Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 27. september 1990 fréttir h Bæjarstjórn Húsavíkur: Nýr bæjarstjóri á fyrsta firndi Fyrsti fundur bæjarstjórnar Húsavíkur að afloknu sumar- leyfi og sá fyrsti með nýjum bæjarstjóra, Einari Njálssyni, var haldinn sl. þriðjudag. Bæjarfulltrúar buðu bæjar- stjóra velkominn til starfa og sögðust vænta góðs samstarfs við hann. Fyrsta málið sem tekið var fyr- ir á fundinum var samningur við menntamálaráðuneytið vegna framkvæmda við Framhaldsskól- ann. Verið er að byggja við barna- skólahúsið til að þar skapist nægilegt rými fyrir grunnskóla- nemendur og Framhaldsskólinn fái gagnfræðaskólahúsið óskipt. Mjög brýnt er að báðir skólarnir fái aukið rými til kennslu, og að bygging þessi komist í gagnið sem fyrst. Mun ríkið greiða 60% kostnaðar við framkvæmdina en bærinn 40%, en ríki og bær munu síðan verða taldir eigendur að jöfnu. Samningurinn var sam- þykktur samhljóða í bæjarstjórn eftir nokkrar umræður. Næsta mál sem afgreiðslu hlaut var veghefilsendurnýjun tækni- deildar. Bæjarráð samþykkti í sumar að taka tilboði Merkur hf. um kaup á veghefli af gerðinni Aveling Barford árg. ’82. Skyldi hann koma í stað gamals og bilanagjarns hefils sem þó mætti að einhverju leyti nota sem vara- hluti í þann ,iýja. Kaupverð hefilsins var fjórar milljónir og var hann talinn í allgóðu standi. Bæjarstjóra barst fyrirspurn frá minnihlutanum um hvort hið nýkeypta tæki reyndist ekki standa undir þeim vonum sem menn hefðu gert sér um ástand þess. Útskýrði bæjarstjóri fyrir bæjarstjórn lagfæringar sem gerðar voru á gírkassa og rafkerfi hefilsins, sem ætti að vera í góðu lagi þegar lokið yrði við að styrkja framhluta hans svo hann bæri nógu veigamikla tönn til snjómoksturs á Flúsavík. Sagði bæjarstjóri að hefillinn ætti að Vikutilboð 27. sept. til 3.okt. Tesco tannkrem 125 ml ............ 96,00 Tesco servíettur 100 stk.......... 143,00 Bounty mini súkkulaði 300 g ...... 125,50 Fourre súkkul. kremkex 250 g ..... 91,50 Tesco kartöflumús 454 g .......... 236,50 Tesco hrísgrjón 4x125 g .......... 113,50 Tesco kornmatarolía 1 I .......... 114,00 Tesco shampo 500 ml, 5 teg........ 140,00 Tesco Bran morgunverður 750 g .... 219,50 Tesco hafragrjón 1 kg ............ 97,50 Tesco Premium hundamatur 395 g ... 49,50 Tesco kattasandur 12 kg .......... 594,50 Paloma WC pappír 4 rúllur ........ 96,50 Paloma WC pappír 8 rúllur .......... 188,00 Paloma WC pappír 10 rúllur ......... 199,50 Stórglæsilegt tilboð! Londonlamb ..................... 897 kr. kg Hangilæri úrbeinað ........... 1.195 kr. kg Reykt rúllupylsa ............... 322 kr. kg Kjötbúðingur ................... 494 kr. kg Ömmu saltkjötfars .............. 351 kr. kg Skinkuálegg .................. 1.338 kr. kg Frosnir fiskborgarar ........... 524 kr. kg Lambasaltkjöt í fötu ........... 471 kr. kg Folaldasaltkjöt í fötu ......... 329 kr. kg Hrossasaltkjöt í fötu .......... 262 kr. kg Pampers bleiur ................... 1.194,50 Scan ble bleiur .................. 618,50 Ryvita hrökkbrauð 250 g ............. 69,00 Haust hafrakex ............... 107,00 Alma saltstangir 200 g ............. 53,00 Kristjáns tvíbökur ................ 99,00 Hjá okkur færðu skjótari og öruggari afgreiðslu vegna hins nýja strikamerkjakerfis. Lægra vöruverð. Lambakjöt á lágmarksverði Opið mánud.-föstud. 10.30-18.30 Laugard. 10.00-14.00 □ MARKAÐUR FJÖLNISGÖTU 4b hafa nokkuð mikið vélarafl. Voru káupin að lokum samþykkt samhljóða í bæjarstjórninni. Fyrirspurn barst frá minnihluta um starfsemi Svarthamars hf. en aðalfundur fiskeldisfélagsins var haldinn í lok ágúst. Forseti bæjarstjórnar, Þorvaldur Vest- mann Magnússon sagði að fyrir- tækið væri að snúa sér meira að matfiskeldi en seiðaeldi. Fyrir- hugað væri að framleiða um 40 tonn af bleikju á næsta ári og um 70 tonn árið 1992. Samhliða þeirri framleiðsu væri hægt að framleiða um 100 þúsund laxa- seiði í stöðinni, en sú framleiðsla færi eftir hver markaður yrði fyrir seiði. í vor keypti Framkvæmda- lánasjóður íslands hf. húsin af þrotabú Fiskeldis hf. Svartham- ar leigir húsin en stendur til boða að kaupa þau. Ráðningarsamningur við Einar Njálsson, bæjarstjóra, var lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Jón Ásberg Salómonsson ræddi um að uppsagnarákvæði væri ekki til staðar í samningnum, bar hann fram tillögu þess efnis að því yrði bætt við og taldi vöntun þess geta komið sér illa fyrir báða samningsaðila. Samningnum var vísað aftur til bæjarráðs sam- kvæmt tillögu Bjarna Aðalgeirs- sonar. IM Viðbygging Hagkaups á Akureyri: Formleg opnun verður 7. mars á næsta ári Þórhalla Þórhallsdóttir, versl- unarstjóri í Hagkaupi á Akur- eyri, segir að stefnt sé að því að viðbygging við verslunina verði tekin í notkun þann 7. mars á næsta ári. Nú er verið að einangra viðbygginguna að utan. Þórhalla segir að hér sé um að ræða stækkun við þá verslun sem nú er auk þess sem lager verslun- arinnar fær hluta af nýbygging- unni. Ekki mun vera ætlunin að setja upp nýjar deildir í verslun- inni með tilkomu nýja hússins en þó verður sú nýbreytni tekin upp að ný brauð verða afgreidd yfir borð auk þess sem sett verður upp kjötborð í versluninni. „Fyrst og fremst er þetta aukn- ing við það pláss sem við erum með í dag. Stefnan er ekki sú að fjölga vöruflokkum heldur mun rýmkast á því sem við höfum fyrir,“ segir Þórhalla. Með tilkomu viðbótarhúsnæð- isins verður skipulaginu í gömlu versluninni breytt og þá um leið verður lítilsháttar breyting gerð á inngangi í verslunina. JÓH Kaffitería og lengri opnunartími í matvöruverslun þriggja kvenna á Hauganesi: „Fólk er greinilega mjög ánægt“ - segir Soffía Ragnarsdóttir, ein verslunarkvennanna Eins og fram kom í Degi í gær hafa þrjár konur á Hauganesi tekið verslunarhúsnæði Kaup- félags Eyfirðinga á staðnum á leigu til eins árs frá 1. október nk. Konurnar þrjár, Sofíía Ragnarsdóttir, Soffía Jóns- dóttir og Björk Brjánsdóttir hyggjast opna búðina með nýj- um vörum einhvern tímann í næstu viku. Verslunin verður afhent leigu- tökum um helgina og þá verður hafist handa um að endurnýja lager verslunarinnar og lagfæra það sem þarf að lagfæra. Að sögn Soffíu Ragnarsdóttur er ætlunin að hafa litla kaffiteríu í verslun- inni og þá segir hún að a.m.k. í byrjun verði áhersla lögð á mat- vöruverslun og meðal annars sé ætlunin að hafa bæði frosnar og nýjar kjötvörur í kæliborði. í ljós komi hvort síðar verði boðið upp á fleiri tegundir vara, s.s. ný- lenduvörur. „Fólk er greinilega mjög ánægt með að hér verði áfram rekin verslun,“ sagði Soffía. Þær stöllur hyggjast skipta með sér afgreiðslustörfum og allri vinnu við verslunarreksturinn. Opið verður alla virka daga og þá er ákveðið að hafa opið um helg- ar og á kvöldin. Til stendur að Keramikverk- stæði Kolbrúnar Ólafsdóttur á Hauganesi flytji í kjallara versl- unarinnar, en að sögn Soffíu þurfa þær ekki á honum að halda til viðbótar rúmlega 200 fermetra verslunarhúsnæði á jarðhæð. óþh Hestamannafélagið Léttir: Unglingaráð efnir til ferðar í Laufskálarétt „Áhugi unglinga fyrir hestum og hestamennsku hefur stór- aukist ár frá ári og unglingaráð hestamannafélagsins Léttis var stofnað til að mæta þessum áhuga,“ sagði Guðrún Hall- grímsdóttir í stjórn unglinga- ráðsins. Þann 6. október n.k. verður efnt til ferðar á vegum ráðsins fyrir unglinga í Lauf- skálarétt og að Hólum í Hjaltadal. Að sögn Guðrúnar er Lauf- skálaréttin í Skagafirði ein þekkt- asta stóðrétt landsins, en þar verður réttað 6. október. Ungl- ingaráð hestamannafélagsins Léttis efnir til rútuferðar í réttina fyrir unglinga, en alltaf þykir nokkur ljómi yfir stóðréttinni í Húsavík: Sjúkrahúsbyggingin 20 ára Á þessu ári eru 20 ár liðin síðan Sjúkrahúsið í Húsavík sf. flutti í núverandi húsnæði. Af því tilefni hefur stjórn sjúkrahússins ákveðið að minnast þessara tímamóta. Þann 6. október næstkomandi verður stofnunin opin almenningi milli kl. 14 og 18. Þá gefst öllum kostur á að skoða húsið og kynn- ast starfseminni þar. (Fréttatilkynning.) Hjaltadalnum. Þangað kemur fólk hvaðanæva af landinu og oft er talað um Laufskálaréttina sem Mekka hestamannsins. Mikill fjöldi hrossa kemur á réttina og margur hestamaðurinn hefur eignast gæðinginn sinn þarna enda er úrval hrossa oftast mikið. í leiðinni er ætlunin að heim- sækja Bændaskólann á Hólum og skoða aðstöðuna þar, en mikið uppbyggingarstarf hefur verið unnið á Hólum í sambandi við hestahald og kennslu í hesta- mennsku. „Við þurfum að fá að vita um þátttöku sem allra fyrst til að vita hve stóra rútu þarf að panta og hver kostnaðurinn verður. Því fleiri sem fara þeim mun ódýrara verður fyrir hvern og einn,“ sagði Guðrún Hallgrímsdóttir í hesta- miðstöðinni Jórunni í Breiðholti ofan Akureyrar. ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.