Dagur - 22.09.1990, Page 17
Laugardagur 22. september 1990 - DAGUR - 17
efst í hugo
Höfðinu lamið
við álsteininn
Á stundum sem þessum er fátt eftir
nema vonin. Og stoltið, þrjóska hins
sauðþráa landsbyggðarmanns. Þjóðar-
sálin grætur og meinhornið blæs en
fréttahaukarnir halda áfram að ryðja út
úr sér örlagadómum. Farmar af rándýrri
olíu og bensíni nálgast landið. ísland
verður fátækasta Evrópuríkiö eftir tíu ár.
Álver verður reist á Keilisnesi. Keilisnes
er besti kosturinn þegar tekið er tillit til
umhverfissjónarmiða. Keilisnes er bla
bla bla. Atvinnuleysi mest á Norðulandi
eystra. Landsbyggðarfólk neyðist til að
flytja til Reykjavíkur eða Svíþjóðar. Ála-
foss er á hausnum. Sambandið í veru-
legum kröggum. Væntanlegt Arnarflugs-
gjaldþrot verður nýtt Hafskipsmál með
tilheyrandi kostnaði. Fiskeldið hrunið.
Allt á hausnum.
Þetta er brot af því heista sem er í
fréttum. Sannarlega upplífgandi tíðindi í
hauströkkrinu. Vextirnir haldast óbreyttir
í hjaðnandi verðbólgu og bankarnir stíga
dans á gjaldföllnum lánum launþega.
Markaðurinn leyfir aðeins þeim „hæf-
ustu“ að lifa af. En öll þessi tíðindi eru
hjóm eitt miðað við það sem mér er efst
í huga á þessari stundu. Þar á ég við
asnaeyru Eyfirðinga, þessi löngu eyru
sem sífellt er verið að toga í.
Hvað er hægt að kalla hegðun eyfirskra
álsinna annað en flónsku ef þeir eru enn
að berja hausnum við steininn þegar
löngu er búið að afskrifa Eyjafjörð sem
fóstru álbræðslunnar? Ef þetta er stað-
reynd, sem mig grunar en veit þó ei, þá
hafa Eyfirðingar verið dregnir á asnaeyr-
unum og uppskera aðeins skömm og
skuidir vegna herkostnaðar. Þessi
kostnaður nemur glettilega mörgum
milljónum og eins og fram hefur komið er
álstarfinu haldið til streitu vegna þess aö
engin boð hafa komið um annað. Af
hverju er aldrei hægt að koma fram af
hreinskilni og taka röggsamar ákvarðan-
ir?
Hér er auðvitað ekki við okkur að sak-
ast sem byggjum blómlegan Eyjafjörð-
inn heldur beinast spjótin að stjórnvöld-
um. Þar er iönaðarráðherra kjörið skot-
mark því honum hefur tekist að humma
álmálið fram af sér líkt og gerðist með
Útvegsbankann. Honum er meinilla við
að taka ákvarðanir, kýs frekar að kjá til
hægri og vinstri og reyna að sannfæra
menn um þá gríðarlegu vinnu sem á að
vera í gangi og að skynsamlegar
ákvarðanir verði teknar o.s.frv. Hrein-
ræktaður kerfiskarl, en hann er þó loks-
ins farinn að viðurkenna aö Keilisnes
virðist koma sterklega til greina.
Nú vill saklaus þolandi í þessu máli
aðeins varpa fram einföldum spurning-
um: Er ekki búið að afskrifa Eyjafjörð? Ef
svo er, má þá ekki stöðva Sigurð P. og
undirbúningsvinnuna fyrir álverið? Hvað
er herkostnaður Eyfirðinga orðinn hár?
Hefði ekki veriö hægt að hafa hann
lægri? Á að friða okkur með einhverjum
dúsum? Hvar er byggðastefna stjórn-
valda?
Læt ég þetta nægja að sinni enda fæ
ég varla að heyra nein svör, aðeins takt-
tast bankiö þegar eyfirskir álkönnuðir
berja hausnum við steininn.
Stefán Sæmundsson.
Fataskápar,
eldhús- og
baðinnréttingar
Gerum föst verðtilboö.
Það borgar sig að líta inn.
Trésmiðjan Tak hf.
Réttarhvammi 3, Akureyri sími 24038.
(Áður Vinkill sf., norðan við Gúmmívinnsluna).
Tilboð óskast í einbýlishúsið
Hvanneyrarbraut 25 á Siglufirði
Húseignin er ein hæö og kjallari aö hálfu, alls 141,1 m2 eöa 426 m3.
Brunabótamat er kr. 3.740.000 og fasteignamat 2.449.000.
Lóðarstærö er 4962 og fylgir önnur samliggjandi byggingarlóð
aö stærð 312 m2, alls 808 m2.
Kauptilboö þar sem getið er um útborgun, greiösluáætlun o.fl.
sendist til Haröar S. Óskarssonar, Glaöheimum 10,
104 Reykjavík fyrir 1. nóv. 1990.
Tilboösblöö fást hjá ofanrituðum og Magöalenu Hallsdóttur
Fossvegi 8, 580 Siglufiröi
sem jafnframt sýnir tilboöshöfum eignina ef þess er óskaö.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 91-82806.
Eigendur.
vísnaþóttur
Kjartan Ólafsson kvað:
Sólarblíða Ijósið Ijómar
Iéttir kvíða ár og síð.
Söngvaþýðir þagna bljómar
þegar líður sumartíð.
Næstu vísur kvað Guðni Þor-
steinsson:
Á vormorgni:
Sunnangolan sólu frá
sveiflar léttum skýjum.
Við skulum fara fætur á,
fagna degi nýjum.
Lífsins rennur lukkuhjól.
Ljúft er vorsins gengi
þegar blessuð sumarsól
signir tún og engi.
Haustvísa:
Lengur ekki greint ég get
glöðu sumarkvöldin.
Eitt er víst, að haust og hret
hafa tekið völdin.
Guðbjörg Illugadóttir kvað
til manns er sleit ástarsam-
bandi þeirra:
Farðu í víti, för sé skjót,
falsi og lýtum hlaðinn.
Ekki sýti ég þig hót,
annan hlýt í staðinn.
Hjörleifur Kristinsson á Gils-
bakka kvað þessa á morgni
nýársdags:
Birtist drengjum drottins mynd
dags er lengist skíman.
Nú má enginn sofa í synd
um sjálfan fengitímann.
Daníel Kristinsson frá Ker-
hóli í Sölvadal kvað:
Hnossið.
Vænsta hnossið veitist mér
von mér hossa tekur.
Meyjarkossinn unun er
ástarblossa vekur.
Ástarþorsti.
Vorsins hreina vonin dvín,
versnar meina hringur.
Nú er eina ástin mín
orðin steingjörvingur.
Máttur trúarinnar.
Trúin fögur helg og hrein
háleit leiðarstjarna.
Lífs í skuggum mýkir mein
margra jarðarbarna.
Næsta vísa kom upp þegar
Pétur Jónsson ráðherra dó.
Var hún eignuð Indriða á
Fjalli:
Er fréttist lát hins mæta manns
margur hygg ég spyrji svo:
Fyrst Guð tók einn úr
óstjórn lands
á þá fjandinn hina tvo?
Þegar Tómas Guðmundsson
skáld dó, urðu þessar heima-
gerðu vísur til:
Upp rann skáld á Efri-Brú,
óx við störf, sem ég og þú.
Lifði meir við brag en bú
brýndur fólksins von og trú.
Hann varð skáldsem ísland ann.
Yndislegri gat ei mann.
Hann í öllu fegurð fann.
Fjöldinn dáði meistarann.
Menntagyðjan bar á braut
bjartan svein, er henni laut.
Borgin glæsta heilla hlaut
hamingjunnar förunaut.
Tómas dó í himins hyl.
Hans ég sakna mun og vil.
Síðan engin skáld ég skil.
- Skyldu þau annars nokkur til?
Hallgrímur Jónasson skóla-
stjóri og fjallaferðamaður
nefnir eftirfarandi vísur sínar
Landið kallar.
Opnast fangið fjallabreiða.
Flytur angan blærinn þýði,
og mig langar upp til heiða,
út úr ganga vetrarhýði.
Hróðrardísin hugann temur,
háttinn kýs, ogmjögað vonum.
Önnur vísa á eftir kemur.
Óður rís í hendingonum.
Skauta tindar, svartir sýnum
silfurlindum vetrarfanna.
Nú skal binda í bragarlínum
bjartar myndir öræfanna.
Landið kallar: „Komdu glaður.
Klífðu hjalla að skapi þínu.
Pú ert allur annar maður
inni í fjallaríki mínu. “
Tindarlykja um vatn og völlu.
Vorsins slikju hjúpuð storðin.
Sólarblik er yfir öllu.
Öldukvik við jökulsporðinn.
Par sem lóa lítil syngur
létt í mó, um vor og drauma,
eitt sinn bjó hér íslendingur.
Æskan hló við Tjarárstrauma.
Hlíðar gyllti. Vorið vakti.
Vinda stillti. Greri haginn.
Svanur villtur sönginn rakti.
Sólinn fyllti gamla bæinn.
Týndra daga kjörum kropinn,
kvaddi hagann þreytulotinn.
Bóndans saga er engum opin,
aðeins baga um tóftarbrotin.
Á AKUREYRI
Almenn namskeið
Myndlistaskolans á Akureyri
3. oktober til 21. janúar.
Barna- og unglinganámskeið
Teiknun og málun.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 6-8 ára. Tvisvar í viku.
4. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 9-10 ára. Einu sinni í viku.
6. fl. 11-12 ára: Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku.
Kvöldnamskeið fyrir fullorðna
Teiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun
í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00
virka daga.
Skólastjóri.