Dagur - 08.09.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 8. september 1990
spurning vikunnar
Jóhann Einarsson:
„Nokkuö vel. Sérstaklega frí-
mínúturnar og svo íþróttirnar."
Kári Jóhannesson:
„Ég fékk ekkert sérstaklega
góðar móttökur, annars leggst
þaö vel í mig.“
Erna Gunnarsdóttir:
„Afskaplega vel aö undanskildri
kjarabaráttunni. Ég á von á
góöum vetri í skólastarfinu.“
Helgi Níelsson:
„Skólastarfið leggst mjög vel í
mig aö ööru leyti en því að ég
held að áfangakerfið drepi allan
bekkjarmóral og félagslíf verði
erfiöara."
Guðrún Harpa Örvarsdóttir:
„Vel. Þaö var tekiö vel á móti
mér."
m
Hvernig leggst
skólastarfið í þig?
Spurt í Verkmenntaskólanum á
_____fyrsta kennsludegi._
n
poppsíðan
Svipmyndir frá
Doningtonhátíðinni 1990
Þann átjánda ágúst síöastliöinn
var í tíunda sinn haldin rokkhá-
tíðin Monsters of Rock á Doning-
tonkappakstursbrautinni í Eng-
landi. Voru aö þessu sinni fimm
hljómsveitir sem komu fram en
þær eru (í réttri röð), Thunder,
Quireboys, Poison, sérstöku
gestirnir Aerosmith og aöalnúm-
erið Whitesnake. Það er óhætt
að segja aö mikil pressa hafi hvílt
á aðstandendum hátíðarinnar aö
þessu sinni því eftir atburöi þá
sem áttu sér staö á hátíðinni árið
1988 þegar tveir ungir drengir
létust vegna troönings við sviðið
á meöan Guns ’N’ Roses spil-
uöu, sem svo síðan leiddi til þess
aö ekki var hægt að halda hátíð í
fyrra, var mjög mikilvægt að vel
tækist til nú ef hátíðin ætti að
eiga frekari framtíö fyrir sér. Til
að svo mætti verða var gripið til
ýmissa aðgerða sem m.a. fólust í
Bret Michaels söngvari Poison fór
hamförum á sviðinu í Donington.
Steven Tyler og félagar hans í Aerosmith þóttu mjög góðir þrátt fyrir slæman
hljómburð.
Umsjón:
Magnús Geir
Guðmundsson
því að fjöldi seldra aðgöngumiða
var takmarkaður við töluna
72.000 (talið er að nær 100.000
hafi verið á Donington 1988) og
þá var svæðið skipulagt þannig
að forðast mátti troðning. Það fór
líka svo aö með þessum aðgerð-
um þótti hátíðin hafa heppnast
mjög vel og til engra óhappa kom
sem alvarleg gætu talist. Þá lék
veðrið við hátíðargesti sem ekki
hefur verið alltof algeng stað-
reynd hvað Doningtonhátíðina
snertir, því oftar en ekki hefur
rignt. Það sem skipti þó höfuð-
máli var að sveitirnar sem fram
komu þóttu að þessu sinni vera
hver annarri betri, en eins og
jafnan áður á Donington var
hljómburðurinn ærið misjafn hjá
öllum nema aðalnúmerinu,
Whitesnake, en þar var hann
áberandi bestur.
David Coverdale og Steve Vai á
fullu á Donington.
Hítt og þetta
Judas Priest
Það fór eins og flestir höfðu spáð
að, breska þungarokkssveitin
Judas Priest og útgáfufyrirtæki
hennar CBS voru sýknuð af
ákæru um að eiga sök á sjálfs-
morðum tveggja unglingspilta
áriö 1985. Eins og Poppsíðan
greindi rækilega frá fyrir skömmu
var ákæran byggð á því að rétt
áður en piltarnir frömdu verknað-
inn höfðu þeir verið að hlusta á
plötu Judas Priest Stained Class
og var því haldið fram að á henni
væru duld skilaboð um hvatningu
til sjálfsmorðs sem skýrt kæmu
fram með því að spila plötuna
afturábak og hefðu þeir verið
undir áhrifum frá þessum skila-
boðum. En niðurstaða dómstóls-
ins í Reno, Nevada, þar sem
málssóknin fór fram varð sem
sagt sú að hljómsveit og útgáfu-
fyrirtæki voru að fullu sýknuð.
UB40 í vondum málum
Reggi/popphljómsveitin ágæta
UB40 slapp sannarlega með
skrekkinn nú nýiega í heimsókn
sinni til Seychelleseyja. Þannig
var að fimm af meðlimum hennar
urðu uppvísir að því að hafa í
fórum sínum kannabisefni og var
þeim umsvifalaust stungið í
steininn. Þar þurftu þeir þó ekki
að dúsa nema eina nótt og var
fallið frá ákæru á hendur þeim
UB40 ekki barnanna bestir.
þar sem yfirvöld vildu ekki vera
þekkt fyrir að handtaka fræga
gesti þegar þeir loksins láta sjá
sig, en UB40 mun vera langfræg-
asta hljómsveitin sem þangað
hefur komið. Hefði ákæra verið
lögð fram hefðu meðlimirnirfimm
átt á hættu allt að fimm ára fang-
elsisvist því viðurlög á Seychell-
eseyjum varðandi eiturlyf munu
vera ein þau ströngustu í heimin-
um.
Electronic
Hljómsveitin Electronic vakti
mikla athygli undir lok síðasta
árs með laginu Betting away with
it en það lag var með þeim vin-
sælli á þeim tíma. Það sem vakti
þó athygli á henni í fyrstunni var
að hún var saman sett af þeim
Johnny Marr fyrrum gítarleikara
The Smiths og Barney Summer úr
New Order Eftir útkomu Getting
away hefur hins vegar lítið boriö á
sveitinni þar til nú nýlega að hún
kom fram í fyrsta skipti á sviði
sem upphitunarhljómsveit fyrir
Depeche Mode í Los Angeles. Þá
mun vinnu við gerð fyrstu plötu
Electronic vera að mestu lokið og
er áætlað að platan komi út nú
seint í haust eða snemma næsta
vetrar.