Dagur


Dagur - 08.09.1990, Qupperneq 4

Dagur - 08.09.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 8. september 1990 Ve traru n dirb úningu r plantna Nú fer brátt að líða að því að vetur konungur fari að heimsækja okkur með tilheyrandi látum og snjókomu. Þó þarf ekki að vera að snjórinn sé á næsta leiti því ef miða á við reynslu síðustu tveggja ára þá er ekki von á honum fyrr en um áramót og þá í miklu magni. Gífurlegur þungi er í snjónum venjulega og ekki síst ef hann blotnar. Þá er hætta á að viðkvæmar plöntur gefí sig og brotni niður. Klipping trjáa fyrir veturinn Pegar lauffellandi tré eru búin að fella laufið að haustinu er ráðlegt að fara út í garð og skoða hvort ekki megi fækka þeim greinum sem neðstar eru eða þeim grein- um sem orðið hafa fyrir hnjaski. Þetta hjálpar trénu mikið því að greinum sem eru neðarlega á því (undir snjólínu) hættir til að rifna af í snjónum. Pað sem gerist er það þegar vetur er umhleypinga- samur og skiptist á frost og þíða, þá sígur snjórinn saman og grein- arnar sem voru á kafi í snjó fara með og rifna af trénu. Af þessu getur orðið hinn mesti skaði. Pegar um lauffellandi tré er að ræða er best að klippa neðstu greinarnar af svo að þær rifni ekki af. Ef um er að ræða t.d. Alaskaösp sem orðin er ca. 5-6 metrar á hæð má hiklaust klippa af allar greinar upp í 1-1,5 metra hæð. Klipping á limgerði fyrir veturinn Rétt klipping á limgerði er mikið atriði upp á veturinn að gera. Með réttri klippingu er hægt að minnka snjóþungann. Limgerðið skal aldrei klippa í „kassaform“ því að limgerði sem þannig er klippt safnar í sig meiri snjó held- ur en limgerði sem er klippt þannig að það er breiðast neðst Umsjón: Baldur Gunnlaugsson, skrúðg.yrkjufr. og grennist eftir því sem ofar dregur (sjá mynd). Af hverju þarf skýlingu? Sígræn tré eru miklu viðkvæmari en lauffellandi tré og getur verið bráðnauðsynlegt að þeim sé skýlt. Sérstaklega eftir að þau hafa verið gróðursett eða flutt. í vorfrostum er mest hætta á að sígrænu trén skemmist eða hrein- leg drepist og til þess að hætta sé á ferðum þurfa að vera vissar aðstæður. A vorin þegar sólin er að byrja að skína og hita út frá sér, getur svo farið að trén láti blekkja sig og „fari af stað“. Það er enn frost í jörðu og tréð á enga möguleika á að ná vatni úr jarð- veginum, tréð vinnur ekki vatns- laust og því fer að bera á sviðnum nálum af þessum sökum. Hvers konar skýlingar þarf að gera? Yfirleitt þarf ekkert að skýla lauftrjám yfir veturinn nema jí)ar sem mjög mikill snjór er. Par get- ur verið gott að binda neðstu „Indíánatjaldið“ er góð lausn á skýlingarvandamálinu. Auðvelt og gott. Styrkir til háskólanáms í Mexíkó Mexíkönsk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa íslendingum til háskólanáms í Mexfkó á háskólaárinu 1990-91. Styrkir þessir eru ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna að loknu háskólaprófi. Styrkfjárhæðin nemur 315 bandaríkjadölum á mánuði. Umsækjendur þurfa að hafa góða kunnáttu í spænsku og vera yngri en 35 ára. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 30. september nk., og fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 5. september 1990. greinarnar upp svo snjorinn brjóti þær ekki. Sígrænu trjánum þarf að þjóna svolítið meira. Með lítil sígræn tré er best að búa til „indíánatjald“ úr þremur spýt- um og vefja svo strigalengjum utan um en það verður að vera allst staðar bil á milli strigans því það má aldrei loka plöntuna inni. Þá getur hlýnað inni og plantan farið af stað fyrir allar aldir. Með stærri plönturnar gildir nánast sama aðferð við skýlingu en „indíánatjaldið“ verður auðvitað bara stærra. Með tímanum má svo fara að hætta að byggja utan um trén því þau fara að ráða við þetta sjálf. Á myndinni eru tvær klippingaraðferðir. Sú sem er til hægri er röng (Kassa- klipping). Myndin sýnir hvernig má stífa tré upp. Taka af því neðstu greinarnar. Utan um limgerði þarf oft að byggja vegna þess að þau skemmast af snjóþunga. Sérstak- lega er þetta áberandi við húshorn því að þar geta myndast hvirfil- vindar. Mörg dæmi eru um það að limgerðið vaxi lítið sem ekkert við svoleiðis aðstæður. Pað vex kannski yfir sumarið en ársvöxt- urinn fer alltaf fyrir lítið næsta vetur, þ.e. hann kelur og drepst. Eina ráðið við þessu er að vetrar- skýla limgerðinu þó það geti orð- ið svolítil vinna. Það er ekki gam- an að hafa limgerðið í garðinum alltaf mishátt. Skýlingar fyrir rósir og sumar fjölærar plöntur geta verið nauð- synlegar. Besta efnið til svo- leiðis skýlinga eru trjágreinar og laufblöð. Laufið má raka til í garðinum að hausti og trjágreinar má sjálfsagt fá einhvers staðar hjá garðeiganda sem er að snyrta trén sín. Skýlingin er gerð þannig að laufið er sett að plöntunni og trjágreinarnar settar ofaná og festar niður með tréhælum og böndum eða með grjóti. Þessi skýling gefur góðan árangur og er einföld. Uppbindingar Lauftré þurfa miklu frekar upp- bindingar eða einhverjar stoðir heldur en skýli. Þá eru negldir niður tréhælar sitt hvorum meg- ín við tréð og það bundiö fast með gúmmíslöngu (sem klippt hefur verið niður í lengjur). Þetta þarf að gera ef trénu hefur verið plantað fyrir stuttu síðan. -plöntukynning- Dreyrakvistur Dreyrakvistur, Spiraea densi- flora er lágvaxinn en þéttur kvistur, ættaður frá N-Ameríku. Hann hefur dökkbrúnar greinar og blöð lík og á Birkikvisti. Blómskipanin er hvelfdir skúfar og blómin eru rósrauð og mjög falleg. Hann blómgast í júlí eða ágúst. Hann getur skotið rótum í kringum sig og dreift úr sér, og er því auðvelt að fjölga honum. Hann hefur þrifist mjög vel hér á Akureyri og þó sérstaklega þar sem hann fær gott skjól og næga sól. Dreyrakvistur er einn sá allra fallegasti kvistur sem til er þrátt fyrir smæð sína. Hann er nýlega farinn í ræktun hérlendis. Dreyrakvistur: „Er einn allra falleg- asti kvistur sem til er.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.