Dagur - 13.09.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 13.09.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 13. september 1990 Akureyri: Nýtt og fullkomið kjöt- borð í KEA Hrísalundi Nýlega var lokið við uppsetn- ingu á nýju og fullkomnu kjöt- borði í Kjörmarkaði KEA Hrísalundi 5. Kæling matvæla í nýja borðinu er afar fullkomin og öll vörumeðferð verður enn betri en áður. Borðið er stíl- hreint og mun án efa vekja ánægju meðal viðskiptavina verslunarinnar. Þess má geta að í Hrísalundi starfa tveir matreiðslumenn sem munu hafa yfirumsjón með þeim vör- um sem settar verða í borðið. Það var Vélsmiðjan Oddi hf. sem seldi og setti borðið upp í Hrísalundi en Oddi gerði nýlega samning við stórfyrirtækið LINDE AG í Þýskalandi um sölu og þjónustu á kæli- og frystiinn- réttingum í verslanir. LINDE AG er einn stærsti framleiðandi í heimi á slíkum búnaði og er framleiðsla fyrirtækisins þekkt fyrir gæði. KEA var fyrsti aðilinn sem keypti kjötborð, framleitt af LINDE, af Vélsmiðjunni Odda. Borðið er rétt tæpir átta metrar að lengd. fréttir Matreiðsluinennirnir Júlíus Jónsson (t.v.) og Jón V. Ólafsson, við nýja kjötborðið í KEA Hrísalundi. Niðurstöður könnunar Neytendasamtakanna á geymsluþoli og merkingu eggja: Þriðjungur framleiðenda uppfyllir ákvæði reglugerðar - 56 prósent verslana geyma eggin í kæli Eins og kunnugt er leiddi könnun Neytendafélags Akur- eyrar og nágrennis fyrir skömmu í Ijós að í ýmsu er ábótavant með merkingu og geymslu eggja á félagssvæð- inu. I framhaldi af því gengust Neytendasamtökin fyrir ítar- legri könnun á þessum málum og náði hún til 95 verslana og 30 eggjaframleiðenda. Fulltrúar eggjaframieiðenda munu eiga fund í dag með Hollustuvernd ríkisins þar sem rætt verður um þörf á sam- ræmingu túikunar reglugerðar um merkingu neytendaum- búða fyrir matvæli og setningu ákveðinna reglna um merk- ingu og geymslu eggja. Eiríkur Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eggjaframleiðenda, vildi ekki upplýsa um hug- myndir eggjaframleiðenda til úrbóta á núverandi ástandi, en tók fram að eggjaframleiðend- ur teldu núgildandi reglugerð um meðferð og geymslu mat- væla ekki kveða nægilega glöggt á um geymslu og merk- ingu eggja. Eiríkur sagðist í gær ekki vilja tjá sig mikið um könnun Neyt- endasamtakanna, enda hefði Niðurstöður hennar liggja nú fyrir og eru um margt mjög athyglisverðar. Af 30 eggjafram- leiðendum taka 23 þeirra fram á umbúðum að um kælivöru sé að ræða, ýmist með orðinu kælivara eða geymist á köldum stað. Sam- kvæmt reglugerð er þó eingöngu gert ráð fyrir orðinu kælivara. Helmingur framleiðenda gefur ekki upp geymsluþol á vöru sinni honum ekki gefist tími til að kynna sér niðurstöður hennar. Hann sagði þó Ijóst að könnunin gæfi til kynna að eggjafram- leiðendur gætu gert betur, t.d. hvað varðaði merkingu á umbúð- ir um geymsluþol. Eiríkur sagðist ekki sáttur við að Neytendasamtökin vitnuðu til rannsóknar Rannsóknastofnun- ar landbúnaðarins fyrir nokkrum árum sem leiddi í ljós að 10-40% eggja í verslunum væru sprungin. Astæðan væri einföld, hér væri um að ræða gamla rannsókn og ástæða væri til að ætla að niður- stöður sambærilegrar könnunar í dag yrðu aðrar og betri. Varðandi þá skoðun Neyt- endasamtakanna að egg séu kæli- vara sagði Eiríkur eggjafram- leiðendur ekki ánægða með að þeim væri gert að merkja egg sem með „síðasta söludegi" eða „best fyrir." Fimm framleiðendur merktu í sumum tilvikum meö þessum upplýsingum, en í öðrum tilfellum ekki. Niðurstaða máls- ins er því sú að aðeins tíu fram- leiðendur, eða 33%, uppfvlla reglugerðarákvæði. Ef litið er á verslanirnar, sem lentu í úrtaki könnunarinnar. kemur í ljós að 53 af þeim 95 kælivöru. Hann benti á að kæli- vara væri geymd í hitastigi á bil- inu 0-4 gráður, en í Svíþjóð væri mælt með að egg væru geymd í 7 til 12 gráðu hita. Þannig teldu Svíar egg ekki vera kælivöru. „Hið almenna er að framleiðend- ur haldi sinni vöru góðri. Annars tapa þeir einfaldlega markaði," sagði Eiríkur. Eiríkur sagði það almennt skoðun eggjaframleiðenda að túlka mætti nefnda reglugerö frá 1988 um merkingu neytenda- umbúða fyrir matvæli og aðrar neysluvörur á mismunandi hátt. „Stærsta vandamálið er að eggin falla ekki nógu vel að þessari reglugerð og því teljum við þurfa skýrar reglur um eggin. Þess vegna munum við eiga fund með Hollustuvernd og reyna að koma þessum málum í ákveðnari farveg,“ sagði Eiríkur. óþh verslunum, sem könnunin náði til. eða 56% geyma eggin í kæfi. Af þeim 42 verslunum sem ekki gerðu það sögðust sumar láta eggin inn í kæli að nóttu til. I nefndri könnun Neytenda- samtakanna var einnig kannað verð á eggjum. í Ijós kom að algengasta verðið var á bilinu 396-405 krónur fyrir kílóið. Lægsta verðið var 328,50 krónur. en það hæsta 417 krónur, sem er 27% hærra verð. í frétt frá Neytendasamtökun- um segir að í Ijósi könnunarinnar sé með öllu óþolandi að fram- leiðendur komist upp með að hundsa ákvæði áðurnefndrar reglugerðar og í því sambandi megi benda á að nú séu átta mán- uðir liðnir frá því að merkingar áttu að vera komnar í lag. Þá seg- ir að Nevtendasamtökin hvetji Júlíus Jónsson, formaður Félags matvörukaupmanna, segir ekkert standa í reglugerð um að matvörukaupmönnum beri skylda til að hafa eggin í kæli. „Þar sem ég þekki til eru þessi mál í mjög góðu ástandi. Eggin eru vara sem kemur í verslanir tvisvar í viku og það er ekkert sem segir okkur að geyma eggin í kæli. Það er engin skylda,“ segir Júlíus. eindregið til þess að settar verði sérstakar reglur um merkingu og geymslu eggja. í lok fréttar Neyt- endasamtakanna segir orðrétt: „Neytendasamtökin telja ein- dregið að egg séu kælivara. Má benda á að í rannsókn sem gerð var í Danmörku kom í Ijós að egg geymast betur við 5 gráður á celsíus en við 12 gráður á celsíus, sem sumir eggjaframleiðendur telja hentugra hitastig. Einnig má benda á að í rannsókn sem gerð var á vegum Rannsóknastofnun- ar lándbúnaðarins fyrir nokkrum árum kom í ljós að egg í verslun- um voru í 10-40% tilvika sprungin. Slík egg hafa mun minna geymsluþol og mjög mikil- vægt að þau séu geymd við sem lægst hitastig. Því gera Neytenda- samtökin þá kröfu til verslana, að í öllum tilvikum séu egg geymd í kæli.“ óþh „Það er enginn svo vitlaus, sem höndlar með þessa vöru, að hönum detti til hugar að taka eggin inn eftir dúk og disk. Hæn- urnar halda áfram að verpa og við fáum eggin alltaf ný. Ef kaup- menn standa sig ekki í að hafa eggin ný eru þeir einfaldlega aö henda viðskiptavinunum í burtu, þá fer fólk eitthvað annað,“ segir Júlíus. Hann sagðist persónulega telja að eggin þyldu um tíu daga geymslu í stofuhita. óþh Félag eggjaframleiðenda: Vill skýrari reglur um merk- ingu og geymslu á eggjum - mun í dag eiga fund með Hollustuvernd um málið Júlíus Jónsson, formaður Félags matvörukaupmanna: Engin skylda að hafa eggin í kæK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.