Dagur - 22.09.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 22. september 1990
Skipulagsdeild Akureyrarbæjar:
Vinna að heíjast við gerð endurskoðaðs
skipulags að íbúðabyggð á Oddeyri
„Þetta mál hefur verið í undir-
búningi frá árinu 1984,“ segir
Árni Olafsson, skipulagsstjóri,
en þessar vikurnar er á vegum
Skipulagsdeildar Akureyrar-
bæjar að hefjast vinna við
endurskoðun á skipulagi íbúða-
byggðar á Oddeyri.
„Það er ekki ætlunin að gjör-
bylta byggðinni á Oddeyri, en
væntanlega verða opnaðir ein-
hverjir þróunarmöguleikar," seg-
ir Árni.
Að sögn Árna liggur fyrir
skipulag að hafnarsvæðinu og
einnig er hafinn undirbúningur
að gerð skipulags fyrir iðnaðar-
svæðið við Glerárgötu. Þá stend-
ur fyrir dyrum að auglýsa skipu-
lagstillögu að svæði sunnan nýrr-
ar Strandgötu, smábátahöfn við
Torfunef.
Undirbúningur að endurskoð-
un á skipulagi íbúðabyggðar á
Oddeyri hefur lengi staðið yfir.
Liður í honum var byggðarkönn-
un og húsakönnun, þar sem varð-
veislugildi húsa var metið. Síðar-
nefndu könnunina vann Hjörleif-
ur Stefánsson, arkitekt.
„Markmiðið með þessu er ekki
að breyta skipulaginu breyting-
anna vegna. Skipulagsaðgerðirn-
ar eru ekki komnar á hreint. Við
komum til með að fá tillögur frá
íslendingar hafa í auknum
mæli fundið sér stað fyrir
sumarbústaði, sem þeir síðan
dvelja í vikum saman yfir
sumarmánuðina og þá hefur
einnig færst í vöxt að eigendur
sumarhúsa nýti þau einnig yfír
haust- og vetrarmánuðina.
Sunnan við bæinn Lund I í
Hálshreppi, hefur verið skipu-
lagt svæði undir sumarbústaða-
byggð og mældar út lóðir fyrir
21 sumarbústað.
skipulagshöfundum og síðan
fjallar skipulagsnefnd um þær,“
sagði skipulagsstjóri.
Tvö hús á Oddeyri heyra undir
Að sögn Þórólfs Guðnasonar
bónda í Lundi I er um þessar
mundir verið að vinna við lagn-
ingu vegar að svæðinu sem er yst
í Lundsskógi.
„Það er fyrirtækið BYNOR á
Akureyri sem hefur þetta svæði
til sölumeðferðar að mestu leyti.
Ég hef að vísu sjálfur fjórar lóðir
til ráðstöfunar en hef reyndar
ekki ráöstafað þeim ennþá.
Menn hafa sýnt því töluverðan
áhuga á að fá þarna lóð undir
I ákvæði húsfriðunarlaga, annars
vegar Gránufélagshúsið og hins
vegar Norðurgata 17, gamla
| prentsmiðjan.
sumarbústað og þessa dagana er
verið að ganga frá fyrstu samn-
ingunum þar af lútandi."
Fyrirtækið BYNOR smíðar
sumarbústaði og þeir sem kaupa
lóðir hjá fyrirtækinu í Lunds-
skógi, geta keypt af fyrirtækinu
fullbúna sumarbústaði, fokhelda
eða einungis efnið í þá, að sögn
Þórólfs og auk þess eru ýmsir
aðrir möguleikar fyrir hendi.
„Það er þegar búið að leggja
vatnslögn og síðar í þessum mán-
uði verður lagt rafmagn að svæð-
inu, þannig að hver og einn
sumarbústaðareigandi þarf ekki
að fara nema rétt út fyrir sína lóð
til að nálgast vatn og rafmagn."
Hver lóð er um 1/2 hektari að
stærð og svæðið sem skipulagt
hefur verið nær niður undir
Fnjóská. Niður við ána er nokk-
uð stór j>róin eyri, sem liugsuð
er sem leiksvæði. -KK
Fjármálaráðherra lækkar vexti á ríkisvíxlum:
Aðstæður á lánsíjármarkaði
bjóða upp á lækkun raunvaxta
Hálshreppur:
Búið að skipuleggja svæði
fyrir 21 sumarbústað í Lundsskógi
- margir hafa sýnt því áhuga að eignast
þar lóð fyrir sumarbústað
fréttir
Vatnsdalur:
Strandafé á
riðuniður-
skurðarbæi
í næstu viku
I næstu viku er von á uin 6ó0
lömbum af Ströndum á átta
bæi á svæöinu vestan
Blöndu. Á þessum bæjum
hefur verið skorið niður
vegna riðuveiki. Samkvæmt
upplýsingum Dags koma 4-
5000 löinb af Ströndum á
þau svæði þar sem skorið
hefur verið niður vegna
riðunnar.
Riðuveikin hefur verið
mjög skæð á svæðinu vestan
Blöndu undanfarin ár og var
farið út í all víðtækan niður-
skurð. Fyrstu bændurnir fengu
aftur fé í fyrra og í ár bætast
nokkrir í hópinn. Jón B.
Bjarnason, oddviti í Áshreppi
í Austur-Húnavatnssýslu, seg-
ir að vart sé gert ráð fyrir að
sauðfjárbúskapur verði þarna
á ný í sama mæli og áður.
Hann segir vitað að nokkrir
bændur sem áður liöfðu fé
munu ekki taka lömb og því
leggist sauðfjárbúskapur af á
nokkrum jörðum. Þá telji
menn frcmur ósennilegt að
þeir bændur sem taka lömb nú
eftir fjárleysi muni í tímans rás
búa með jafn margt fé og
áður.
Jón segir að ekki hafi orðið
vart nýrra riðutilfella í haust í
Vatnsdal, en þcss beri þó að
geta að ekki hafi verið réttað á
tveim réttum á svæðinu og því
ekki öll kurl komin til grafar.
óþh
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju:
Rætt um að flytja
flygil úr Skenimunni
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, hefur
ákveðið að lækka vexti á ríkis-
víxlum úr 12% í 10%. Sam-
kvæmt upplýsingum fjármála-
ráðuneytisins er þessi ákvörð-
un tekin á grundvelli lækkandi
verðbólgu að undanförnu og
mikillar sölu ríkisvíxla. Þess er
jafnframt vænst að í kjölfarið
„Við berum hag piparsveina
fyrir brjósti, enda piparsveinar
sjálfír, og okkur fínnst upplagt
Akureyri:
Þrjár nýjar
hraðahindranir
Skipulagsnefnd Akureyrar hef-
ur ákveðið að láta setja upp
hraðahindranir á Höfðahlíð og
Skarðshlíð.
Á fundi nefndarinnar um miðj-
an mánuðinn var samþykkt að í
haust verði settar tvær hraða-
hindranir á Skarðshlíð og ein í
Höfðahlíð. Hraðahindrun á að
koma við stíg austan raðhúsa við
Litluhlíð, og þar verður jafnframt
merkt gangbraut. Önnur hraða-
hindrun verður sett á gangbraut
við verslunarmiðstöðina Sunnu-
hlíð.
í Höfðahlíð verður sett hraða-
hindrun á gangbrautina við húsið
númer 17. Þá verður biðstöð
strætisvagna flutt austur yfir
gangbrautina. Tæknideild hefur
verið falið að gera tillögu að frek-
ari úrbótum á Höfðahlíð austan
Lönguhiíðar. EHB
fylgi lækkun vaxta óverð-
tryggðra útlána.
Sem kunnugt er fór framfærslu-
vísitalan í september 0,27% fram
úr þeim mörkum sem ákveðin
vorú við kjarasamninga og kennd
eru við rauð strik. Þar með er tal-
ið að verðbólguhraðinn á síðustu
mánuðum ársins verði undir 6%.
Ávöxtun óverðtryggðra
að þeir komi saman og ræði
áhugamál sín og miðli af
reynsiu sinni,“ segja þeir Tóm-
as Gunnarsson og Gunnar Páll
Gunnarsson sem halda Pipar-
inn '90 í Sjallanum í kvöld.
Þetta er nokkurs konar lands-
mót piparsveina og var slíkt mót
einnig haldið í Sjallanum fyrir
tveimur árum. Síðan þá hafa ver-
ið höggvin skörð í hópinn en nýir
sveinar hafa bæst við.
Að sögn forsvarsmanna Pip-
arsins hafa miðar verið seldir í
forsölu og má búast við a.m.k.
100 manns. Fleiri gætu þó slegist
í hópinn enda Flugleiðir með
sérstakt tilboð í gangi.
Matseðillinn er sniðinn að
þörfum piparsveina og skemmti-
atriði einnig. Nektardansmærin
Bonný kemur fram, eftirherman
Jóhannes Kristjánsson og hinn
síungi piparsveinn Þórður frá
Dagverðará. Kosinn verður pip-
arsveinn ársins og fá allir þátttak-
endur orðu. Þegar Sjallinn verð-
ur opnaður fyrir almenning kl.
23.30 má því þekkja piparsvein-
ana á orðunni og eru þeir lögleg
bráð, að sögn þeirra Tómasar og
Gunnars. SS
skuldabréfa bankanna er nú að
meðaltaíi rúmlega 14%. Verð-
bólga er um 4% og samsvarar
þessi ávöxtun því 10% raunvöxt-
um. Það eru að mati fjármála-
ráðuneytisins háir raunvextir sern
eiga sér ekki stoð í aðstæðum í
efnahags- og peningamálum.
Þessir vextir hljóti því að lækka.
Aðstæður á lánsfjármarkaði
bjóða að mati ráðuneytisins upp
á lækkun raunvaxta, einnig hjá
bönkum. „Gott jafnvægi hefur
myndast á peningamarkaðinum,
lausafjárstaða bankanna er góð
og almenn lánsfjáreftirspurn er
lítil. Ekki verður því séð að
bankarnir hafi ástæðu til að halda
uppi núverandi vaxtastigi, hvorki
vegna almenns ástands á peninga-’
og lánsfjármarkaði né vegna
raunvaxta spariskírteina, eins og
gefið hefur verið í skyn,“ segir í
yfirlýsingu ráðuneytisins. JÓH
Árni Bjarnason og Sveinbjörn
Jónsson stóðu uppi sem sigur-
vegarar á fyrsta móti haustsins
á vegum Bridgefélags Akur-
eyrar sem fram fór í Hamri sl.
þriðjudagskvöld. Hér var um
upphitunarmót að ræða fyrir
komandi keppnistímabil, svo-
kallað Startmót SS Byggis og
Bridgefélags Akureyrar.
Spilaður var eins kvölds tví-
menningur með Mitchell fyrir-
Rætt hefur verið um að flytja
flygil, sem er í eigu Akureyrar-
bæjar, úr Skemmunni og upp í
hið nýinnréttaða safnaðarheim-
ili Akureyrarkirkju. Hljóm-
burður mun vera mjög góður í
safnaðarheimilinu en þar er þó
ekki sérlega mikið rými fyrir
áheyrendur.
Roar Kvam, skólastjóri Tón-
listarskólans á Akureyri, sagði að
þetta hefði vissulega komið til
tals en ekki hefði verið ákveðið
að flytja flygilinn.
„Þetta er enn á umræðustigi.
komulagi og hlutu þeir Árni og
Sveinbjörn 272 stig en meðal-
árangur var 216 stig. Keppnis-
stjóri var Albert Sigurðsson en
hann mun stýra keppnum BA í
vetur.
Alls mættu 26 pör til leiks að
þessu sinni en 10 efstu pör urðu
þessi: stig
1. Árni Bjamason/Sveinbjörn Jónsson 272
2. Sigurður Búason/Stefán Sveinbjörnsson 270
3. Frímann Frímannss./Grettir Frímannss. 266
4. Pétur Guðjónsson/Anton Haraldsson 265
Safnaðarheimilið er ágætt fyrir
smærri tónleika, það tekur ekki
nema innan við 200 manns, en
þegar við erum að fá hljómsveitir
þá kemur ekkert annað en
Skemman til greina,“ sagði Roar.
Hann sagði að Akureyrarbær
ætti einnig flygil inni í Samkomu-
húsinu. Þetta væri gott hljóðfæri
en gamalt og fremur illa farið og
nauðsynlegt að gera það upp.
„Ef einn flygill fer upp í safn-
aðarheimili verður annar að vera
til staðar í bænum,“ sagði Roar.
SS
5. Hermann Tómasson/Ásgeir Stefánsson 261
6. Ármann Helgason/Soffía Guðmundsdóttir 249
7. Stefán Ragnarsson/Jakob Kristinsson 245
8. Jón Sverrisson/Reynir Helgason 240
9. Ólafur Ágústsson/Hörður Blöndal 238
10. Ævar Ármannsson/Jón Sverrisson 223
Næsta mót á vegum BA er
Bautamótið, þriggja kvölda tví-
menningur með Mitchell fyrir-
komulagi. Mótið hefst þriðjudag-
inn 25. sept. og verður fram hald-
ið 2. okt. og lýkur 9 okt. Skrán-
ing fer fram í Hamri. -KK
Sjallinn í kvöld:
Piparsveinar sletta
ærlega úr klaufumim
bridds
Fyrsta mót haustsins hjá Bridgefélagi Akureyrar:
Ámi og Sveinbjöm stóðu
uppi sem sigurvegarar