Dagur - 13.09.1990, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 13. september 1990
Ný hlutabréf í Útgerðarfélagi Akureyringa fara á markað í dag:
Sterkt f\TÍrtæki sem jafiivel
skilar hagnaði á erfiðleikatmiiim
Útboð á hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akureyr-
inga hefst í dag en í heild verða boðin út hlutabréf
að nafnvirði 24.269.250 kr. sem stjórn félagsins
hefur ákveðið að verði seld á upphafssölugenginu
3,0. Hér er um að ræða þau hlutabréf sem núver-
andi hluthafar nýttu sér ekki forkaupsrétt á en í
þessum fyrri hluta útboðsins voru boðnar út 50
milljónir í nýju hlutafé. Síðari hluti útboðsins verð-
ur væntanlega síðar í haust. Kaupþing hf. hefur
umsjón með þessari hlutabréfasölu auk þess sem
Kaupþing Norðurlands verður annar söluaðili
bréfanna.
I útboöslýsingu sem Kaupþing
hf. og Otgerðarfélag Akureyr-
inga ábyrgjast er staða Útgerðar-
félags Akureyringa kynnt og
spáð um horfur í rekstri fvrir-
tækisins. Þar kemur fram að
stjórn félagsins stefnir að því að
nota nýtt hlutafé til endurnýjunar
á framleiðslutækjum, til að auka
aflaheimildir og til að auka veltu-
fjárhlutfall. Félagið hefur nýlega
keypt togarann Aðalvík með
veiðikvóta, svo og öll hlutabréf í
Hraðfrystihúsi Keflavíkur.
Pantanir teknar í eina viku
Eins og áður segir er hér um fyrri
hluta hlutafjárútboðs að ræða.
Aðalfundur ÚA samþykkti í vor
að auka hlutafé félagsins um 100
milljónir króna, þ.e. upp í 430
milljónir. Ákveðið var í ágúst að
bjóða út 50 milljónir af þessu
hlutafé og nýttu hluthafar sér
forkaupsrétt á um helmingi bréf-
anna.
Stjórn ÚA hefur ákveðiö aö
hámark þess hlutafjár sem ein-
stakir kaupendur geta skráð sig
fyrir verði 300.000 kr. að nafn-
verði. Þær óskir sem berast frá og
með deginum í dag til föstudags í
næstu viku verða afgreiddar í
einu lagi þann 24. september.
Nemi samanlagðar óskir á þessu
tímabili hærri fjárhæð en til sölu
er í útboðinu veður hverjum
umsækjenda úthlutað kauprétti
hlutfallslega.
Framleiðslu viðhaldið með
kvótakaupum
I fyrrgreindri útboðslýsingu segir
um horfur í rekstri ÚA að
minnkandi aflakvóti dragi úr
hagnaði þar sem félagið verði að
kaupa viðbótarkvóta háu verði til
að ná að halda framleiðslu
óbreyttri ntilli ára. „Á móti
kemur, að rekstrarumhverfið
hefur batnað á margan hátt á
þessu ári (minni verðbólga, meiri
eftirspurn og hærra söluverð
afurða). Hins vegar féllu niður
frá síðustu áramótum greiðslur til
félagsins úr Verðjöfnunarsjóði
og endurgreiðsla á uppsöfnuðunt
söluskatti," segir í skýrslunni.
Stefnir í 128 milljóna
króna hagnað í ár
Hagnaður af rekstri ÚA á fyrri
hluta þessa árs varð 113 milljónir
króna fyrir skatta samkvæmt
milliuppgjöri. Að afstöönum
Úr vinnslusal ÚA. Fyrirtækið veitir um 450 manns atvinnu, bæði á sjó og
landi. Söluverðmæti frainleiðslunnar nam á fyrstu sex mánuðum þessa árs
um 700 milljónum króna.
Togarinn Aðalvík sem ÚA keypti fyrir skömmu. Þetta er stærsta fjárfesting Útgerðarfélagsins á þessu ári.
kaupum á togaranum Aðalvík og
hlutabréfum í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hefur rekstraráætlun
ársins verið yfirfarin og er gert
ráð fyrir að 15 milljóna króna
hagnaður verði af rekstrinum síð-
ari hluta ársins og hagnaður ársins
í heild verði um 128 milljónir
króna fyrir skatt. Og ennfremur
segir um hagnaðarspána í skýrsl-
unni: „Ef af sameiningu Hrað-
frystihúss Keflavíkur hf. við
Útgerðarfélagið verður á þessu
ári, verður ekki greiddur tekju-
skattur af þessunt hagnaöi."
Til nánari útskýringar á þessu
segir í útboðslýsingunni að sam-
einingin leiði til þess að skuldir
ÚA aukast um 75 milljónir króna
vegna hlutafjárkaupanna og eigið
fé félagsins lækki sem því nemur.
Á móti kemur hins vegar að
skattalegt hagræði vegna upp-
safnaðs taps Hraðfrystihússins
leysir upp óskattlagt eigið fé
Útgerðarfélagsins sem aftur eyk-
ur óráðstafað eigið fé þess. í
samningunum um kaupin á
hlutabréfunum er gert ráð fyrir
að uppsafnað tap Hraðfrystihúss-
ins sé a.m.k. 500 milljónir króna.
Togarakaupin og breyting
úr sóknarmarki í aflamark
Skerðing veiðiheimilda útgerð-
arfyrirtækja á undangengnum
árum hefur bitnað á Útgerðarfé-
lagi Akureyringa eins og öðrunt.
Sé miðað við árin 1985 og 1986 er
sá kvóti sem togurum félagsins er
úthlutað í ár aðeins nokkur
hundruð tonnum meiri en afli
togaranna var á þessum árum.
Til að afla aukinna veiöiheim-
ilda fyrir félagið leitaði ÚA eftir
kaupum á togara með kvóta,
bæði til að leysa af hólmi elsta
togara félagsins, Sólbak, ogeinn-
ig til að auka heildarkvótann.
Sent kunnugt er steig félagið
skrefið þann 12. ágúst sl. þegar
togarinn Aðalvík var keyptur af
Hraðfrystihúsi Keflavíkur fyrir
450 milljónir króna og unt leið
voru hlutabréf í HK keypt fyrir
75 milljónir.
Aðalvík er frystitogari, geröur
út á sóknarmarki. Veiðiheimildir
hans nema 940 tonnum af þorski,
1550 tonnum af karfa og 350
tonnum af grálúðu, auk frjáls
aðgangs í aðrar fisktegundir. Ný
Já!
Þetta er...
Auglýsendur!
Blaöinu okkar veröur dreift í öll hús á
Akureyri vikuna 10.-15. september.
Sími auglýsingadeildar er 24222.
Opið frá kl. 8.00-17.00,
einnig í hádeginu.
Löndunarmenn í einum togara fclagsins. Nú á félagiö sjö togara en um
næstu áramót veröur elsta togaranuin lagt.