sem hún
var nýbúin að festa kaup á
sprakk í tætlur nokkrum
mínútum eftir að hún kom
heim úr innkaupaferðinni.
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri á Akureyri,
sagði að um væri að ræða ódýra
gerð vindlingakveikjara, sem
stundum eru nefndir einnota,
þ.e. ekki er hægt að fylla á þá eft-
ir að gas tæmist af þeim.
Konan kom heim, tók kveikj-
Þannig leit kveikjarínn út eftir
sprenginguna.
arann upp úr tösku sinni og lagði
hann á borð. Eftir andartak
heyrðist hvellur, kveikjarinn
sprakk og logaði glatt á borðinu.
Ekki var um það að ræða að
kveikjarinn hefði hitnað vegna
sólarljóss eða af öðrum orsökum.
„Það er ástæða til að vara fólk
við, því ákaflega lítið þarf til að
óhapp geti orðið í tilviki sem
þessu. Hér er um afar eldfimt gas
að ræða og kveikjararnir greini-
lega ekki vandaðir. Ég hef aldrei
vitað um tilvik sem þetta á jörðu
niðri áður, en kveikjarar sem
þesssir hafa stundum verið bann-
aðir um borð í flugvélum,“ sagði
Tómas Búi. EHB
Sundlaugin á Grenivík verður fljútlega tekin í notkun, en dúkur var klæddur í laugina um, síðustu helgi.
Sundlaugin á Grenivík:
í notkun ínnan tíðar
Mynd: KK
Nú styttist óðum í að hin nýja
og glæsilega útisundlaug á
Grenivík verði tekin í notkun.
Dúkurinn sem laugin er klædd
með kom til Grenivíkur s.l.
fimmtudag og var lagður um
helgina. Sundlaugin er tæplega
17 m löng og 8 m á breidd og
við hana er heitur pottur.
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri Grýtubakkahrepps sagði í
samtali við Dag, að laugin yrði
tekin í notkun fljótlega en vildi
ekki nefna ákveðinn dag.
„Það hafa komið upp ýmis
vandamál í sambandi við bygg-
ingu laugarinnar og þau hefur
þurft að leysa. En hvort laugin
verður tekin í notkun fyrir eða
eftir verslunarmannahelgi er ekki
gott að segja en hún verður alla
vega komin í gagnið á þessu
sumri,“ sagði Guðný. -KK
Fiskmarkaður á Dalvík:
271,4 tonn hafa veríð seld á gólfmark
aði það sem af er þessum mánuði
Það sem af er þessum mánuði
hafa 271,4 tonn af fiski verið
seld á gólfmarkaði Fiskmiðlun-
ar Norðurlands hf. á Dalvík,
og er verðmæti þess 17,5 millj-
ónir króna. Þetta er meiri sala
en þeir bjartsýnustu þorðu að
vona þegar markaðurinn hóf
göngu sína í vor. Að undan-
förnu hefur farið fram uppboð
á hverjum virkum degi kl.
13.00.
Mjólkursamlögin á Sauðárkróki og Blönduósi:
Hefla framleiðslu á smjörva í haust
- hingað til verið framleiddur í Mjólkursamlagi KEA
Mjólkursamlögin á Sauðár-
króki og Blönduósi hafa
ákveðið að hefja framleiðslu á
smjörva á komandi haustdög-
um, en hingað til hafa samlög-
in sent rjóma til smjörvagerðar
í Mjólkursamlagi KEA á Ak-
ureyri. Síðustu misseri hafa
þessi samlög sent hvort um sig
um 150 þúsund lítra af rjóma
árlega til KEA vegna smjörv-
ans.
Snorri Evertsson, mjólkursam-
lagsstjóri á Sauðárkróki, sagði í
samtali við Dag að samlagið
þyrfti ekki mikið að bæta við sig
tækjum vegna framleiðslunnar,
en óljóst hvort smjörvanum verð-
ur pakkað á Sauðárkróki. Páll
Svavarsson, samlagsstjóri á
Blönduósi, hafði svipaða sögu að
segja og Snorri. Mjólkursamlagið
þar þarf ekki að bæta við sig
miklum tækjabúnaði vegna
smjörvans, þar sem smjörfram-
leiðsla hefur farið fram í samlag-
inu. Um pökkunina sagði Páll að
hún færi líklega fram hjá Osta-
og smjörsölunni í Reykjavík.
Pórarinn E. Sveinsson, mjólk-
ursamlagsstjóri KEA, sagði í
samtali við blaðið að það myndi
ekki skipta samlagið sjálft fjár-
hagslega miklu máli að fá ekki
rjómann frá Skagfirðingum og
Húnvetningum til smjörvagerð-
arinnar. „Hins vegar hef ég efa-
semdir um að þetta sé hagkvæmt,
en þeir kunna jafn mikið á reikni-
vélar og ég. Þetta eykur ekki
heildartekjur mjólkuriðnaðarins,
heldur vinnslukostnaðinn. Þar
með verður smjörvinn dýrari fyr-
ir neytendur," sagði Þórarinn um
fyrirhugaða smjörvaframleiðslu
mjólkursamlaganna á Sauðár-
króki og Blönduósi. -bjb
Hólmavík 100 ára:
Böm syngja í lögreglufylgd
Á morgun hefst formlega mikil
afmælishátið á Hólmavík, sem
er haldin til að minnast þess að
100 ár eru liðin frá því Hólma-
vík öðlaðist verslunarréttindi.
Hluti hátíðarhaldanna tcngjast
því, að Hólmavík og Raufar-
höfn tengjast vináttuböndum
og af því tilefni munu börn frá
þessum stöðum hittast í Yarma-
hlíð kl. 6 í dag og ferðast síðan
saman vestur til Hólmavíkur.
Dagskráin hefst á föstudag
með opinberri móttöku fyrir
Raufarhafnarbúa, opnun mynd-
listarsýningar og sameiginlegum
hreppsnefndarfundi.
Á laugardag verður ellilífeyris-
þegum færðar kökur með morg-
unkaffinu og börn munu syngja í
lögreglufylgd. Útimarkaður
verður seinni part dagsins með alls
kyns uppákomum og um kvöldið
verður grillveisla aldarinnar.
Á sunnudeginum kemur for-
seti Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir í heimsókn, flutt verður
revía sem ber heitið Hólmavík í
100 ár og afhjúpaður verður
minnisvarði um Stefán frá Hvíta-
dal. Ýmislegt fleira er að sjálf-
sögðu á dagskrá, en sjón er sögu
ríkari.
í tengslum við hátíðina er rek-
in útvarpsstöð, sem útvarpar all-
an daginn meðan á hátíðinni
stendur, en hún hóf útsendingar
sl. þriðjudag. GG
Fiskurinn hefur aðallega kom-
ið frá bátum og togurum við
Eyjafjörð og Grímsey, en einnig
austan að, og t.d. hafa trillukarl-
ar á Raufarhöfn verið iðnir við að
senda fisk, en aflanum er þá
landað á Raufarhöfn og ekið á bíl
til Dalvíkur. Einnig hefur fiskur
komið frá Vopnafirði og Bakka-
firði.
Uppistaðan, eða 85% aflans,
er þorskur, en einnig hefur kom-
ið þar til sölu ufsi, ýsa, karfi,
keila, steinbítur, hlýri, lúða, grá-
lúða og skarkoli. Meðalverð á
þorski í þessum mánuði er kr.
73,40, á ýsu 77,36, á ufsa 28,88,
karfa 16,97, steinbít 34,38 og
grálúðu 40,01.
Mest hefur salan eðlilega verið
til fiskverkenda á Dalvík og ná-
grenni, en einnig hefur Sjólastöð-
in í Hafnarfirði keypt töluvert
magn sem unnið hefur verið í
frost, og nokkurt magn hefur
einnig farið til Grenivíkur. Þrátt
fyrir aflahrotu togara á Vest-
fjarðamiðum að undanförnu
hefur vantað fisk til sölu. Stærstu
söludagarnir hafa verið mánu-
dagar, og þá einnig oft hæsta
verðið, en föstudagar lakastir,
enda þurfa fiskkaupendur þá að
láta vinna fiskinn í eftirvinnu sem
kemur niður á markaðsverðinu.
Eitthvað hafa trillur landað á
markaðinn, en árlegt veiðibann
sjávarútvegsráðuneytisins á trill-
ur undir 10 tonn að stærð stendur
frá 1. til 10. ágúst nk. svo fram-
boð á fiski verður minna sem því
nemur þann tíma. GG