Dagur - 22.09.1990, Side 20
Togarinn Hafþór:
Fær Dögun hf. skipið?
IHa virðist ganga að koma Haf-
þóri, skipi Hafrannsókna-
stofnunar, út því að svo virðist
vera að Ljósavík hf., útgerð
Gissurar AR í Þorlákshöfn,
sem átti annað hæsta tilboðið
nái því ekki. Samkvæmt heim-
ildum Dags verður Dögun hf.
á Sauðárkróki boðið skipið í
næstu viku, en hún var með
þriðja hæsta tilboðið.
Hæsta tilboðið í Hafþór átti
Ingólfur Vestmann Ingólfsson í
Hafnarfirði, en hann stóðst ekki
skilmáia sjávarútvegsráðuneytis-
ins og þá var röðin komin að
Ljósavík hf. Ljósavíkurmenn
hafa frest fram á mánudag til að
samþykkja skilmálana, en ekki er
reiknað með jákvæðu svari frá
þeim svo Dögun hf. er næst í röð-
inni og fær málið trúlega til
umfjöllunar í næstu viku. SBG
Lífeyrismál á Norðurlandi:
Aukaþing í nóvember
- fundaherferð um málið í október
Ákveðið er að boða tii auka-
þings Alþýðusambands Norð-
urlands um lífeyrissjóðsmál
fyrrihluta nóvembermánaðar.
Fyrir þann tíma skal lokið
fundum um allt Norðurland,
þar sem leitað verður álits
manna á hugsanlegri stofnun
sameiginlegs lífeyrissjóðs fyrir
Norðurland eða annarra breyt-
inga á núverandi fyrirkomulagi
lífeyrismála í fjórðungnum.
Að sögn Kára Arnórs Kára-
Komandi
alþingiskosningar:
Sjátfstæðismeim
ræða framboð
Sjálfstæðisflokkurinn í Norður-
landskjördæmi eystra hefur
boðað til fundar kjördæmis-
ráðs í dag þar sem ræða á
framboð flokksins í kjördæm-
inu fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Þar verður ákveðið
hvort efnt verður til prófkjörs
eða hvort uppstillingarnefnd
verður skipuð til að setja sam-
an lista.
Líklegt þykir að Halldór
Blöndal skipi áfram efsta sæti
listans og að Tómas Ingi Olrich
skipi annað sætið en hann var í
þriðja sæti listans í síðustu kosn-
ingum til Alþingis. Meiri vanga-
veltur eru um skipan í þriðja sæt-
ið en eitt nafn hefur þó verið
nefnt til sögunnar en það er nafn
Friðriks Friðrikssonar, spari-
sjóðsstjóra á Dalvík. JÓH
sonar, formanns nefndar sem
skipuð var til að fara ofan í saum-
ana á stofnun eins sameiginlegs
lífeyrissjóðs fyrir Norðurland,
verður tímasetning funda um
þessi mál í fjórðungnum væntan-
lega ákveðin á fundi nk. mánu-
dag. Hann segir að ætlunin
hafi verið að hafa þessa fundi í
þessum mánuði, en af ýmsum
sökum hafi það tafist og íjóst sé
að af þeim verði ekki fyrr en t
október. Kári Arnór segir ekki
endanlega ákveðið hvar efnt
verði til funda um lífeyrissjóðs-
málin, en reiknað sé með fundum
á Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkróki og Siglufirði í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Líkur eru á tveim fundum í Eyja-
firði og tveim til fjórum fundum í
Þingeyjarsýslum.
„Þessum fundum á að vera lok-
ið fyrir októberlok og miðað við
að aukaþing verði í byrjun eða að
minnsta kosti fyrir miðjan
nóvember," sagði Kári Arnór.
„Menn verða að fara að taka
afstöðu til málsins. Sumir hafa
viljað fresta ákvörðunartöku
þangað til að Alþingi hefur fjall-
að um fyrirliggjandi frumvarp um
lífeyrissjóðsmálin og byggja nýja
sjóðinn á ýtví. Ég er ekki á þeirri
skoðun. Ég tel að hvort eð væri
yrði ekki af stofnun sameiginlegs
lífeyrissjóðs fyrr en í árslok
1991," sagði Kári Arnór. Hann
sagðist vera sannfærður um að
innan tíðar yrði mikil uppstokk-
un á lífeyrissjóðskerfinu á
Norðurlandi. Spurningin væri
hvort í henni fælist stofnun eins
lífeyrissjóðs fyrir allt Norðurland
eða hvort breytingin yrði með
einhverjum öðrunt hætti. óþh
Nú fer að „vora“ á ný:
,AUt fer batnandi úr þessu“
- segir Magnús Jónsson, veðurfræðingur
„Heldur er nú skárra útlit því
hann er nú að færast úr snjó-
komunni yfir í rigninguna,“
sagði Magnús Jónsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu
íslands þegar hann var spurður
um helgarveðrið.
Sumarið er ekki alveg búið ef
marka má framtíðarspá Magnús-
ar. Hann segir að í dag og í nótt
muni rigna víða á Norðurlandi og
vart þurfi að fara hátt í fjöll til að
komast í snjókomu. Hins vegar
reiknar hann með úrkomulausu
veðri á morgun og um 5 stiga
hita.
„Já, hann er að ganga niður úr
þessu veðri sem verið hefur síð-
ustu daga. Nú um helgina verður
norðanátt ríkjandi en á mánudag
má búast við hægviðri og góða
von hef ég um að þessi hvellur sé
að baki því teikn eru á lofti um
að í næstu viku geti farið að snú-
ast til sunnanáttar. Það er allt
batnandi úr þessu," segir
Magnús. JOH
Á krabbafundi.
Mynd: KL
Jarðgangagerðin í Ólafsfjarðarmúla:
Biðstaða síðustu daga vegna veðurs
- starfsmenn Borgarverks munu leggja slitlag á
2,7 km vegkafla í næstu viku
„Þaö má eiginlega segja að
vegna veðurs hafi verið bið-
staða hér undanfarna daga,“
sagði Tryggvi Jónsson, staðar-
stjóri Krafttaks sf. við jarð-
gangagerðina í Olafsfjarðar-
múla, í samtali við Dag í gær.
Ætlunin var að vinnuflokkur
frá Borgarverki í Reykjavík
kæmi norður í upphafi vikunnar
og ynni við að leggja slitlag á 2,7
km vegkafla beggja vegna Ólafs-
fjarðarmúlans. Frá þessu var
horfið vegna slæmrar veðurspár.
„Þeir bíða eftir því að komast
hingað og ráðast í þetta verk.
Úr þessu verður vart byrjað á
slitlaginu fyrr en í næstu viku,"
sagði Tryggvi.
Aðrir verkþættir við gerð
Múlaganganna eru á lokastigi.
Fjölnismenn hafa lokið við bygg-
ingu vegskálans Dalvíkurmegin
og eru að flytja í burtu sín tæki
og tól. Eftir er að fylla að veg-
skálanum og annast Krafttaks-
menn það.
Þá er eftir að malbika sjálf
göngin og verður sá verkþáttur í
höndum Króksverks. Reiknað er
með að hefja malbikun í kringum
10. október.
Eins og fram hefur komið í
Degi er lokið við að setja upp
gúmmíklæðningu innan í göngin
og að mestu eru lokið við dren-
lögnina í gangagólfið.
„Eftir að malbikun ganganna
lýkur eigum við eftir að setja upp
kapalstiga inn í göngin. Við höfð-
um áætlað það fjögurra vikna
verk, en það verður að líkindum
meira. En við erum enn að gera
okkur vonir um að verkinu Ijúki
endanlega um mánaðamótin
nóvember-desember," sagði
Tryggvi.
Gert er ráð fyrir að Krafttak
flytji starfsmannahús og öll tæki
og tól sem notuð hafa verið við
gangagerðina af svæðinu næsta
vor. óþh
Húsnæðisskortur á Sauðárkróki:
„Frumþörf sem verður að leysa“
- segir Jón Karlsson
„Það virðist vera nokkuð Ijóst
að þörfín fyrir félagslegt hús-
næði er mjög mikil og aðsókn í
það er líka frá fólki í þokka-
legu starfí með þokkalegar
tekjur. Þetta er frumþörf sem
verður að leysa og reynslan
sýnir að það verður að vera
samfélagið sem þar kemur til,“
segir Jón Karlsson, formaður
húsnæðisnefndar á Sauðár-
króki.
Að sögn Jóns er skortur á leigu-
húsnæði á Sauðárkróki þessa
stundina og eftirspurn eftir
félagslegum t'búðum mikil, en
þær eru nú orðnar á annað
hundrað. Hann segir að þá álykt-
un megi draga af því að fólkið
sem sækir um félagslegu íbúðirn-
ar myndi taka leiguhúsnæði ef
það væri á viðráðanlegu verði.
Sagðist Jón hafa heyrt um leigu
yfir 30 þús. krónur á mánuði fyrir
þriggja herbergja íbúð. Núna
liggja fyrir um 20 umsóknir í 15
félagslegar íbúðir sem byggingu
er að verða lokið á.
Jón segir að alltaf sé einhver
hreyfing í flutningi fólks úr
félagslegum íbúðum í eitthvað
stærra, þrátt fyrir samdrátt í ein-
býlishúsbyggingum.
„Lausnir á þessu eru e.t.v.
ekki í sjónmáli, en í lagakafla um
félagslegt húsnæði sem samþykkt
voru á síðasta þingi liggja eins-
konar lausnir. Þar er gert ráð fyr-
ir mun meiri afskiptum sveitar-
Stefnt er að því að taka ein-
angrunarstöð gæludýra í Hrís-
ey í notkun á næsta ári. Brynj-
ólfur Sandholt, yfírdýralækn-
ir, segir að vegna fjárskorts
hafí verkið tafíst nokkuð en nú
sé við það miðað að gera húsið
tilbúið undir tréverk fyrir vet-
urinn og því ætti að vera unnt
að taka það í notkun á næsta
ári.
félaganna af þessum félagslegu
byggingum og þ.á m. byggingu
leiguhúsnæðis fyrir þá sem ekki
hafa bolmagn til að kaupa sig inn
í félagslega kerfið. Þetta gerist
auðvitað ekki einn, tveir og þrír,
en þarna er þó kominn skýrari
lagabókstafur um þessi mál en
áður var," sagði Jón að lokum.
Til verksins fengust aðeins 800
þúsund krónur á fjárlögunt árið
1989 og sama upphæð á yfir-
standandi ári. Yfirdýralæknir
segir að fengist hafi leyfi til lán-
töku til að halda áfram við bygg-
inguna. Hann sagði að stefnt væri
að því að taka hana í notkun á
næsta ári, enda væri þörfin fyrir
hana mikil og vaxandi.
SBG
Einangrunarstöð gæludýra í Hrísey:
í notkun á næsta ári