Dagur - 13.09.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 13.09.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 13. september 1990 - DAGUR - 11 hér & þar i Papúa Nýja-Gínea: 700 mál eða máUýskur eru talaðar í landinu Papúa Nýja-Gínea er sjálfstætt ríki norður af Ástralíu, og er hluti af fjölda eyja, en sú stærsta er í laginu eins og dreki. Þessi ,.drekaeyja“ er jafnframt næst stærsta eyja heims, en norður- hluti hennar tilheyrir Indónesíu. Nýja-Gínea hlaut sjálfstæði 16. september 1975, en er í breska heimsveldinu. Landið er um 463 þúsund ferkílómetrar að stærð og íbúar um 3 milljónir og búa flestir í höfuðborginni, Port Moresby. íbúarnir tala ensku, pidgin og hiri motu auk 700 annarra mál- lýskna en flestir tala pidgin sem er hið opinbera mál en um 20% íbúanna talar ensku. Prátt fyrir þennan sæg af mállýskum gengur íbúunum allvel að skilja hver annan. Fyrir um 450 árum „fundu" Evrópumenn eyjuna og nefndu Nýju-Gíneu. Árið 1975 hlaut austurhluti eyjunnar sjálfstæði cftir að hafa verið stjórnað af Þjóðverjum, Bretum og Áströl- um gegnum aldirnar. íbúarnir eru mjög stoltir af landi sínu, og Á þessu skiiti við einn af þjóðvegum landsins stcndur: „Vegavinna, og allir bílar verða að stoppa þegar þeir sjá rauða merkið.“ Og fyrir þá sem velta fyrir sér málinu þá er þetta pidgin. Hauskúpur og leggir af fórnarlömbum Obotes í löngum röðum, enda af nógu að taka. 800 þúsund mairns hafa týnt Iffi í borgara- styijöldinm í „Perlu AMku“ I Afríku hefur Uganda hingað til verið kallað „Perla Afríku", cn hætt er við því að sú ímynd hafi breyst á undanförnum árum, því segja má að þar hafi geisað borg- arastyrjöld með litlum hléum síð- an árið 1971, er Idi Amin hrifsaði til sín völdin í byltingu gegn Milt- on Obote. Á valdatíma Amins voru um 300 þúsund Ugandabúar Teikning eins fórnardýrsins sem sýnir hermann misþyrma fanga. drepin og/eða pyntuð, og þegar Obote náði aftur völdum 1979 (að sjálfsögðu með byltingu) með aðstoð Tansaníuhers, var talið að alda ofbeldis og hryðjuverka mundi a.m.k. hægja á sér, en því fór fjarri, því að í dag er talið að fjöldi látinna, týndra og limlestra sé kominn yfir 800 þúsund og ekki sér fyrir endann á því. Auk þess hafa um 450 þúsund manns flúið til nágrannaríkjanna, aðal- lega Súdan. Valdatíma Obotes lauk í júlí- mánuði 1985, og sex mánuðum seinna var Yoweri Museveni, fyrrum skæruliðaforingi, valinn forseti. Heldur virðist hafa dreg- ið úr blóðsúthellingum, en herir Musevenis berjast þó við upp- reisnarmenn í norðurhéruðum landsins. íbúatala Uganda er um 15,5 milljónir manna. í Luwerohéraði býr Baganda þjóðflokkurinn sem leynt og ljóst var í andstöðu við Milton Obote meðan hann var við völd. Her- menn hans myrtu, misþyrmdu og nauðguðu allt að 500 þúsund manns í héraðinu á árunum 1980 til 1985. Luwero er gjöfult land- búnaðarhérað og aðeins um 30 mínútna akstur frá útjaðri höfuð- borgarinnar Kampala til héraðs- ins. segja oft ferðamönnum að þeir séu staddir í nafla alheimsins. í ljósi sögunnar má það til sanns vegar færa, því eyjurnar voru stökkpallur milli Asíu og Ástral- íu í þjóðflutningunum miklu sem áttu sér stað fyrir meira en 30 þúsund árum. En hvað hefur þetta sjálfstæði fært íbúunum? Peter Tasin er stúdent frá Tækniháskólanum í Lae og hann segir að sjálfstæðið hafi fært þeim sanninn um að aðrar þjóðir, jafn- vel nágrannaþjóðir, viti sáralítið um Papúa Nýju-Gíneu, og marg- ir Ástralar og Asíubúar höfðu enga hugmynd um stjórnarfar, efnahagsástand eða þær pólitísku breytingar sem hafa átt sér stað. Margir haldi að íbúarnir búi enn við frumstæða hausaveiðara- menningu, og vissulega hafa þessar þjóðfélagsbreytingar ekki komið eins við þá íbúa sem búa djúpt í frumskógunum, því þeir stunda enn veiðar, yrkja jörðina og berjast við nágrannaþjóð- flokkinn. Þeir hafa ekki hug- mynd um hvað sjálfstæði þýðir, enda er menning jjeirra svipuð og hún var fyrir hundrað árum. Allauðugar kopar- og gullnám- ur eru nýttar í landinu, en auk |þess er ræktað og flutt út verulegt magn af kaffi og pálmaolíu. Léttisfélagar! f LETTIH x Almennur félagsfundur verður í Skeifunni, fimmtu- daginn 20. september kl. 20.30. Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Lýst eftir tillögum til þings L.H. Félagshesthús og unglingastarf. Önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Gæsaveiðimenn - HAGLASKOT í ÚRVMJ Wincester + Federal ★ Tunet * Oan-Arms * Hlað + Mirage * Eley ikr SeHier & Bellot. ★ yr ik- Gervigæsir * Gæsaflautur + Andaflautur + Hreinsisett ★ Feluhettur ★ Byssulásar * Gerviskot * Ólafestingar + Byssuólar + Byssupokar + Leirdúfur og ótal margt fleira. EYFJORÐ = Hjalteyrargötu 4 • Sími 25222 EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skll tímanlega! RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.