Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. september 1990 - DAGUR - 9 frá Svalbarði Peim fækkar nú ört, sem fyrst litu dagsins ljós á öldinni sem leið. Nýlega er fallinn frá einn úr þeirra hópi, Árni Pálsson frá Svalbarði, og hafði þá náð níræðisaldrinum. Kynni okkar Árna höfðu orðið nokkuð langvarandi, þó að leiðir okkar hafi ekki legið saman nema með köflum á ferlinum frá æsku til fullorðinsára. Árni var fæddur árið 1899. Hann var son- ur séra Páls Hjaltalín Jónssonar á Svalbarði í Þistilfirði, sem þar var þjónandi prestur og prófastur frá árinu 1899 til 1942. Hann var ætt- aður af Snæfellsnesi, en hlaut uppeldi og menntun í Reykjavík. Kona hans var Ingveldur Einars- dóttir og var hún uppalin í Reykjavík. Pau hjónin eignuðust fimm börn, Einar, Árna, Ást- hildi, Ingveldi og Pyrí Ragnheiði. Öll eru þau nú horfin frá jarðlíf- inu, og nú síðast Árni, sem var næstelstur þeirra. Ég man þau öll ungt fólk, og sá hópur var fallegur og mannvæn- legur, og mikil sveitaprýði. Prestshjónin á Svalbarði bjuggu við góðan efnahag, enda er Sval- barð talið með bestu bújörðum héraðsins. Húsakynni og innan- stokksmunir voru veglegri en almennt gerðist á þessum árum. Og einhvern veginn fannst manni einhver hátíðleiki ríkja í þessum húsakynnum, umfram það sem gerðist á öðrum bæjum, og það var vegna þess að þetta var kirkjustaður og presturinn hafði höfðinglegt yfirbragð í kirkju og utan, og prestskonan var heill- andi fögur kona. Það var föst venja eftir méssu á Svalbaf-ðir áð boðið var til stofu og fólk n'aut veitinga, og rseddi saman. Auk þess gerðist það til skemmtunar að Árni settist við mikið og vand- að orgel og lék lög sem fólkið kunni og gat sungið með, og síð- an önnur, sem vert var að læra, og að lokum æðri tónverk. Árni nam snemma orgelleik og gerðist ungur að árum kirkjuorg- anisti í Svalbarðskirkju og fórst það starf sérlega vel úr hendi. Hann gerði ekki víðreist að heiman, fór þó til trésmíðanáms og stundaði smíðar í tómstund- um og í eigin þarfir. Mér er Árni minnisstæður sem ungur maður. Hann var fríður sýnum, með fínlegt andlitsfail og þokkaríkt yfirbragð, og fas hans mótaðist af glaðværð og mann- legri hlýju. Hann var meðalmað- ur á hæð, fremur grannvaxinn og liðlegur í limaburði. Hann var léttur í máli, gæddur góðri kímni- gáfu, frjálslegur og hvers manns hugljúfi í kynningu og samskipt- um Yfirlæti eða sýndarmennska af nokkru tagi var honum svo fjar- lægt sem mest mátti verða. Það létta lundarfar, sem Árni var gæddur, ásamt hæfileikum til að umgangast fólk sem jafningja, átti þátt í að auka vinsæídir hans. Hann átti auðvelt með að sam- lagast smákotungafólkinu á Fjallabæjum, og sú vinátta sem hann batt við ýmsa þar entist ævilangt. Hann vildi taka þátt í erfiðleik- um nágrannanna, og einnig taka þátt í fagnaði þeirra á góðum stundum. Þar var hann oft ómiss- andi, því að auk þess sem hann var organisti lék hann manna HVÍTASUnnUKIfíKJAfí rtMwsnLit) Fimmtudaginn 27. september kl 20.30. Bænasamkoma. Akureyrarprcstakall. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag, fimmtudag kl. 17.15. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. □ St.íSt.: 59909277 VIII GÞ. Kristniboðsfélag kvenna, hefur fund laugard. 29.'sept. kl. 15.00 að Víði- lundi 20 hjá Ingileif. Skúli Svavarsson kristniboði, segir okkur frá starfinu hér heima og úti á heiðingjaakrinum. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Norðurlandi eystra verður með fyrirlestur í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju, fimmtudaginn 27. sept- ember kl. 20.30. Krabbameinssjúklingur segir sögu sína. Allir velkomnir. Stjórnin. best á harmoniku eins og þær gerðust á nítjándu öldinni, og var alltaf tilbúinn að taka þátt í hverju því er til skemmtunar mátti verða. Árið 1926 giftist Árni Frið- nýju, sem var dóttir öndvegis- hjónanna, Þórarins Guðnasonar og Kristlaugar Guðjónsdóttur í Kollavík í Þistilfirði. Þetta var mikið gæfuspor, því að Friðný var falleg og greind stúlka og auðug af mannkostum og r'eyndist Árna ómetanlegur og traustur lífsförunautur. Börn þeirra eru, Páll, búsettur á Raufarhöfn. Einar, búsettur á Akureyri, Ingveldur, búsett á Húsavík og Ragna búsett á Akureyri. Eina dóttur, Þórlaugu misstu þau á æskualdri. Árni og Friðný byrjuðu búskap á Hóli á Melrakkasléttu árið 1927 og bjuggu þar þangað til börn þeirra voru komin til fullorðins- ára. Árni lagði mikla alúð við búskap sinn og rak hann af nær- færni við búpening, og snyrti- mennsku í allri umgengni. Hann gerði mikið af því að auka túnræktina og byggði að nýju íbúðarhús og útihús að miklu leyti. Hér var eiginlega um nýbýli að ræða, enda byggt í nokkurri fjarlægð frá gamla bú- staðnum. Það nefndist Höfði. Árni var farinn að eldast og heilsu hans að hnigna er þau hjónin fluttu hingað til Akureyr- ar og eignuðust þar íbúð að Klapparstíg 3. Þar bjuggu þau þar til Friðný féll frá, og hann einn nokkur ár eftir það. Síðan fluttist hann til Húsavíkur og eignaðist þar gott athvarf hjá dóttur sinni, Ingveldi og tengdasyni, Pálma Héðins- syni. Þarna hafði hann rúmt um sig, undi sér vel og var góður heim að sækja. Hann var viðræðugóður, stál- minnugur og skýr í hugsun. Hann naut þess vel að ræða um liðna tímann, bernsku og æskuárin heima á Svalbarði, og um búskap sinn á manndómsárunum á Hóli. Hann var mikill dýravinur og kunni frá ntörgu að segja í sam- búðinni við sauðfé. og gripi, ekki síst hesíana. Frásögn hans var lifandi og nákvæm og einstaklingarnir, sem komu við sögu öðluðust sterkan og mikilvægan persónuleika svo það var ekki um að villast að þeir höfðu skipt máli á sinni tíð. En þægilegast og hugljúfast fannst mér þegar við ræddum um það fólk sem við þekktum báðir á sama árabili, og var nú horfið af sjónarsviðinu, hvað hann bar til þess hlýjan hug, rótgróna tryggð og vináttu sem var ævarandi til hinstu stundar. Árni var mikill gæfumaður. Þegar hann nú hefur lokið löngum lífsferli eru þeir vissulega margir, sem eiga hon- um þakkarskuld að gjalda. Ég er einn af þeim. Einar Kristjánsson. Safnahúsið Hvoll Dalvík opið á sunnudögum frá kl. 13-17. Náttúrugripasafnið á Akureyri, sími 22983. Opið sunnudaga frá kl. 13.00-16.00. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöldum stöðum: Hjá Ásrúnu Skarðshlíð 16a, Rammagerðinni Langholti 13, Judith Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð, versluninni Bókval, Bókabúð Jónasar, Akri Kaupangi, Blóma- húsinu Glerárgötu og hjá kirkju- verði Glerárkirkju. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vin- arþel við fráfall og jarðarför ÁRNA PÁLSSONAR frá Höfða við Raufarhöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Húsavíkur. Börn og tengdabörn. Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. Afmælisfagnaður íþróttafélagsins Þórs I tilefni 75 ára afmælis íþróttafélagsins Þórs þann 6. júní sl., veröur haldinn afmælisfagnaöur í Sjallanum laugardaginn 29. sept. nk. Húsiö opnað kl. 19.00 og borðhald hefst stundvís- lega kl. 20.00. Húsiö opnaö fyrir aöra en matargesti kl. 23.30. Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi til kl. 03.00. Forsala aðgöngumiöa og borðapantanir fer fram í Hamri í dag fimmtudag, frá kl. 18-20. Stjórnin. ------------------------------------------------------------------N AKUREYRARB/ÍR Leikfimi fyrir aldraða Leikfimi fyrir aldraða verður á þriðjudags- og fimmtudagsmorgna í vetur. í Húsi aldraðra kl. 09.00 f.h. og í nýja leikfimi- salnum í Þjónustumiðstöðinni Hlíð kl. 10.15. Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 2. október. Öldrunarþjónustan. Utkeyrsla - Lager Óskum eftir að ráða ungan, hressan mann til útkeyrslustarfa hjá heildverslun. Þarf aö geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð og upplýsingar aðeins á skrifstofunni. RÁÐNINGAR Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600 Starfskraftur óskast strax til þjónustustarfa. Vinnutími kl. 11-18 virka daga. Uppl. veittar aðeins á staðnum eftir kl. 18 virka daga. v/Ráöhústorg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.