Dagur - 08.09.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 8. september 1990 - DAGUR - 3
fréttir
f
Skotveiðimenn á Norðurlandi telja óvenju mikið af grágæs í ár:
Tilfinnanlegur skortur á nauðsyn-
legum upplýsingum um gæsastofninn
- segir Ævar Petersen, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun
Ævar Petersen, fuglafræðing- ingum sem Dagur hefur aflað sér
ur á Náttúrufræðistofnun, seg- telja veiðimenn á Norðurlandi að
ir að verulega skorti á upplýs- óvenju mikið sé af grágæs í ár.
ingar um hegðun gæsarinnar til
þess að segja til um ástæður
sveiflna á stofnstærð hennar.
Einu handbæru upplýsingarn-
ar um stofnstærð gæsastofnsins
séu byggðar á árlegri talningu
á Bretlandseyjum. Samkvæmt
nýjustu talningu megi ætla að
grágæsastofninn sé um 200
þúsund fuglar.
Gæsaveiðitíminn stendur nú
sem hæst og samkvæmt upplýs-
Ævar Petersen segir ekki gott að
segja um hvernig á þessu standi.
„Við höfum engar upplýsingar
um hvernig varp gæsarinnar hef-
ur gengið í ár. Hins vegar vitum
við að töluverðar sveiflur geta
verið milli ára. Það að mikið sé af
gæs í ár getur bent til þess að
varpið í ár hafi verið mjög gott.
Vandinn er sá að það skortir upp-
lýsingar um þetta og hér á landi
er enginn sem vinnur að rann-
sóknum á annars vegar nytjafugli
Læknamál á Vopnafirði:
Allt gert tU að af-
stýra ófremdarástandi
og hins vegar fugli sem rnenn
telja gera einhvern óskunda,'-
sagði Ævar.
Talning á grágæsa- og heiða-
gæsastofninum á Bretlandseyjum
gefur til kynna að hann stækki ár
frá ári og segir Ævar að gæsaveiði
hér á landi sé eins og dropi í hafið
og hafi engin áhrif til minnkunar
á stærð stofnsins. Þá bendi þessi
árlega talning til þess að heiða-
gæsastofninn sé nú orðinn tölu-
vert stærri en grágæsastofninn.
Heiðagæsin heldur sig, eins og
nafn hennar bendir til, aö mestu
upp á hálendinu en Ævar segir að
hún sé nú farin að hasla sér völl á
nokkrum stöðum á Norðurlandi.
Sem dæmi nefnir hann botn
Bárðardals, við Kráká og framar-
lega í Skagafjarðardölum.
„Við höfum meiri áhyggjur af
blesgæsinni, en það er stofn sem
virðist ekki fjölga og nú eru um
15 þúsund fuglar í honum. Ef fara
ætti út í miklar veiðar á henni
gæti sá stofn farið illa," segir
Ævar.
Ævar segir að í raun þurfi
stcfnubreytingu stjórnvalda til
þess að komið verði á nauðsyn-
legum rannsóknum á gæsinni og
öðrum nytjafuglum.
Við endurskoðun fuglafriðun-
arlaga árið 1987 voru smíðaðar
tillögur sem gerðu ráð fyrir að
Náttúrufræðistofnun íslands tæki
að sér rannsóknir á nytjafuglum.
Þessar tillögur segir Ævar að hafi
lent niður í skúffu í mcnntamála-
ráðuneytinu, sem þar til fyrr á
þessu ári hafi verið yfir Náttúru-
fræðistofnun, en síðan hafi ekk-
ert til þeirra spurst. Nú hafi
stofnunin hins vegar færst yfir til
ráðuneytis umhverfismála, sem
hugsanlega taki þessi mál upp að
nýju. óþh
Hrísey:
1~r / /XIX /
Enn oraoio í
kennarastöður
Grunnskólinn í Hrísey er,
að sögn Trausta Þorsteins-
sonar, fræðslustjóra, cina
skólastofnunin í Norður-
landskjördæmi eystra þar
sem enn vantar kennara.
Lausar eru til umsóknar
tvær til þrjár stöður við
skólann, en nýlega var ráðiö í
stöðu skólastjóra. Sá heitir
Einar Már Guðvarðarson og
kemur alla leið frá Danmörku.
Trausti segir að allt kenn-
aralið viö grunnskólann í
Hrísey hafi látið af störfum sl.
vor. Hann segir að endurnýj-
un á kennaraliði á nokkurra
ára fresti sé nánast orðin regla
í Hrisey.
Farið er að styttast í skóla-
byrjun í Hrísey og því slæmt
að ekki skuli'hafa enn verið
gengið frá ráðningu kennara.
Trausti segir að spurt hafi ver-
iö um stööurnar, en enn sem
komið er hafi lítið komið út úr
þeim fyrirspurnum. óþh
- segir heilbrigðisráðherra
„Við munum auðvitað reyna
að ráða annan Iækni að stöð-
inni á Vopnafirði. Hins vegar
er þetta Hl-stöð, þ.e. við hana
er ekki nema eitt stöðugildi,“
sagði Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra, en eins og
fram kom í blaðinu sl. fimmtu-
dag gengur mjög erfiðlega að
fá lækni til starfa á Vopnafirði
í stað Jens Magnússonar, sem
lét af störfum um síðustu mán-
aðamót.
Guðmundur sagði að allt yrði
gert til þess að afstýra því að á
Vopnafirði yrði sama ófremdar-
ástandið og á Þórshöfn, en þar
hefur læknir ekki haft fast aðset-
ur mörg undanfarin misseri.
Heilbrigðisráðherra gerir sér
góðar vonir um að nú sé í höfn
bráðabirgðalausn til áramóta
með læknisþjónustu á Þórshöfn.
Hún felst í því að heilsugæslu-
læknar á Akureyri fara austur og
skipta með sér læknisþjónustu til
áramóta.
„En því miður gerðist það á
aðalfundi Læknafélags íslands
um síðustu helgi að í ályktun
leggst félagið gegn öllum bráða-
birgðaúrlausnum og krefst þess
að heilbrigðisyfirvöld finni varan-
legar lausnir í þessum málum.
Auðvitað erum við að vinna í að
finna þær, en mér þætti það afar
ntiður og alvarlegt áfall ef svona
ályktun leiddi til þess að læknar á
Akureyri væru ekki tilbúnir til að
taka þátt í þessari bráðabirgða-
lausn á Þórshöfn," sagði Guð-
mundur Bjarnason. óþh
Heilsuleysi í ágúst?
Alls 351 sjúkdómstilfelli voru
skráö hjá Heilsugæslustööinni
á Akureyri í ágústmánuði en í
júlímánuði voru þau 289
talsins. Kvef og hálsbólga herj-
uðu meira á Akureyringa í
ágústmánuði en júlí auk heldur
sem iðrakvef og niðurgangur
var tíðari.
í júlí voru skráð 202 kvef- og
hálsbólgutilfelli, 14 tilfelli streptó-
kokka-hálsbólgu, 3 inflúensutil-
felli og 7 lungnabólgutilfelli. í
tveimur tilfellum var um kirtla-
fár að ræða, 6 reyndust með
hlaupabólu, 48 með iðrakvef og
niðutgang, 5 nteð kláðamaur og 2
tilfelli voru af öðrum lúsum.
í ágúst voru hins vegar 263
kvef- og hálsbólgutilfelli, 8
lungnabólgutilfelli og 15 tilfelli
streptókokka-hálsbólgu. Þá
reyndist í einu atviki um hlaupa-
bólu að ræða, í 60 skipti var um
að ræða niðurgang og iðrakvef og
í 4 skipt greindist kláðamaur.
JÓH
Pað er opið
Igá okkur
Vlrka daga írá M. 09.00 til 22.00.
Um helgar frá kl. 13.00 til 17.00.
Það er alltaf heitt á könnunni.
Verið velkomin eða haíið samband í
síma 27899 og við sendum þér bækling
um vetrarstarfið.
Töhníræðslan Akureyri lif.
Glerárgötu 34, IV. hæð. Síini 27899.
8
i
<
(f)
*
3
<
meirí háttar
osm-
THBOÐ
stendur til 15. sept.
á kílóastykkjum af brauðostinum góða
Verð áður:
Kr.777.90 kflóið
Tilboðsverð:
kr.661.-í>
kflóið
15% lækkun!
Q