Dagur


Dagur - 22.09.1990, Qupperneq 4

Dagur - 22.09.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 22. september 1990 poppsíðan l- Chris Isaak. Vandaður tónlistarmaður. Chris Isaak - Heart Shaped World: Rólegheit og vandvirkni í fyrírrúmi og þetta Morrissey. Fyrstatónleikaferðin eftir áramót. Morrissey Morrissey fyrrum söngvari Man- chestersveitarinnar sálugu The Smiths sendi frá sér nýtt lag á mánudaginn var, 17. september. Heitir lagið Piccadilly Palare og mun verða á safnplötu með eldri A- og B-hliðarlögum söngvarans sem út á að koma í október. Þá er Morrissey farinn aö huga að upptökum á nýrri breiðskífu sem gert er ráð fyrir að komi út í febrúar á næsta ári og herma fregnir að nú þegar hafi kappinn sett á blað um tólf ný lög af því tilefni. I kjölfar nýju breiðskífunn- ar á næsta ári hyggst svo Morr- issey síðan halda í sína fyrstu tónleikaferð á eigin vegum og mun ferðin innihalda eigi færri en tuttugu og sex hljómleika víðs vegar um Bretland og írland. Inspiral Carpets Hér er svo örlítið meira af fólki frá Manchester því fimmmenning- arnir í Inspíral Carpets hafa fyrir allnokkru lokið vinnu í hljóðveri í Surrey. Nánar tiltekið er um að ræða upptöku á fjögurra laga EP plötu sem ráðgert er að komi út í næsta mánuði. New Model Army Nýrokkhljómsveitin ágæta New Model Army er nú komin á fullt skrið eftir nokkurt hlé. Nýtt lag, Get me out var gefið út ekki alls fyrir löngu og þegar þessi orð birtast ætti hin nýja breiðskífa New ModelArmy, Impurily vera rétt í þann mund að koma út ef hún verður það ekki þá þegar. Til að fylgja plötunni eftir fer hljómsveit- in í tónleikaferð um Bretlandseyj- ar og víðar um Evrópu. LLCoolJ Forfallnir Rap/Hip Hop tónlistarað- dáendur mega kætast eigi svolít- ið nú bráðlega því að einn af þeim betri í þeirri tegund tónlist- ar, eftir því sem herma má, LL Cool J, mun senda frá sér nýja plötu nú í seinni hluta septem- ber. Ekki er vitað alveg fyrir víst hvert nafn plötunnar verður en hún hefur gengið undir nafninu Rock the Bells (And I say New York City). INXS Ástralska popp/rokksveitin INXS hefur látið lítið á sér kræla síðan hún sendi frá sér milljónasölu- plötuna Kickánð 1987. Nú þegar þetta birtist ætti hins vegar aö vera komið á markað nýtt lag með hljómsveitinni eða þá rétt óútkomið undir nafninu Suicide Blonde, en það er tekið af nýrri breiðskífu INXS sem kallast ein- faldlega X og er væntanleg innan skamms. Heljarmikil afmælisplata í tilefni þess að fjörutíu ár eru lið- in síðan Elektra hljómplötuútgáf- an var sett á stofn í Bandaríkjun- um, verður þann fyrsta október gefin út heljarmikil afmælisþlata af hálfu útgáfunnar. Munu 38 af þekktustu tónlistarmönnum út- gáfunnar koma fram á plötunni og taka þeir allir lög eftir aðra, í flestum tilfellum, eldri listamenn á vegum útgáfunnar. Sem dæmi um þá sem koma fram á plötunni skal fyrsta telja enga aðra en Sykurmolana okkar íslensku, en þeir taka lag Neil Youngs Motor- cycle Mama, þá má nefna The Cure með lag The Boors Hello I Love You, Tracy Chapman með House of the rising sun (Animals) og Billy Bragg með Loves lagið Seven. Rokkaðri og þyngri tónlist á líka sína fulltrúa og sem dæmi um þá má nefna Georgia Satellites með John Fogerty lagið, Almost Saturday night, Metallica tekur Queenlagið Stone cold crazy og Faster Pussycat kyrja lag Carly Simon. You’re so Vain. Platan kall- ast Rubaiyat og kemur út eins og áður segir fyrsta október. Iron Maiden Breska stórveldið í þungarokkinu Iron Maiden sendir frá sér sína áttundu hljóðversplötu, undir nafninu No prayer for the dying, í október næstkomandi. Á plötunni verða tíu lög og fóru upptökur fram í hljóðveri sem er í eigu bassaleikarans Steve Harris undir dyggri stjórn upptökustjórans Martins Birch. Til að gefa sam- löndum sínum smjörþefinn af því sem koma skal ætlar hljómsveit- in að spila í hinum ýmsu klúbb- um vítt og breitt um landið nú í september, en í desember verð- ur síðan haldið í stóra hljóm- leikaferð til að fylgja plötunni eftir. The Cure eru meðal flytjenda á afmælisplötu Elektra útgáfunnar. Síðan útvarpsrekstur var gefinn I tónlist eða popp skipað stóran frjáls og reyndar þegar Rás 2 sess í lífi okkar íslendinga, varð að veruleika, hefur dægur- | a.m.k. hjá hinni svokölluðu yngri kynslóð. Með tilkomu Rásar 2 (1983 eða 4) varð draumur margra tónlistaráhugamanna, annarra en klassískra, um útvarpsstöð við sitt hæfi að veruleika og ekki voru menn síður ánægðir þegar útvarpsrekstur var gefinn frjáls og tónlistarstöðvarnar byrjuðu að spretta upp eins og gorkúlur með Bylgjuna í fararbroddi árið 1986. En því miður, eins og reyndar fyrir löngu hefur komið í Ijós, hafa þessar stöðvar ekki reynst sá fjölbreytilegi valmöguleiki eins og svo hátt var sungið um í upphafi. í stað fjölbreytilegrar tónlistar hefur uppistaðan af því sem spil- að er verið snögglagað fram- leiðslupopp sem fer inn um ann- að og út um hitt eyrað á fólki. Nú eru væntanlega ekki allir sam- mála umsjónarmanni Poppsíð- unnar og eru sjálfsagt farnir að spyrja hvort þetta hafi ekki átt að vera grein um Chris Isaak, og þar er einmitt komið að því að minn- ast þess að ekkert er svo slæmt að ekki finnist glæta I því, í því Chris Isaak gaf út þriðju plötu sína, Heart Shaped World, í fyrra. A henni er einmitt lagið Wicked Game. minnsta annað slagið. Á Bylgjunni heyrast sem betur fer annað slagið lög sem ná svo hylli og eiga það skilið, með tón- listarmönnum sem eiga það skil- ið, en Chris Isaak er einmitt ánægjulegt dæmi um það. Heart shaped World sem kom út í fyrra, er þriðja plata hans, en á henni er einmitt lagið Wicked Game sem svo mikilla vinsælda hefur notið hér á landi að undanförnu auk lagsins Blue Hotel, en það lag er tekið af annarri plötu Isaaks. Gefa þessi tvö lög góða mynd af Chris Isaak en þau bera vitni um mikla vandvirkni í laga- smíðum enda er raunin sú að Wicked Game er aðeins eitt af stórgóðum lögum á Heart shap- ed World, en það lag ásamt Nothing’s Changed, Blue Span- ish sky og titillaginu verða þó að teljast bestu lögin að vel athug- uðu máli. Sem sagt, tónlist í vandaðri kantinum sem vel mætti spila á kostnað vinsældapopps- ins tilbúna. RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS LAUGAVEGI 13 101 REYKJAVlK BRÉFSlUI NR. 29ÍU SlMI 21320 Auglýsing um forverkefni Rannsóknaráö ríkisins hefur ákveðið að veita styrki til forverkefna er miði að því að kanna forsendur nýrra áhugaverðra rannsókna- og þróunarverkefna. Um slíka styrki geta sótt fyrirtæki, stofnanir og ein- staklingar. Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til röksemdafærslu um tæknilegt og hagrænt mikilvægi verkefnisins og hugmynda um leiðir til að koma niðurstöðum verkefnisins í framkvæmd, ef það skilar jákvæðum árangri. Markmiðið með stuðningi við forverkefni er að kort- leggja betur tæknileg og þróunarleg vandamál og markaðsþörf, svo og forsendur samstarfs, áður en lagt er í umfangsmikil r & þ verkefni, sem hugsan- lega verða styrkt úr Rannsóknasjóði. Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við forverkefni geti numið allt að 500.000,- krónum. Umsóknarfrestur er til 15. október nk. Bautamótið - Tvímenningur BRIDGE Þriðjudaginn 25. sept. hefst Bautamótið sem er þriggja kvölda mót (spilað á þriðjudögum). Spilaður verður tvímenningur með Mitchell fyrirkomulagi. Spilað verður að Hamri (við SkarðshIíð). Skráning fer fram á staðnum og keppendur eru beðnir að mæta tímanlega, spilamermskan hefst kl. 19.30. Upplýsingar í síma 24624 (Ormarr). Öllum er heimil þátttaka í keppnum félagsins. Bridgefélag Akureyrar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.