Dagur - 08.09.1990, Side 17
Laugardagur 8. september 1990 - DAGUR - 17
efst í hugo
Niðurlæging norð-
lenskrar knattspyrnu
Akureyrsk knattspyrna varö fyrir veru-
legu áfalli á dögunum þegar Þórsarar
féllu í 2. deild meö ósigri gegn Skaga-
mönnum á Akureyrarvelli. Meö þessum
ósigri uröu ákveðin tímamót hjá Þórsur-
um, um tíma virtust þeir á góöri leið meö
aö festa sig í sessi sem rótgróið 1. deild-
arlið en sú ímynd hefur hruniö til grunna
í sumar.
Það eru erfiðir tímar framundan hjá
félaginu og morgunljóst aö þaö fer ekki
fyrirhafnarlaust aftur upp úr 2. deild.
Slagurinn þar er gffurlega harður og
deildin hefur styrkst mjög á síöustu
árum. Bestu liðin gefa 1. deildarfélögun-
um lítiö eftir, það sýnir frábær frammi-
staða FH-inga í fyrrasumar, en þá voru
þeir hársbreidd frá Islandsmeistaratitlin-
um, gott gengi Stjörnunnar, sem siglir nú
lygnan sjó um miðja 1. deildina, svo ekki
sé minnst á Vestmanneyingana eitil-
hörðu sem eiga ágæta möguleika á titl-
inum í ár. 2. deildarlið Breiðabliks sló
Þór út í 1. umferð Mjólkurbikarsins í
sumar og svona mætti lengi telja. í 2.
deild er ekkert gefið eftir og lið Þórs, sem
verður að öllum líkindum skipað ungum
leikmönnum að meirihluta, gengur þar
ekki að vísum sigri.
KA-menn hafa heldur ekki átt gott
tímabil. Þeir byrjuðu á því að tapa fjórum
fyrstu leikjum sínum og hafa æ síðan
verið í einu af neðstu sætunum. Liðið er
enn ekki laust við falldrauginn og falli
það í 2. deild er niðurlæging akureyrskra
liða alger. KA-mönnum nægir að öllum
líkindum eitt stig úr þeim tveimur leikjum
sem eftir eru og það þurfa þeir helst að
fá í viðureign sinni við Þórsara sem fram
fer á Akureyrarvelli í dag. Með sigri eru
þeir öruggir en liðið hefur eins og kunn-
ugt er aldrei sigraði Þór í 1. deild.
En þar með er raunasögu norðlenskra
knattspyrnuliða ekki lokið. Norðlending-
ar eiga þrjú lið í 2. deild sem öll hafa ver-
ið í neðri hlutanum í sumar og þegar
þetta er skrifað bendir flest til þess að
KS og Leiftur falli niður. í 3. deild hafa
Einherji og TBA verið á botninum í allt
sumar og eru nú bæði fallin. Verra gæti
það varla verið. Glætan í myrkrinu er
frábær frammistaða Magna frá Grenivík
sem vann glæsilegan sigur í 4. deild.
Liðið er það eina á landinu sem ekki hef-
ur tapað leik á íslandsmótinu í sumar og
er ástæða til að óska leikmönnum þess
og þjálfaratil hamingju með árangurinn.
Því miður er ástæða til að hafa
áhyggjur af framtíð norðlenskrar knatt-
spyrnu. Versnandi gengi liðanna þarf
ekki að koma á óvart því aðstöðumunur
milli þeirra og liða á suðvesturhorninu er
orðinn mikill. Akureyringar og Eyfirðing-
ar hafa látið sig dreyma um gervigrasvöll
og það mál má hreinlega ekki dragast
meira á langinn. Nú er tími dagdrauma
liðinn og mál til komið að láta verkin tala.
Hér með er skorað á þá sem völdin hafa
að leggja sitt af mörkum til að draumur-
inn um gervigrasvöll verði að veruleika.
Aðeins þannig verður hægt að lyfta
knattspyrnunni hér á þann stall sem hún
á skilinn. Jón Haukur Brynjólfsson
vísnaþáttur
Húnvetningurinn Ingvar
Pálsson gekk inn í verslunina
J.M.J. á Akureyri. Þóttist illa
settur og fór með þessar vís-
ur:
Jakkalaus og bráðum ber,
bölva út í húmið.
Niðurbrotinn alveg er
eins og hjónarúmið.
Bráðum eru fötin frá
finnst mér lítið gaman
að verða nú að vappa á
vestinu einu saman.
Pá koma vorvísur eftir Rós-
berg G. Snædal:
Klýnar vangur, grund og gil,
grænir anga hagar.
Okkur fangið fullt af yl
færa langir dagar.
Allt er vafið vori og sól,
víðigrónar brekkur,
lágur bær á litlum hól,
lækjargil og stekkur.
Næstu vísu mun Rósberg
hafa kastað fram á efri árum:
Einn ég hími auðnulaus,
engin skíma um veginn.
Ekkert ríma, en hengi haus
háttatíma feginn.
Júlíus Jónsson á Mosfelli í
Svínadal kvað næstu vísu:
Andleg tök um aldahaf
eiga vök í straumum.
Fagrar stökur fæðast af
frjálsum vökudraumum.
Séra Guðmundur Torfason
kvað eitt sinn er honum var
sögð gestkoma:
Von er ekki verri gesta,
veit ég það og skil.
Satan hefur sent þann versta
sem hann átti til.
Næsta vísa er öllu hlýlegri.
Hana kvað Markús Jónsson á
Borgareyrum:
Láttu æskuylinn þinn
öðrum hlýju veita,
jafnan bræðir jökulinn
júnísólin heita.
Pá koma vísur eftir Daníel
Kristinsson.
Sléttubönd:
Hlýnar tíðin sumarsól
sendir blíðu jörðu.
Dvínar kvíðinn blómaból
bægist stríði hörðu.
Þrautalækning:
Pegar iða andans frýs
eða kliðar tregi
löngum bið ég ljóðadís
leita að friðarvegi.
Sléttubönd:
Sléttur særinn grundin grær
geislinn skæri Ijómar.
Léttur blærinn hlýi hlær
harpan kæra ómar.
Við sjónvarpið:
Numið hef ég nýjan sið
nóg er lífsins gaman.
Sit ég nú við sjónvarpið
sofandi í framan.
í Davíðsborg:
Dylst nú ei í Davíðs borg
dýrðleg leiðarstjarna.
Fundinn er og fer um torg
frelsari Víkurbarna.
Fólkið kyrjar lofsöngslag
lifir uppi í skýjum.
Nú er von einn dýrðardag
á Davíðssálmum nýjum.
Næstu vísurnar tvær eru
heimagerðar.
Fyrr og nú:
Ýms við söknum æsku frá.
Annað fæst í staðinn,
það við sjáum eftir á.
Oftast bætist skaðinn.
Ég var bóndi, muldi mó
maður taps og happa.
Orðinn skáld, en aðeins þó
innan gæsalappa.
Næstu vísur heyrði ég ungur.
Líklega eru báðar ortar út af
þróunarkenningu Darwins.
Höfundana man ég ekki, en
gaman væri að vita þá.
Pér finnst það vera grátlegt,
góði vin
ef gömlu trúnni um Edenslíf
við töpum
og heims sú speki að manna
kristið kyn
sé komið út af loðnum,
heimskum öpum.
Illt er að kanna eðlisrætur.
Allt er nagað vanans tönnum.
Pó er víst að fjórir fætur
færu betur sumum mönnum.
Rímur þóttu góð skemmtun
fyrr á árum. Þessi er úr
Orvaroddsrímu:
Langt er síðan lék ég hér
laus við allan dofa.
Fúnir undir fótum mér
frændur og vinir sofa.
ir
Kennsla á hljómborð
og rafmagnsorgel
Byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið.
Innritun í síma 24769 eftir kl. 18.00.
Orgelskóli Gígju.
Flugskóli Akureyrar
ráðgerir að halda boklegt einkaflug-
mannsnámskeið um miðjan september
ef næg þátttaka fæst.
Þeir sem áhuga hafa á náminu geta aflað sér upp-
lýsinga í síma 22000 (Flugskóli Ak.), hjá Ragnari
Olafssyni í síma 27458 eða Frímanni Svavarssyni í
síma 22705.
Flugskóli Akureyrar
sími 27900 eða (22000).
Frá Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar
Umsóknir um félags-
legar eignaríbúðir
Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar auglýsir eftir
umsóknum í félagslegar eignaríbúðir (áður verka-
mannabústaðir).
Athygli umsækjenda er vakin á því að umsóknar-
frestur verður opinn allan ársins hring. Umsóknir eru
gildar þar til húsnæðisnefnd hefur svarað umsækj-
endum skriflega. Þeir umsækjendur sem óska eftir
að koma áfram til greina við úthlutun verða að leggja
inn umsókn að nýju.
Réttur til að kaupa félagslega eignaríbúð er bundinn við þá
sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a. Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru formi.
b. Hafa haft meðaltekjur síðustu þrjú árin 1987, 1988 og 1989
áður en úthlutun fer fram eigi hærri fjárhæð en 1.181.975 kr.
fyrir einstakling og 107.683 kr. fyrir hvert barn innan 16 ára.
Viðmiðunartekjur hjóna eru 25% hærri en hjá einstaklingum
eða 1.477.679 kr. Tekjumörk þessi eru ákvörðuð af hús-
næðismálastjórn í upphafi hvers árs.
c. Greiöslugeta umsækjenda er metin hjá húsnæðisnefnd
sveitarfélags og við úthlutun er við það miðað að viðkomandi
fái ekki dýrari íbúð en greiðslumat segir til um.
d. Eiga lögheimili á Akureyri þegar úthlutun fer fram.
Heimilt er að víkja frá ákvæði a-liðar þegar um er að ræða
umsækjendur sem búa við ófullnægjandi húsnæðisaðstæður.
Ennfremur er heimilt að vikja frá a- og b-liðum þegar umsækjend-
ur hafa orðið fyrir meiri háttar röskun á högum og hafa vegna frá-
falls maka eða af öðrum ástæðum lækkað svo í tekjum að þeir
geta ekki haldið íbúðum sínum. Umsóknum um lán samkvæmt
þessari málsgrein skal fylgja umsögn félagsmálaráðs í hverju
sveitarfélagi eða viðkomandi sveitarstjórn.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upp-
lýsingar fást á skrifstofunni, Skipagötu
12, 3. hæð, sími 25392.
Opnunartími skrifstofunnar er mánudaga til
föstudaga frá kl. 13.00 til 15.30.