Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 27. september 1990 íþróttir íslendingar náðu sér aldrei á strik í Kosice töpuðu 0:1 fyrir Tékkum íslendingar biðu ósigur í sínum þriðja leik í undankeppni Evrópukeppninnar í knatt- spyrnu í gær. Að þessu sinni var leikið gegn Tékkum í Kos- ice í Tékkósióvakíu og lauk viðureigninni með 1:0 sigri heimamanna. Það var Danek, sóknarmaðurinn hættulegi, sem skoraði eina mark leiksins Handknattleikur: Alfreð í heimsliðið Alfreð Gíslason hefur verið valinn í heimsliðið í handknatt- leik. Hann mun leika með lið- inu gegn úrvalsliðið Norður- landa í Gautaborg 8. janúar nk. en leikurinn verður háður í tilefni 60 ára afmælis sænska handknattleikssambandsins. DV greindi frá þessu í gær. Þetta er mikill heiður fyrir Alfreð en hann er fjórði íslendingurinn sem er valinn í heimslið í hand- knattleik. Alfreð hefur um árabil verið einn sterkasti handknatt- leiksmaður íslands, lék lengi með þýska liðinu Essen en leikur nú með spænska liðinu Bidasoa. Alfreð Gíslpson. Mannabreyt- ingar hjá IF Markús Einarsson, útbreiðslu- og fræðslufulltrúi hjá íþróttasam- bandi fatlaðra, hefur sagt upp störfum hjá sambandinu eftir 10 ára farsælt starf og hafið nám við íþróttaháskólann í Ósló. Fram-| kvæmdastjóri íþróttasambands fatlaðra í hálfu starfi, Ólafur Magnússon, hefur fengið árs orlof frá störfum og stundar nú nám við íþróttaháskólann í Kaupmannahöfn. Stjórn ÍF hefur ráðið Önnu Karólínu Vilhjálms- dóttur til starfa i stað Markúsar en hún mun einnig gegna starfi framkvæmdastjóra í fjarveru Ólafs. Leiðrétting í síðasta föstudagsblaði var frétt um blakmenn og þar var Stefán Jóhannesson sagður Jóha-nsson. Er beðist velvirðingar á því. í lok fyrri hálfleiks en Tékkar höfðu þá sótt nánast án afláts frá því flautað var til leiks. íslendingar áttu reyndar tvær fyrstu sóknir leiksins en þær voru hættulitlar og innan skamms höfðu Tékkar náð úndirtökun- um. Hver stórsóknin rak aðra og það var sterkri íslenskri vörn og Bjarna Sigurðssyni, markverði, að pdkka að þeir náðu ekki for- ystunni fyrr. Reyndar fengu Tékkar ekki nema eitt verulega hættulegt færi, þegar Skurhavy slapp úr annars ágætri gæslu Atla Eðvaldssonar, fyrirliða íslenska liðsins, en Bjarni varði vel skalla hans úr góðu færi. Tékkar beittu langskotum óspart og voru ná- lægt því að skora um miðjan fyrri hálfleik þegar þeir áttu eitt slíkt beint úr aukaspyrnu en Bjarni náði að slá boltann í þverslána og yfir. Undir lok hálfleiksins virtust íslendingar vera að rétta aðeins úr kútnum en Tékkar skoruðu samt sem áður á 43. mínútu. Bilek sendi þá fallega sendingu af vinstri vængnum inn í vítateig íslendinga og þar stakk Danek sér inn á milli varnarmannanna og skoraði með laglegum skalla. í seinni hálfleik komust íslend- ingar meira inn í leikinn en sókn- arlotur þeirra voru heldur hættu- litlar og a.m.k. tvívegis voru Tékkar nálægt því að bæta við mörkum. Þau urðu þó ekki fleiri og ættu íslendingar að geta unað vel við þessi úrslit, a.rn.k. miðað við gang leiksins. íslenska liðið náði sér aldrei á strik í þessum leik. Fyrri hálf- leikurinn minnti um margt á fyrri hálfleikinn gegn Frökkum á dögunum. í stað þess að reyna að halda boltanum og spila honum var spilaður stórkarlalegur varn- arleikur þar sem boltanum var þrumað fram ef hann nálgaðist íslenska fæiur. í seinni hálfleik var meira gert til að halda boltan- um og það gekk strax betur. Þó komst íslenska liðið lítið áleiðis enda virtist oft meira hugsað um menn en boltann. Tékkar eru með léttleikandi og skemmtilegt lið og styrkleiki þeirra þarf ekki að koma á óvart eftir Heimsmeistarakeppnina. Verða þeir án efa í baráttunni um efsta sætið í riðlinum. Hans Guðmundsson átti stórleik gegn Fram og skoraði 11 mörk. Mynd: kl Handknattleikur, 1. deild: KA hafði Fram á lokasprettinum KA vann sinn annan sigur í röö á íslandsmótinu í handknatt- leik þegar liðið lagði Fram í íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 24:17 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 11:10, KA í vil. Framarar byrjuðu vel og skoruðu 4 fyrstu mörk leiksins. KA-menn vöknuðu þá til lífsins, jöfnuðu og komust yfir, 6:4. Eftir það var jafnt á flestum tölum en KA-menn þó oftast með frum- kvæðið. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður sigu KA-menn framúr, juku forskot sitt jafnt og þétt og höfðu tryggt sér 7 marka sigur þegar flautað var til leiks- loka. „Ég er ánægður með að hafa unnið leikinn. Við voru slappir framan af en náðum okkur upp í restina.. Mótið er rétt að byrja og það á ýmislegt eftir að laga í leik liðsins," sagði Erlingur Kristjáns- son, þjálfari KA. Evrópumeistaramót öldunga íj*olfi: Bæði a- og b- lið Islands höfimðu í 8. sæti Evrópumeistaramót öldunga í golfi fór fram í Austurríki 18.-20. september. Þátttöku- þjóðir voru 16 talsins og sendu allar tvö lið, a-lið sem keppti án forgjafar ojg b-lið í keppni með forgjöf. Islendingar voru meðal þátttakenda og var einn Guðjón E. Jónsson, GA, var meðal þátttakenda á Evrópumeistaramótinu. Akureyringur í hópnum, Guðjón E. Jónsson sem tók þátt í keppni með forgjöf. Islensku liðin höfnuðu bæði í 8. sæti. A-liðin kepptu í Zell am See á erfiðum og refsigjörnum velli. Sigurvegarar í þeirri keppni urðu ítalir og máttu þakka það fyrst og fremst kylfingi að nafni Tadini sem var reyndar talinn besti leikmaður mótsins. Hann sló hægt og mjúkt, ekki ósvipað Árna Katli Friðrikssyni að sögn Guðjóns, en fór þó létt með að „dræva“ 250 metra ef hann taldi þörf á. íslendingar léku vel fyrsta og annan daginn og voru um tíma í 4. sæti. Þeir áttu hins vegar erf- iðan dag í lokin og höfnuðu í 8. sæti sem verður að teljast vel við- unandi. B-liðin kepptu í Brandl Hof, stutt frá Zell. Völlurinn var sér- kennilegur þar sem m.a. var þar að finna stóra á og skóg sem gerðu mönnum erfitt fyrir. Aust- urríkismenn sigruðu og máttu þakka það jöfnu og vel spilandi liði, auk kunnugleika sínum á vellinunt. íslendingar léku vel fyrsta og þriðja dag en annar dag- urinn fór illa með þá og niður- staðan varð 8. sæti. í lokin var drifin upp keppni milli liðanna í Brandl Hof og leikinn höggleikur með forgjöf og marði b-liðið sigur. KA-menn léku ekki vel í þess- um leik. í fyrri hálfleik var eins og einhvern neista vantaði í leik liðsins. Þrátt fyrir að það hafi batnað töluvert í seinni hálfleik var liðið ekki sannfærandi, vörn- in opnaðist oft illa og sóknar- leikurinn var einhæfur og vand- ræðalegur. Það var fyrst og fremst stórleikur Hans Guð- mundssonar sem færði KA- mönnum stigin tvö en hann skor- aði 8 af 13 mörkum liðsins í seinni hálfleik. Framarar eru með ungt en efnilegt lið sem vantar greinilega reynslu. Dómarar voru Jón Hermanns- son og Guðmundur Sigurbjörns- son og voru þeir slakir. Mörk KA: Hans Guðmunds- son 11/1, Sigurpáll Á. Aðal- steinsson 5/2, Erlingur Kristjáns- son 4, Pétur Bjarnason 2, Andrés Magnússon 1, Guðmundur Guðmundsson 1. Mörk Fram: Jason Ólafsson 6/ 2, Páll Þórólfsson 5, Jón Geir Sævarsson 2, Gunnar Andrésson 2, Karl Karlsson 2. Handbolti 1. deild Víkingur 3 3-0-0 82:63 6 Valur 3 3-0-0 75:62 6 Stjarnan 3 3-0-0 71:58 6 KA 2 2-0-0 51:29 4 KR 2 2-0-0 53:46 4 ÍBV 2 1-0-1 46:45 2 Fram 3 0-1-2 58:67 1 Selfoss 3 0-1-2 53:75 1 FH 2 0-0-2 40:46 0 ÍR 3 0-0-3 67:77 0 Haukar 1 0-0-116:26 0 Grótta 3 0-0-3 62:80 0 Guðmundur með tvö Landslið íslands, skipað 18 ára leikmönnum og yngri, sigraði Austurríkismenn 3:0 í vináttu- landsleik á Hvolsvelli í gærdag. Guðmundur Benediktsson úr Þór var að venju áberandi og skoraði tvö af mörkum íslands en Kristinn Lárusson úr Stjörnunni það þriðja.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.