Dagur - 22.09.1990, Síða 3
Laugardagur 22. september 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Framkvæmdasjóður Akureyrar:
Heildarvelta sjóðsins 340 milljónir króna á árinu
- Þórarinn E. Sveinsson gagnrýnir að frumvarp að fjárhagsáætlun sjóðsins skyldi ekki fara fyrir atvinnumálanefnd
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Ákureyrar urðu umræður
vegna Framkvæmdasjóðs
Ákureyrar og frumvarps að
fjárhagsáætlun hans. Þórarinn
E. Sveinsson gagnrýndi að
fjárhagsáætlunin skyldi ekki
vera rædd í atyinnumálanefnd
áður eh hún fór fyrir bæjar-
stjórn, auk þess sem fyrirliggj-
andi frumvarp sýndi ekki nema
hluta af heildarstöðu Fram-
kvæmdasjóðs. Sigurður J. Sig-
urðsson, formaður bæjarráðs,
kVaðst á fundinum vel geta
hiigsað sér að breyta vinnu-
regluin varðandi Fram-
kvæmdasjóð.
Þórarinn segir að á meðan
vinnureglan sé sú að atvinnu-
málanefnd eigi að fylgjast með
sjóðnum hljóti menn að verða að
halda sig við þann hátt. Þarna
hafi verið lagt fram yfirlit sem
sýni inn- og útborganir úr sjóðnum
á þessu ári, án þess áð fara fyrst
fyrir atvinnumálanefnd. „í kosn-
■ ingabaráttunni var það eitt af
markmiðum okkar framsókn-
armanna að menn tækju höndum
saman um endurskoðun og átak í
atvinnumálum. Þessi vinnubrögð
finnast mér ekki til þess fallin.
Frumvarpið segir aðeins hálfa
söguna um Framkvæmdasjóð, og
er ekki nema yfirlit um innborg-
anir og útborganir. Það segir
ekkert um stöðuna eða aðrar
skuldbindingar sjóðsins, né gefur
mat á því hvaða tryggingar
standa að baki lánum. Það vantar
heildarstefnu í atvinnumálum,"
segir hann.
Vetraráætlun Arnarflugs:
Fjölgun á ferðum
tíl Blönduóss
Fjölgun verður á ferðum Arnar-
flugs til Blönduóss í vetraráætl-
un miðað við það sem var síð-
asta vetur og í sumar. Ein ferð
á þriðjudögum, Reykjavík-
Blönduós-Siglufjörður, kemur
til viðbótar við ferðir á föstu-
dögum og sunnudögum. Að
sögn Arnarflugsmanna er verið
að vinna markaðinn á Blöndu-
ósi hægt og bítandi.
Ferðir til Siglufjarðar verða
eins og í sumar alla daga vikunnar
og er brottför klukkan 10.00 frá
Reykjavík. Þriðjudagsferðin fer
síðan gegnum Blönduós.
Brottför í ferðir til Blönduóss á
föstudögum og sunnudögum er
klukkan 18.30 frá Reykjavík.
SBG
Akureyri:
Þórsarar halda
afinælisfagnað
í tilefni 75 ára afmælis íþrótta-
félagsins Þórs á Akureyri, verð-
ur haldinn afmælisfagnaður í
Sjallanum laugardaginn 29.
sept. nk.
Húsið verður opnað kl. 19.30
og verður gestum boðið upp á
fordrykk við komuna. Á mat-
seðlinum er glæsileg þríréttuð
máltíð. Að loknu borðhaldi og
einhverjum uppákomum, mun
hljómsveit Ingimars Eydal leika
fyrir dansi af sinni alkunnu snilld.
Forsala aðgöngumiða fer fram
í Hamri á miðvikudag og fimmtu-
dag í næstu viku frá kl. 18-20.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs, sagði í bæjar-
stjórn að sér þætti það vera íhug-
unarefni hvort stjórn Fram-
kvæmdasjóðs ætti að vera hjá
atvinnumálanefnd eða bæjar-
stjórn og bæjarráði. Atvinnu-
málanefnd yrði.-veitt ákveðin
fjárveiting á ári hverju til þeirra
verkefna sem hún teldi náuðsyn-’
legt að vinna í þágu atvinnulífs-
ins. Atvinnumálanefnd hefði þá
tiltekna fjárhæð á ári til aðvinna
úr, en ef nefndin teldi að bærinn
ætti að gerast aðili að einhverju
fyrirtæki með því að kaupa
hlutdbréf, sendi hún erindi um
það til bæjarráðs og bæjarstjórn-
ar, sem tæki ákvörðun, og slíkar
eignir væru þá eignir Fram-
kvæmdasjóðs.
„Fjárhagsá.ætlun sjóðsins, sem
lögð var fram á fundi bæjar-
stjórnar, sýnir tekjur óg skuld-
bindingar han's á yfirstandandi
ári, en ekkert um eignir hans eða
stöðu. .Sjóðurinn fær tekjur í
formi arðgreiðslna fra nokkrunt
fyrirtækjum sem bærinn á hlutafé
í, og vegna sölu eigna og frani-
lags úr bæjarsjóði, sem síðan er
ráðstafað sem hlutafé í öðrum
fyrirtækjum. Einnig er gert grein
fyrir greiðslum til atvinnumála-
nefndar og vegna skulda sem
sjóðurinn hefur stofnaö til. Um
afkomu sjóðsins á síðasta ári vísa
ég til ársréikninga bæjarins." seg-
ir Sigurður.
Hlutafjáraukning Fram-
kvæmdasjóðs á þessu ári er 279
milljónir, þar af.fórU 200 milljón-
ir- í Krossanes, en afgangurinn
aðallega til Ú.A. og Istess.
Heildarvelta var 339 milljónir, og
hefur Framkvæmdasjóður því 60
milljónir til annarrar ráðstöfun-
ar. Fjármagnskostnaður var 15
milljónir, skuld við Akureyrarbæ
17 milljónir, keypt voru hlutabréf
í nokkrum fyrirtækjum, auk þess
sem atvinnumálanefndin er með
þjónustusamning við Iðnþróun-
arfélag Eyjafjarðar o.fl. Samtals
nema þessir liðir um 60 milljón-
um króna. EHB
Nú opnast
ný Sparileið!
Góður kostur fyrir þá sem eru vel á veg
komnir í sparnaði!
Sparileiö 4 býöur hœstu vexti innan Sparileiöanna!
Meö tilliti til þeirrar staöreyndar aö engir tveir sparifjáreigendur eru eins
er Sparileiö 4 í rökréttu framhaldi af öörum Sparileiöum íslandsbanka. Þar bjóöast
hœstu vextir innan Sparileiöanna, enda er féö bundiö í a.m.k. 24 mánuöi.
Reikninaurinn er verötryaaöur oa ber 6% vexti.
Sparileiö 4 býöur vaxtatryggingu á bundiö fé!
Vextirnir eru endurskoöaöir á sex mánaöa fresti. Þaö veitir eigendum
reikninganna ákveöna vaxtatryggingu, því vextirnir haldast óbreyttir í sex
mánuöi í senn.
Sparileiö 4 er opin til úttektar tvo mánuöi á ári!
Sparileiö 4 er einföld og reikningurinn er opinn til úttektar tvo mánuöi á ári,
íjanúarog júlí, svo fremi aö binditími reikningsins sé oröinn a.m.k. 24 mánuöir.
Láttu tímann vinna meö þér og kynntu þér vel nýju Sparileiöina frá
íslandsbanka, Sparileiö 4.
Þú getur hringt eftir leiöarvísi eöa komiö á nœsta afgreiöslustaö
til skrafs og ráöageröa viö starfsfólk bankans.
ISLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma!
Sparileiðir íslatnlsbanka - fyrir fólk setn
fer sínar eigitt leiðir t sparnaði!