Dagur - 13.09.1990, Side 15
Fimmtudagur 13. september 1990 - DAGUR - 15
-/1
fþróttir
Handknattleikur:
Stefán og Rögnvald dæma
á HM kvenna í Kóreu
Hafþór og Henning fengu báö-
ir eins leiks bann vegna fjögurra
gulra spjalda. Verður þetta að
teljast verulegt áfall fyrir Siglfirð-
inga sem mæta Leiftursmönnum í
Ólafsfiröi á laugardag en með
sigri gæti annað liðið bjargað sér
frá falli. Þrír 1. deildarleikmenn
fengu bann vegna fjögurra gulra
spjalda, Heimir Hallgrímsson og
Andrej Jerina, ÍBV, og Björn
Ráfnsson, KR. Þá fékk Aðal-
björn Björnsson, Einherja, eins
leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda.
Tveir Dalvíkingar fengu eins
leiks bann vegna brottvísunar,
Þorsteinn Guðbjörnsson og Arn-
ar Snorrason.
Trimmnefnd
býður til
ftindar
Næstkomandi sunnudag, 16.
september, býður Trimmnefnd
ÍSI til fundar í húsakynnum
ÍSÍ, 2. hæð kl. 10.00 til 14.00.
Efni fundarins veröur sem hér
segir:
1. Gestur Trimmnefndar, Sví-
inn Pelle Westling, kynnir starf
Iþróttasambands almennings í
Svíþjóð, Motionsförbundet.
2. Kynning Evrópuhátíðar í
íþróttum fyrir alla sem fram fer í
Svíþjóð í júní 1991 og býðst ís-
landi þátttaka í þeirri hátíð.
3. Hve mikill er áhugi fyrir
stofnun sérsambands í „íþróttum
fyrir alla" hér á landi?
Þátttakendum gefst kostur á
léttri máltíð í hádeginu fyrir 500
kr. pr. mann. Þátttaka tilkynn-
inst á skrifstofu ÍSÍ í síma 91-
83377 á milli kl. 9-17 fyrir föstu-
dagskvöldið 14. sept. nk.
(Frcttatilkynning).
Tveir íslenskir handknattleiks-
dómarar, Stefán Arnaldsson
og Rögnvald Erlingsson, munu
dæma á Heimsmeistarakeppni
kvenna í handknattleik sem
fram fer í Kóreu í vetur. Eftir
því sem næst verður komist er
þetta í fyrsta sinn sem íslenskir
dómarar dæma í A-keppni í
flokkaíþrótt.
Heimsmeistarakeppnin í Kór-
eu hefst 24. nóvember og stendur
til 4. desember. 16 þjóðir taka
þátt og dómarapör frá 12 þjóðum
sjá um að allt fari fram sam-
kvæmt settum reglum.
Stefán og Rögnvald byrjuðu á
ný að dæma saman í fyrra eftir
nokkurt hlé. Þeir dæmdu fjöl-
marga leiki erlendis í fyrravetur,
m.a. á HM U-21 á Spáni og
undanúrslitaleik í Evrópukeppni
kvenna.
Handknattleikur:
KA-menn byrja
gegn FH í
Hafnarfirði
Keppni í 1. deild Islandsmóts-
ins í handknattleik hefst um
helgina með fimm leikjum.
KA-menn mæta íslandsmeist-
urum FH í Hafnarfirði á
sunnudag kl. 16.30.
Keppni í 2. deild hefst ekki
fyrr en föstudaginn 28. septem-
ber en þá leika Njarðvík og Þór í
Njarðvík. Völsungar leika hins
vegar ekki fyrsta leik sinn fyrr en
í október.
Fyrsti heimaleikur KA-manna
verður gegn Selfyssingum föstu-
daginn 21. september. Miðviku-
daginn 26. fá KA-menn svo
Framara í heimsókn og hefst
leikurinn kl. 20.30.
Skíðaráð Akureyrar:
Haustæfíngar hafnar
Haustæfingar Skíðaráðs Akur-
eyrar eru hafnar og verða sem
hér segir:
Alpagreinar
6-9 ára: Laugardaga kl. 10.30-
11.30 inniæfing í íþróttahúsi
Glerárskóla.
10-12 ára: Laugardaga kl. 9.30-
10.30 inniæfing í íþróttahúsi
Glerárskóla og fimmtudaga kl.
18.00 útiæfing á Akureyrarvelli.
13-14 ára: Mánudaga kl. 17.00,
miðvikudaga kl. 17.00 og föstu-
daga kl. 17.00 útiæfingar við
íþróttahöllina.
15 ára og eldri: Alla virka daga
kl 18.00 nema miðvikudaga úti-
æfingar við íþróttahöllina.
Skíðaganga
6-9 ára: Laugardaga kl. 10.30-
11.30 inniæfing í íþróttahúsi
Glerárskóla. Sunnudaga kl.
10.30 útiæfing í Kjarnaskógi.
10-12 ára: Laugardaga kl. 9.30-
10.30 inniæfing í íþróttahúsi
Glerárskóla. Sunnudaga kl.
10.30 útiæfing í Kjarnaskógi.
13 ára og eldri: Fimmtudaga kl.
17.30 útia^fing við íþróttahöllina.
Ármann Helgi Guðmundsson.
Golf:
Opna Jaðars-
og minningarmótið
um helgina
Opna Jaðars- og minningar-
mótið í golfi fer fram á Jaöars-
velli á Akureyri um helgina.
Leiknar verða 36 holur með og
án forgjafar í karla-, kvenna- og
unglingaflokki. Auk hefðbund-
inna verðlauna verða veitt vegleg
aukaverðlaun. Mótið hefst kl. 8 á
laugardagsmorgun og lýkur síð-
degis á sunnudag. Skráning fer
fram í golfskálanum að Jaðri í
síma 22974 og lýkur henni kl. 18
á föstudag.
Stefán Arnaldsson dæmdi mikið erlendis í fyrra og svo veröur einnig í ár.
- geta m.a. dæmt á Ólympíuleikum
Áfall fyrir Siglfirðinga:
Hafþór og Henning
í banni gegn Leiftri
Sund:
Tveir íslendingar komnir
með alþjóðleg dómararéttindi
Hafþór Kolbeinsson og Henning
Henningsson verða ekki með gegn
Leiftri.
Á Sundþingi, sem haldið var
um síðustu helgi, var greint frá
því að tveir Islendingar, Akur-
eyringurinn Ármann Helgi
Guðmundsson og Reykvíking-
urinn Kristín Guðmundsdóttir,
hefðu nýlega hlotið réttindi
sem alþjóðlegir dómarar í
sundi. Þetta veitir þeim rétt-
indi til að dæma á öllum
alþjóðlegum sundmótum sem
eru haldin samkvæmt reglum
FINA, m.a. Ólympíuleikum.
Armann Helgi sagði í samtali
við Dag að hann og Kristín hefðu
sl. vor sótt um að komast inn á
alþjóðlegan dómaralista og já-
kvætt svar hefði borist fyrir
um mánuði. Réttindin hefðu
þau til ársins 1994. Sagði hann að
í fjárlögum Sundsambandsins
væri gert ráð fyrir að þau myndu
eitthvað dæma erlendis í vetur en
ekki væri ljóst hversu mikið það
yrði.
Ármann Helgi keppti um ára-
bil í sundi en hefur nú alfarið
snúið sér að dómgæslunni, auk
þess sem hann þjálfar yngstu
hópana hjá Óðni. „Ég byrjaði að
dæma fyrir 6-7 árum. Það vantaði
tilfinnanlega dómara á lands-
byggðinni og það var t.d. enginn
dómari á Akureyri þegar ég byrj-
aði. Ég hef dæmt mjög mikið allt
frá upphafi og þar sem þetta eru
mest sömu mótin var maður far-
inn að velta því fyrir sér hvort
maður væri að staðna. Það er síð-
ur hætta á því þegar maður getur
dæmt erlendis."
Eins og fyrr segir hafa Ármann
og Kristín nú réttindi til að dæma
á Ólympíuleikum. En eru líkur á
að af því verði?
„Það er ekki spurning að mað-
ur reynir að komast þar að og
einnig á fleiri stórum mótum. Ég
held að við eigum alveg mögu-
leika á að koma a.m.k. einum
dómara að,“ sagði Ármann Helgi
Guðmundsson.
17 leikmenn voru dæmdir í
leikbann á fundi aganefndar
KSÍ sl. þriðjudag. Meðal
þeirra voru tveir leikmenn KS,
Hafþór Kolbeinsson og Henn-
ing Henningsson, og verða
þeir því fjarri góðu gamni þeg-
ar KS og Leiftur mætast í mjög
mikilvægum leik á laugardag-
inn.
Sigurpáll Árni og félagar í KA fá erfiða mótherja í fyrstu umferð.