Dagur - 22.09.1990, Blaðsíða 18

Dagur - 22.09.1990, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 22. september 1990 I kýrhausnum — gamansögur, sannar og uppdiktaðar Stjórnmálaumræður Eitt sinn var sjálfstæðismaður að halda ræðu á framboðsfundi úti á landi. Eitthvað gekk þetta brösugiega því einn fundargesta gjammaði stöðugt fram í og kall- aði: - Ég er framsóknarmaður. Að lokum fannst frambjóð- andanum nóg komið af svo góðu. Hann sneri sér til mannsins og spurði vingjarnlega: - Minn góði maður, hvers vegna eruð þér eiginlega fram- sóknarmaður? Pað væri gaman að heyra það. - Jú, afi minn var framsóknar- maður, pabbi minn var fram- sóknarmaður og þess vegna er ég líka framsóknarmaður, svaraði maðurinn. - Jæja kunningi, sagði sjálf- stæðismaðurinn drjúgur, en ef við gerðum nú ráð fyrir því til gamans að afi yðar hefði verið asni og faðir yðar hefði verið asni, hvað mynduð þér þá vera? Frambjóðandinn taldi sig nú hafa gert manninn hlægilegan, en þá kom svarið: - Nú, þá væri ég auðvitað sjálfstæðismaður. Þessir heimspekingar Friedrich Hegel (1770-1831) var þýskur heimspekingur og hugs- uður, einn af þeim mestu sem uppi hafa verið, en hann var heldur ekki eins og fólk er flest fremur en margir andans menn aðrir. Eitt sinn kom þjónn æðándi inn á skrifstofu Hegels og til- kynnti að kviknað væri í húsinu. Hegel leit upp annars hugar og sagði: - Nú, segðu konunni minni það. Þú ættir nú að vita það að ég hef engan andskotans tíma til að skipta mér að því sem gerist hér í húsinu. Að svo mæltu hélt Hegel áfram að skrifa. Skömmu fyrir andlát sitt sagði Hegel: - Það er aðeins einn af hinum fjölmörgu nemendum mínum sem hefur skilið mig - og hann skildi mig ekki rétt. Max Reger Næst koma hér nokkrar sögur af þýska tónskáldinu Max Reger (1873-1916). Max Reger lék einu sinni á hljómleikum Silungakvintettinn eftir Schubert. Daginn eftir sendi einn hrifinn áheyrandi honum nokkra ljómandi fallega silunga í matinn. Reger settist strax við að skrifa þakkarbréf og neðst á örk- ina skrifaði hann þessar upplýs- ingar: - Á næstu tónleikum leik ég Nautamenúettinn eftir Haydn. Hefðarfrú nokkur var viðstödd á hljómleikunum er Böcklinsvít- an eftir Max Reger var leikin í fyrsta sinn opinberlega. Tónverk- ið hafði mikil áhrif á frúna og hún hafði einkum lagt eyrun að tón- um eins hljóðfærisins, fagottsins. Hún spurði tónskáldið að hljóm- leikunum loknum hvernig þessir furðutónar sem kæmu frá fagott- inu yrðu eiginlega til. - Mynda mennirnir tónana með munninum? spurði hún. Max Reger leit sem snöggvast undrandi á frúna, glotti svo og sagði með alvöruþunga: - Það vona ég að minnsta kosti. Sagnbeyging George-Jacques Danton (1759^ 1794) var einn af helstu foringj- um stjórnarbyltingarinnar í Frakklandi en annar byltingar- fo' 'ngi, Robspierre, lét háls- höggva hann. Daginn fyrir aftökuna sat Danton í fangelsinu og var þungt hugsi. Annar fangi spurði hann hvað hann væri að hugsa um, hvort hann væri að brjóta til mergjar einhverja gátu lífsins. - Nei, ansaði Danton, ég er að fást við málfræðilegt verkefni. - Málfræðilegt. Hvernig stendur á því? - Jú, sjáðu til, ég er að hugsa um sögnina að hálshöggva. Hún beygist reyndar ekki eins og aðr- ar sagnir. Ég get sagt: Ég háls- hegg og ég mun verða hálshöggv- inn - en ekki: Ég hef verið háls- höggvinn. SS tók saman Hörpuútgáfan: Leiftur frá liðn- um árum I-III - í nýrri útgáfu Hörpuútgáfan hefur endurútgef- ið í sérstakri gjafaöskju bóka- flokkinn „Leiftur frá liðnum árum“ þrjár bækur, samtals 620 bls. Safnað hefur Jón Kr. ísfeld. í safni þessu eru fjölbreyttar frásagnir af fólki og atburðum frá öllum landshlutum. Birtur er margháttaður þjóðlegur fróðleik- ur. Sagt er frá reimleikum, dul- rænum atburðum, skyggnu fólki, skipsströndum, skaðaveðrum, sérstæðum hjúskaparmálum o.fl. Filmuvinna, prentun og bók- band ér unnið í Odda hf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.