Dagur


Dagur - 13.09.1990, Qupperneq 1

Dagur - 13.09.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, fímmtudagur 13. september 1990 Margir vilja krækja í knörr: Ingólfur Vestmann með hæsta tilboðið í Hafþór - Dögun hf. í þriðja sæti Ingólfur Vestmann Ingólfsson í Hafnarfírði er með hæsta til- boðið í Hafþór, skip Hafrann- sóknastofnunar. Ljósavík hf., útgerð Gissurar ÁR í Þorláks- höfn er með annað hæsta tll- boðið og Dögun hf. á Sauðár- króki kemur í þriðja sæti. Ingólfur Vestmann býður 240 milljónir í Hafþór, þar af 80 milljónir króna í útborgun. Ljósavík hf. býður 233 milljónir, 40 milljónir í útborgun, Dögun hf. 212 milljónir, 48 milljónir í útborgun, Eldey hf. á Suðurnesj- um 205 milljónir, 15 milljónir í útborgun, Ingimundur hf. og Gjögur hf. 200 milljónir, 50 millj- ónir í útborgun, Togaraútgerð ísafjarðar hf. 200 milljónir, 50 milljónir í útborgun, Fiskiðju- samlag Húsavíkur hf. o.fl. 200 milljónir, 40 milljónir í útborgun, Særún hf. á Blönduósi 196 millj- ónir, 60 milljónir í útborgun, Samherji hf. og Söltunarfélag Dalvíkur 180 milljónir, 60 millj- ónir í útborgun, Sjólastöðin hf. 131 milljón, 131 milljón í útborg- un og Nidana hf. USD 500, útborgun USD 500. Samkvæmt orðum sjávarút- vegsráðherra verður hæsta til- boði í skipið, tilboði Ingólfs Vestmanns, tekið að því gefnu að hann geti lagt fram fullnægjandi tryggingar fyrir útborgun og eftir- stöðvum. Gylfi Gautur Pétursson í sjáv- arútvegsráðuneytinu segir að samkvæmt útreikningum ráðu- neytisins sé tilboð Ingólfs að raunvirði metið á um 200 milljón- ir króna og tilboð Ljósavíkur hf. sé metið þremur milljónum lægra. Hann segir að ráðuneytið meti tilboð Eldeyjar í sjötta sæti vegna þess hve hún bjóði lága útborgun. Gylfi segir að við- skiptaleg sjónarmið ráði um sölu skipsins, en hins vegar verði ekki hæsta tilboðsgjafa selt skipið án góðra trygginga fyrir kaupum á því. óþh Smáhveli hafa skemmt sér konunglega á Pollinum undanfarnar vikur og hafa Akureyringar verið iðnir við að til- kynna okkur þessi tíðindi. Golli fór á stúfana í gær og tók þessar myndir. u Ný færavinda frá DNG í desember: „iirangur langrar þróimarvinnu starfsmanna - notkunarmöguleikar aukast til muna, segir Kristján E. Jóhannesson, framkvæmdastjóri DNG Fyrirtækið DNG mun setja nýja færavindu á markaðinn í desember n.k., en hún er árangur langrar þróunarvinnu starfsmanna fyrirtækisins. Að sögn Kristjáns E. Jóhann- essonar, framkvæmdastjóra DNG á Akureyri, mun ný færa- vinda koma á markaðinn í des- ember, en þessa færavindu ætlar DNG að sýna á sjávarútvegssýn- ingunni í Laugardalshöll, sem hefst 19. september n.k. „Pessi nýja vinda er árangur langrar þróunarvinnu og hún hefur tekið nokkrum útlitsbreyt- ingum sem við teljum til mikilla bóta. Aðalbreytingarnar eru þó á innviðum vindunnar, en með tilkomu stærri og betri örtölvu hafa notkunarmöguleikar aukist Útgerðarfélag Akureyringa: Hagnaður ársins áætlaður um 128 milljónir - ný hlutabréf á almennan markað í dag I dag verður hafin sala á nýjum hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. Að þessu sinni verða boðin út hlutabréf að nafnverði um 24 milljónir króna sem seld verða á geng- inu 3,0. Útgerðarfélagið skil- aði 113 milljóna króna hagnaði á fyrri hluta ársins og reiknað er með að heildarhagnaður ársins 1990, þ.e. fyrir skatt, verði 128 milljónir króna. Stjórn Utgerðarfélagins ráð- gerir að nota nýtt hlutafé til endurnýjunar á framleiðslutækj- um, til að auka aflaheimildir og til að auka veltufjárhlutfall. Félagið fjárfestir mikið á þessu ári og er þar skemmst að minnast nýlegra kaupa á frystitogaranum Aðalvík og öllum hlutabréfum í Hraðfrystihúsi Keflavíkur hf. Útgerðarfélag Akureyringa hefur skilað hagnaði af rekstri síðastliðin sjö ár og er talið eitt af sterkustu fyrirtækjum í sjávarút- vegi á landinu. Fyrri hluta þessa árs nam hagnaður fyrir skatt 113 milljónum króna en að afstöðn- um fyrrgreindum fjárfestingum áætlar ÚA að hagnáðurinn nemi 15 milljónum á síðari hluta ársins. Sjá umfjöllun um stöðu og horfur í rekstri Útgerðarfélags Akureyringa á bls. 6-7. JÓH til muna. í tilefni sjávarútvegssýningar- innar hefur verið ákveðið að veita 10 þúsund króna afslátt af vindunni meðan á sýningunni stendur. Afsláttur þessi gildir aðeins ef gengið er frá kaupum á sýningunni og vindurnar teknar fyrir áramót. í ársbyrjun 1987 kostaði vind- an 130 þúsund krónur, en í lok júlí kostaði hún 158 þúsund krónur staðgreitt. Þessi hækkun nemur 21,5% en á sama tíma hefur lánskjaravísitala hækkað um 87%. Vindan ætti því að kosta 243.490,- kr. ef hún hefði hækkað samkvæmt lánskjaravísi- tölu. Af þessu má sjá að vindan hefur í raun lækkað um sem svar- ar 35% eða 85.490,- kr. Þetta sýnir að DNG hefur lagt sitt af mörkum að gera veiðar smábáta sem arðvænlegastar," sagði Kristján E. Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri. Viking brugg í kröggum vegna skuldsetningar? „Fyrirtækið tók við þeim skuldum sem það gat axlað“ - segir Magnús Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Sanitas hf. Magnús Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Viking brugg (Sana) á Akureyri, hefur tek- ið við starfi frantkvæmda- stjóra Sanitas hf. í Rcykjavík. Hann mun eftir sem áður hafa yfirumsjón nieö rekstri bjórverksmiðjunnar á Akur- eyri. Samkvæmt heimildum Dags hefur Viking brugg átt í erfiðleikum vegna skuldsetn- ingar og hafa aðilar á Akur- eyri og Vífilfell sýnt áhuga á að kaupa verksmiðjuna, en Magnús segir að reksturinn gangi nú vel og verksmiðjan sé ekki til sölu. Pegar Sanitas var skipt upp í framleiðslueiningar og verk- smiðjan Viking brugg varð sjálfstæð komu erfiðleikar frani í dagsljósið, að sögn heimilda- manns blaðsins. Bjórverksmiðj- an var arðbært fyrirtæki en fjár- magnið hafði að stærstum liluta farið suður til Sanitas. Mikil lán höfðu verið tekin út á eignir vcrksmiðjunnar en lítið rekstr- arfé skilið eftir og í raun ætti Viking brugg ekki að geta risið undir skuldsetningunni. „Pað er ekki orðum eyðandi á þetta,“ sagði Magnús Por- steinsson um þennan orðróm. „Menn hljóta að sjá hve það væri vitlaust að stofna nýtt fyrir- tæki sem væri svo skuldsett að það gæti ekki starfað. Það væri eins og að rníga í skóinn sinn og við gerum það ekki. Nýja fyrir- tækið tók bara við þeim skuld- um sent það gat axlað,“ sagði Magnús. Hann sagði að vissulega hefði uppbygging bjórverksmiðjunn- ar verið dýr, en Sanitas hefði ákveðið að byggja hana upp í tcngslum við starfandi verk- srniðju á Akureyri í stað þess að reisa nýja í Reykjavík. Tilkoma Viking brugg hefði því jákvæð áhrif á atvinnulífið á Akureyri, framleiðslan hefði líkað vel og þótt uppbyggingin hefði haft erfiðleika í för með sér þá væru þeir ekki óyfirstíganlegir. Hann sagði að tíminn ynni með fyrir- tækinu og skuldirnar nudduðust af. „Við erum vel settir markaðs- lega. Samkeppnin í bjórnum hefur aukist feykilega eins og sjá má á því að fyrir rúmu ári voru til 5 tegundir hjá ÁTVR en nú eru þær 23. Santt sem áður erum við með 40-50% hlutdeild á markaðinum og það getur ekki talist slæmur árang- ur. Við erum að keppa við þekkt erlend vörumerki og aldalanga brugghefð þannig að við erum ánægðir með árangur- inn,“ sagði Magnús. Hann sagði það af og frá að Viking brugg væri til sölu en sagðist jafnframt skilja mjög vel að menn hefðu áhuga á að kaupa verksmiðjuna. „Pað er engin uppgjöf hjá okkur. Við munum halda áfram að vera í fararbroddi í vöru- þróun að það er ýmislegt í far- vatninu hjá okkur núna,“ sagði Magnús. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.