Dagur - 13.09.1990, Side 7
Fimmtudagur 13. september 1990 - DAGUR - 7
Togararnir Kaldbakur og Sólbakur við bryggju framan vinnsluluiss ÚA. Sólbakur (til vinstri) er elsti togari félagsins
og verður honum lagt um áramót og kvóti hans fluttur á aðra togara félagsins.
Pústþjónusta
Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða.
Pakkningar, klemmur, upphengjur.
Fast verð fyrir pústkerfaskipti.
Höfum fullkomna beygjuvél.
Ryðvarnarstöðin sf.
Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 ■ 603 Akureyri.
Sundlaug
Glerárskóla
Opnunartími fyrir almenning í vetur:
Mánudaga kl. 07.00-08.00 og 18.00-20.30.
Þriðjudaga kl. 07.00-08.00 og 17.00-20.30.
Miðvikudaga kl. 07.00-09.00 og 19.00-20.30
Fimmtudaga kl. 07.00-08.00 og 17.00-20.30.
Föstudaga kl. 07.00-08.00 og 17.00-20.30.
Laugardaga og sunnudaga kl. 09.00-14.00.
lög um stjórn fiskveiða taka gildi
um næstu áramót og þá verður
sóknarmarkið lagt niður og þau
skip sem þannig hafa verið gerð
út fá aflamark. Miðað við núver-
andi veiðiheimildir Aðalvíkur
fengi skipið um 1600 þorskígildi í
kvóta en ÚA reiknar með að við
breytinguna fái skipið einhverjar
bætur á þetta aflamark.
Togarinn Sólbakur er einnig
sóknarmarksskip sem stunda
mun veiðar til áramóta þegar
Aðalvíkin verður færð af fryst-
ingu yfir á ísfiskveiðar og fær
jafnframt nafnið Sólbakur. Frá
þeim tíma verða togarar félagsins
6 á ný en kvóti gamla Sólbaks
verður færður á önnur skip
félagsins. í heild verður þá kvóti
félagins orðinn 10% meiri en var
í upphafi þessa árs en til viðbótar
þessum togarakaupum hefur
félagið aflað sér kvóta á annan
hátt.
Fyrirtæki sem áfram
skilar hagnaði
Á hlutabréfamarkaði er ætíð sú
spurning uppi hver áhætta fylgi
kaupum á hlutabréfum í fyrir-
tækjum. Óhætt er að segja að
áhættan sé ekki mikil með kaup-
um á bréfum í Útgerðarfélagi
Akureyringa. Um þetta atriði
segir skýrslan:
„Óvissa um afkomu fyrirtækja
í sjávarútvegi er talsverð og valda
því ýmsir þættir, s.s. fiskigengd á
miðum, sóknarþungi fiskiskipa-
flotans í heild, náttúruskilyrði,
verðlag á útflutningsmörkuðum
og gengisþróun einstakra gjald-
miðla. Islensk stjórnvöld hafa urn
langt skeið haft mikil afskipti,
bein og óbein, af rekstri fyrir-
tækja í sjávarútvegi og er ástæða
til að ætla, að enn um sinn muni
ríkisvaldið leitast á hverjum tíma
við að tryggja sjávarútvegsfyrir-
tækjum í heild þau rekstrarskil-
yrði sem nægja til að endar nái
saman hjá meðalfyrirtækjum.
t*ar sen Útgerðarfélagið er í hópi
þeirra fyrirtækja sem best standa,
má ætla að það haldi áfram að
skila hagnaði, jafnvel á erfið-
leikatímum.“
Ar fjárfestinga
Af framansögðu má ljóst vera að
árið í ár er ár fjárfestinga hjá
ÚA. Togarinn Aðalvík var
keyptur fyrir 450 milljónir og
hlutabréfin í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur fyrir 75 milljónir
króna. Aðrar helstu fjárfestingar
sem félagið ráðgerir á árinu eru
17 milljónir króna í fasteignum,
25 milljónir króna í áhöldum,
vélum og tækjum og 20 milljónir
króna í fiskiskipum.
Á undanförnum árum hafa
fjárfestingar verið fjármagnaðar
bæði með fé úr rekstrinum og
með lántökum. Fyrirhugaðar
fjárfestingar felast aðallega í
aukningu veiðiheimilda og
endurnýjun á framleiðslutækj-
um. Lögð er áhersla á það hjá
ÚA að fjárfestingar séu í góðu
samræmi við fjárhagsgetu félags-
ins á hverjum tíma.
Hagnaður síðustu sjö árin
Bókfært verð fasteigna ÚA um
mitt þetta ár var 380 milljónir
króna og vátryggingaverð þeirra
787 milljónir króna. Pá er bók-
fært verð skipanna sjö talið 1526
milljónir. miðað við verðlag um
mitt ár, og vátryggingaverð
þeirra alls 1956 milljónir.
Útgerðarfélag Akureyringa
veitir um 450 manns að jafnaði
vinnu, þar af 120 sjómönnum og
260 manns sem starfa beint við
fiskvinnslu. Þá eru um 70 manns
viö störf í svokölluðum stoð-
deildum þ.e. togaraafgreiðslu,
vélaverkstæði, netaverkstæði,
rafmagnsverkstæði, trésmíða-
verkstæði. skrifstofu, matstofu,
fiskvinnsluvélaverkstæði o.s.frv.
Þetta eitt stærsta útgerðarfyrir-
tæki landsins hefur verið rekið
með svipuðu sniði um langt skeið
og hefur skilað hagnaði síðastliðin
sjö ár.
Hlutur Akureyrarbæjar
lækkar í 66,12%
Útgerðarfélag Akureyringa er
félag sem greitt hefur hluthöfunt
sínurn arð af bréfum sínum á síð-
ustu árum. Þannig var hluthöfum
greiddur 5% arður árið 1987, 5%
arður árið 1988, 2% arður árið
1989 og 3% arður í ár.
Hluthafar í fyrirtækinu eru fyr-
ir daginn í dag alls 770 talsins.
Fyrir söluna sem hefst í dag á
Akureyrarbær 70,78% en seljist
öll bréfin nú fer hlutur bæjarins
niður í 66,12% þar sem sveitar-
félagið nýtti sér aðeins helming
forkaupsréttar síns. Næstir í röð
hluthafanna koma KEA með
9,02%, Slippstöðin með 7,30%,
Hampiðjan hf. með 5,39%,
Verkalýðsfélagið Eining með
1,73% og Sjómannafélag Eyja-
fjarðar með 1,46%.
Hlutafé Útgerðarfélags Akur-
eyringa hefur ekki verið aukið
með innborgunum á undanförn-
um þremur árum fyrr en nú. Ekki
þyrfti að koma á óvart þó góðar
viðtökur yrðu við þeim bréfum
sem hafin verður sala á í dag
enda ljóst af framansögðu að hér
eru á ferðinni bréf í einu af sterk-
ari fyrirtækjum landsins. JÓH
Haustæfingar
Skíðaráðs Akureyrar
eru hafnar og verða þannig:
Alpagreinar:
6-9 ára:
Laugardaga kl. 10.30-11.30 inniæfing í íþróttahúsi Glerár-
skóla.
10-12 ára:
Laugardaga kl. 9.30-10.30 inniæfing í íþróttahúsi Glerár-
skóla og fimmtudaga kl. 18.00 útiæfing á Akureyrarvelli.
13-14 ára:
Mánudaga kl. 17.00, miövikudaga kl. 17.00 og föstudaga
kl. 17.00 útiæfingar viö íþróttahöllina.
15 ára og eldri:
Alla virka daga nema miövikudaga kl. 18.00 útiæfingar viö
íþróttahöllina.
Skíðaganga:
6-9 ára:
Laugardaga kl. 10.30-11.30 inniæfing í íþróttahúsi Glerár-
skóla. Sunnudaga kl. 10.30 útiæfing í Kjarnaskógi.
10-12 ára:
Laugardaga kl. 9.30-10.30 inniæfing í íþróttahúsi Glerár-
skóla. Sunnudaga kl. 10.30 útiæfing í Kjarnaskógi.
13 ára og eldri:
Fimmtudaga kl. 17.30 útiæfing viö íþróttahöllina.
Útsala ★ Útsala ★ Útsala
Okkar vinsæla útsala
er nú í fullum gangi
★ Mikill afsláttur Cv >
★ Komið og gerið góð kaup *****
* ^AMOR
e
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
Tískuverslun Hafnarstræti 88, sími 26728